Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1999, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1999, Page 33
10'V MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 1999 45 Valgerður Bergsdóttir sýnir í Gall- eríi Sævars Karls. Blýantsteikning- ar og vefiíkingar í Galleríi Sævars Karls í Banka- stræti heldur Valgerður Bergs- dóttir sýningu. Valgerður er löngu vel kunn af verkum sínum sem myndlistarmaður. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum á íslandi og erlendis, einnig hefur hún hlot- ið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og störf að málefn- um listamanna. Verk hennar má finna á helstu söfnum. Sýningar Valgerður var skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík árin 1994 til 1997 en hefur síðan kennt við skólann og einnig við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands. Valgerður sýndi í List- munahúsinu 1993. Á sýningunni núna, sem er framhald sýningar hennar í Listmunahúsinu, sýnir hún stórar blýantsteikningar (210x150 og 180x160). í fjórum þeirra fæst hún við veflíkingar á sinn sérstaka hátt. Tvö verkanna eru án titils, eru þau mjög per- sónuleg. Ofinn er langur refill sem skipt er í styttri borða eða bönd eins og þegar um spjaldvefn- að er að ræða. Sýning Valgerðar Bergsdóttur stendur allan júlí- mánuð. Henni lýkur 31. júlí. Leikið af fingram fram á Sólon Djammsession verður haldið á Sóloni íslandusi í kvöld. Fram munu koma saxófónleikararnir Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson, Haukur með trió sitt sem auk hans skipa dönsku djassmennirnir Mort- en Lundsby kontrabassaleikari og Stefan Pasborg trommuleikari en þeir hafa ásamt Hauki, sem búsett- ur er í Danmörku, verið hér undan- farna daga og leikið á höfuðborgar- svæðinu og á Akureyri við góðar undirtektir. Er þetta síðasta uppá- koma tríósins að sinni. Haukur og Ólafur eru báðir með- Skemmtanir al ungra og upprennandi djassleik- ara okkar og þeir verða ekki einu íslensku spilararnir sem stíga á svið því eins og nafnið djamm- session gefur til kynna munu góðir gestir koma við sögu og leika af fmgrum fram fram eftir kvöldi. Haukur Gröndal er annar tveggja saxófónleikara sem djamma á Sóloni ís- landusi í kvöld. Veðrið í dag Hlýtt aust- anlands í dag er gert ráð fyrir vestan og suðvestan 8-10 m/s en 13-18 norðan til á landinu. Dálítil súld með köfl- um verður vestan- og suðvestan- lands og hiti 10-14 stig. Bjartviðri verður víðast annars staðar og hlýtt i veðri. Víða austanlands verður hiti um eða yflr 20 stig. Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri léttskýjað 18 Bolungarvík alskýjað 13 Egilsstaðir 19 Kirkjubæjarkl. léttskýjað 17 Keflavíkurflv. súld 10 Raufarhöfn hálfskýjað 15 Reykjavík súld 10 Stórhöfði þokumóða 10 Bergen skýjað 12 Helsinki léttskýjað 22 Kaupmhöfn hálfskýjað 21 Ósló úrkoma í grennd 19 Stokkhólmur 21 Þórshöfn léttskýjað 13 Þrándheimur skúr á síð. kls. 12 Algarve léttskýjað 22 Amsterdam hálfskýjað 25 Berlín léttskýjað 27 Chicago léttskýjað 27 Dublin skýjað 15 Halifax skúr á síð. kls. 17 Frankfurt hálfskýjað 25 Hamborg skýjað 25 Jan Mayen þoka í grennd 7 London hálfskýjað 26 Lúxemborg skýjað 25 Mallorca léttskýjað 28 Montreal 20 Narssarssuaq rigning og súld 8 New York hálfskýjað 28 Orlando þokumóða 26 París léttskýjað 28 Róm skýjað 26 Vín skýjað 24 Washington léttskýjað 23 Winnipeg þoka 23 Gaukur á Stöng: Sögustund fuílorðinna Gaukur á Stöng er sem fyrr vett- vangur lifandi flutnings alla daga vikunnar og er víst að allir geta gengið þar að fjölbreyttri popptónlist enda hafa eigendur staðarins verið duglegir að kynna okkur það besta í ýmsum tónlistarstefnum. Gaukur á Stöng var opnaður í nóvember 1983 og var staðurinn fyrsta bjórkráin á íslandi. Það voru fimm ungir náms- menn