Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST
Sport
Frændurnir
í Njarðvík
Gunnar Örlygsson hefur gengið
til liðs við bikarmeistara Njarðvík-
ur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
fyrir næsta vetur en fyrir hjá liðinu
er bróðir hans, Teitur Örlygsson.
Auk Gunnars mun Örlygur Sturlu-
son, sonur þriðja bróðurins, Sturlu
Örlygssonar, koma aftur heim ffá
Bandaríkjunum og spila með liðinu
og verður því hálfgert fjölskylduboð
á æfingum hjá Njarðvík næsta vet-
ur.
Þá hafa orðið frekari breytingar á
hóp Njarðvíkur. Guðjón Gylfason er
hæthir, Sævar Garðarsson fer til
Grindavíkur og Ægir Þór Gunnars-
son er farinn yfír til nýliða Hamars.
-ÓÓJ
Jafnaði á
lokasekúndu
Trevor Sinclair kom í veg fyrir að
Aston Villa tæki forystuna í ensku
A-deildinni í knattspymu í gær-
kvöld þegar hann jafnaði fyrir West
Ham, 2-2, í lokaleik 3. umferðarinn-
ar á Villa Park.
Dion Dublin kom Villa tvisvar
yfir í leiknum en fyrra mark West
Ham var sjálfsmark frá Gareth
Southgate.
Staða efstu liða:
Manch. Utd 3 2 1 0 7-1 7
Aston Villa 3 2 1 0 6-2 7
Arsenal 3 2 1 0 4-2 7
Middlesbro 3 2 0 1 6-i 6
Tottenham 3 2 0 1 6-4 6
Southampt. 3 2 0 1 5-5 6
Chelsea 2 1 1 0 6-2 4
Leeds 3 1 1 1 3-2 4
West Ham 2 1 1 0 3-2 4
Bradford 2 1 1 0 2-1 4
Wimbledon 3 1 1 1 6-6 4
Leicester 3 1 1 1 4rA 4
-VS
1. DEILD KV.
A-riðill:
Grótta - RKV . . 0-3
Fylkir - Haukar . . . 9-0
FH - Selfoss . . .9-0
RKV 13 11 1 1 53-14 34
FH 14 10 1 3 54-17 31
Grótta 12 6 1 5 31-19 19
Fylkir 14 4 2 8 29-34 14
Selfoss 14 4 1 9 13-52 13
Haukar 13 1 2 10 13-57 5
B-riðill:
Þór/KA - Leiftur/Dalvík 10-0
Hvöt - Þór/KA 0-7
Þór/KA 10 9 1 0 57-6 28
Tindastóll 9 5 0 4 18-26 15
Hvöt 11 2 2 7 14-29 8
Leift/Dalv. 10 2 1 7 14-42 7
C-riðill:
Einherji - Huginn/Höttur .......5-1
Sindri - KVA........frestað, í kvöld
Einheiji 11 5 2 4 25-16 17
Hug./Hött. 10 3 4 3 17-14 13
Sindri 9 3 3 3 9-11 12
KVA 10 3 3 4 13-21 12
RKV, FH og Þór/KA eru komin i
úrslitin en fjórða liðið getur enn
orðið hvaða lið sem er úr C-riðlinum.
# V
* LANDSSÍMA
^ ^DEIIDIN 'Q9
Urvalsdeild kvenna
KR 11 10 1 0 51-4 31
Valur 11 9 1 1 46-7 28
Breiðablik 11 7 2 2 28-13 23
Stjaman 11 6 2 3 32-13 20
ÍBV 11 5 1 5 33-21 16
ÍA 11 2 1 8 8-33 7
Grindavík 11 1 0 10 8-49 3
Fjölnir 11 0 0 11 4-70 0
- Heiðu tryggðu Stjörnunni sigur á ÍBV, 3-1
Glæsimörk
Heiða Sigurbergsdóttir skoraði
tvö stórglæsileg mörk í 3-1 sigri á
ÍBV í úrvalsdeild kvenna í Garða-
bænum í gærkvöldi.
