Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 Iðnaðarráðherra: Álsamningar fyrir áramót DV, Eyjabökknm: M Finnur Ingólfsson iðnðarráðherra fór í skoðunarferð um Eyjabakkasvæð- ið í gær. Hann sagði við DV að ef allt færi eins og ætlað væri yrði búið að ganga frá álverssamnmgum milli Norsk Hydro og is- lenska ríkisins fyr- ir áramót. Þeir samningar muni gera ráð fyrir 120.000 tonna ál- veri á Reyðarfirði í fyrsta áfanga. Ef öll áform verði að veruleika verði Finnur hafist handa við Ingólfsson. virkjunarfram- kvæmdir í maí árið 2000. Álverið verði reist i þremur ^áfóngum. Virkjunarframkvæmdir henni tengdar verði á Fljótsdal. Finnur sagði þrjú stórfyrirtæki vera að athuga þann valkost að fara í stóriðju á Austurlandi, þ.e. Norsk Hydro, Norð- urál og þýskt fyrirtæki sem iðnaðarráð- herra vúdi ekki neöia. -GVA/JSS Laugardalurinn: Borgarstjóri . í bakgír Fullvíst má telja að meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur falli frá fyrri ákvörðun um úthlutun lóða fyrir afþreyingar- hús og höfuð- stöðvar Lands- símans í Laugar- dal. „Menn geta lagt saman það sem borgarstjóri, ég, Alfreð Þor- steinsson og for- ^rni Þór stjóri Landssím- sigurðsson. ans hafa sagt og komist að niðurstöðu. Ákvörðun verður hins vegar ekki tekin fyrr en borgarstjóri kemur úr sumarleyfi '^ínu í Bandaríkjunum eftir helgi,“ sagði Ámi Þór Sigurðsson, aðstoð- armaður borgarstjóra, í morgun. __________________________-EIR Þorlákshöfn: Kamar sprengdur Plastkamar á íþróttavellinum í Þorlákshöfn var sprengdur i tætlur í gærkvöld. Hafði púður verið sett í flösku og hún sprengd inni í kamr- inum. Fjórir menn á aldrinum 18 til 19 ára voru strax grunaðir um verknaðinn en til þeirra sást skammt frá eftir sprenginguna. Við- urkenndu þeir brotið þegar lögregla hafði af þeim tal. Kamarinn er 1 -»handónýtur. -EIS Þessi athafnamaður var önnum kafinn við að mála bátinn sinn í gær, enda lítið annað að gera, kvótinn búinn og næsta kvótaár hefst ekki fyrr en í septem- ber. Myndin var tekin í Reykjavíkurhöfn í gær. DV-mynd S Kolbeinn Pálsson hættir hjá íþróttabandalagi Reykjavíkur: Fullsaddur af íþróttamafíunni „Ég hef komið víða við í störfum mínum, bæði hjá íþróttahreyfmg- unni og í stjómmálum, en sannast sagna þá em stjómmálin eins og sunnudagaskóli á við íþróttamafl- una. Ég er búinn að fá nóg af henni og orðinn fullsaddur," sagði Kol- beinn Pálsson sem snögglega lét af störfum sem framkvæmdastjóri Iþróttabandalags Reykjavíkur eftir áratugastarf, síðustu ár sem fram- kvæmdastjóri bandalagsins. „Mér Kolbeinn Pálsson. bauðst nýtt starf hjá fyrirtæki sem heitir Nettengsl og er í raun at- vinnumiðlun á Netinu. Fyrir- tæki sem eru að leita að starfs- krafti setja inn auglýsingu hjá okkur og svo geta þeir sem eru aö leita að vinnu féngið sent allt til sín sem snertir áhugasvið þeirra. Þó við séum nýfamir af stað hafa þeg- ar 4000 aðilar leitað til okkar,“ sagði Kolbeinn Pálsson og neitaði að- spurður að tjá sig frekar um mafíu- starfshætti í íþróttahreyfmgunni. Kolbeinn sat í stjóm Ólympíunefnd- ar íslands, var formaður Körfuknattleikssambandsins og Blá- fjallanefndar, svo eitthvað sé nefnt. -EIR Sæðingastöðina vantar meiri tískuhesta „Aðsóknin hefúr ekki verið nógu góð. Okkur vantar meiri tískuhesta," sagði Kristinn Guðnason formaður Hrossa- ræktarsambands Suðurlands um að- sókn að Sæðingastöðinni sem samband- ið rekur í Gunnarsholti. Komið var með 80-90 hryssur til sæð- inga á þessu ári. í fyrra voru sæddar helmingi fleiri hryssur, að sögn Krist- ins. Kristinn sagði að menn hefðu sótt eftir fyli undan Ófeigi frá Flugumýri í fýrra. Hefði verið komið með tugi hryssa í þeim tilgangi á stöðina. Hryss- umar í ár hefðu helst þurft að vera a.m.k. 200 taisins. Menn hefðu haldið að þetta væri dýrt. Það væri ekki rétt, því sama verð væri fyrir hryssumar sem kæmu á stöðina og hinar sem fæm til stóðhesta í girðingar. Kristinn sagði að árangurinn hefði verið mjög góður. í vor hefði náðst 80-90 prósent fyljun í fersksæðingunum. Að sögn Páls Stefánssonar -varðandi frysta sæðið. -JSS Veðrið á morgun: Hlýjast inn til landsins Á morgun er gert ráð fyrir hægri breytilegri átt. Skýjað verð- ur með köflum allra vestast en annars léttskýjað og hiti á bilinu 8 til 14 stig, hlýjast inn til landsins. Veðriö í dag er á bls. 37. FBA: Hluthafa- fundurá næstunni „Fundurinn var gagnlegur og við fórum yfir fjárfestingar Orcamanna í FBA. Þetta var óformlegur spjallfundur. Ég á von á því að við munum hittast aftur. Við munum kynna þeim betur stefnu og stöðu bankans eins og eðlilegt er þegar svona stór hlut- hafi kemur að félaginu," segir Bjarni Ármannsson, forstjóri Fjár- festingarbanka atvinnulífsins. Þeir sem standa að Orca S.A. hittu í gær forystumenn FBA og ræddu við þá um stöðuna í bank- anum. „Fundurinn var gagnlegur og ánægjulegur. Við erum hingað komnir til að vinna með starfsmönnum, stjóm og öðrum hluthöfum að framgangi fyrirtæk- isins,“ segir Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður Orca S.A. Fram hefur komið að Orca hefur óskað eftir hluthafafundi en aðspurður sagði Eyjólfur að það kæmi í ljós á fundinum hverjir tæku sæti í stjóm FBA fyrir hönd Orca S.A. -EIS m <€ írboltar Múrfestingar HJJli R==t-i-l ==~i 1% z¥k% = Smiðjuvegur 5 200 Kóp. Síml: 535 1200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.