Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1999, Page 26
26
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
%/aðan ertu?
Saga síldaráranna á Siglufirði hefur verið verið yrkisefni Sigurjóns í myndlistinni.
Lagði skíðin á hilluna fimm ára
- Sigurjón Jóhannsson, leikmyndahönnuður og myndlistarmaður, ólst upp á Siglufirði sem þá var alþjóðlegur bær og heimsborgaralegur
... í prófíl
Hasar eins og í villta vestr-
inu
Fenguð þið krakkamir að taka þátt í
skemmtanalíflnu?
„Nei, í rauninni ekki, en í landlegum
voru götumar svo sneisafullar af fólki,
hasar úti eins og í viilta vestrinu, og þá
vorum við að horfa á, fylgjast með. Auð-
vitað lutum við aldursákvæðum um að
taka þátt í dansleikjum og þess háttar.
Landleguböll komst maður ekki í fyrr
en maður náði aldri."
Hvemig em Siglfirðingar?
„Siglfirðingar vom og em enn, að
mér sýnist á félagsstarfsemi þeirra hér í
Reykjavík, mjög samhentir. Ég mundi
segja að þeir væm hjálpsamir. Er það
ekki einsdæmi að verkalýðsfélög geri
ráð fyrir því að svo og svo mörg störf
séu opin fyrir námsmenn að sunnan.
Þetta var samþykkt á Siglufirði forðum,
varðandi Sildarverksmiðjur ríkisins."
Finnst þér Siglufjörður hafa bfeyst
mikið?
Bærinn er óþekkjanlegur. Öll þessi
mannvirki atvinnulífsins em bókstaf-
lega horfm, nema yngsta verksmiðjan,
SR-mjöl. Hún er óþekkjanleg í útliti en
líklega að stofni til sú sem var reist
1945.“
Heldurðu að bærinn eigi möguleika á
að dafna og blómstra?
„Hann gerir það reyndar. íbúafjöld-
inn á Siglufirði er um 1600 manns. Hann
fór yfir 3000 þegar mest var en þetta var
svo mikill afturkippur eftir hrunið. En
nú sýnist mér öflug atvinnufyrirtæki
risin á staðnum, sbr. Þormóður
rammi/Sæberg. Nú sækja Siglfirð-
ingar fast að fá göng til að sameinast
Eyjafjarðarsvæðinu samgöngulega,
Þetta er grundvallaratriði."
Heldurðu aö þeir nái þessu mark-
miði?
„Þeir skulu... Þeir verða.
Annars fór ég að heiman sextán ára
gamall og hef nánast verið gestur þar
síðan þá. Kom þangað á sumrin til að
vinna á meðan ég var í menntaskóla og
mitt starfssvið beindist í aðrar áttir.“
Varstu aldrei sendur í sveit?
„Jú, sjö ára var ég sendur í sveit sem
var fastur liður í uppeldi bama. Ég var
svo heppinn að lenda í afdölum nyrst á
Tröllaskaga, sem heita Úlfsdalir, og upp-
Iifði þar í þijú ár verklag landnáms-
manna við sveitastörf. Þetta ásamt
þessu alþjóðlega samfélagi er grundvöll-
ur þess að vera íslendingur."
Fannst þér þú ekki vera orðinn gam-
all þegar þú komst suður?
„Mér fannst ég fljótt gamall, jú.“
Það var'í rauninni alveg stórbrotið að
alast upp á Siglufirði vegna þess að
þetta litla samfélag tók árvisst svo mikl-
um stakkaskiptum við síldarvertíðina
að íbúatalan tvöfaldaðist, jafnvel þre-
faldaðist. Þar var um að ræða bæði að-
komufólk í atvinnuleit og svo aftur sjó-
menn í landlegum, bæði innlendir og er-
lendir.
