Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Page 37
DV LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
0/fiun
45
Fram undan...
Ágúst
14.H20-hlaupið (***)
90 ára afmælishlaup Vatns-
veitu Reykjavíkur
Hlaupið hefst klukkan 13 og
byrjar og endar á Jaðri í Heið-
mörk. Boðið er upp á 3,5 km
skemmtiskokk og 10 km hlaup
með tímatöku og aldursflokka-
skiptingu. Allir þátttakendur fá
bol, verðlaunapening og
drykkkjarbrúsa þegar þeir koma
í mark. Skráningargjald er ekk-
ert - í boði Vatnsveitunnar.
Upplýsingar gefur Kolbeinn
Bjamason í símum 569 7051 og
897 7051.
22. Reykjavíkur-maraþon (***)
Hefst í Lækjargötu. Vega-
lengdir: 3 km og 7 km
skemmtiskokk án tímatöku og
flokkaskiptingar hefst kl. 12.30.
10 km, hálfmaraþon og maraþon
með tímatöku hefst kl. 10.00.
Meistaramót íslands í háifmara-
þoni. Flokkaskipting, bæði kyn:
14 ára og yngri, 15-17 ára (10
km), 16-39 ára (hálfmaraþon),
18-39 ára (10 km og maraþon),
40-49 ára, 50-59 ára, 50 ára og
eldri konur (hálfmaraþon og
maraþon), 50-59 ára, 60 ára og
eldri. Allir sem Ijúka keppni fá
verölaunapening og T-bol. Verð-
laun fyrir þrjá fyrstu í hverjum
flokki. Útdráttarverðlaun.
Sveitakeppni. Ath. forskráningu
lýkur 19. ágúst, eftir þann tíma
hækkar skráningargjald á öllum
vegalengdum um 300 kr. nema í
skemmtiskokki, þar verður eng-
in hækkun á þátttökugjaldi.
Upplýsingar á skrifstofu Reykja-
víkur maraþons í Laugardal í
síma 588 3399.
26. Víðavangshlaup UMSE (*)
Upplýsingar á skrifstofu
UMSE í síma 462 4477.
September:
4. Brúarhlaup UMF Selfoss (***)
Hefst kl. 14.00 við Ölfusárbrú,
hálfmaraþon hefst kl. 13.30.
Vegalengdir: 2,5 km, 5 km, 10 km
og hálfmaraþon með tímatöku.
Flokkaskipting, bæði kyn: 12 ára
og yngri (2,5 km), 13-17 ára,
16-39 ára (hálfmaraþon), 18-39
ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60
ára og eldri. Einnig er keppt í 12
km hjólreiðum og hefst sú
keppni kl. 13.00. Allir sem ljúka
keppni fá verðlaunapening og T-
boi. Úrslit send i pósti. Upplýs-
ingar gefur Kári Jónsson í síma
482 3758 og skrifstofu UMFÍ,
Fellsmúla 26, Reykjavík.
11. Grafarvogshlaup Fjölnis (**)
Hefst kl. 14.00 við verslunarmið-
stöðina Torgið og skráning frá kl.
12.00-13.45. Vegalengdir: 2,5 km án
tímatöku og flokkaskiptingar og
10 km með tímatöku. Flokkaskipt-
ing, bæði kyn: 39 ára og yngri, 40
ára og eldri. Sveitakeppni. Upplýs-
ingar veita Jónína Ómarsdóttir í
síma 899 2726 og Hreinn Ólafsson í
síma 587 8152.
25. Öskjuhlíðarhlaup ÍR (***)
Hefst kl. 11.00 viö Perluna og
skráning frá kl. 9.30. Vegalengd:
5 km með tímatöku. Flokka-
skipting, bæði kyn: 12 ára og
yngri, 13-14 ára, 15-16 ára, 17-39
ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60 ára
og eldri. Upplýsingar gefa Ólaf-
ur I. Ólafsson í síma 557 9059 og
Jóhann Úlfarsson í síma 587
2853.
Október:
2. Sparisjóðshlaup UMSB (**)
30 km boðhlaup. Hver sveit
skal skipuð 10 hlaupurum, þar
af skulu vera a.m.k. 4 konur.
Hver hlaupari hleypur 3x1 km,
(1 km i senn þrisvar sinnum).
Skráningar skulu berast skrif-
stofu UMSB, Borgarbraut 61,
Borgarnesi, sími 437 1411.