Stjaman byrjaði leikinn vel og
skoraði mark snemma í leiknum en
þar var að verki Elfa Björk Erlings-
dóttir. Það sem eftir lifði fyrri hálf-
leiks var lítið um marktækifæri og
leikurinn einkenndist af miklu
miðjuþófí beggja liða.
Síðari hálfleikur byrjaði svipað
og sá fyrri endaði. Lítið var um færi
þar til ÍBV náði að jafna en þar var
að verki Hjördís Halldórsdóttir sém
skoraði með glæsilegu skoti eftir
Vcunarmistök hjá Stjömunni. Við
markið lifnaði yfir leiknum. ÍBV
virtist taka öll völd á vellinum án
þess þó að ná að skora. Stjaman
varðist vel með Auði Skúladóttur
örugga í öftustu vamarlínu.
Þegar síðari hálfleikur var rúm-
lega hálfnaður fékk Heiða boltann
um 30 metra frá marki ÍBV og
þrumaði honum efst í markhomið,
óverjandi fyrir Petru Bragadóttur,
markvörð ÍBV. Eftir markið dró
nokkuð úr krafti Eyjastúlkna en
þær virtust eitthvað smeykar við að
sækja og hægðu oft mikið á sóknar-
leik sínum í stað þess að bmna á
vörn Stjömunnar. Stjaman nýtti
sér óöryggi Eyjastúlkna og eftir
góða fyrirgjöf skoraði Heiða annað
glæsimark sitt með fostum skalla og
aftur efst í markhomið.
„Það var ekki leiðinlegt að vinna
ÍBV. Þetta var auðvitað frábært. Við
ætluðum aö spila saman sem eitt lið
og hvetja hvor aðra áfram, það var
það sem var númer eitt, tvö og þrjú
og það tókst. Við duttum aðeins nið-
ur á tímabili, við þurfum að venjast
því að vera yfir, ætli þetta sé ekki
bara einbeitingarleysi. Nú eigum
við Blikana næst og auðvitað tökum
við þær á útivelli," sagði Auður,
spilandi þjálfari liðsins, að lokn-
um leik.
Dúfa varði vítaspyrnu
KR sigraði ÍA á Akranesi, 0-3, og
skoraði öll mörkin í fyrri hálfleik.
Dúfa Dröfn Ásbjömsdóttir, hinn 16
ára gamli markvörður ÍA, stcd þó
senunni strax á 6. mínútu þegar
hún varði vítaspymu frá Ásthildi
Helgadóttur. En KR tryggði sér sig-
urinn þegar Ásdís Þorgilsdóttir
skoraði tvö mörk og Inga Dóra
Magnúsdóttir eitt.
Barátta í Grindavík
Markvörður Grindavíkur, Ólöf
Daöey Pétursdóttir, var líka í sviðs-
ljósinu í gærkvöld því hún varði
mjög vel þegar nýliðamir töpuðu,
0-2, fýrir Breiðabliki. Margrét R.
Ólafsdóttir skoraði bæði mörk
Kópavogsliðsins.
-ÍBE/VS
Pate og Leh-
man bætt við
Ben Crenshaw, fyrirliði
bandaríska Ryderbikarliðsins í
golfi, valdi í gær þá Tom Leh-
man og Steve Pate í lið sitt fyr-
ir hinn árlega slag við Evrópu í
næsta mánuði. Hinir tíu, sem
koma sjálfkrafa sem efstu menn
PGA-mótanna, em Tiger
Woods, David Duval, Payne
Stewart, Davis Love, Mark
O’Meara, Hal Sutton, Justin
Leonard, Jim Furyk, Phil
Mickelson og Jeff Maggert. -VS
Tveir nýir
útlendingar
Sergio Garcia, 19 ára golfari frá
Spáni, stal heldur betur sviðsljósinu
frá Tiger Woods á PGA-meistaramótinu
í Bandaríkjunum um helgina, Þetta
gerði Garcia þrátt fyrir að Woods hefði
loks unnið sitt annað stórmót eftir
rúmlega tveggja ára bið frá því hann
vann US Masters 1997.
