Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1999, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Vinnulyftueigandi vinnur mál gegn lögreglunni:
Má leika sér með
númeraplötur
„Lögreglan var alltaf að stöðva
mig á jeppanum og benda mér á að
ég mætti ekki leika mér svona með
númeraplötumar. Þeir skipuðu
mér upp í Bifreiðaeftirlit í lögreglu-
fylgd og kölluðu þar til alla yfir-
menn mér til höfuðs en ég neitaði
alltaf að breyta merkingunni á bíln-
um,“ sagði Eyvindur Jóhannsson
vinnulyftueigandi sem keypti sér
bílnúmer á Musso-jeppann sinn þar
sem á stóð LYFTUR. Fyrir ofan
númerið festi hann annað heima-
gert númer með sömu lögun og
svipuðu letri þar sem á stóð:
VINNU. Þar með var hann kominn
með nafn fyrirtækis síns skráð á
jeppann, á tveimur hæðum í fullri
stærð, þó svo aðeins neðri helming-
urinn væri skráningarnúmer bíls-
ins.
„Yfirmaðurinn hjá Bifreiðaeftir-
litinu fletti upp í öllum skrám til að
þóknast lögreglunni og fmna ein-
hvern þann lagabókstaf sem bann-
aði mér að merkja bílinn minn með
þessum hætti en allt kom fyrir
ekki. Bað hann mig þá að færa efra
merkið aðeins ofar þannig að bil
myndaðist á milli númeranna og
hlýddi ég því. Færði ég merkið upp
um sentímetra en samt hélt lögregl-
an áfram að stöðva mig og kvarta
yfir númerinu," sagði Eyvindur
sem farið var að leiðast þófið og
heimtaði að út um þetta deilumál
hans og lögreglunnar yrði gert fyr-
ir dómstólum. Fýrir skemmstu féll
svo dómur í undirrétti Eyvindi í
hag þar sem svo var kveðið á um að
ekki væri hægt að amast við núm-
eramerkingum hans.
„Lögreglan var nú ekki á því að
gefast upp heldur krafðist þess að
málið færi fyrir Hæstarétt og þar
verður málið tekið fyrir í byrjun
september. Ég hlakka til því ég er
sannfærður um að ég vinn þetta
mál. Mín barátta er barátta einstak-
lingsins gegn kerfinu og misvitrum
yfirvöldum sem eru að trufla þegn-
ana að óþörfu. Mér hefur skilist að
lögreglan í Reykjavík eigi við ein-
hvern fjárskort að stríða og ég held
að hún ætti að nota peningana í
eitthvað annað en að standa í svona
rugli og málaferlum," sagði Eyvind-
ur Jóhannsson, forstjóri vinnu-
lyftufyrirtækisins Vinnulyftur.
-EIR
Númerið á bíl Eyvindar sem lögreglan þolir ekki.
DV-mynd S.
Waves-töfraúðinn sem átti að vera allra meina bót:
Erlendu aðilarnir vildu
enga ábyrgð bera
- segir lyQafræðingur um forsvarsmenn töfraúðans
Olíuversluninni á Ólafsfirði hefur
verið lokað og sameinast hún
Skeljungi við hótelið.
DV-mynd Helgi
Ólafsfjörður:
Olís sameinast
Skeljungi
DY Ólafsfirði:
Olis hefur lokað verslun sinni
í Ólafsfirði og sameinast Skelj-
ungi. Þessi fyrirtæki munu því
reka bensínstöðina við hótelið
hér á Ólafsfirði sameiginlega í
framtíðinni. Þetta átti sér stað
um mánaðamótin.
Olís hefur rekið sérstaka
verslun og bensínstöð hér í
áraraðir.
Það þykir hins vegar ekki hag-
kvæmt að reka tvær bensínstöðv-
ar í 1100 manna byggðarlagi, þar
sem lágmarksibúafjöldi fyrir eina
bensínstöð til að pluma sig þyrfti
að vera um 4000 íbúar.