Reykjavíkur maraþon 22. ágúst
Martha keppir í hálfu maraþoni
í síðustu viku bárust þær fréttir
að hlauparinn Martha Emstsdóttir,
sem verið hefur um langt skeið
ókrýnd drottning lengri vega-
lengda, hefði hætt við þátttöku í
maraþoni á HM í Sevilla. Martha
ætlaði ekki að vera meðal þátttak-
enda í Reykjavíkur maraþoni vegna
keppni í Sevilla en hefur nú endur-
skoðað þá ákvörðun sina. Martha
hefur skráð sig til þátttöku í hálfu
maraþoni i Reykjavíkur maraþoni
og fagna eflaust margir þeirri
ákvörðun hennar, enda á hún ís-
landsmetið í kvennaflokki í þessari
grein (1:11:40 klst.).
„Ég tók þessa ákvörðun vegna
þess að útlit er fyrir mikla hita í
Sevilla á Spáni en þeim er ég alls
óvön. Ég hef æft fyrir hiaupið
héma á íslandi í 10-15 C° hita og
það yrðu mikil viðbrigði fyrir mig
að fara þessa vegalengd í 40°C hita,“
segir Martha.
„Ég hlakka mikið til þess að taka
þátt í hálfu maraþoni enda er ég í
ágætri æflngu um þessar mundir.
Ég hef sennilega aldrei verið í betri
maraþonæfingu en einmitt nú.
Annars er aldrei að vita hve vel það
dugar mér í hálfu maraþoni í
Reykjavík, það fer aflt eftir dags-
forminu, veðri og vindum. Þrátt
fyrir að ég hafi hætt við þátttöku í
maraþoni í Sevilla hef ég þó ekki
lagt þessa vegalengd á hilluna í ár.
Ég stefni að því í staðinn að taka
þátt í einhverju borgarhlaupi í lok
september eða byrjun október. Lík-
legt má telja að ég fari í Berlínar-
maraþonið síðustu helgina í sept-
ember en til vara í maraþonhlaup í
„Eg hlakka mikið til þess að taka þátt f hálfu maraþoni enda er ég í ágætri
æfingu um þessar mundir," segir Martha Ernstsdóttir.
Köln eða Frankfurt sem verða á
næstu vikum þar á eftir. Gera má
ráð fyrir hagstæðara hitastigi í
Þýskalandi á þessum árstíma.
Ég geri mér góðar vonir um að
bæta þar besta tíma minn í heilu
maraþoni, en þar á ég tímann
2:35,16 klst. Það er ekki ráðlegt fyr-
ir mig að fara í meira en hálft
maraþon í Reykjavík, svo stuttu
fyrir átökin í Þýskalandi," segir
Martha.
Maraþonið hentar best
Martha hefur lagt mikið á sig á
æflngum undanfarnar vikur. Æf-
ingarnar hafa miðast við árangur í
heilu maraþoni. „Þannig hef ég
verið að fara 30-35 km einu sinni í
viku á æfingum. Ég er smám sam-
an að fikra mig yfir í lengri hlaup-
in. Sennilega hentar heila mara-
þonið best minni líkamsbyggingu
og mínum hlaupastíl. Ég hef mjög
gaman af því að fást við allar þess-
ar vegalengdir, hvort sem það eru
5 km, heilt maraþon eða allt þar á
milli. Ég hef alltaf meira og meira
gaman af þessu og ég býst við því
að hlaupa alveg fram á grafar-
bakkann,“ segir Martha og hlær.
„Auðvitað er þetta tímafrek íþrótt
og leggja þarf mikið á sig til að ná
árangri. Ég er hins vegar svo
heppin að hafa góðan stuðning frá
fjölskyldunni."
Það verður fróðlegt að fylgjast
með Mörthu í hálfu maraþoni
sunnudaginn 22. ágúst næstkom-
andi og vel má vera að metið í
þeirri vegalengd falli í ár. -ÍS
Lofsvert framtak
- Bónus styrkir Barnaspítala Hringsins í Reykjavíkur maraþoni
Verslunarkeðjan Bónus ætlar að
styrkja Barnaspítala Hringsins á
myndarlegan hátt í Reykjavíkur
maraþoni og fer upphæð styrksins
eftir fjölda yngri þátttakendanna í
hlaupinu. „Við höfum ákveðið að
borga 1000 krónur til Bamaspítala
Hringsins fyrir hvem þátttakanda í
Reykjavíkur maraþoni sem er 12
ára og yngri. Búast má við því að
þeir verða á bilinu 1000-1500 og þvi
gæti vel farið svo að styrkurinn
næmi einni til einni og hálfri millj-
ón króna.
Því fleiri krakkar undir 12 ára
aldri sem taka þátt í hlaupinu, þeim
mun hærri verður styrkurinn. Ég
hvet því sem flest börn til að vera
með og vonast til þess að þau styðji
við bakið á sjúkum meðbræðrum
sínum á Barnaspítala Hringsins
með þessum hætti," segir Guð-
mundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss.
