Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1999, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 5 Neytendur • • Umferðaröryggi: Oryggi eldri barna er ábótavant Eldri börn og smávaxið fólk eiga ekki að sitja í framsæti bifreiða sem útbúnar eru með öryggispúðum. Bætt umferðarmenning og öryggi allra í bílnum er málefni sem snert- ir okkur flest. Flestum foreldrum og forráðamönnum finnst sjálfsagt að setja ungbörn í þar til gerða bílstóla og gæta öryggis þeirra sem best í bílnum. Það vill hins vegar brenna við þeg- ar börnin verða eldri að foreldrar sofhi á verðinum eða noti ekki rétt- an öryggisbúnað fyrir bömin í bíln- um. Að sögn Margrétar Sæmunds- dóttur, fræðslufulltrúa hjá Umferð- arráði, er nauðsynlegt að brýna fyrir fólki að gæta að öryggi allra sem í bílnum em, þ.m.t. eldri bamanna. „Mér þykir ekki veita af að benda fólki á að hafa böm sín í aftursætum bíla sem em útbúnir með öryggis- púðum. Ég sá mörg dæmi þess um nýliðna verslunarmannahelgi að krakkar á aldrinum 7-10 ára vom í framsætum bíla sem búnir eru upp- blásanlegum öryggispúðum. Slíkur búnaður getur bæði stórskaðað og valdið dauða bama ef hann springur á höfuð þeirra við árekstur. Um það vitna mörg dæmi i umferðarslysum erlendis, ekki þó hér á landi sem bet- ur fer en allt getur gerst.“ Hæð og þyngd skiptir máli Flestir vita að ekki má hafa smá- böm i bamabílstólum í framsætum bíla sem hafa uppblásanlega ör- yggispúða (airbag) framan við sæt- in. Hins vegar virðast ekki allir gera sér grein fyrir því að eldri böm og lágvaxið fólk mega heldur ekki sitja andspænis öryggispúðum ef þau em minna en 140 sentímetr- ar á hæð og/eða hafa ekki náð 40 kg þyngd. Sumir vilja jafnvel ganga enn þá lengra og miða við 50 kg og 150 sm á hæð. Reynslan sýnir að þeir sem ekki hafa náð þessari lág- markshæð og þyngd þola ekki högg- ið frá öryggispúðanum. Ástæðan er m.a. sú að púðinn lendir á höfði þeirra sem em smávaxnir, en ekki bringu eins og hann á að gera. Til þess að öryggispúði þjóni hlutverki sínu er nauðsynlegt að nota bílbelti líka. Öryggispúðinn er beinlínis hannaður með það í huga að jafnframt sé notað bílbelti. Einn og sér veitir hann ekki mikla vöm. Talið er að bílbelti auki öryggi þess sem það notar um 50% en uppblás- anlegur öryggispúði í stýri bílsins er talinn auka öryggi ökumanns um 20%. Öryggi farþega í framsæti eykst um 5-10% ef þar er öryggis- púði. Öryggispúðar fyrir fullorðna Eins og áður sagði er höggið af uppblásnum öryggispúða töluvert en skaðar þó ekki flest fullorðið fólk. Dæmi em um að fólk fái lítils háttar óþægindi, til dæmis fá sumir köfnunartilfinningu í örskamma stund þegar gasið tæmist úr púðan- um. Enn fremur getur fólk fengið skrámur eða sár í andlit af öryggis- púðanum. Þetta em þó smámunir miðað viö þá miklu vöm sem ör- yggispúði veitir fullorðnum manni í árekstri ef bílbelti er einnig notað. Öryggispúði er frábær vöm fyrir fullorðna og hefur nú þegar bjargað mörg hundruð ef ekki þúsundum manna. Einn mjög stór galli á þess- um öryggisbúnaði er að hann er lífs- hættulegur bömum. Til þess að taka enga áhættu ættu böm undir 12 ára aldri aldrei að sitja í framsæti bíls andspænis ör- yggispúða. Yngri böm eru best var- in í aftursæti með bílbelti í bama- bílstól eða á bílpúða. (Heimild: Umferðarráð) -GLM Grand Cherokee Limited 5,9 '98, ek. 21 þús. km. Ásett verð 4.690.000 Tilboðsverð 4.490.000 Grand Cherokee Limited 5,2 '96, ek. 54 þús. km. Ásett verð 3.590.000 Tilboðsverð 3.390.000 SsangYoung Musso dísil '96 (06-98), ek. 32 þús. km. Ásett verð 1.990.000 Tilboðsverð 1.850.000 SsangYoung Izusu '95 (11-98), ek. 1 þús. km. Ásett verð 1.590.000 Tilboðsverð 1.490.000 Toyota Corolla XLi 1,6 '97, ek. 25 þús. km. Ásett verð 1.100.000 Tilboðsverð 990.000 Opel Astra st. 1,6 '97, ek. 47 þús. km. Ásett verð 1.100.000 Tilboðsverð 990.000 Suzuki Swift '92, ek. 103 þús. km. Ásett verð 490.000 Tilboðsverð 370.000 Peugeot 405 ‘92, ek. 216 þús. km. Ásett verð 590.000 Tilboðsverð 330.000 MMC Lancer 4x4 '91,ek. 151 þús. km. Ásett verð 550.000 Tilboðsverð 450.000 Renault Clio '92, ek. 88 þús. km. Ásett verð 490.000 Tilboðsverð 390.000 Ford.Mustang GT '94, ek. 89 þús. km. Ásett verð 2.100.000 Tilboðsverð 1.890.000 Daihatsu Charade SG '97, ek. 43 þús. km. Ásett verð 890.000 Tilboðsverð 750.000 Peugeot 405 st. dísil '96. Ásett verð 990.000 Tilboðsverð 850.000 Nissan Sunny '94, ek. 132 þús. km. Ásett verð 590.000 Tilboðsverð 480.000 Nissan Sunny '94, ek. 132 þús. km. Ásett verð 590.000 Tilboðsverð 480.000 Opel Vectra dísil '94, ek. 162 þús. km. Asett verð 890.000 Tilboðsverð 690.000 Toyota Touring 4x4 '91, ek. 132 þús. km. Ásett verð 790.000 Tilboðsverð 690.000 NÝBÝLAVEGUR 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.