Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. JULI 1999
17
I>V
Fréttir
Nátturuvernd ríkisins í vandræðum:
Milljónamæringur
á „ríkisbifreið"
- landvarsla aö verða tískustarf
„Við fengum fréttir af því að
einn af landvörðum okkar hefði
merkt einkabifreið sína Náttúru-
verndarstofnun og báðum hann
um að taka merkið af hið fyrsta,“
sagði Heimir Bjamason, skrifstofu-
stjóri Náttúruvemdar ríkisins, en
ferðamenn á Ströndum höfðu vak-
ið athygli á því að jeppi af dýmstu
gerð, merktur stofnuninni, væri í
einkaerindum í Norðurfirði. Bíll-
inn sem er af Land Cruiser-gerð,
100, V 8 að verðmæti um 7 milljón-
ir króna, væri hluti af hópferð Rot-
ary-manna sem höfðu látið ferja
sig yfir í Reykjafjörö nyrðri.
„Við vildum gjarnan eiga svona
góða jeppa en fjárhagurinn leyfir
það ekki. Umræddur landvörður
óskaði sérstaklega eftir að fá að
nota eigin bíl við landvörsluna og
fær hann greitt fyrir hvem ekinn
kílómetra. Á Ströndum var hann
hins vegar á ferðalagi í frítíma sín-
um en því miður ekki búinn að
fjarlægja merkið „ríkisbifreið“,“
sagði Heimir.
Hér er um landvörðinn í Vatns-
firði að ræða en hann heitir Garð-
ar Siggeirsson og rak um áratuga-
skeið Herragarðinn í Reykjavík.
Eftir að Garðar seldi fyrirtæiú sitt
hefur hann sinnt ýmsum hugðar-
efnum sínum, fjallgöngum í fjar-
lægum heimsálfum og nú síðast
landvörslu í Vatnsfirði og víðar.
„Við kaupum yfirleitt notaða
jeppa á vorin og seljum þá aftur á
haustin. Það borgar sig ekki fyrir
okkur að láta þá standa yfir vetur-
inn engum til gagns. Nú eigum við
fimm eða sex jeppa og þeir eru yf-
irleitt tíu ára gamlir ef ekki eldri,“
sagði-Heimir Bjarnason.
Landvarsla á vegum Náttúru-
verndar ríkisins er orðið eftirsótt
starf meðal margra sem hafa getið
sér gott orð á öðrum vettvangi.
Auk Garðars í Herragarðinum hef-
ur Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins og
faðir Bjarkar Guðmundsdótur,
fengist við landvörslu svo og
nokkrir þekktir veðurfréttamenn
og Jóhannes grínari svo einhverjir
séu nefndir. Föst laun landvarða
eru um 72 þúsund krónur en vegna
Jeppi landvarðarins í Rotary-ferð á Ströndum.
Græni herinn, Ólafsfirði:
Vel heppnuð innrás með
akureyrskum reynitrjám
DV; Ólafsfirði:
Græni herinn gerði innrás í Ólafs-
Qörð 17. júlí og má segja að hann hafi
gjörsamega lagt bæinn undir sig. Um
50 heimamenn gengu í herinn og tóku
til hendinni. Jakob Frímann Magnús-
son Stuðmaður stjórnaði hemum af
landsfrægri röggsemi. Langmest
vinna var lögð í svæði við knatt-
spymuvöllinn, svæði sem hefur verið
i mikilli órækt lengi. Það var allt slétt-
að og fegrað. Síðan á að sá í svæðið.
Tvö önnur svæði voru fegmð í til-
efni dagsins. Reynitré voru sett niður
í reit fyrir ofan tjörnina sem er í miðj-
um bænum og um þúsund birkihrísl-
ur í annan reit sem er fyrir utan bæ-
inn, við vatnið.
Það var Akureyrarbær sem gaf
Ólafsfirðingum 50 reynitré í tilefni 50
ára afmælis bæjarins.
Græni herinn gerði ýmislegt fleira
til að gleðja fólk. Þeir buðu hermönn-
um sínum í kaffi um miðjan dag og
grillveislu um kvöldmatarleytið. Allir
þátttakendur fengu viðurkenningu
fyrir framlag sitt. Síðar um kvöldið
var ball og var það að sögn kunnugra
eitt skemmtilegasta skrall síðari ára.
Veðrið lék við Ólafsfirðinga allan dag-
inn. Sólin skein glatt eftir nokkra
rigningardaga. -HJ
Svæðið á móti íþróttavellinum sléttað og fegrað.
DV-mynd Helgi
mikillar yfirvinnu og bakvakta
segir Heimir Bjamason að launin
séu í raun um 200 þúsund krónur á
mánuði. -EIR
100 ár
' ' * - ; 5.-" .-
■
lia upphafl
$ SUZUKI
-////
Suzuki Baleno GL, árg. '96, Daihatsu Sirion, árg. '98,
ek. 60 þús. km, bsk., 4 dyra. ek. 24 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 890 þús. Verð 950 þús.
Suzuki Baleno GLX 4x4,
árg. '96,
ek. 76 þús. km, bsk., 4 dyra.
Verð 990 þús.
Suzuki Swift GLX, árg. '98,
ek. aðeins 1 þús. km, bsk.,
5 dyra.
Verð 1040 þús.
Suzuki Swift GLX, árg. '97,
ek. 56 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 760 þús.
BMW 318IA, árg. '96,
ek. 51 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð var 1990 þús.,
nú aðeins 1830 þús.
Chevrolet S-10, árg. '89,
ek. 75 þús. km, ssk.
Verð 590 þús.
Daihatsu Ferosa DX, árg.
‘91, ek. 92 þús. km, bsk.,
3 dyra.
Verð 580 þús.
Ford Escort CLX, árg. ‘97,
ek. 31 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1050 þús.
Ford Escord CLX, árg. '96,
ek. 43 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 890 þús.
Ford Mondeo, árg. ‘98,
ek. 18 þús. km, bsk.
Verð 1750 þús.
Honda Accord EX, árg. '88,
ek. 153 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 370 þús.
Hyundai Accent, árg. '96,
ek. 29 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð var 750 þús.,
nú aðeins 650 þús.
Hyundai Elantra, árg. '94,
ek. 99 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 690 þús.
SUZUKIBÍLAR HR
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is