Garcia, sem var kallaður E1 Nino
(strákurinn), þótti sýna mikil tilþrif
bæði í spilamennsku og hegðun í
kringum þá háspennu sem ríkti á
Medinah-golfvellinum er Garcia sótti
að Woods á lokasprettinum. Á mynd-
inni hér til hliðar horfir Garcia á eft-
ir einu magnaðasta höggi sem sést
hefur lengi er hann setti boltann úr
nærri vonlausri stöðu upp við tré inn
á flöt og bjargaði því að klúðra skori
sínu á 13. holu vallarins. Á endanum
munaöi aðeins einu höggi á Tiger og
Garcia en menn sjá fyrir sér mikið ein-
vígi á golfvöllunum milli þessara tveggja
kappa í framtíðinni. -ÓÓJ
Keflvíkingar og Njarðvíkingar, sem tefla fram sameiginlegu liði Reykjanesbæjar
í Evrópukeppni borgarliða í körfuknatteik i næsta mánuði, hafa báðir fengið
nýja erlenda leikmenn fyrir næsta tímabil.
íslandsmeistarar Keflvíkinga hafa fengið til sin Chianti Roberts sem er
24 ára framherji, 1,98 sm á hæð. Hann kemur frá Oklahoma State og
var þar eini leikmaður félagsins til að ná 1000 stigum, 500 fráköst-
um, 300 stoðsendingum, 100 stolnum boltum og 40 vörðum skot-
um á háskólaferlinum. Hann var í nýliðavalinu 1997 og þyk-
ir mjög fjölhæfur leikmaður og lék á Taívan síðasta vetur.
Bikarmeistarar Njarðvíkinga hafa fengið til sín Purn-
ell Perry sem er 29 ára og telst kraftframherji og er 1,94
cm á hæð. Perry þessi þykir mjög vöðvastæltur og
menn telja það víst á hundruðum sem hann tekur í
bekk. Hann kemur frá Voorhees-háskólanum í
Bandarikjunum en hefur leikið viða undanfarin ár,
meðal annars á Filippseyjum og í Svíþjóð. Báðum
liðum líst vel á nýja leikmenn en liðin æfa núna
saman til að undirbúa sig fyrir Evrópukeppn-
ina, þar sem helstu keppninautar íslenska
körfuboltans munu snúa bökum saman. -ÓÓJ
Ayr vildi fá Gunnleif
Skoska knattspymufélagið Ayr United gerði KR-ingum á dögun-
um tilboð í varamarkvörðinn Gunnleif Gunnleifsson. Ayr
vUdi fyrst fá Gunnleif tU reynslu en var síðan tilbúið að
kaupa hann strax. Félagið reyndi fyrr í sumar að fá hinn
markvörð KR-inga, Kristján Finnbogason, sem lék með
liðinu hálft tímabil ekki aUs fyrir löngu. KR-ingar vUdu
hins vegar ekki selja Gunnleif og höfnuðu tilboðinu. -VS
- mættir í Reykjanesbæinn
Bland í noka
Sean Elliott, framherji í meist-
araliði San Ántonio í NBA-körfu-
boltanum síðasta vetur, gekkst
undir nýrnaskiptauppskurð i
nótt. Hann fékk þá grætt i sig
nýra úr bróður sínum sem er ári
eldri. Elliott vonast til að geta
haldið áfram að spila.
Sigurd Rushfeldt frá Rosenborg,
markahæsti leikmaður norsku A-
deildarinnar í knattspymu ásamt
Heióari Helgusyni, fer til
Racing Santander á Spáni. Sala
hans til Benfica var afturkölluð á
dögunum þegar Portúgalamir
stóöu ekki i skilum með fyrstu
greiðslu til Rosenborg.