Þeir bifreiðaeigendur sem
hingað til hafa keypt bensín af
Olís þurfa þvi að fara yflr á höf-
uðstöðvar Skeljungs til að fylla á
bílana sína. -HJ
í kringum eitt þúsund manns
keypti sér sl. haust rétt til þess að
selja í heimasölu svonefndan Wa-
ves bætiefnaúða sem sagður var al-
gjör bylting á fæðubótarefnamark-
aðinum. Jafnframt þvi að kaupa
sig inn í sölupíramída greiddi
þetta fólk fyrir fyrstu vörusending-
arnar. Skemmst er frá að segja aö
sölufólkið fékk aldrei söluvörurnar
þrátt fyrir að hafa greitt stórfé í
púkkið, eða í mörgum tilfellum allt
að 200 þúsund krónur. í kringum
eitt þúsund manns keypti sig inn í
sölupíramídann fyrir samtals yfir
100 milljónir króna. Nú, um ári síð-
ar, bólar ekkert á vörunum sem
fólkinu var lofað, enda bannaði
Lyfjaeftirlitið innflutning á stórum
hluta vörutegundanna sem selja
átti, þar sem þær innihéldu ólögleg
eða eftirritunarskyld virk lyfja-
efni.
Læknir og lyfjafræðingur, sem
bandarískur framkvæmdastjóri
Waves International, Lawrence
Barrett, setti sig í samband við hér
á landi fyrir rúmu ári, segja við
DV að þeir hafi verið beðnir að
verða nokkurs konar umsjónar-
menn píramídasölukerfis hér á
landi fyrir Waves undraúðann:
„Okkur var sagt að Waves
International vildi hafa einn til
tvo ábyrgðarmenn í hverju landi
fyrir sig til að raða upp þessum
piramída og öll sala ætti einungis
að fara fram beint frá manni til
manns, en ekki í gegnum verslan-
ir. Þeir buðu okkur 75 þúsund doll-
ara greiðslu fyrir að taka þetta að
okkur. Við fengum sent talsvert af
gögnum frá Bandaríkjunum. Við
fórum í gegnum þau og ræddum
við Barrett, m.a. um ábyrgðir og
hvað gerðist ef úðinn væri ekki sá
sem þeir sögðu að hann væri, upp
á hugsanleg skaðabótamál og slíkt.
Barrett og félagar hans voru hins
vegar gallharðir á því að þeir sjálf-
ir yrðu algjörlega lausir undan
slíkum kvöðum.
Við svo búið og þar sem fyrirsjá-
anlegt var að þeir ætluðu sér að
selja vöruna á ansi röngum for-
sendum, þá slitum við þessum við-
ræðum. Við fengum mjög tak-
markaðar upplýsingar um hvaða
efni væru í úðanum, um frásogs-
hæfni efnanna og hvort hún stæði
undir því sem þeir staðhæfðu.
Auk þess kom það óþægilega við
okkur að þeir staðhæfðu ranglega
um ýmis efni annarra framleið-
enda, svo sem eins og að frásog
venjulegra vítamina væri aðeins
5-10% og lyfja aðeins um brot úr
prósenti. Hvort tveggja er hrein
vitleysa," segir lyfjafræðingurinn
við DV.
„Af þessum fimm úðategundum
sem áttu að koma til landsins fyrst
voru tvær bannaðar strax vegna
þess að þær uppfylltu ekki kröfur.
En á heildina litið var „trikkið"
það að frásog bætiefna úr þessum
úðum átti að vera mjög mikið og
hratt, auk þess sem telja átti fólki
trú um gagnsemi þess að taka inn
í líkamann mikla ofskammta af
vítamínum og úða þessu upp í sig
daginn út og inn.
