Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 4
4
frettir
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 JLj"V
Össur Skarphéðinsson um afstaðu umhverfisráðherra til Eyjabakka:
Seldi sannfæringuna
fyrir ráðherrastól
Össur Skarp-
héðinsson alþing-
ismaður og fyrr-
verandi umhverf-
isráðherra segir
Siv Freiðleifsdótt-
ur hafa „selt sann-
færingu sína fyrir
ráðherrastól"
vegna ummæla
hennar um virkj-
un á Eyjabakka-
svæðinu.
„Mig rekur í rogastans að hlusta á
Siv Friðleifsdóttur tala núna um að
hún sé gegn umhverfismati,“ sagði
Össur. „Hún hef-
ur algerlega snú-
ist um 180 gráður
frá því að þessi
ágæti þingmaður
var að berjast fyr-
ir því að fá sem
flest atkvæði í
átökum um vara-
formannsembætti
Framsóknarr-
flokksins. Þá höfð-
aði hún til ungs og
frjálslynds fólks innan Framsóknar-
flokksins með því að stilla sér upp
sem umhverfísvemdarsinna. Þá lét
hún taka við sig viðtal í Morgunblað-
inu 15. nóvember 1998 þar sem kom
fram að hún væri þeirrar skoðunar
„að Landsvirkjun eigi að láta um-
hverfisathuganir sínar í sama ferli
og lögformlegt umhverfismat“. Hún
segir hreinlega í viðtalinu „að nátt-
úran eigi að njóta vafans og það eigi
að nota bestu tæki eins og umhverf-
ismat til að dæma um áhrif fram-
kværnda".
Þetta var skoðun hennar þá. Nú
hefur þessi þingmaður við það að
verða ráðherra breyst algerlega. Það
er enginn vafi í mínum huga að hún
hefur selt þessa mikilvægu sannfær-
ingu sína fyrir ráðherrastól."
Össur segir trúverðugleika Sivj-
ar hafa beðið mikinn hnekki við
þetta. Það sé einfaldlega ekki boð-
legt í dag að þingmaður haldi fram
einni tiltekinni skoðun í mjög
veigamiklu máli, sem allir hafa tek-
ið afstöðu til með einum eða öðrum
hætti, en snúist síðan eins og
skopparakringla bara af því að
honum er kippt upp í ríkisstjórn.
Þetta sé hreinasta vanvirða við
ráðuneyti ráðherrans og vanvirða
gagnvart því fólki sem hún hafi
verið að „tala við í gegnum tíðina
og höfða til“. -JSS
Össur Skarp-
héðinsson.
Ólafur Örn Haraldsson alþingismaður:
Snýst ekki um fegurð
„Ég er ekki sammála þessu,“
sagði Ólafur Örn Haraldsson alþing-
ismaður um ummæli Sivjar Frið-
leifsdóttur umhverfisráðherra að
hún teldi atvinnu- og byggðasjónar-
miö sterkari en náttúruverndar-
sjónarmiö á Eyjabakkasvæðinu.
Hún kvaðst ekki bergnumin eftir
komuna þangað.
„Það snýst ekki um eitthvert feg-
urðarmat þegar menn koma þama
inn, hvort þeir heillast eða heillast
ekki,“ sagði Ólafur. „Þama er um
náttúrufarsleg verðmæti að ræða
sem snúa ekki eingöngu að því sjón-
ræna heldur að gróðri, fuglum og
landslagsheild sem verið er að tala
um að halda óspilltri. Eyjabakkar
eru ekki svæði sem maður tekur
einhver bakföll yfir þótt þarna sé
mjög fallegt. Það er ekki eina sjón-
armiðið heldur hið náttúrufarslega.
En náttúrufarslegu rökin hafa ekki
veriö lögð fram þótt ég hafi beðið
um það.“
Ólafur Öm sagði afar áríðandi að
öll spil yrðu lögð á borðið varðandi
málið þannig að menn gætu tekið
endanlega ákvörðun. Það yrði ein-
ungis gert með því að farið yrði í
mat á umhverfisáhrifum. Ónnur
leið, síðri, væri sú að skýrsla Lands-
virkjunar yrði lögð fram. Til þessa
hefðu rannsóknirnar ekki verið
sýndar eða almenningi boðið að
koma að málinu á nokkurn hátt.
