Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Qupperneq 30
* 50 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 Afmæli Baldur Vilhelmsson Séra Baldur Vilhelmsson, prófast- ur í Vatnsfirði, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Baldur fæddist á Hofsósi í Skaga- fjarðarsýslu. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1950, guöfræðiprófi frá HÍ 1956 og fyrsta stigs prófi í klass- ískri grísku frá HÍ 1981. Baldur var kennari i Skagaskóla- - . hverfi í Austur-Húnavatnssýslu 1951-52 og hefur verið sóknarprest- ur í Vatnsfirði frá 1956 og prófastur ísafjarðarprófastsdæmis frá 1988. Þá var hann kennari í Bama- og Héraðsskólanum í Reykjanesi 1956-68 og 1984-85, auk þess forfallakennari þar löngum, skólastjóri þar í forfóllum og próf- dómari í Héraðsskólanum í Reykja- nesi um árabil frá 1974. Baldur var formaður Ungmenna- félagsins Vísis 1963-74, i sáttanefnd og formaður barnavemdamefndar 1962-76, sat í hreppsnefnd Reykjar- fiarðarhrepps 1958-66 og 1968-86 og í sýslunefnd ísaficu-ðarsýslu 1966-68 ‘ og um nokkurt skeið frá 1978, var ,'v formaður skólanefndar Barnaskól- ? ans í Reykjanesi 1958-62 og 1966-74 I og í skólanefnd Grunnskólans í 5 Reykjanesi 1974-87, sat í skólanefnd % Héraðsskólans í Reykjanesi 1962-66 og 1978-82 og formaður hennar t 1965-66, hefur verið formaður Veiði- félags Vatnsfiarðardals frá stofnun 1971, í stjórn Æðarræktarfélags Norður-Isafiarðarsýslu frá 1964, var formaður bókasafns Vatnsfiarðar- sveitar 1957-76, bókasafns í Reykja- nesi frá stofnun 1977 og í stjórn Bókasafns Isafiarðar 1981-85. > Fjölskylda Baldur kvæntist 6.10. 1957 Ólafíu Salvarsdóttur, f. 12.8. 1931, húsfreyju. Hún er dóttir Salvars Ólafssonar, f. 4.7. 1888, d. 3.9. 1979, bónda í Reykjarfirði í Vatnsfiarðar- sveit, og k.h., Ragnheiðar Hákonar- dóttur, f. 16.8. 1901, ráðskonu við Reykjanesskóla. Böm Baldurs og Ólafíu eru Evlal- ía Sigríður Kristjánsdóttir (stjúp- dóttir) f. 1.6.1951, verslunarmaður í Reykjavík, gift Jóhanni Jónssyni, húsgagnsmið og framkvæmdastjóra; Hallfríður, f. 25.9. 1957, bókasafns- fræðingur, bókavörður við Þjóðarbókhlöðu; Ragnheiður, f. 6.10. 1958, stöðvarstjóri íslandspósts, gift Kristjáni B. Sigmundssyni vélstjóra; Þorvaldur, f. 5.11. 1959, bifreiðar- stjóri í Reykjavík; Stefán Oddur, f. 5.4. 1966, verslunarmaður í Reykjavík; Guðbrandur, f. 2. 5.1968, garðyrkjumaður í Kópavogi. Systkini Baldurs era Pálmi, skrif- stofumaður hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík; Ásdís, ekkja eftir Þórð Kristjánsson, yfirkennara í Reykjavík; Birgir, prentari í Reykjavík; Leifur, símvirki í Reykjavík, kvæntur Sæunni Eiríks- dóttur skrifstofumanni. Foreldrar Baldurs vom Vilhelm Erlendsson, f. 13.3. 1891, póst- og símstöðvarstjóri á Blönduósi, og k.h., Friðrika Hallfríður Páhnadótt- ir, f. 25.9. 