Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJÚDÁGUR 17. ÁGIJST 1999
Fréttir
Hestaskólinn á Ingólfshvoli:
Námskeið á
440 þúsund kr.
fullbókað út árið
„Þetta hefur gengið vonum
framar. Það er fullbókað út árið,“
sagði Bryndís Halldórsdóttir, einn
eigenda Hestaskólans á Ingólfs-
hvoli í Ölfusi, en þar kostar nám-
skeiðið 440 þúsund krónur og
stendur í tiu vikur. „Hér koma
menn bara með tannburstann
sinn og reiðstígvél og fá allt annað
hjá okkur.
Þetta er ekkert venjulegt reið-
námskeið heldur alhliða kennsla í
öllu sem snertir íslenska hestinn.
Við erum með 14 nemendur í
hverju námskeiði og 46 hesta. Hver
nemandi fær þrjá frumtamda hesta
til að kljást við og svo einn gæðing
til að ríða út á,“ sagði Bryndís.
Aðeins örfáir íslendingar hafa
sótt námskeiðin á Ingólfshvoli en
verð fyrir íslendinga er 420 þús-
und krónur. 95 prósent nemenda
eru konur á aldrinum 19-33 ára og
koma þær flestar frá Svíþjóð.
„Við kynntum Hestaskólann á
heimsmeistaramótinu í Ki'euts á
dögunum og fengum feikigóðar
viðtökur. Það er bjart fram undan
hér í Ölfusinu," sagði Bryndís
Halldórsdóttir sem er systir skóla-
stjórans, Hafliða Halldórssonar.
Auk þeirra og maka þeirra
standa ábúendurnir á Ingólfshvoli
að Hestaskólanum í Ölfusi. -EIR
Hafliði Halldórsson, skólastjóri Hestaskólans
á Ingólfshvoli, á Valiant frá Heggsstöðum.
vv ‘'k-' .-Áú:
TILBOÐS-DÁGAR
íl-RégMW lOtíma Ijósakort 2.595k
w * ATH. Síortiö aildlr f 3 mám
/
(C^uéé&aé
m*\m
Klipping....... 1.395 kr.
C
Landsvirkjun
www.lv.is
Við viljum þakka öllum þeim
þúsundum gesta sem heimsóttu
okkur í virkjanir um helgina.
Starfsfólk Landsvirkjunar
Þið sem ekki komust
Velkomnin í Hrauneyjar, Kröflu, Blöndu og Laxá alla eftirmiðdaga.