Á þeim árum héldu Norðmenn, Svíar
og Finnar út miklum síldveiðiflota sem
sjósaltaði síldina um borð. Þannig að
það gátu verið 200-300 skip úti í firðin-
um þegar mest var.
Hvers vegna var síldin ekki söltuð i
landi?
„Landhelgislög, fiskveiðilög og þess
háttar sáu tií þess að þeir hefðu ekki að-
stöðu í landi. En þessi Íslandssíld var
eftirsótt og þeir vildu ná í hana líka. Sví-
ar og Finnar voru lengst af stærstu
kaupendur íslandssildar, sem er sú síld
sem hvarf af miðunum á 7. áratugnum,
að öllum líkindum vegna okkar eigin of-
veiði - og endaði með algeru veiðibanni
1968.
Þetta setti gríðarlegan svip á þetta
samfélag, gerði það alþjóðlegt og heims-
borgaralegt."
Gott að ganga á timbri
Eins konar útlönd á íslandi?
„Já, um stund á
hveiju ári.“
Þar fyrir utan?
„Það var ákaf-
lega yndislegt að al-
ást þama upp, mik-
ið athafnafrelsi,
bryggjur voru leik-
svæði og reyndar
líka „próminaðe"
Sigifirðinga. Það
var gott að ganga á
timbri sem kringdi
alla eyrina, langt
fram eftir firði.“
Karakterar?
Mannlífsflóran var ákaflega fjöl-
breytt. Þama vora karlar og kerlingar
hver með sínu sniði og lagi. Ég man eft-
ir mektarmönnum eins og Óskari Hall-
dórssyni og Sveini Ben. og Baldri
blanka, Skafta á Nöf, Stjána á Kambi og
síðast en ekki síst Thora, Hinrik
Thorarensen, sem var bæði læknir, bíó-
stjóri, sjoppuhaldari og rak þar að auki
hænsnabú og hótel.
Á Siglufirði gerðist ævintýri sem stóð
í 60 ár, það hófst 1903 og lauk um 1963,
ýg þetta er í rauninni fyrsta stóriðja á
íslandi, mjöl og lýsisvinnsla sem hélt
miklum Mannlífsflóran var ákaflega fjölbreytt. Eitt af málverkum
Sigurjóns um sfldarárin.
þjóðinni á
floti. Það vom
fimm verk-
smiðjur á
Siglufirði og
22 síldarplön.
Þegar þessu
lauk tók ekki
nema tuttugu
ár að þumka
vegsummerki
þessara at-
hafna út. Þau
era gersam-
lega horfin í
dag, utan Síld-
arminjasafnið
sem var kom-
ið á laggimar
af
dugnaði og þar
var fremstur í
flokki Örlygur
Kristfinnsson. Þetta safn er núna í örum
vexti og er að verða að landmarki þessa
minnisvarða.
Þetta er saga sem getur ekki endur-
tekið sig vegna þess að samfélagið hefur
breyst svo mikið síðan þá.“
Nú hefur þú verið mjög ötull við að
segja þessa sögu í þinni myndlist.
„Já, faðir minn var mikill sögumað-
ur, hafsjór af fróðleik um síldarsöguna.
Hann fluttist ung-
ur til Siglufjarðar,
var þátttakandi í
sögunni frá upp-
hafi tfi enda,
þekkti þetta út og
inn en fyrir ótima-
bært andlát komst
þessi frásögn hans
ekki lengra. Það er
kannski ástæða
þess að ég er að
segja þessa sögu
með myndum mín-
um.“
Oft síldarleysisár
Hveijir voru helstu kostimir þegar
þú varst að alast upp?
„Kostimir vora kyrrlátir vetur og þá
iðkuðu menn félagslif af kappi. Það
voru miklar árshátíðir alls konar félaga
sem almenn þátttaka var i.
En í rauninni valt afkoma og velferð
manna á þvi að síldarvertíðin væri góð,
sem hún var ekki alltaf, langt því frá.