1891. Ætt Föðursystir Baldurs var Guðrún, móðir Ólafs Hauks Árnasonar áfengisvarnaráðunautar. Önnur stöðum, Gottskálkssonar, hrepp- stjóra í Nýjabæ, Pálssonar, langafa Jóns Trausta og Benedikts, fóður Bjarna forsætisráðherra, föður Björns menntamálaráðherra. Móðir Stefáns var Kristín, systir Bjargar, ömmu Nonna og langömmu Jó- hannesar, föður Ásgeirs, forstjóra Innkaupastofnunar ríkisins. Önnur systir Kristínar var Guðný, móðir Kristjáns Fjallaskálds. Kristín var dóttir Sveins, hreppstjóra á Hall- bjarnarstöðum, Guðmundssonar, b. á Sandhólum, Guðmundssonar, b. í Keldunesi, Guðmundssonar, bróður Steinunnar, móður Stefáns Hall- dórssonar, pr. í Laufási. Móðir Sveins var Ingunn Pálsdóttir, b. á Víkingavatni, Amgrímssonar. Móð- ir Guðbjargar var Anna Guðmunds- dóttir, b. á Hallbjamarstöðum, Sveinssonar, bróður Kristínar. Móðursystir Baldurs var Þór- anna, amma Jónasar Kristjánssonar ritstjóra. Önnur móðursystir Bald- urs var Þorbjörg, amma Leifs Þórar- inssonar tónskálds. Móðurbróðir Baldurs er Jón, b. á Þingeyrum, fað- ir Guðrúnar arkitekts. Hallfríður var dóttir Pálma, pr. á Höfða, Þór- oddssonar, bróður Ingibjargar, móð- ur Jóns Loftssonar framkvæmda- stjóra, afa Jóns L. Árnasonar stór- meistara. Ingibjörg var einnig móð- ir Pálma, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, afa Más Gunnarssonar, starfsmannastjóra Flugleiða. Móðir Hallfríðar var Anna Jónsdóttir, pró- fasts á Reynistað, Hallssonar, afa Jóns Stefánssonar listmálara. Baldur verður að heiman. föðursystir Baldurs var Margrét, móðir Erlends Sigmundssonar, fyrrv. prófasts á Seyðisfirði. Þriðja föðursystir Baldurs var Anna, móð- ir Höskuldar, skrifstofustjóra LÍ, og Valgarðs, framkvæmdstjóri SÍF, Ólafssona. Fjórða föðursystir Bald- urs var Stefanía, amma Stefáns Skarphéðinssonar, sýslumanns á Patreksfirði. Vilhelm var sonur Er- lends, verslunarstjóra á Hofsósi, bróður Vilhelmínu, ömmu Magnús- ar Hallgrímssonar verkfræðings. Erlendur var sonur Páls, b. á Hofi í Hjaltadal, Erlendssonar, bróður Guðrúnar, ömmu Friðriks Friðriks- sonar æskulýðsleiðtoga. Bróðir Páls var Jónas, afi Guðrúnar, móður Björns á Löngumýri og ömmu Páls Péturssonar og Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar. Móðir Páls var Sigríður Guðmundsdóttir, b. í Sörlatungu, Ólafssonar, skálds í Þverbrekku í Öxnadal, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Sigríður Þorláksdóttir, b. á Ásgeirsbrekku, Jónssonar, ættföður Ásgeirsbrekku- ættarinnar. Móðir Erlends var Guð- rún, dóttir Magnúsar, b. á Hjalta- stöðum í Blönduhlíð, Þorsteinsson- ar og Hólmfríðar, systur Guðrúnar, ömmu Bjöms Pálssonar, fyrsta stór- templars. Hólmfríður var dóttir Gamalíels, pr. á Myrká, Þorleifsson- ar og Hólmfríðar Stefánsdóttur, pr. í Laufási, Halldórssonar, langafa Bjöms, afa Björns Stefánssonar er- indreka. Móðir Hólmfriðar var Þur- íður Jónsdóttir, systir Þorgríms, langafa Gríms Thomsen. Móðir Vilhelms var Guðbjörg Stefánsdóttir, b. á Fjöllum í Keldu- hverfi, Ólafssonar, b. á Auðbjargar- Kristín S. Jónsdóttir Kristín Schmidhauser Jónsdóttir, kennari og húsmóðir, Ægisíðu 60, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Kristín fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Kópavoginum. Hún lauk kennaraprófi frá KÍ 1959, sótti viðbótamám við Handíða- og mynd- listarskóla íslands í almennum vefnaði og stundaði framhaldsnám í Svíþjóð í vefnaðar- og efnisfræði. Auk þess sótti hún ýmis námskeið tengd starfi sínu sem hannyrða- kennari í Danmörku, Svíþjóð og Sviss. Kristín var kennari við Hlíða- skóla 1959-68 og síðar við Öldusels- skóla og Hagaskóla, kenndi á kvöld- námskeiðum við Námsflokka Reykjavíkur, Tómstundaskólann og ýmsar