„Án mats á umhverfisáhrifum fá
almenningur, fræðimenn og samtök
ekki tækifæri til að gera sínar at-
hugasemdir. AUar yfirlýsingar rík-
isstjómarinnar og Landsvirkjunar,
sem hefur þegar virkjanaleyfi,
hníga í þá átt að láta það duga. Að
knýja þetta fram núna er ekki í
samræmi við gjörbreytt viðhorf til
umhverfismála og ekki er komið til
móts við þær háværu kröfur sem
eru uppi um málið. Það er aldrei
sátt þegar annar aðilinn hefur allt
sitt fram. Hún næst ekki með þess-
um hætti. Það er blindur og heym-
arlaus maður sem sér ekki að al-
menningur er að biðja um að það
verði staldrað við í þessu máli og
það metið upp á nýtt. Þetta er mik-
ið óráð að gera þetta svona.“ -JSS
Settist niður í bíósæti Regnbogans í gær til að sjá áttfalda frumsýningu:
Star Wars í sólarhring
Þorsteinn Valur Thorarensen, 21
árs nemandi í Menntaskólanum í
Kópavogi og starfsmaður í Húsasmiðj-
unni, er Star Wars-aðdáandi númer
eitt á íslandi. Frumsýning myndar-
innar var í hádeginu í gær, fóstudag.
Siðan verður myndin sýnd stanslaust
allan sólarhringinn í sex bíóum. Þeg-
ar lesendur þessa blaðs fá það í hend-
ur hefur Þorsteinn að líkindum horft
átta sinnum á myndina í Regnbogan-
um þar sem hann settist niður klukk-
an hálfeitt í gærdag. Myndin er tvær
klukkustundir og tíu mínútur á lengd.
Þorsteinn horfði á myndina með
poppi og kóki, ánægju og siðar vænt-
anlega geispum þegar líða tók á að-
faranótt laugardagsins. Þegar DV fór i
prentun hafði hann horft þrisvar á
myndina en hann ætlaði að fá
kærustuna til sín í bíóið þegar líða
tók á föstudagskvöldið og horfa á
myndina eins lengi og kraftar entust -
helst í heilan sólarhring. „Ég ætla að
gera mitt besta,“ sagði hann í gær.
„Það var ótækt annað en að hafa
uppi á Þorsteini og bjóða honum á
myndina. Reyndar bauð ég honum að
sitja í tvo sólarhringa í röð ef hann
treysti sér en við skulum sjá hvað ger-
ist. Ég held að hann muni nærast á
mismunandi stemningu hverrar sýn-
ingar,“ sagði Guðmundur Breiðfjörð,
markaðs- og kynningarstjóri kvik-
myndadeildar Skífunnar.
Hundrað sinnum hver mynd
- En hvers vegna þessi mikli áhugi,
Þorsteinn?
„Ég er búinn að hafa gaman af Star
Wars frá því að ég var 4ra ára. Ég átti
öll leikföngin og vinir mínir lika.
Gömlu myndirnar þrjár hef ég horft
ansi oft á - sennilega í hundrað og
eitthvað skipti hverja. Síðast í gær-
kvöld (á fimmtudagskvöld) horfði ég á
fyrstu myndina en hafði ekki tíma til
að horfa á hinar tvær. En ég er
Þorsteinn Valur Thorarensen fyrir utan Regnbogann f gær. Hann er Star Wars-aðdáandi númer eitt á íslandi og var
boðið að sitja ókeypis í tvo sólarhringa til að horfa á Star Wars. DV-mynd Hilmar Þór
tilbúinn að horfa á nýju myndina og
sitja í sólarhring.
- Ætlar þú að sitja einn og horfa á?
„Já, það er ætlunin en kærastan
kemur á eina sýningu í kvöld.“
- Hvað finnst henni um þetta?
„Hún er búin að fá alveg nóg. Ég er
heldur ekki búinn að vera ég sjálfur
undanfarna daga. Nei, nei, hún hefur
gaman af þessu.“
- Ert spenntur fyrir fyrstu sýningu?
„Já. Ég hlakka til. Það verður mjög
gaman að sjá nýju myndina, ég er
bara búinn að sjá „trailerana" tvo úr
henni.
- Hvað muntu hugsa þegar tjaldið
fellur og sýningin hefst?
„Hvað það er gaman að sjá þessa
sögu halda áfram. Þetta er best heppn-
aða ævintýrasaga sem ég hef séð.“
Betri en ég bjóst við
DV talaði líka við Þorstein eftir að
hann hafði horft á myndina í fyrsta
skiptið:
„Þetta var rosalegt. Myndin er betri
en ég bjóst við og samt bjóst ég við
myndinni góðri. Sagan og persónu-
gerðimar eru frábærar. Þetta er snilld
- það mest spennandi sem ég hef séð,“
sagði Þorsteinn. -Ótt
Kærasta Þorsteins:
Sofnaði eftir fyrstu myndina
„Þorsteinn er búinn að
vera að telja niður dagana.