Það vom oft síldarleysisár, hvert á eftir
öðm, árum saman. En þegar vel aflaðist
þá var þetta svo skær mannlífsfókus og
heitur því þessum verðmætum varð að
ná og gera að útflutningsvöru, kannski
á tveimur mánuðum. Ég vann í þessu og
ólst upp í þessu og vinnuvikan fór mest
hjá mér í 146 klukkustundir sem er til
marks um það hvað á sig var lagt.“
En vom skíðin ekki aðalmálið á
Sigló?
„Já, ég komst aldrei upp á lag með
þau. Ég lagði skíðin á hifluna fimm
ára.“
Hvemig lékuð þið ykkur?
„Strákar vom auðvitað í alls konar
hasarleikjum. Það vom orrustur og
vopnaburður og hvað eina. En snemma
gerðist ég heldur hljóðlátur og undi við
mitt, við teikningar, sem varð til þess að
ég fór í skóla suður til Reykjavíkur til
þess að geta lagt stund á myndlistamám
með menntaskólanum. Siglfirðingar
fóm annars ævinlega inn til Akureyrar
til náms.“
Fannst þér Siglufiörður hafa ein-
hveija galla?
„Nei, ég fann aldrei til einangrunar.
Siglufiörður var ekki í vegasambandi
fyrr en vegurinn um skarðið var gerður
í kringum 1945 og honum var ekki hægt
að halda opnum nema örfáa mánuði á
ári. Síðan vom samgöngur til sjós, Flóa-
báturinn Drangur. Mér fannst skjólsamt
að vera þama og gott.
Það er ákaflega skjólsamt á Siglufirði,
þýður sunnanþeyr snemma á sumrin
með miklum hitum en gat orðið býsna
mikið rok i norðaustanátt, gat orðið svo
mikið að flóð varð á eyrinni; það hefur
gerst tvisvar eða þrisvar á öldinni."
Jón Fjörnir,
framkvæmda-
stjóri íslenska
draumsins
Uppá-
halds-
sjonvai-ps-
þáttur:
Fóstbræður.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Búinn að gleyma þeim öllum.
Leiðinlegasta kvikmyndin:
Documentary on Bored Dogs.
in America.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn:
Eva Bergþóra.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Bankastræti 11.
Besta „pikköpp“línan: Best
að brosa og vera kurteis.
Hvað ætlar þú að verða þeg-
ar þú verður stór: Ég ætla að
feta 1 fótspor Peters Gubers
sem er bandarískur harðjaxl
með steinhjarta.
Eitthvað að lokum: Allt er
harla gott.
FuUt nafn: Jón Fjörnir
Thoroddsen.
Fæðingardagur og ár: 23.04
1971.
Maki: Enginn.
Börn: Engin.
Starf: í dag er ég fram-
kvæmdastjóri gamanmyndar-
innar íslenski draumurinn
sem verið er að taka upp í
sumar og haust.
SkemmtUegast: Að vaxa og
dafna.
Leiðinlegast: Að drabbast.
Uppáhaldsmatur: Það er
ansi margt gott, t.d. lundi, og
indverskir grænmetisréttir
eru líka í uppáhaldi.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Fallegasta manneskjan (fyr-
ir utan maka): Það eru
margar fal-
legar
mann-
gert upp á milli
FaUegasta röddin: Ana
Yang.
Uppáhaldslíkamshluti: Aug-
un, þau eru spegill sálarinnar.
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
ríkistjóminni: Hlynntur í
langflestum málum.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú vUja eyða
nótt: Tinna, hann er svo víð-
fórull.
Uppáhaldsleikari: Þórhallur
Sverrisson, íris Þöll, Jón
Gnarr og Guðrún Gísladóttir
eru öll frábær. Björgvin Franz
er líka efnilegur.
UppáhaldstónUstarmaður:
Hafdís Huld.
Sætasti stjórnmálamaður-
inn: Shirley Temple.