Það er hins vegar af og frá að
slíkt sé hollt - getur í sumum til-
fellum haft eitrunaráhrif, auk þess
sem starfsemi lifrarinnar getur
truflast. Okkur varð fljótlega ljóst
að þeim stóð alveg nákvæmlega á
sama um það. Allt þetta varð til
þess að við slitum þessum viðræð-
um. Af hverju þeir völdu okkur
veit ég ekki,“ segir lyfjafræðingur-
inn við DV.
Nánar verður fjallað um
Waves-málið í helgarblaði DV
sem kemur út á morgun. -SÁ
Verðbólga
Enn einn mánuðinn mælist
verðbólga í hærri kantinum og
hækkun á ársgrundvelli hefur
ekki verið meiri síðan 1993. FBA
spáir 4,5% verðbólgu.
Vill hann í raun?
Össur Skarp-
héðinsson segir
við Vísi. is að það
verði látið á það
reyna á þinginu í
haust hvort for-
sætisráðherra
stendur við orð
sín um lagasetningu um dreifða
eignaraðild við sölu á fjármála-
stofnunum ríkisins.
Erfið staða
Staða sveitarsjóðs Skagafjarð-
ar er erfið. Sameining sveitarfé-
laga og þátttaka í atvinnurekstri
hefur verið dýr. Dagur segir að
markmið sveitarstjórnar að
lækka skuldir á þessu ári virðist
ætla að takast.-
Steindauðar Elliðaár
Laxveiði i Elliðaánum stefnir í
sögulegt lágmark í sumar. 313
laxar höfðu komið á land 6.
ágúst sl. og aðeins er mánuður
eftir áf veiðitímabilinu - lakasti
veiðimánuðurinn samkvæmt
reynslunni. 492 laxar veiddust í
ánum í fyrra. Það var minnsta
veiöi síðan 1938.
Ekki byrjaðir
Rannsókn á því hvernig
skýrsla heilbrigðisfulltrúa Suð-
urlands um ástand mála á
kjúklingabúinu á Ásmundar-
stöðum barst til fjölmiðla er ekki
hafin, eftir því sem Dagur kemst
næst. Heilbrigðisnefhd Suður-
lands óskaði eftir rannsókninni
við ríkislögreglustjóra.
Salan samþykkt
Stjómarfundur Scandinavian
Holding SA, eignarhaldsfélags í
eigu Kaupþings og sparisjóð-
anna, samþykkti í gær sölu á
fjórðungshlut FBA til Orca SA
og staðfesti þar með söluna. Enn
er ekki vitað með vissu hverjir
eiga Orca. RÚV greindi frá.
Endurskoöun
Margrét Frí-
mannsdóttir,
talsmaður Sam-
fylkingarinnar,
segir að endur-
skoða verði
áform um einka-
væðingu ríkisfyr-
irtækja ef ekki er hægt að
tryggja dreifða eignaraðOd við
sölu þeirra.
Hestir vilja lög
Meirihluti þeirra sem greiddu
atkvæði um spurningu Dags á
Vísi.is eru fylgjandi því að lög
verði sett til að koma í veg fyrir
að einkavæddir bankar lendi á
fárra höndum.
11 skip svipt veiðileyfi
Frá 1. júlí til 29. júlí sl. svipti
Fiskistofa 11 skip veiðileyfum
fyrir að hafa farið fram úr afla-
heimildum. Aflamarksstaða 10 af
skipunum hefur verið löguð og
hafa þau fengið leyfin aftur. Eitt
skip Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum, Brynjólfur ÁR-3,
er enn án veiðileyfis.
Ný stjórn Básafells
Guðmundur Kristjánsson, út-
gerðannaður og stærsti eigandi
Básafells, er formaður nýrrar
stjómar fyrirtækisins sem kjör-
in var á hluthafafundi á ísafirði
í gær.
Aukinn eldvirkni
Aukin eld-
virkni er undir
Mýrdalsjökli.
Helgi Björnsson
jöklafræðingur
sagði við Vísi.is í
gær að þessarar
auknu virkni
væri farið að sjá stað á yfirborði
mestalls jökulsins. -SÁ