Ég er svo sem ekkert voða-
lega hrifin af þessu sjálf. Við
horfðum á fyrstu myndina í
gærkvöld (á fimmtudags-
kvöld) og Steini ætlaði að
láta mig horfa líka á hinar
tvær en ég sofnaði,“ sagði
Stella Vestmann, 17 ara _. „ ,
, , , , . ,, , Stella Vestmann.
kærasta Þorsteins Vals
Thorarensens, Star Wars-aðdáanda sagði Stella sem sækir menntaskóla í
númer 1. Brussel. -Ótt
Aðspurð um hvort henni
finnist kærastinn ekki dálítið
„bilaður" að vera svona mikill
aðdáandi Star Wars sagði hún
: „Nei, hann hefur haldið sig á
heilbrigðu nótunum enn þá.“
- Þótt hann horfi á sömu
bíómyndina í sólarhring?
„Já, eflaust er þetta bilað en
ég veit ekki hvort honum
tekst að vaka í sólarhring,"
Málverkaferð
þegar
Nóg virðist vera af íslenskum mál-
verkum í Kaupmannahöfn eins og
igreint var frá í DV í vikunni. Sama
: dag og fréttin birist voru tveir aðilar,
sem vel þekkja til í myndlistarheim-
inum, farnir af stað til
Kaupmannahafnar,
væntanlega til að gera
góð kaup í myndun-
um. Annars vegar El-
ínbjört Jónsdóttir,
eiginkona Tryggva
P. Friðrikssonar í
Gallerí Fold, og hins
vegar Pétur Þór Gunnarsson i
Gallerí Borg. Gallinn var hins vegar
sá að Jónas Freydal Thorsteins-
son, þekktur athafnamaður í Kaup-
mannahöfn, hitti þau bæði á flugvell-
inum í Kastrup þar sem hann var á
heimleið með myndirnar...
Nýtt Austurland
Gróska virðist vera í fjölmiðlum á
Austurlandi um þessar mundir. Fyr-
ir nokkru tók hinn kunni blaðamað-
ur, Karl Th. Birgisson, við blaðinu
1 Austurlandi og hefur
breytingar á því ágæta
jblaði. Fréttimar eru
orðnar fleiri og útlitið
nýtt. Þá skrifar sjálf-
ur ritstjórinn harð-
skeytta leiðara eins
og honum einum er
lagið og hefur gert
fyrir Pressuna og
fleiri. Leiðarinn í síðasta blaðið
fjallar um baráttuna milli Daviðs
Oddssonar og Jóns Ólafssonar og
| Fjárfestingarbanka atvinnulifsins.
En Karl er ekki eini maðurinn sem
vinnur að því að bæta fjölmiðlaflór-
una á Austurlandi því seinna i þess-
um mánuði mun Skjávarp hefja
göngu sína í Fjarðabyggö en því er
stýrt af fréttamanninum fyrrverandi,
Ágústi Ólafssyni...
Hálogaland
Undirskriftasöfnun, þar sem bygg-
ingaráformum í Laugardalnum er
mótmæit, er í fullum gangi á vegum
Laugardalssamtakanna sem Skúli
Víkingsson veitir formennsku. Fer
sú söfnun bæði fram
með gamla laginu og
eins með nýmóðins
hætti, á slóðinni
www.laugardalur-
inn.is á Netinu. í
þessu sambandi er
gaman að geta konu
nokkurrar sem fædd
er og uppalin í Laugardalnum. Hún
benti á athyglisverða hlið málsins,
þá að umræddar lóðir væru strangt
tekið ekki í Laugardalnum. Hann
hefði afmarkast af Holtavegi i austri
og gömlu sundlaugunum við Sund-
laugaveg í vestri. Hinn umdeildi
jarðarskiki hefði tilheyrt Háloga-
landi en eins og einhverjir muna var
þar eitt aðalíþróttahús bæjarins forð-
um...
4*1
Rekið til baka
KR-ingar, undir stjórn Atla Eð-
valdssonar, fögnuöu sætiun sigri á
skoska liðinu Kilmarnock á fimmtu-
j dagskvöld. Þóttu þeir vel að þeim
Isigri komnir og mikil gleði í vestur-
' bænum í kjölfarið.
INokkur fjöldi
iskoskra áhangenda
:var mættur á Laug-
iardalsvöll til að
hvetja sina menn en
Iallt kom fyrir ekki.
KR-ingum fylgir __
' gjarnan lukkudýr, Rauöa ljón-
jið, sem peppar stuðningsmennina
upp. Meðan á leiknum stóð fór
| Rauða ljónið yfir að nýju stúkunni,
þar sem Skotarnir héldu til, og gerði
sig líklegt til að striða þeim. Þeir til-
burðir féllu í heldur grýttan jarðveg
j hjá lögreglunni sem rak ljónið aftur
að gömlu stúkunni. Leikurinn var
jú í beinni á Eurovision og ekki gott
lef ólætu hefðu brotist út á áhorf-
; endapöllunum....
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is