Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Page 23
JL*‘V LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
\lk
23
við holdið
meira testósterónflæði, eitt-
hvert forskot sem ekki hefur
verið viðurkennt? Eru kon-
ur að keppa á karlveldis-
markaðinum án þess að
hafa til þess sömu vopn?
Bregst testósterónmagn
þeirra ólíkt við vin-
um/óvinum? Ræður
mismunurinn því
hvort þau berjast eða
leggja á flótta?
í þeim fjölmörgu
rannsóknum sem hafa verið gerð-
ar á dýrum kemur í Ijós að testó-
sterónmagn eykst hjá þeim sem
fara með sigur í bardaga. Sá sem
nær titlinum „konungur skógar-
ins“ öðlast meira sjálfsöryggi,
sjálfsmat hans hækkar, mökunar-
möguleikar aukast og honum líður
betur. Sumar konur ná því að
auka testósterónmagn sitt á eðli-
legan hátt og ná því eftirsóknar-
verða ástandi að verða mjög svo
samkeppnishæfar. Litlar rann-
sóknir sem gerðar hafa verið til
þess að kanna hvort konur í íþrótt-
um og viðskiptum hafi meira
testósterón en aðrar konur hafa
aðeins orðið til þess að auka
áhuga vísindamanna á frekari
rannsóknum.
Þótt enn eigi eftir að rannsaka
til hlitar áhrif testósteróna á kon-
ur sérstaklega er' ljóst að bæði
menn og dýr með mikið testó-
sterónamagn eru árásargjarnari
en þeir sem sem hafa minna af
þessu hormóni - reyndar svo að
menn sem hafa meðfædda erfða-
galla sem valda tvöföldu testó-
sterónamagni eru allmiklu árásar-
gjarnari en venjulegir menn. Þeir
hafa XYY-krómósóma í stað XY-
krómósóma en Y er karl-
krómósómið. Þegar tvö Y-
krómósóm hleypa testósteróna-
framleiðslunni af stað er ómögu-
legt að segja hvar hormónaáhrifin
enda. Það er þess vegna sem stórt
hlutfall þessara manna endar í
fangelsum fýrir ofbeldisglæpi.
Testósterónatröllin og
veikleiki kvenna
Vandamálið er að konur virðast
fá í hnén andspænis öllu þessu
testósteróni. í rannsókn sem vís-
indamenn við háskólann í Engee í
Tyrklandi gerðu árið 1991 kom í
ljós að karlmenn með djúpar radd-
ir (sem þeir tengdu karlhormón-
inu) nutu mun meiri kvenhylli.
Þetta fyllti plötusnúða og baríton-
söngvara miklu stolti og í kjölfar-
ið notuðu þeir hvert tækifæri til
þess að koma þessum upplýsing-
um á framfæri.
Það má vera að hin hörðu testó-
sterónatröll kveiki á einhverjum
frumstæðum hvötum hjá kven-
þjóðinni og það eigi sér skýringu í
því að til forna hafi sá maður ver-
ið eftirsóknarverðastur sem gat
verndað konu og börn fyrir óvin-
veittum ættbálkmn og blóðþyrst-
um villidýrum. í dag gæti þetta
kynþokkafulla fLikki hins vegar
breyst í skapvondan óvætt með
háan blóðþrýsting, sprengjuskap-
lyndi og þörf fyrir fleiri konur.
Þetta eru mennirnir sem geta
hvorki elskað né verið trygglynd-
ir. Það eru gjarnan konurnar
þeirra sem eru vælandi í þættin-
um hjá Opruh Winfrey í hverri
viku.
Við Rikisháskólann í Pennsyl-
vaníu gerði Alan nokkur Bolton
rannsókn á hormónamagni 4.642
manna og kannaði samskiptasögu
þeirra. Niðurstaðan var sú að karl-
menn með hátt testósterónamagn
væru ólíklegri til að ganga í hjóna-
band. Vandræðin byrjuðu þó fyrst
ef þeir kvæntust. Þeir höfðu frem-
ur tilhneigingu til þess að eiga ást-
konur, leggja hendur á konurnar
sínar og yfírgefa heimilið vegna
þess að þeim samdi ekki við eigin-
konurnar. Önnur rannsókn, sem
gerð var í Skandinavíu, bendir til
þess að því meira sem testósterón-
magnið sé því líklegra sé að til
skilnaðar komi. Það kemur varla á
óvart að karlmaður með hátt testó-
sterón er sjálfmiðaðri, sjálfselskari
og getur haft persónleika geðvill-
ings.
En undarlegt nokk, sumum kon-
um finnst þeir ómótstæðilegir.
Unnið upp úr bókinni The
Alchemy of Love and Lust, eftir
Theresu L. Crenshaw, M.D.
DAGAR
lOtíma Ijósakort 2.595kr-
m . TII _Í n_/„
ATH. Kortið gildir í 3 mánuði.
Klipping....... 1.395 kr.-
mir af úrsUimðtFm m msowiw
srówÆi&miKiKttw á nrtittiM rðRttiM
!'\í)t/LL>í±í.t
HARGREIÐSLUSTOFÚR OPNAR TIL 22:00 ÖLl KVÖLD.
■f <?
! X'%
’ N N.
§4
%
\ *
*HUa
Mörkinl
108 Rvk.
Smiðjuvagur 4B
, Hvannhólmi
GuIuí
%. Starhólmi Rauiur A *
sr** * &
M-ef m- '■ " *-*
£fstíh)
Valahj
Sk *
öKemmuvegur
200 Kópavogi
(588-5858 (567-3838
j
mn5 /
w “ J*
iJáfijr'él'JzJus t ofumJ óJbu'ón tofum Vonlun-Pu tnuóur
ók óm Un UJrfö t-ök urt-JJúrokru ut og murcj t fJ,