Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Page 32
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 ^ fréttaljós Hið mikla Waves- gróðaævintýri sem þeir Heimir Karls- son, fyrrverandi íþróttafréttamaður á Stöð 2 og Sjónvarpinu, og Birgir Viðar Halldórsson, fyrrum rallkappi, veitinga- og athafnamaður, og loks Einar Vilhjálmsson, fyrrum íþrótta- garpur, færðu inn í landið haustið 1998 varð aldrei að neinu. Um eitt þús- und íslendingum var lofað var gulli og grænum skógum, auðæfum og virðingu gegn greiðslu á 1450 dollara upphæð fyrir að gerast meðstofnend- ur, 2000 dollara fyrir að gerast stofn- endur og loks 3000 dollara fyrir að ger- ast stórstofnendur. Um eitt þúsund manns keyptu sig inn í píramídasölu- kerfi, eða fjölþrepa- á Waves - miklum undraúða með fæðubótarefnum sem áttu að vera allra meina bót.. Greið- endumir áttu að fá fyrstu vörsending- una með í kaupunum. Þeir fengu bara aldrei neinar vörur og sitja enn þá eft- ir með sárt ennið. Gera má ráð fyrir því að þetta fólk hafi látið af hendi alls 1,5 til 2 milljónir dollara eða milli 100 og 200 miiljónir króna án þess að fá nokkrar vörur í hendur. Þetta hlýt- ur að teljast talsvert hátt verð fyrir innantóm loforð. Einar Vilhjálmsson staðfesti við DV í gær að upphæðin sem um ræðir sé að líkindum í kring um 100 milljónir, en kveðst ekki hafa nákvæmar upplýsingar, enda hafi hann komið inn í Waves dæmið á eft- ir þeim. Súperstjörnur Waves DV sagði frá Waves-„ævintýrinu“ fyrst fjölmiðla í frétt 25. september í fyrra. í henni segir að milli 300 og 400 íslendingar séu meðal stofnenda í bandarisku fyrirtæki, Waves Intemational, sem á næstunni setji á markað úðabrúsa með næringar- efnum. Ætlunin sé að koma á sölu- kerfi í Bandaríkjunum, íslandi og víðar og íslendingarnir sem um ræðir muni njóta sérréttinda og arðs umfram venjulega sölumenn. Heimildarmaður DV að fréttinni gerði mikið úr gróðavoninni. Hann sagði að viðskiptin ættu eftir að Draumar um skjótfengið fé Þetta með læknana og vísinda- mennina orkar þó tvímælis: DV átti í vikunni samtal við lyfjafræðing sem kom að Wavesmálinu á fyrstu stigum þess ásamt lækni. Frásögn þeirra var birt í frétt DV í gær, en þeir drógu sig út úr viðræðum við Bandaríkjamenn- ina, stjómendur Waves International, þar sem þeir þóttust verða þess áskynja að hrein gróðafíkn lægi að baki og fullkomið skeytingarleysi um það hvert efnainnihald vörunnar væri. Á kynningarfund um sölu á undra- úðanum sem haldinn var í fyrrahaust á Grand Hótel og á stofnfund hags- munafélags í Háskólabíói skömmu síðar komu fleiri hundruð manns og stóðu í biðröð eftir því að gerast stofn- endur piramídasölukeðjunnar. í upp- hafi var um að velja þrjú stig. Fyrir stöðu sem nefndist founder eða stofn- andi greiddu menn 2000 dollara, fyrir stöðuna superfounder eða stórstofn- andi borguðu menn 3000 dollara. Síð- ar kom til þriðja staðan sem nefndist co-founder, eða meðstofnandi. Hún kostaði 1450 dollara. Á geysifjölmennum stofnfundi Waves-hagsmunafélags á íslandi í Há- skólabíói var mikið um dýrðir og þar mætti meðal annars öll stjórn Waves International, forstjórinn Lawrence Barrett og markaðsstjóri fyrirtækis að nafni Biozone sem framleiddi úð- ann fyrir Waves International. Þeir og frumkvöðlamir hér á landi, þeir Heimir Karlsson og Birgir Viðar Hall- dórsson, lofsungu framleiðsluvörurn- ar og þá tekjumöguleika og heilsubót sem af þessum efnum myndi hljótast. Loks var kjörin stjórn hagsmunafé- lagsins og var Einar Vilhjálmsson kjörinn formaður fimm manna stjórn- ar félagsins. Maður sem hafði áður gerst stór- stofnandi og greitt fyrir það 3000 doll- ara eða um 220 þúsund krónur segir í samtali við DV að þessi stórfundur hafi gefið sér mikla trú á að þama væri um vænlegt tækifæri að ræða til að afla sér góðra tekna með lítilli fyr- irhöfn. Á Grand Hótel sl. haust á kynningarfundi sem frumkvöðlar Waves héldu. Menn standa í biðröð, óðir og uppvægir að lát bólað á þeim. Waves-úöaævintýrið á ísiandi: teygja sig um allan heiminn og þar sem íslendingar væru þeir fyrstu sem skráðu sig í píramídann þá væri eðli málsins samkvæmt hagn- aðarvon þeirra langtum meiri en þeirra sem á eftir kæmu. Lawrence Barrett, framkvæmdastjóri Waves International, bætti síðan um betur í frétt DV 9. október og sagði: „Allt virðist fara í gegnum ísland og nú er það ætlun okkar að gera Islend- inga að súperstjömum fyrirtækis- ins og í gegnum ísland mun heims- salan fara fram í framtíðinni." Ekki var minna gert úr sjálfri söluvörunni. Hún væri byltingar- kennd nýjung sem myndi örugglega ná hraðri útbreiðslu, jafnvel meiri en sjálft Herbalife og íslendingarnir kæmu inn á þeim tímapunkti