Alþjóóa frjálsíþróttasamband-
ió hafnaði í gær áfrýjun Bens
Johnsons spretthlaupara sem
reyndi að fá lífstíðarbanni sínu
vegna lyfjaneyslu aflétt. Áður
hafði réttur í Kanada komist að
þeirri niðurstöðu að bannúr-
skurður sambandsins væri ógild-
ur.
AGF sigraði FC Köbenhavn, 1-0,
i lokaleik 4. umferðar dönsku A-
deildarinnar í knattspymu í
gærkvöid.
-VS
Kristín Rós
með 4 gull
Kristín Rós Hákonardóttir
varð fjórfaldur Evrópumeistari
fatlaðra í sundi en EM lauk í
Braunschweig í Þýskalandi á
sunnudag.
Kristín Rós sigraði í 200
metra fjórsundi, 100 metra
bringusundi, 100 metra bak-
sundi og 50 metra skriðsundi og
hlaut auk þess silfurverðlaunin
í 100 metra skriðsundi.
Birkir Rúnar Gunnarsson
kom heim með tvenn verðlaun
en hann varð annar í 200 metra
fjórsundi og þriðji í 100 metra
baksundi. Þá hlaut Pálmar Guð-
mundsson silfrið í 200 metra
skriðsundi.
Bjarki með fimm met
Bjarki Birgisson setti flmm
íslandsmet á mótinu, Eva Þór-
dís Ebenezersdóttir þrjú, Gunn-
ar Örn Ólafsson tvö og þau
Birkir Rúnar og Bára B. Er-
lingsdóttir settu eitt met hvort.
-VS
„El Nino“
sló í gegn
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
25
Sport
marka farsi
- þegar Víkingar unnu Valsmenn, 5-4, og sinn fyrsta sigur í lljgátjum
Víkingar unnu Valsmenn,
5-4, i farsakenndum leik
í Laugardal í gær.
Loksins þegar
mark and-
stæðinga
Víkinga
opn-
að-
ist kom markaflóð og Víkingar
rúlluðu yfir vonlausa og af-
spyrnuslaka Valsmenn í fyrri
hálfleik, 4-1 forusta botnliðs
deildarinnar, sem hafði ekki
unnið í 11 leikjum, var síst of
stór enda fóru mörg dauðafæri
Víkinga forgörðum í fyrri hálf-
leiknum.
Gylfi Orrason, dómari leiks-
ins, var óþekkjanlegur í þess-
um leik og það var kannski í
anda farsans í leiknum að
besti dómari landsins átti
langslakasta leik sem undir-
ritaður hefur séð til Gylfa.
Valsmenn á leið í 1.
deildina?
Valsmenn, sem skiptu
aðeins einu sinni um
leikmenn í leiknum,
þrátt fyrir að lenda 5-1
undir, hefðu varla átt
í meðal neðri deildar-
lið miðað við fram-
göngu sína í fyrri
hálfleik. Þeir end-
uðu leikinn reynd-
ar ágætlega en
leikmenn Hlíðar-
endaliðsins þurfa
að vakna upp við
vonda martröð
þvi þetta lið sem
lék í gær á
Laugardalsvell-
inum er á
leið niður i
deild í
fyrsta
sinn
sögu þessa fomfræga félags.
Það voru þrír strákar úr
Víkingi sem sáu um að smjatta
á Valsvöminni í þessum
leik. Þeir nafnar Daníel
Hjalta og Hafliðasynir
og Jón Grétar Ólafsson,
sem allir eru að stíga
sín fyrstu spor í efstu
deild í sumar, áttu allir
stjörnuleik og vom lyk-
ilmenn á bak við 5-1
forastu liðsins. Mesta
ógnunin fór úr fram-
línu Víkinga þegar
hinn vinnusami Jón
Grétar fór út af og
pressa Valsmanna í
þurrkaði næstum því forskot
það sem félagamir þrír sköp-
uðu með dugnaði, kappi og
ákveðni fyrstu 56 mínútur
leiksins.
