Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Qupperneq 33
JL>'V LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
~ - r; J>
fréttaljós«
teknu efni fengjust ekki seld á ís-
landi. „Hjá fyrirtækinu vestra eru
um 180 aðrar vörulíiíur á borðinu,
meðal annars hefðbundin vítamín
og steinefni. Þessar sex fyrstu
flöskur voru einfaldlega settar
fram til að fá viðbrögðin undir,
eins, viðbrögð sem finnast ekki
við hefðbundnum vítamínum.
Þetta er gert til að fólk öðlist trú á
því að þessi tækni sé virk,“ sagði
Heimir Karlsson við DV um málið.
Hann bætti síðan við að efnisinni-
haldi úðans yrði breytt í samræmi
við lög þeirra landa sem úðinn
yrði seldur í.
Á við álverið
Þann 7. október sagði DV frá þvi
að einn bandarískra starfsmanna
Waves í Bandaríkjunum hefði.
stungið af frá fyrirtækinu með
milljónir dala sem hann hafði
stolið úr sjóðum fyrirtækisins.
Heimir Karlsson staðfesti í sam-
tali við blaðið að starfsmaðurinn
Joe Simpson hefði horfið og tekið
eitthvert fé með sér. Waves
International myndi hins vegar
taka að sér að greiða allt tjón af
völdum þessa manns.
I sömu frétt var viðtal við einn
þeirra sem höfðu keypt sig inn í
Waves og greitt fyrir um 150 þús-
und krónur, enda hafi sér verið
sagt: „Þú átt eftir að græða millj-
ónir.“ Manninum fannst það þó
sérkennilegt að þegar hann fór í
bankann til að greiða upphæðina
hefði hún veriö send á nafn
einmitt þessa Joe Simpsons. Þessi
maður kvaðst vilja vara fólk við
gullæðinu í kringum Waves.
Fannst í pósthólfi
Enn jukust undrunarefnin þegar
fréttaritari DV í Bandaríkjunum, Val-
ur Blomsterberg, hrossabóndi í Kali-
forniu, tók sig til og fór að heimsækja
höfuðstöðvar Waves International í (
smábænum Murietta í Kaliforníu.
Þegar hann kom á staðinn þar sem
gefið var upp að fyrirtækið væri til
húsa, kom Valur að lítilli kytru, póst-
hólfaleigu í verslunarmiðstöð bæjar-
ins.
Þegar þetta var borið undir frum-
kvöðlana á íslandi og í Bandaríkjun-
um gáfu Birgir Viðar Halldórsson og
Lawrence Barrett aðalframkvæmda-
stjóri þá skýringu að sökum mikils
vaxtar væri fyrirtækið í millibilsá-
standi vegna þess að verið væri að
flytja það í stærra húsnæði.
Stefán Ásgrímsson
:a fé sitt af hendi í þeirri von að milljónatekjurnar bíði á næsta leiti. Ekkert hefur enn
tarrj ItWL n
J‘[en?‘”Sar veffti
^'0™,,Waves
m
brást
Lawrence Barrett, framkvæmdastjóri Waves International, sagðist ætla að gera
tækisins og í gegnum ísland mun heimssalan fara fram i framtíðinni".
mestu aftur og sluppu þar með
nokkurn veginn á sléttu út úr dæm-
inu. Þeir segja að mjög vel hafi
gengið að losna við úðann, brúsam-
ir hafi hreinlega verið rifnir út.
Ekkert svindl
Hjón sem DV ræddi við í gær sem
fóru þá leið vildu ekki taka svo djúpt
í árinni að segja að Waves-ævintýrið
hefði verið svikamylla. „Okkur var
alltaf sagt að við fengjum engar vörur,
heldur eignuðumst við inneign vegna
þess að vörurnar væru ekki leyfðar á
íslandi. Við fengum siðan allar okkar
vörur sendar á heimilisfang í Banda-
ríkjunum og þar eru þær. Við fengum
allt sem okkur bar,“ sögðu hjón þessi.
Þau sögðust hafa átt samskipti við
starfsmenn Waves í Bandaríkjunum
beint og þau samskipti gengið snurðu-
laust fyrir sig og allt sem lofað var
staðið eins og stafur á bók.
Þeir sem ekki hafa farið sömu leið
og þessi hjón hafa ekki hafa getað
bjargað sínu á þurrt. Einn þeirra sem
þannig er ástatt um sagði að þeir sem
hefði tekist að bjarga sínum málum í
horn með fyrrnefndum hætti hefðu
engan áhuga á að draga menn eins og
sig í land. Auk þess sé stór hópur
þeirra siðastnefndu fullur af skömm
og sjálfsásökun fyrir að hafa látið
ginnast og af þeim ástæðum ekki til-
búinn að grípa til einhvers konar að-
íslendinga „að súperstjörnum fyrir-
gerða, eins og t.d. að krefjast opin-
berrar rannsóknar á málinu öllu.
Þessi maður vill alls ekki kenna
Einari Vilhjálmssyni alfarið um
hvernig komið er. „Svo mikið er víst
að menn greiddu þetta út og Einar
kom ekki inn í þetta sem forystumað-
ur fyrr en eftir það var búið. Ef ein-
hverjir hafa fltnað á þessum pening-
um, þá ættu það að vera aðrir en Ein-
ar. Svo mikið er víst að á þessum
fundi í Háskóiabíói í fyrrahaust þá þá
mætti þar auðugur Bandaríkjamaður
sem hafði lagt mikla fjármuni í dæm-
ið, m.a. eftir það áfall þegar Joe Simp-
son hvarf frá fyrirtækinu í Bandaríkj-
unum með fleiri milljónir í vasanum,"
sagði þessi maður. Það varð til að ég
fékk aftur traust á þessu. Það hefur
hins vegar brugðist," segir viðmæl-
andi DV.