er höfðu kynnst bjórdrykkju og að einhverju leyti bjórmenningu á námsárum sínum í Þýskalandi sem stofnuðu staðinn. Er heim var komið var frekar fátækleg flóran í veitinga- húsamenningu landans og að auki óleyfilegt að selja áfengan mjöð að hætti víkinga til forna. Gaukur á Stöng varð sem sé til upp úr vanga- veltum fimmmenninganna og vanda- málið með mjöðinn leyst þannig að blandað var sterkum guðaveigum út í pilsner samkvæmt ákveðnum for- Bjarni Tryggva skemmtir gestum á Gauknum í kvöld. múlum (sem enn þann dag í dag er haldið leyndum). Það var eins og við manninn mælt: staðurinn varð strax vinsælasti skemmtistaðurinn í Reykjavík og fimmtán árum síðar er Gaukurinn enn vettvangur margra sem leggja leið sína í miðbæinn. Skemmtanir í kvöld skemmtir á Gauknum sá kunni trúbador, Bjarni Tryggva. Hann skemmtir gestum eins og hon- um er einum lagið á sinn fyndna, dónalega hátt og má segja að hann haldi uppi sögustund fyrir full- orðna. Bjarni Tryggva hefur lengi verið í eldlínunni og ferðast vítt og breitt með gítarinn í farangrinum. Annað kvöld er svo komið að hin- um vinsælu hljómsveitum Súrefni og Quarashi. Dagmar Silja Litla telpan á mynd- inni, sem fengið hefur nafnið Dagmar Silja, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 24. apríl síðastliðinn. Við fæðingu Barn dagsins var hún 3925 grömm og 51 sentímetri. Foreldrar hennar eru Kristjana Helga Harðardóttir og Helgi Ragnar Guðmunds- son og er Dagmar Silja þeirra fyrsta barn. Fjöl- skyldan býr i Hafnar- firði. * Freddie Prinze jr. hlýðir skipunum yfirmanns síns. Wing Commander Sam-bíóin sýna framtíðarmynd- ina Wing Commander. Árið er 2564, óþekktur og grimmur þjóð- flokkur utan úr geimnum, sem jarðarbúar kalla The Kilrathi, hef- ur komist yfir leyniupplýsingar er varða varnir jarðarinnar og hyggjast notfæra sér þær til að sigra jarðarbúa og setjast að á jörðinni. Það hvílir því þung ábyrgð á ung- ////////; Kvikmyndir >jjjjjjjj inn flugmönnum sem eru þeir einu sem standa í vegi fyrir aö innrásin heppnist. Wing Commander er byggð á þekktum tölvuleik sem notið hefur mikilla vinsælda og er eftir Chris Roberts en hann leikstýrir einnig mynd- inni. í hlutverkum flugmannanna eru Freddie Prinze Jr., Matthew Lillard og breska leikkonan Saffron Burrows. Þeim til halds og traust eru David Warner, Tchéky Karyo, David Suchet og Júrgen Prochnow. Nýjar myndir í kvikmynda- húsum. Bíóhöllin: Wild Wild West Saga-Bíó: The Mummy Bióborgin: Matrix Háskólabíó: Óleðli) Háskólabíó: Fuckin Ámál Kringlubíó: Wing Commander Laugarásbíó: Austin Powers Regnboginn: Office Space Stjörnubíó: Cube Barn dagsins I dálkinum Barn dagsins eru birtar myndir af ungbörnum. Þeim sem hafa hug á að fá birta mynd er bent á að senda hana í pósti eða koma með myndina, ásamt upplýsingum, á ritstjórn DV, Þverholti 11, merkta Barn dagsins. Ekki er síðra ef bamið á myndinni er í fangi systur, bróður eða foreldra. Myndir eru endur- sendar ef óskað er. Gengið Almennt gengi LÍ 23. 07. 1999 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollqenqi Dollar 73,810 74,190 74,320 Pund 116,980 117,580 117,600 Kan. dollar 48,940 49,250 50,740 Dönsk kr. 10,4100 10,4670 10,3860 Norsk kr 9,3730 9,4250 9,4890 Sænsk kr. 8,8160 8,8640 8,8190 Fi. mark 13,0266 13,1049 12,9856 Fra. franki 11,8076 11,8786 11,7704 Belg.franki 1,9200 1,9315 1,9139 « Sviss. franki 48,2200 48,4900 48,2800 Holl. gyllini 35,1466 35,3578 35,0359 Þýskt mark 39,6010 39,8390 39,4763 (t. líra 0,040000 0,04024 0,039870 Aust. sch. 5,6287 5,6625 5,6110 Port. escudo 0,3863 0,3887 0,3851 Spá. peseti 0,4655 0,4683 0,4640 Jap. yen 0,633200 0,63700 0,613200 írskt pund 98,344 98,935 98,035 SDR 99,700000 100,30000 99,470000 ECU 77,4500 77,9200 77,2100 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.