Ótrúleg innkoma
Daníel Hafliðason
hóf farsann með
einni ótrúlegustu
innkomu í manna
minnum. Daníel var
skipt inn á vegna
meiðsla Bjarna Hall
á 18. mínútu. Það tók
hann aðeins tvær
mínútur að skora eitt
mark, átta mínútur
að skora sitt annað
mark og eftir 18 mín-
útur var hann búinn
að leggja eitt upp að
auki.
Eftir sex tapleiki í
röð sáu allir Víkinga
á hraðri leið niður
um deild, en þessi
sigur gefur liðinu
tækifæri á að af-
Jón Grétar
Ólafsson skor-
aði tvívegis
fyrir Víking.
lokin
sanna fallstimpilinn og fram
undan eru leikir gegn næstu
liðum fyrir ofan og geri Foss-
vogsliðið góða hluti
þar mega þau lið
passa sig á ungum og
baráttuglöðum Vík-
ingum.
Sigurbjörn Hreiðars-
son skoraði sína
fyrstu þrennu en hún
kom undir lítið
skemmtiegum kring-
umstæðum. „Við spil-
uðum afleitlega í fyrri
hálfleik, reyndum að
koma aftur upp í
seinni en það var mjög erfitt.
Við reyndum þó og börðumst
en þetta var bara of mikið, því
miður. Við höfum ekki efni á
að vanmeta Vikingana, höfum
ekki náð að vinna þá í þremur
leikjum í sumar og höfum
byggt upp einhvers konar
grýlu, sem er alveg óþol-
andi sem og að spila að
eins 45 mínútur í leik '6ij
eins og við höfum gert i
síðustu leikjum," sagði Sig-
urbjörn.
„Við þurfum að skora
svo mörg mörk til að fá '
stigin að það dugði ekki:
minna en fimm í
dag. Það var kom-
inn tími til að
lukkan félli með
Víkingum. Við urð-
um að vinna, við
eigum leiki við
næstu lið fyrir - *
ofan sem j|jj
verða ekki ■SSk >
auðveld- *
ir en við W
W reynum,"
sagði Þránd-
ur Sigurðson, fyrirliði
Víkinga. -ÓÓJ
Titilvörnin
hefst gegn
FH-ingum
Aftur-
elding í 1.
deild kvenna
Það verða ellefu lið sem leika í efstu
deild kvenna í handbolta næsta vetur
eftir að Afturelding tilkynnti þátttöku í
fyrsta sinn. Þetta gerir það að verkum
að eitt lið situr hjá í hverri umferð en
það má nefna til marks um uppganginn
í kvennahandboltanum á íslandi að Aft-
urelding er þriðja liðið sem bætist við
deildina á tveimur árum en ÍR og KA
komu inn í fyrra.
Stelpurnar byrja aðeins fyrr en strák-
amir eða 25. september og þá byrja ís-
landsmeistarar Stjörnunnar titilvörn-
ina gegn bikarmeisturum Fram. Aðrir
leikir era FH-ÍR, Grótta/KR-Víkingur,
Haukar-KA og nýliðar Aftureldingar
mæta Valskonum að Varmá. ÍBV situr
hjá í fyrstu umferð. -ÓÓJ
Liðin sem mættust bæði í úrslit-
um íslandsmótsins og bikarkeppni
handboltans í karlaflokki á síðasta
vetri mætast í fyrstu umferð 1.
deildarinnar 29. september. Aðrir
leikir þann dag era ÍR- Stjarnan,
Hapkar-Fram, Valur-HK, ÍBV-
Fylkir og Víkingur-KA.
í 2. umferðinni, sem leikin er 1.
og 3. október, mætast síðan
KA-HK, Stjaman-Haukar,
Fram-Valur, Fylkir-ÍR, FH-
ÍBV og Víkingur-Afturelding.