Bónus hefur frá stofnun styrkt
fyrst Landvernd og siðar Bamaspít-
ala Hringsins með því að leggja
hluta af pokasölu fyrirtækisins til
spítalans. „Það eru því viðskipta-
vinir verslunarinnar sem em í raun
þeir sem styrkja spítalann með
kaupum sínum á plastpokum. Þetta
er orðin dágóð upphæð, en í vor
taldist okkur til að 25 mifljónir
króna hefðu rannið tfl spítalans
með plastpokasölunni," segir Guð-
mundur.
„Við eram ákaflega ánægðir með
þennan stuðning Bónuss og við-
skiptavina verslunarinnar sem hef-
ur komið sér vel fyrir spítalann,"
segir Ásgeir Haraldsson, læknir á
Barnaspítala Hringsins. „Það er sér-
staklega ánægjulegt fyrirkomulag
að krakkar sem era 12 ára og yngri
geti styrkt önnur veik börn með
þessum hætti,“ segir Ásgeir.
-ÍS
Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga veitir ráðgjöf:
Mikilvægt að grípa til aðgerða í tíma
„Vlð ráðleggjum fólki að leita á stofur með góðum fyrirvara ef það er með
eitthvert fótamein sem gæti orðið því til trafala í hlauplnu, segir Margrét.
Það verður seint lögð of mikil
áhersla á að fætur hlaupara séu í
góðu lagi og vel undir þær vega-
lengdir búnir sem leggja á að baki í
Reykjavíkur mciraþoni. Nú um
nokkurra ára skeið hefur Félag ís-
lenskra fótaaðgerðafræðinga lagt
Reykjavíkur maraþoni lið og veitt
hlaupurum faglega ráðgjöf. „Því
miður hefur það oft verið þannig að
hlauparar leita ekki til okkar fyrr
en á laugardeginum fyrir hlaupið
sjálft en þá er oft seint að grípa til
aðgerða," segir Margrét Jónsdóttir,
formaður Félags íslenskra fótaað-
gerðafræðinga.
„Við ráðleggjum fólki að leita á
stofur meö góðum fyrirvara ef það
er með eitthvert fótamein sem gæti
orðið því til trafala í hlaupinu. Ann-
ars höfum við verið með faglega
ráðgjöf fyrir hlaupara daginn fyrir
hlaup á sama stað og gögnin eru af-
hent (í Laugardalshöllinni). Þar er
öll aðstaða eins og best veröur á
kosið, við lítum á fætur fólks, búum
það undir hlaupið eins og best við
getum og gefum góð ráð. Á hlaupa-
daginn sjálfan eram við í hópnum
sem sér um aðhlynningu fyrir
hlauparana að aflokinni þrekraun-
inni,“ segir Margrét. -ÍS
9. Víðavangshlaup íslands (**)
Á eftir að ákveöa keppnis-
| stað. Vegalengdir: Tímataka á
öllum vegalengdum og flokka-
;; skipting: Strákar og stelpur 12
1 ára og yngri, piltar og telpur
13-14 ára (1 km), meyjar 15-16
ára (1,5 km), sveinar 15-16 ára,
* drengir 17-18 ára, konur 17 ára
| og eldri (3 km), karlar 19-39
ára, öldungaflokkur 40 ára og
| eldri (8 km). Fjögurra manna
| sveitakeppni í öllum aldurs-
flokkum nema í öldungaflokki,
þar er þriggja manna.
10. Sri Chinmoy friðarhlaup (**)
Hefst kl. 14.00 viö Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd: 2 míl-
? ur (3,2 km). Flokkaskipting
ákveðin síðar. Verðlaun fyrir
| fyrstu í mark, einnig verður
þeim veitt verölaun er ná best-
■ um árangri á heimsvísu í þessu
alþjóðlega hlaupi. Upplýsingar
;; Sri Chinmoy-maraþonliðiö í
| síma 553 9282.
23. Vetrarmaraþon (***)
Hefst kl. 10.00 og 11.00 við
; Ægisíðu, Reykjavík (fyrri
: tímasetningin er fyrir þá sem
ætla sér að vera yfir 4:15 tíma
að hlaupa vegalengdina).
SVegalengd: maraþon með
tímatöku. Allir sem Jjúka
keppni fá verðlaunapening.
j Upplýsingar Pétur I. Frantz-
son í síma 5514096 og símboða
I 846 1756.
Nóvember:
13. Stjörnuhlaup FH (**)
Hefst kl. 13.00 við íþrótta-
1 húsið Kaplakrika, Hafnar-
firði. Vegalengdir, tímataka á
öllum vegalengdum og flokka-
j skipting, bæði kyn: 10 ára og
; yngri (600 m), 11-12 ára (1
| km), 13-14 ára (1,5 km), 15-18
ára (3 km), 19-39 ára, 40 ára
og eldri (5 km). Allir sem
; ljúka keppni fá verðlaun.
Upplýsingar Sigurður Har-
aldsson í síma 565 1114.