greinar við Heimilisiðnaðar- skóla íslands. Kristín hefur haft mikinn áhuga á íslenskri textílvinnu, einkum út- saumi, þráðagerð, prjóni og knipli, með það markmið að viðhalda verk- þekkingu í þessum þáttum með fræðslu og sjálfstæðri vinnu. Hún starfaði að textílhönnun um árabil, einkum fyrir handprjón og starfar sjálfstætt við ýmsa textílvinnu, kniplar m.a. kniplinga á íslenska þjóðbúninga. Kristín var búsett í Sviss um skeið og var þar félagi í hópi starf- andi textíllistakvenna. Hún hefur tekið þátt í samsýningum, hér á landi og erlendis, og haldið eftirtald- ar einkasýningar í Stöðlakoti: Flík- ur og form, 1988;Kniplað úr togi, 1991; Útsaumur, 1997. Kristín sat í stjóm Handavinnu- kennarafélags íslands 1962-65, sat í stjóm Heimilisiðnaðarfélags Islands 1977-81 og tók þar þátt í ýmsum nefndarstörfum, situr í ritnefnd Hugar og handar, rits félagsins. Hún hefur skrifað ýmsar greinar í tímarit og er höfundur bókarinnar Tvíbandaðir vettlingar, útg. af Heimilisiðnaðarfé- lagi íslands 1981. Fjölskylda Kristín giftist 22.5.1968 Ulrich Schmidhauser, f. 7.11. 1941, verkfræðingi. Hann er sonur Jules Schmidhauser garðyrkju- meistara og Emmu Schmidhauser Bretseher húsmóður en þau eru bæði látin. Börn Kristínar og Ulrich eru Guð- rún Þórann Schmidhauser, f. 16.6. 1968, meinatæknir en sambýlismað- ur hennar Róbert Schraban, f. 1967, sameindalíffræðingur og er sonur hennar Friðrik Jóhann Schraban, f. 2.3. 1998; Anton Örn Scmidhauser, f. Kristín Schmidhauser Jónsdóttir. 6.8.1969, nemi við Tækni- skóla íslands en sambýl- iskona hans er Kristrún Þórkelsdóttir, f. 1971, B.Sc. í hjúkrunarfræði, en dóttir þeirra er Emma Rún Antonsdóttir, f. 14.7. 1994. Systkini Kristínar eru Unnar Jónsson, f. 13.5. 1938, byggingatæknifræð- ingur og bankastarfsmað- ur, búsettur í Hafnarfirði; Áslaug Jónsdóttir, f. 6.9. 1941, forvörður við Þjóð- skjalasafn íslands, búsett í Reykjavík; Ómar Víðir Jónsson, f. 10.7. 1944, d. 10.8. 1995, bifvélavirki og bifreiðaskoðunarmaður. Kristín og Ulrich taka á móti gest- um, ættingjum og vinum á heimili sínu, Ægisíðu 60, á afmælisdaginn frá kl. 19.30. Sólveig Ólöf Illugadóttir Sólveig Ólöf Ulugadótt- ir, hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona, Skútahrauni 14 Reykja- hlíð, er sextug í dag. Starfsferill Sólveig tók gagnfræða- próf frá Héraðsskólanum á Laugum, stundaði nám í Orgelskóla Þjóðkirkj- unnar 1959, var í Lýðhá- --Jskóla í Svíþjóð 1960-61 og stundaði þá jafnframt söngnám, útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla íslands 1965 og tók meirapróf bifreiðastjóra 1980. Sólveig stundaði verslunarstörf hjá Kaupfélagi Þingeyinga í Reykja- hlíð 1952-62 og var þar verslunar- ; ^stjóri 1961-62. Hún stundaði hjúkr- un á árunum 1965-96, var heilsugæsluhjúkrunar- fræðingur í Reykjahlíð í ellefu ár. Sólveig sat í almanna- vamanefnd Skútustaða- hrepps, m.a. er Kröflueld- ar stóðu sem hæst, sat í stjóm Ungmennafélags- ins Mývetnings, íþróttafé- lagsins Eilífs og Kirkjukórs Reykjahlíðar- sóknar. Sólveig sótti námskeið í myndlist bæði hérlendis og erlendis og hefur lagt stund á myndlist allt frá 1985. Sól- veig hefur tekið þátt í samsýningum og hefur haldið ellefu einkasýning- ar. Um þessar mundir sýnir hún í veitingahúsinu Selinu á Skútustöð- um í Mývatnssveit. Fjölskylda Eiginmaður Sólveigar er Birkir Fanndal Haraldsson, f. 9.11.1940, yf- irvélfræðingur við Kröfluvirkjun. Hann er sonur Haralds Bjömsson- ar, f. 22.8. 