í 3. umferð 6. október mætast
ÍR-FH, HK-Fram, Haukar-
Fylkir, Valur-Stjarnan, Aftur-
elding-KA og ÍBV-Víkingur.
-ÓÓJ
Víkingur5(4) - Valur4(l)
Gunnar Magnússon - Þorri Ólafsson, Sigurður
Sighvatsson, Þrándur Sigurðsson - Hólmsteinn
Jónasson (Arnar Hrafn Jóhannsson 74.), Lárus Huldarsson @, Daníel
Hjaltason @@, Bjami Hall (Daníel Hafliöason 18. @@), Amar
Hallsson - Jón Grétar Ólafsson @@ (Sigurður Elí Haraldsson 68.),
Sumarliði Ámason. Gul spjöld: Sigurður, Hóimsteinn, Þrándur.
Hjörvar Hafliðason - Sigurður Sæberg Þorsteinsson
(Matthías Guðmundsson 55.), Helgi Már Jónsson,
Izudin Daði Dervic, Hörður Már Magnússon - Sigurbjöm Hreiðarsson
@, Ólafur Stígsson, Guðmundur Brynjólfsson, Kristinn Lámsson -
Ólafur Ingason @, Adolf Sveinsson @.
Gul spjöld: Guðmundur B.
Víkingur - Valur Víkingur - Valur
Markskot: 22 16 Hom: 5 6 Áhorfendur: 964. Völlur: Mjög góður Dómari: Gylfí Orrason, afar slakur og óþekkjanlegur.
Maður leiksins: Daníel Hafliðason, Víkingi
Draumainnkoma varamannsins, 2 mörk á fyrstu 8 minútunum.
Daníel Hafliðason, hetja Víkinga:
„Greip bara
tækifærið“
Nítján ára strák-
ur, Daníel Haf-
liðason, átti
ótrúlega innkomu I leik Víkinga og Vals-
manna í gær. Daníel átti mjög góðan leik
og á fyrstu 18 mínútum sínum inni á
Laugardalsvellinum í gær skoraði hann
tvö mörk og lagði upp eitt.
Á síðustu mínútu hálfleiksins gat
draumainnkoman orðið ógleymanleg er
Daníel komst einn gegn Hjörvari mark-
verði Vals en í stað þess að klára sjálfur
af þeim krafti sem hann hafði sýnt í
leiknum til þessa ákvað að hann að gefa
á félaga sinn, Sumarliða Ámason, en því
miður fyrir þennan 19 ára strák, var
sending hans of stutt.
„Þetta var frábært og vonandi verður
þetta svona það sem eftir er sumars. Ég
bjóst ekki við að fá að vera með í þessum
leik, en síðan fékk ég að fara inn á
snemma í leiknum og þá greip ég bara
tækifærið. Þetta var einn mikilvægasti
sigur félagsins á undanfömum áram og
nú erum við komnir aftur á fullt inn í
baráttuna í deildinni," sagði Daníel Haf-
liðason, sem er bróðir Kristins Hafliða-
sonar, miðjumanns og leikmanns ÍBV.
-ÓÓJ
Sigurbjörn
Hreiðarsson skoraði
þrennu en mátti
sætta sig við tap.
ctVv
Daniel Hafliöason (20.)
V V íygldi á eftir skalla Jóns Grét-
ars Ólafssonar eftir fyrirgjöf Þrándar
Sigurðsson frá vinstri:
Ö-ííi Daniel Haflióason (26.) fékk
v boltann frá nafna sínum
Hjaltasyni, einlék í gegnum vömina og
skoraði af öryggi þó togað væri í strák.
0.0 Jón Grétar Ólafsson (36.) af-
v greiddi meistaralega frábæra
vippsendingu Daníels Hafliðasonar í
gegnum vömina.
0.0 Sjálfsmark (37.) Sigurðar
v v Sæbergs Þorsteinssonar sem
skallaði boltann í eigið mark eftir fyrir-
gjöf Hólmsteins Jónassonar.
