Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1999, Side 14
14
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
Sport
nrrffir
oka
Sex lió eru nú eftir í Intertoto
keppninni og næsta umferð mun
skera úr um það hvaða þtjú lið
komast áfram í UEFA-bikarinn næsta
vetur.
West Ham vann hollenska liðið
Heerenveen, 1-0, líkt og í fyrri
leiknum og skoraöi Paolo Wanchope
sigurmarkið en West Ham mætir
franska liðinu Metz í næstu umferð.
Þá tekur Juventus á móti Rennes og
Montpellier spilar við Hamburger.
Fyrri leikirnir fara fram 10. ágúst en
þeir seinni 24. ágúst.
íslenskum þátttakendum á HM hefur
fjölgað því FEIF, Félag eigenda og
vina íslenska hestsins, bauð Hauki
Bjarnsyni frá Skáney aö koma og
sýna á laugardag og sunnudag með
öðrum unglingum. Haukur ríður
hryssunni Ösk frá Brún, ekki þeirri
einu sönnu heldur annarri sem er í
eigu Ola Reber. -ÓÓJ/-EJ
Knattspyrna í Grindavík:
„Enginn flótti
frá okkur"
- segir formaðurinn
Vegna fréttar DV um að níu
leikmenn.hafi yfirgefið herbúðir
Grindvíkinga í Lands-
símadeildinni má kannski draga
þá ályktun að þeir hafi allir farið
vegna óánægju með þjálfarann,
eða eitthvað annað í starfi
deildarinnar. Sem betur fer er því
ekki þannig varið. Þrír piltanna,
Leifur Guðjónsson, Ámi Stefán
Bjömsson og Ray Anthony
Jónsson, fóra beinlínis vegna
óánægju með val á liðinu en hinir
sex af ýmsum ástæðum sem eiga
ekkert skylt við óánægju.
Að sögn Bjama Andréssonar,
formctnns knattspymudeildar
Grindvikinga, hafa fimm þeirra
leikmanna sem hafa farið frá
félaginu i sumar átt við
langvarandi meiðsli að stríða og
því vonlítið fyrir þá að komast í
liðið en einn leikmaður hætti
strax í fyrrahaust. „Það er því
enginn flótti brostinn á frá
félaginu, síður en svo, þrír piltar
vildu fara og fengu það í fúllri sátt
við stjómina. Hitt er allt annað
mál að verkefni vantar sárlega
fyrir leikmennina þegar þeir
koma upp úr öðrum flokki. Það
mál verður KSÍ að fara að
hugleiða í fúllri alvöra. Það er
góður hugur í okkur og við
stöndum viö bakið á þjálfaranum
og leikmönnum og við
Grindvíkingar þjöppum okkur vel
saman á lokasprettinum," sagði
formaðurinn.
Aö sögn Hjálmars
Hallgrímssonar, fyrirliða
Grindvíkinga, er liðsandinn í
góðu lagi og menn ákveönir í að
standa sig í þeirri jöfnu og
spennandi baráttu sem fram.
undan er. -bb
Heimsleikar hestamanna í Þýskalandi:
Yfirtaka
- íslendinganna í fjórganginum í keppni gærdagsins
DV, Þýskalandi:
Enn eltir óheppni ís-
lendinga því Prins frá
Hörgshóli, hestur Sigurð-
ar Sigurðarsonar, tók sig
tii og stökk skyndilega úr
hringnum er Sigurður var
að hefja keppn í fimm-
gangi á heimsmeistara-
mótinu í Þýskalandi. Sig-
urður taldi að bam hefði
hlaupiö skyndilega að
keppnisvellinum og ís-
lendingar fóru aö safna
saman gögnum þvi til
sönnunar og fundu mynd-
bönd sem studdu þá kenn-
ingu. í yfirdómi vora rök
íslendinga ekki tekin til
greina og Sigurður var úr
leik.