1910, málarameistara á Húasvík, og k.h., Mariu Aðalbjörns- dóttur, f. 22.12. 1919, húsmóður. Böm Sólveigar og Birkis era Erla Fanndal, f. 18.3. 1967, ferðamála- fræðingur, búsett í Moss í Noregi, en maður hennar er Audun Petter- sen, f. 1969, frá Fredrikstad í Noregi, ferðamálaráðgjafi og eiga þau tvær dætur, Idu f. 1996, og óskírða, f. 1999; Sturla Fémndal, f. 7.5. 1968, véla- verkfræðingur, búsettur í Reykja- vík, en kona hans er Harpa Þorláks- dóttir, f. 1973, sjávarútvegsfræðing- ur og eiga þau einn son, Birki Fann- dal, f. 1999; Ófeigur Fanndal, f. 29.3. 1969, vélaverkfræðingur, búsettur í Kópavogi, en kona hans er Hulda Björg Einarsdóttir, f. 1968, viö- skiptafræðingur og er sonur Huldu Kristmundur Sigurðsson, f. 1984; 111- ugi Fanndal, f. 5.5. 1974, læknanemi við HÍ, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Hjördís Sunna Skírn- isdóttir, f. 1977, læknanemi við HÍ; María Fanndal, f. 25.7.1975, stúdent, búsett í New York, en maður henn- ar er Rashaan Edward Leex, f. 1973, vélaverkfræðingur og eiga eina dóttur, Athenu Neve, f. 1997. Foreldrar Sólveigar: Illugi Jónsson, f. 6.11. 1909, d. 19.3. 1989, bóndi og flutningabifreiðastjóri á Bjargi í Skútustaðahreppi, og k.h., Bára Sigfúsdóttir, f. 5.10. 1915, húsmóðir. Sólveig heldur upp á tímamótin með einkasamkvæmi. Sólveig Ólöf lllugadóttir. Til hamingju með afmælið 21. júlí 85 ára Guðlaugur Guðmundsson, Barmahlíð 54, Reykjavik. 80 ára Fanney Sigurlaugsdóttir, Strandgötu 37 B, Hafnarfirði. Ólöf Björgólfsdóttir, Miðstræti 10, Neskaupstað. 75 ára Jóhannes Páll Halldórsson, Noröurgötu 41 A, Akureyri. 70 ára Vilborg Þorgeirsdóttir, Háaleitisbraut 119, Reykjavík. 60 ára Anna S. Snæbjörnsdóttir, Rauðagerði 16, Reykjavík. Guðmundur Ágústsson, Skólastíg 26, Stykkishólmi. Ingi Bjarnason, Garðavegi 15, Hvammstanga. Kristveig Baldursdóttir, Vættaborgum 8, Reykjavík. Skúli Grétar Guðnason, Sólbraut 17, Seltjarnamesi. 50 ára Birgir Guðmimdsson, Jórutúni 6, Selfossi. Guðrún Kristinsdóttir, Dvergholti 25, Hafnarfirði. Hrefna Sigurðardóttir, Heiðarbóli 1, Keflavík. Kristján Auðunsson, Fífuseli 24, Reykjavík. Magnús Sigurðsson, Jaðarsbraut 11, Akranesi. Sóley Ingólfsdóttir, Álagranda 8, Reykjavík. Þorbjörg R. Óskarsdóttir, Heiðarbraut 18, Keflavík. 40 ára Einar Gylfi Haraldsson, Hagamel 41, Reykjavík. Filippus Þór Einarsson, Lerkilundi 9, Akureyri. Gerður Magnúsdóttir, Skipholti 55, Reykjavík. Guðrún Agnes Einarsdóttir, Neðribraut 8, Reykjalundi, Mosfellsbæ. Magnús Birgisson, Ölduslóð 27, Hafharfirði. Magnús Einar Finnsson, Eikarlundi 16, Akureyri. Margrét Ingibergsdóttir, Norðurvöllum 38, Keflavík. María Hákonardóttir, Brekkubarði 3, Eskifirði. Ragnheiður K. Nielsen, Brekkuhjalla 1, Kópavogi. Rúnar Þórarinsson, Reykjavíkurvegi 28, Reykjavík. Stefán Hjaltalín Jóhannesson, Hvammabraut 10, Hafnarfirði. Stefán Magnússon, Hellisbraut 32, Reykhólahreppi. Svanborg Gústafsdóttir, Fannafold 175, Reykjavík. Áskrifendur fálO% aukaafslátt af smáauglýsingum DV o\W milli hirr,in Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.