O-tffc Sigurbjörn Hreiöarsson
" (3ót) úr víti eftir að Hólm-
steinn Jónasson átti að hafa ýtt á bak
Kristins Lámssonar.
0.0 Jón Grétar Ólafsson (56)
^ v með skutluskalla eftir
fyrirgjöf Daníets Hjaltasonar frá vinstri
eftir að nafnamir opnuðu Valsvömina.
0-0 Sigurbjörn Hreióarsson
(64.) úr víti. Þrándur Sig-
urðsson missi boltann til Ólafs
Ingasonar og felldi hann síðan.
0.0 Ólafur Ingason (78.) komst
v w á hálffurðulegan hátt í gegn-
um Víkingsvömina eftir
Adolfs Sveinssonar.
. gegn-
sendingu
Sigurbjörn Hreiöarsson
(87.) klippti fyriitíöf Harðar
Más Magnússonar en sendingin hafði
viðkomu á höfði vamarmanns.
0. V
Þjálfaraskipti hjá Lokeren:
Reynders rekinn
- þetta var tímabært, segir Arnar Viðarsson
Willy Reynders var í gær rekinn úr starfl sínu sem þjálfari belgíska knatt-
spymufélagsins Lokeren, í kjölfar annars ósigurs liðsins I jafnmörgum umferð-
um í A-deildinni. Ronny Van Gugen, einn af eldri leikmönnum liðsins, er tek-
inn við því til bráðabirgða en leit að eftirmanni Reynders er hafin.
Reynders keypti Amar Viðarsson til Lokeren á sínum tíma en Amar sagði
við DV í gærkvöld að hann ætti ekki von á að skiptin kæmu sér illa fyrir sig.
„Maður leggur alltaf hart að sér, sama hver þjálfarinn er, og það var tímabært
að skipta. Óánægjuraddimar innan liðsins vora orðnar of miklar, sérstaklega
hjá eldri leikmönnunum, og eitthvað varð að gera. Ég er sannfærður um að við
komumst á rétta braut á ný og við erum þó ekki nema sex stigum á eftir efsta
liði,“ sagði Amar Viðarsson. -KB/VS
Svava og Halla
ekki með?
Útlit er fyrir að tveir af burðar-
ásum kvennaliðs Víkings í hand-
knattleik taki sér hvíld í vetur og
spili ekki með liðinu. Það era þær
Halla María Helgadóttir og Svava
Sigurðardóttir. Halla María hefur
átt við slæm meiðsli að stríða og
Svava mun hafa lagt skóna á hill-
una, með einhverjum fyrirvara þó.
Þetta er áfall fyrir Víkinga sem
fyrir höfðu misst marga leikmenn,
svo sem Ingu Láru Þórisdóttur,
Vibeke Larsen og markverðina
Hjördísi Guðmundsdóttur og Krist-
ínu Maríu Guðjónsdóttur. -ÓÓJ
* LANDSSÍMA
DEILDIN 'QQ
Úrvalsdeild karla
KR 13 9 3 1 28-11 30
ÍBV 12 8 3 1 21-8 27
Leiftur 13 4 6 3 12-16 18
ÍA 12 4 5 3 10-11 17
Fram 13 3 6 4 16-16 15
Keflavík 13 4 3 6 19-23 15
Breiðablik 12 3 5 4 16-14 14
Grindavik 13 3 2 8 14-20 11
Valur 12 2 5 5 18-25 11
Víkingur R. 13 2 4 7 16-26 10
Markahæstir:
Bjarki Gunnlaugsson, KR..........8
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV ... 8
Grétar Hjartarson, Grindavík .... 7
Sigurbjörn Hreiðarsson, Val.....7
Alexandre Santos, Leiftri .......6
Kristján Brooks, Keflavik........6
Breiðablik og ÍA mætast á Kópavogs-
velli annað kvöld kl. 19.