Auðunn Kristjánsson
var eini íslendingurinn
sem komst í A-úrslit í
fimmgangi og er í 2. sæti á
Baldri frá Bakka með
Jens Fúchtenschnieder á
Reyk frá Kringlu en efstur
er Karly Zingsheim á
Fána frá Hafsteinsstöðum.
Sigurbjörn Bárðarson er í
8. sæti á Gordon frá Stóru-
Ásgeirsá og Guðni Jóns-
son (Svíþjóð) sjöundi á
Álmi frá Lækjamóti.
Eftir vonbrigði mið-
vikudagsins þar sem tveir
íslenskir knapar voru
dæmdir úr leik tóku ís-
lensku knapamir heldur
betur við sér í fjórgangi í
gær og hreinlega eignuðu
sér A-úrslitakeppnina því
þar verða þrír íslenskir
knapar sem keppa fyrir ís-
land og fjórði íslendingur-
inn sem keppir fyrir Sví-
þjóð.
Rúna Einarsdóttir, sem
kom inn í landsliðið með
Snerpu frá Dalsmynni í
stað Einars Ö. Magnús-
sonar með Glampa, setti
stefnuna og komst í efsta
sætið snemma dags og
varð að lokum í 8. sæti.
Hún getur því unnið sig
upp í A-úrslit á laugardag-
inn og þá eiga íslendingar
Qóra knapa af sjö í A-úr-
slitum. Olil Amble tók við
efsta sætinu af Rúnu á
Kjarki frá Homi og loks
kom Ásgeir S. Herberts-
son og skaust upp fyrir
Olil og á toppinn og þar er
hann enn, Olil er í 2. sæti,
Unn Krogen frá Noregi í
þriðja sæti á Hruna frá
Snartarstöðum, Irene
Reber frá Þýskalandi
ijórða á Kappa frá Álfta-
gerði og jafnir í firnmta
sæti heimsmeistarinn í
fjórgangi, Styrmir Árna-
son, á Boða en hann kepp-
ir fyrir ísland og Sveinn
Hauksson sem keppir fyr-
ir Svíþjóð á Hrímni frá
Ödmárden,
Það vakti ekki síður at-
hygli að Jolly Schrenk
og Ófeigur komust
ekki einu sinni í B-úr-
slit en íslenskir knapar
töldu að þar væri hvað
erfiðastan hjallann að
klífa.
Íslenskum gullum
mun hugsanlega fjölga
því hryssan Jörp frá
Schnorrenberg, fimm
vetra, var dæmd úr
leik því knapi hennar
skipti tvisvar sinnum
um hlífar á meðan á
keppni stóð. Ásrún frá
Ey, sem Erlingur Er-
lingsson sýnir, var
næstefst og stendur
best að vigi í keppn-
inni um gullið.
„Ég gerði mistök í sýn-
ingunni með Ásrúnu en
mun bæta það á yfirlits-
sýningunni," segir Erling-
ur.
í dag hefst forkeppni í
tölti og tveir fyrstu sprett-
imir í 250 metra skeiði. Is-
lendingar hafa fundið
bragð af blóði og setja
stefnuna á toppinn í báð-
um greinum. -EJ
„Þjóðverjamir eru allir jákvæð-
ir og hjálpa mér jafnmikið og
knöpunum í þýska landsliðinu,"
segir Rúna Einarsdóttir, sem kepp-
ir fyrir ísland, en hún er í þeirri
sérstöku aðstöðu að vera gift
Karly Zingsheim, knapa í þýska
landsliðinu. Saman eiga þau dótt-
urina Önnu. Samkvæmt þýskum
reglum getur Rúna ekki keppt fyr-
ir Þýskaland en hún var valin í
landsliðið af Sigurði Sæmundss-
syni sem varamaður fyrir fjór-
gangsvænginn.
„Sigurður sagði mér strax á
laugardaginn að ég yrði með en þá
var ljóst að Glampi Einars Ö.
Magnússonar hafði helst er hann
rann til á grasi. Þetta er ekkert
vandamál hjá okkur Karly. Við
keppum ekki í sömu greinum en
hjálpumst að. Reyndar þarf Karly
ekki mikla hjálp, hann kann þetta
allt, en það er frekar að hann
hjálpi mér.