að varan væri rétt að koma á markað i Bandaríkjunum, sjálfu upphafsland- inu, og myndu njóta mjög góðs af þegar efnin tækju að breiðast út þar. Þessi heimildarmaður sagði blaðamanni DV að næringarefnin væru í úðabrúsum. I úðanum sem úr þeim kæmi væru litlar blöðrur og í þeim virku efnin sem öll væru náttúruleg og skaðlaus. Þegar þessu væri úðað undir tunguna kæmust efnin þegar í stað inn í blóðrásina og virkuðu undireins. Þannig vissi hann til að fólk hefði losnað við höf- uðverk á tveimur mínútum. Hann sagði að í hópi stofnendanna væru læknar, lyfjafræðingar, líffræðingar og efnafræðingar og það út af fyrir sig væri viss trygging. En eftir þennan stórfund heyrðu stofendurnir lítið frá Waves International þar til í febrúar sl. vet- ur. Þá barst stofnendum fréttabréf. í því voru viðruð ýmis góð áform um framhaldið og m.a. birt ný vinnuáætl- un fyrir sölufólk. Allt var mjög já- kvætt í fréttabréfinu og loforð frá Há- skólabíósfundinum ítrekuð um að við öll fyrirheit um gríðarlegan ágóða yrði staðið. Síðan heyrðu félagsmenn ekki neitt lengi uns þeim barst bréf frá Einari Vilhjálmssyni formanni. Af því má lesa að hlutirnir voru ekki eins og þeir áttu að vera og að nú ráði ekki Bandarikjamenn lengur ferðinni, íslenska félagið sé búið að yfirtaka bandaríska félagið Waves International. í bréfi Einars er sagt að þessi breyting sé öllum fyrir bestu. Syrtir í álinn Félagsmenn sem DV hefur rætt við segja að við þessar fréttir hafi þeim brugðið nokkuð og nokkrir munu hafa haft samband við Einar vegna málsins og óskað skýringa. Einn þeirra sem DV ræddi við i gær sagðist hafa skrifað Einari tölvupóst og spurt hvað orðið hefði um fyrir- tækið Waves Intemational sem í millitíðinni hafði reyndar fengið nýtt nafn; World Wide Waves og hvers vegna allt í einu væri orðið til íslenskt félag og öll tengsl við móður- félagið slitin, að því er virtist. Þá vildi þessi maður vita hvað orðið væri um þá frumkvöðlana Heimi Karlsson og Birgi Viðar Halldórsson og hvar þeir stæðu í þessum svipt- ingum. Loks vildi maðurinn vita hvaða umboð stjórn íslenska félags- ins hefði til þessara verka þar sem enginn fundur hefði verið kallaður saman til að samþykkja þessa gjöm- inga. Loks vildi maðurinn vita hvort til stæði að fólk fengi þær vörur sem því hafði verið lofað og greitt fyrir, eða hvort framlag fólks væri tapað fé. Maðurinn lét þess jafnframt getið að sér þætti stjórnin hafa sýslaö æði frjálslega með umboð sitt. Engin efnisleg svör bárust frá Ein- ari önnur en tölvupóstur með at- hugasemdum við tiltekið orðalag í bréfi mannsins og kröfu um nánari skýringar á hvað við væri átt. Mað- urinn svaraði um hæl þótt hann teldi að fyrra bréf sitt hefði átt að vera skiljanlegt hverju barni og ít- rekaði spurningar sínar. Hann segir DV að hann bíði enn efnislegra svara. „Höfuðatriðið er það að maður fær engin eða mjög óljós svör önnur en eitthvert óljóst tafs frá Einari Vil- hjálmssyni sem vekm- upp enn fleiri spurningar. Á endanum gefst maður upp og tekur þvi sem hverju öðru hundsbiti að þessir fjármunir séu bara glataðir," segir þessi viðmæl- andi DV sem gekk í Waves-samtökin í Háskólabíói í fyrrahaust og greiddi yfir 200 þúsirnd krónur fyrir vörur og titilinn Superfoimder eða stór- stofnandi alheimssölukeðjunnar Waves International. NýttWaves-félag Nýlega var haldinn fundur með félögum í Waves-félögum og stofnað nýtt félag, í þetta sinn hlutafélag, ís- öldur hf. Forsvarsmaður þess er Einar Vilhjálmsson. Félögum úr gömlu samtökunum, Icelandic Waves, eða ísöldum mun hafa verið gefinn kostur á að- gerast aðilar að nýja hlutafélaginu með fimm þús- und króna framlagi. Nokkrir þeirra sem aðstöðu hafa haft til fóru sjálfir til Bandaríkj- anna þegar þá tók mjög að lengja eftir þeim vörum sem þeir greiddu fyrir. Nokkrir fengu vörurnar af- hentar og sumir komu þeim síðan inn í landið og tókst að selja þær að Heimir Karlsson um eigendur Waves: Voru kunnáttulausir Heimir Karlsson, einn frum- kvöðla að Waves á íslandi, kennir kunnáttu- og reynsluleysi þeirra Bandaríkjamanna sem stóðu að Waves-fyrirtækinu í Bandaríkjun- um um að þær vonir sem bundnar voru við starfsemina rættust ekki. Hann var í Bandaríkjunum í sam- tals um sex vikna skeið að vinna að markmiðum gerðar voru til þeirra. fyrirtækisins og Heimir segir hins vegar að hann reyna að koma hafi aldrei séð nein merki þess að því á koppinn vísvitandi hafi átt að féfletta og komst þá að fólk.heldur sé vankunnáttu í fyrir- því að þessir tækjarekstri um að kenna hvernig menn stóðu fór. ekki undir þeim Nánar verður rætt við Heimi i væntingum sem DV eftir helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.