Hrakföll frá upphafi
DV sagði fyrst íslenskra fjöl-
miðla frá Waves-málinu. í áður-
nefndri frétt, sem birtist 25. sept-
ember í fyrra, segir frá því að
300-400 íslendingar séu meðal
stofnenda i bandarísku fyrirtæki,
Waves Intemational. Þegar blaðið
tók að athuga málið kom sitthvað
einkennilegt í ljós sem vakti grun-
semdir um að ekki væri allt með
felldu, auk þess sem ljóst þótti að
sölustarfið yrði ekki auðvelt þar
sem ólögleg virk lyfjaefni vom í
heilsuúðanum góða og hann kom-
inn beint á bannlista.
í það minnsta varð niðurstaða
Lyfjaeftirlitsins sú, eftir að hafa
kannað innihald þeirra sex úða-
tegunda sem ætlunin var að selja,
að ekki mætti selja neina þeirra.
Þessi niðurstaða var samkvæmt
upplýsingum heilbrigðisráðuneyt-
isins komin fram áður en bæði
kynningarfundurinn á Grand Hót-
el og stofnfundurinn í Háskólabíói
voru haldnir, og búið að kynna
forsvarsmönnunum, þeim Heimi,
Birgi Viðari og Einari frá henni.
Frá niðurstöðu Lyfjaeftirlitsins
var sagt í ítarlegri frétt DV 6. októ-
ber í fyrra. í fréttinni var rætt við
Heimi Karlsson á heimili hans í
Bretlandi um málið. Hann sagði
það ekkert stóráfall þótt þessi til-
Waves-úðinn:
Kemur eftir 10 daga
- menn fá mjólkina en verða að kaupa af okkur brauð, segir Einar Vilhjálmsson
„Varan kemur eftir tíu daga,“
sagði Einar Vilhjálmsson þegar
DV spurði hann í gær hvar Waves-
málið væri á vegi statt. Einar sagði
að þessar vörur kæmu ekki frá
hinu bandaríska Waves-fyrirtæki
heldur á vegum hins nýstofhaða
hlutafélags, Isalda ehf., sem hefur
yfirtekið viðskipti bandaríska fé-
lagsins.
Aðspurður hvar það fólk sem
greiddi fyrir vörur sem það aldrei
fékk sé á vegi statt og hvort það fái
loks það sem það greiddi fyrir
sagði Einar það háð því hvort það
skráði sig í hið nýja hlutafélag, ís-
öldur, og tæki þátt í því að búa til
fyrsta íslenska netsölufyrirtækið
eða fjölþrepasölufyrirtækið sem
stofnað hefur verið undir íslensk-
um einkahlutafélagslögum og verð-
ur sameign allra þeirra sem skrá
sig í félagið. „I fyrstu komast ekki
aðrir í félagið en þeir sem lentu í
þessari viðskiptalegu reynslu með
Waves,“ sagði Einar Vilhjálmsson.
„Það var niðurstaða stjómar ís-
lenska hagsmunafélagsins, sem
kosin var á fundinum í Háskóla-
bíói í nóvember og ég var í for-
svari fyrir, að forsendur frekari
viðskiptalegra
samskipta við
Waves væru
brostnar."
En þýðir
þetta þá að þeir
sem eru búnir
að greiða fyrir
vörur en ekki
hafa fengið þær séu nú loks að fá
sínar vörur eftir 10 daga eða eru
fjármunir þeirra glataðir? „í raun-
inni ekki,“ segir Einar. „Það er al-
veg ljóst að þeir sem ganga í félag-
ið ísöldur þurfa þá að taka upp
þráðinn og gera það sem þeir ætl-
uðu að gera í hinu félaginu. Þar
þurftu menn að sinna ákveðnum
vörukaupum mánaðarlega til að
vera virkir þátttakendur. í ísöld-
um þarf að kaupa ákveðið skil-
greint vörubox. í því eru tvö spray,
eða úði, sem íslenska félagið legg-
ur til. En til að hreyfa þessa úða
verða menn að kaupa aðra stoð-
vöru sem Waves var ekki búið að
hanna en til stóð að gera sam-
kvæmt áætlunum. Stjórn íslenska
hagsmunafélagsins er búin að
tryggja þessa vöru og hún verður í
boxinu, Fyrir hana greiða félags-
menn þegar þeir greiða fyrir vöru-
boxið sitt, þannig að félagið geti
komist að stað. Með öðrum orðum,
Menn fá mjólkina sína en verða að
kaupa af okkur brauð,“ sagði Ein-
ar.
En hversu mikið greiddu þeir
hátt í þúsund manns fyrir vörur og
sölurétt og hvert fóru peningarnir?
„Samtals hafa örugglega -
reyndar er ég að fá þessar upplýs-
ingar frá mönnunum - ég hef beð-
ið um þessar upplýsingar um hvað
þeir gerðu, en það er alveg klárt
mál að það er meira en 60-70 millj-
ónir.“
Var það ekki meira ef um 1000
manns hafa greitt frá 1450 upp í
meira en 2000 dollara hver? „Það
er klárt mál að það er yfir 60-70
milljónum. Ég veit hins vegar ekki
hve margir greiddu ekki í raun en
fjöldinn er svona mikill... En mið-
að við dreifinguna eins og þeir eru
skráðir, hvort sem þeir greiddu
eða ekki, er ástæða til að ætla að
það sé ekki undir 60-70 milljónum
og allt að 100 milljónum vegna þess
að langflestir eru í svokallaðri Co-
Founder stöðu,“ sagði Einar Vil-
hjálmsson.