Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 9 Utlönd Glæsilegur bíll. Verð 3.850.000 Chrysler Vision, árg. 1997, ekinn 600 km, hvítur. bíll meö öllu. Sjón er sögu ríkari. Verð 2.750.000 Óvissa á N-írlandi eftir morð á meintum uppljóstrara: Sebastian Obermaier, þýskur prestur ■ Villa Adela í Bólivíu, eys vatni yfir bæði menn og hunda og blessar þá. Hunda- eigendurnir og uppáhaldsdýrin þeirra höfðu áður sótt sérstaka messu til heiðurs heilögum Roque, verndardýrlingi allra dýra. Hundruð manna og skepna sóttu athöfnina í El Alto, nærri höfuðborginni La Paz. Braut IRA vopnahléið? - Sinn Fein rekið frá samningaborði ef svo er Mo Mowlam, Norður-írlands ráð- herra bresku ríkisstjómarinnar, hitti i gær öryggisráðgjafa til við- ræðna um hvort írski lýðveldisher- inn, IRA, hefði brotið vopnahlé með morði á 22 ára gömlum kaþólikka í júlí. Morð mannsins þykir minna um margt á aftöku en hann hafði verið sakaður um að vera uppljóstr- ari lögreglu. Mowlam sagði fjölmiðlum að hún myndi ekki hika við að reka pólitískan arm IRA, Sinn Fein, frá samningaborðinu á Norður-Irlandi ef rannsókn leiddi í ljós brot IRA á vopnahléssamningum. Ráherrann sagðist þurfa einn eða tvo daga til að hugsa sig um og hver sem ákvörðunin yrði myndi hún vera tekin á grundvelli sönnunar- gagna. „Ef ég þarf að grípa til aðgerða - líkt og ég hef áður gert - mun ég gera það. Ég mun ekki víkjast und- an þeirri skyldu," sagði Mowlam við fjölmiðla fyrir fundinn í gær. Með þessum orðum átti Mowlam við það þegar Sinn Fein var meinað að taka þátt i samningaviðræðum fyrir samkomulagið fóstudaginn langa í apríl á síðasta ári. Einnig hefur vopnasmygl IRA frá Bandaríkjunum, sem komst upp um í vetur, vakið hörð viðbrögð stjóm- valda. IRA segir smyglið ekki hafa verið samþykkt af forystu samtakanna og að ekki sé hægt að segja að vopna- hléið hafi verið brotið með morðinu á kaþólikkanum unga, sem þau neita ekki að standa á bak við. Af orðum forystu Sinn Fein mátti skilja að IRA túlkaði vopnahléið sem hlé á hernaði, þ.e. árásum á London og öryggissveitir, en ekki að morðum á uppljóstrumm skyldi hætt. Mo Mowlam segist ekki munu hika við að grípa til aðgerða. Allar nánarí uppfýsingar á Bflasöíunní Bill.is, símí577-3777 Bílasalan hill.is Malarhöfða 2 Sími: 577 3777 Fax: 577 3770 Netfang: bill@bill.is Heimasíða: www.bill.is Nú má Milosevic fara að vara sig: zBi A Vandaðir verðmætaskápar fyrir heimili og fyrirtæki! Stærð: H-56,5 B-37,0 D-47,0 Þyngd:45 Tvær helstu fylkingar stjórnar- andstæðinga í Serbíu staðfestu í gær að þær myndu taka þátt í mikl- um fjöldafundi sem ætlað er að þjappa andstæðingum Slobodans Milosevics Júgóslavíuforseta saman og krefjast afsagnar hans. Ýmsir aðrir flokkar voru tvístígandi. Seint í gærkvöld greindu skipu- leggjendur mótmælafundarins í Belgrad, hins fyrsta i höfuðborg Júgóslavíu, frá því að Endurnýjun- arhreyfing Serbíu, flokkur hins óút- reiknanlega Vuks Draskovics, hefði tilkynnt þátttöku sína. Draskovic er aftur kominn í stjómarandstöðu eft- ir stutta veru i stjórn Milosevics. Fyrr um daginn hafði Samfylk- ingin fyrir breytingum lýst yfir ásetningi sínum að vera með á fund- inum. „Samfylkingin mun taka þátt í fjöldafundinum 19. ágúst óháð því Fullorðin albönsk hjón fengu leyfi friðargæsluliða til að að fara yfir brúna sem skiptir bænum Mitrovica í hverfi Albana og Serba. hverjir aðrir verða með,“ sagði Vla- dan Batic, einn forystumanna henn- ar, á fundi með fréttamönnum. „Við vitum ekki hverjir verða með. Sam- fylkingin mun taka þátt í öllum mótmælafundum sem henni er boð- ið til þar sem þjóðin kemur saman til að krefjast afsagnar stjórnarinn- ar.“ í bænum Mitrovica í Kosovo tókst leiðtogum albanska meirihlut- ans að afstýra hugsanlegum vand- ræðum í gær þegar þeir fengu æst- an hóp manna til að fara til síns heima. Mitrovica er skipt í hverfi Albana og Serba og hefur mikil spenna ver- ið þar allt frá því serbneskar her- sveitir hurfu brott úr héraðinu eftir lofthemað Atlantshafsbandalagsins. Sameinuðu þjóðirnar skipulögðu viðræðufundi þjóðarbrotanna i gær en lítill árangur varð af þeim. Stærð: H-24,0cm. B-37,0 cm. D-25,0 cm. Þyngd: 12 kg. Jeep Cherokee TSi, árg. 7/1999, ókeyrður bílf, vél 4,0 I, svartur, leðurklæddur, cruisecontrol, ABS. Stærð: H-39,0cm. "**%*$& B-37,0 cm. D-33,0 cm. Þyngd: 30 kg. Sérverslun og verkstæöi með lykla, læsingar og skyldar vörur Sendum um land allt. NEYÐAR ÞJONUSTAN lykla og lásasmiðjan Laugavegi 168, 105 Reykjavík, Sími: 562 5213, Fax: 562 5278 Batnandi manni er best að lifa: Blair gefur fé Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur gefið barnaspít- ala í Toscanahéraði á italíu hálft fjórða hundrað þúsund króna. Var það gert í þakklætisskyni fyr- ir móttökumar sem Blair-fjöl- skyldan hefur fengið í Toscana þar sem hún var í sumarleyfi. Blair hafði sætt nokkurri gagn- rýni bæði ítalskra og breskra íjöl- miðla fyrir þann kostnað sem ítalskir skattgreiðendur þurftu að bera af öryggisgæslu fjölskyld- unnar. Blair og fjölskylda hans dvöldu í glæsihúsi á baðströnd nærri borginni Pisa. Einnig var deilt um hversu miklum hluta strandarinnar þurfti að loka á meðan forsætis- ráðherrafjölskyldan dvaldi við sjávarsíðuna. Hún er nú farin annað. Draskovic með í mótmælunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.