Ég hef verið að keppa á Snerpu
í sumar og gengið mjög vel. Ég
vann mót á búgarði okkar Karly
og var efst í tölti á þýska meistara-
mótinu en skeifa fór undan
Snerpu í úrslitum og hún var úr
leik,“
segir Rúna.
Geymt en ekki gleymt
- segir Sigurður Sæmundsson
DV, Þýskalandi:
„Við getum sagt að það séu mannleg mistök að skila blaði með 16
æfingum," segir Sigurður Sæmundsson landsliðsþjálfari en það
hefur vakiö athygli að Qlil Amble var dæmd úr leik áður en hún hóf
keppni fyrir að skila inn of mörgum æfingum í fimi.
„Á íslandi eru æfingarnar 16 til 20 en 10-14 samkvæmt FIBO-
reglunum. En þaö eru svínatökin, að sitja með blöðin frá því á
mánudegi og koma svo rétt fyrir keppni og segja: „Ha, ha, við
náðum þér út,“ sem eru geymd en ekki gleymd. Þetta atvik er
skömm fyrir dómarastéttina. Yfirdómari kom og bað Olil afsökunar
en það nær ekki langt,“ segir Sigurður. -E J
Ekkert vandamál
DV, Þýskalandi:
Rúna Einarsdóttir-Zingsheim, Karly Zingsheim,
dóttirin Anna og hryssan Snerpa frá Daismynni.
DV-mynd E.J.
Franski landsliðsmaðurinn Youri
Djorkaejf, sem
leikið hefur með
italska liðinu Inter
Milan, gerði í gær 3
ára samning við
þýska A-deildarfé-
lagið Kaisers-
lautem.
Manchester Cúy-klúbburinn
mun koma saman eftir nokkurt
hlé á Ölveri á sunnudaginn kl.
12.00. Formaður klúbbsins er hinn
kunni markvörður KR-inga,
Gunnleifur Gunnleifsson, og fást
nánari upplýsingar hjá honum í
síma 869-7007. -ÍBE
BlancS i noka
Afmælistap
-Þróttara gegn Stjörnunni í gær
1- 0 Boban Ristic (24.)
2- 0 Ásgeir Ásgeirsson (29.)
3- 0 Boban Ristic (39.)
3-1 Hreinn Hringsson (82., víti)
Stjömumenn gáfu Þrótturum af-
mælisgjöfina fyrir leikinn en ekki í
honum sjálfum þegar þeir unnu 3-1
í 1. deildinni í gær. Stjömumenn
gáfu Þrótturam 50 rauðar rósir fyr-
ir leik, eina fyrir hvert ár í sögu
Þróttara, en Þróttur átti hálfrar ald-
ar afmæli í gær, 5. ágúst.
Færin léttu á sér standa í þessum
leik og hann var frekar daufur af
þeim orsökum. Stjömumenn skor-
uðu öll sin mörk í fyrri hálfleik og
seinni hálfleikur var frekar dapur
hjá heimamönnum en samt náðu
slappir gestir ekki að breyta örlög-
um sínum. Þau tækifæri sem þeir
náðu að skapa sér stoppuðu á
sterkri vöm Stjörnunnar eða Rögn-
valdi Johnsen, öruggum markverði
heimamanna.
Það þarf að gera eitthvað róttækt
í herbúðum Þróttar því ekki hefur
leikur þeirra skánað frá upphafi
leiktiðar. Liðið er aðeins fjórum
stigum frá botni deildarinnar og
eiga öll liðin fyrir neðan Þrótt leik
til góða en umferðin klárast í kvöld
og á morgun.
Stjarnan þarf að ná jafnvægi í
leik sínum, ef hún nær því er góður
möguleiki að endurvinna úrvals-
deildarsæti á ný. Hún er einu stigi á
eftir ÍR í þriðja sæti deildarinnar.
Maður leiksins: Dragan Stoja-
novic, Stjörnunni. -BB