Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Blaðsíða 34
n » 42 1 k k ' iðsljós LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 JÖ"V Stick Express Teint Idole frá Lancome: Hraðfarði í stiftformi \ \ - smitfrír og tekur ekki meira pláss en varalitur Eitt helsta vandamálið í sambandi við farða hefur yfirleitt verið tilhneig- ingin til að klínast í fatnað og annað sem kemur nálægt andlitinu, t.d. peysur, blússur, boli, skyrtur. Margir verslunareigendur hafa gripið til þess ráðs að skaffa viðskiptavinum sínum hauspoka til að verja fatnað sem mát- aður er, á meðan honum er smeygt ' yfir höfuðið. En nú hillir undir það að vanda- málið verði úr sögunni, því Lancome hefur hannað smitfrían stiftfarða. í farðanum er rokgjamt silíkon sem gufar upp á skömmum tíma, en þó nægilega löngum til þess að auðvelt sé að dreifa úr farðanum. í frétt frá Lancome segir að Stick Express Teint Idole tilheyri nýrri kynslóð faröa og sé fyrir nútímakonur sem vilji ekki að farð- inn taki meira pláss en varaliturinn. Einnig sé lögð áhersla á að áferð- in sé falleg og myndi ekki grímu á andlitið, auk þess sem stiftfarðinn sé svar við þeirri kröfu að að hann renni auðveldlega á húðinni. Enn fremur seg- ir að með Stick Express Teint Idole hafi vísinda- mönnum Lancome tekist að hanna farða sem endist lengi áferðarfalleg- ur á húðinni. Farðinn sé nógu stífur til þess að þola þann þrýsting sem þarf við að bera hann á, en um leið nógu mjúkur til þess að auðvelt sé að dreifa úr honum á húðinni. Stiftfarðann er hægt að nota eins og hvem annan farða til þess að öðl- ast hnökralausa, matta förðun sem endist allan daginn. Sætaferðir frá BSÍ á hálftíma fresti frá kl. 20:30 með sérmerktum stoppistöðvum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði Forsala hjá Olís (grill innifalið til kl. 23:00) SJÓNVARPIÐ Miðaverð kr. 2.000.- Næg tjaldstæði I Straumi laugardaginn 14. ágúst kl. 21:00-03:00 Listamiðstoðin Straumur er i Straumsvik einni af perlum íslenskrar náttúru rétt við Reykjanesbraut, ca. 5 mín. frá Hafnarfirði. 4 ð ^'PP/ðÖÍOga?Um — kemUr - af9reið ^ - - - J I Quarashi Skari Skrípó Súkkat Úlfur Skemmtari Addi Rokk MC Bjarni Böö! og Stuðmenn Arnold tortímir hundi Tröllið Arnold Schwarzen- egger komst í gríðarlegt upp- nám nýlega þegar hann drap heimilishundinn fyrir slysni. Amold var að bakka bílnum sínum (sem kaldhæðnislega er letrað á Tortímandinn) út úr heimkeyrslunni þegar hinn ólánssami labrador fiölskyld- unnar var á gangi þar fyrir aft- an og skaust umsvifalaust til hundahimnaríkis. Amold er sagður hafa tekið dauða hundsins gífurlega nærri sér, en þó var hann ekki eins illa haldinn og bömin hans, sem því miður horfðu upp á slysið. Mamman, Maria Shriv- er, flýtti sér með bömin inn í hús, þar sem hún þurrkaöi tár- in og útskýrði dauðann fyrir þeim, en hún hefur nýlega gefið út barnabók um efhið. Amie vildi svo endilega bæta bömun- um upp missinn, hringdi á stundinni í labradorræktendur í Kaliforníu og keypti tvo hvolpa sem hvor um sig kostaði um 70.000 krónur, án þess svo mikið sem skoða gripina. Hann fékk hvolpana senda með hraði og samdi meira að segja við hundaræktandann um að hann gisti hjá fiölskyldunni í nokkra daga til þess að auð- velda fiölskyldunni og hundun- um að kynnast. Svona er nú Tortímandinn góður faðir. Lýtalæknir eirin í Los Angel- esborg, dr. Jerome Craft, hefur sagt öllum sem vilja heyra að Jennifer Lopez hafi látið fitu- sjúga sinn fræga rass. Jennifer er þekkt fyrir að draga hvergi af sér í líkamsæfingum og seg- ist beita sig gífurlega ströngum aga en þakkar jafnframt einka- þjálfaranum Radu fyrir þann glæsilega líkama sem hún hef- ur. En lýtalæknirinn er á öðra máli og segir að það sé blátt áfram ómögulegt að öðlast svo nettan rass með megran og lík- amsæfingum. Hann segir að rassinn hafi greinilega verið minnkaður með aðstoð skurð- læknis. Það er sama hvernig rassinn er til kominn, Jennifer þarf ekki að kvarta yfir neinu þessa dagana. Fyrir utan glæsilegan vöxtinn hefur henni einnig ver- ið hrósað mikið fyrir leikhæfi- leika upp á síðkastið. Fræg söng- og leikkona - hverjum er ekki sama um smáfitusog?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.