Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1999, Qupperneq 51
DV LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
SVÍðsljÓS x. *
Lífvörður Charlie Sheen
kærður fyrir að lemja konur
Það virðist eins og vandræðin
safnist að Charlie Sheen eins og mý
á mykjuskán. Leikarinn hefur nú
verið kærður af tveimur konum,
þeim Erin Sieman og Christina
Stramaglia, sem fóru upp að húsi
hans og voru lamdar af alvitlausum
lífverði.
Samkvæmt lögregluskýrslum
gerðu konumar ekki annað en að
banka á dyr leikarans. Lífvörðurinn
opnaði og það fyrsta sem hann gerði
var að kýla Sieman í andlitið með
þeim afleiðingum að hún nef- og
kinnbeinsbrotnaði. Þegar Stramagl-
ia reyndi að koma vinkonu sinni til
bjargar réðst lífvarðarbullan á hana
líka. Sheen og lífvörðurinn hafa
báðir verið dregnir fyrir dómstóla
en að sögn lögfræðings þeirra neita
þeir staðfastlega öllum sakargiftum.
Jason Patrick:
Dónalegur við
aðdáendur
Maður skyldi ætla, ef dæma
Imá af viðtökum við nýjustu
mynd Jasons Patricks, að hann
mætti þakka fyrir að einhver
bæri kennsl á hann. Leikaran-
í um tókst þó að móðga nær alla
I viðstadda þegar hann mætti á
j hljómleika sem haldnir vora
| Bítlunum til heiðurs í
[Hollywood Bowl á dögunum.
Jason og vinir hans töluðu
stanslaust og hlógu meöan
listamenn komu fram. Þeir
I stóðu líka upp til þess að dansa
1 og urðu þess valdandi að þeir
sem sátu fyrir aftan þá sáu ekki
á sviðið.
■ Einn aðdáandi Jasons,
5 stúlka, var samt í hópnum og
| sagði við hann að hún hefði
| alltaf dáðst að leik hans. í stað
^ þess að þakka fyrir sig, spurði
: Patric í hvaða mynd hún hefði
1 séð hann. Aðdáandinn byrjaði
I að tala um myndina Lost Boys,
frá árinu 1987, þar sem Jason
lék með Kiefer Sutherland.
Jason svaraði þá hranalega: „Ef
j það er það eina sem þér dettur
í í hug þá hef ég ekki áhuga á því
5 að tala við þig. Farðu!“
Jason hefði frekar átt að
| þakka fyrir að stúlkan minntist
1 ekki á myndina Speed 2 Cruise
Control ... en hún hefur áreið-
| anlega ekki séð hana frekar en
I aðrir.
Sama ábyrgð og IBM og Hewlett Packard
sömu möguleikar og sami hraði
Allt, allt annað verð
(auk þess sem við látum stafræna myndavél fylgja 50 fyrstu P3 vélunum)
0TATUNG
Tatung TTD2261
433 MHz Intel Celeron A örgjörvi
17" hágæða skjár m/hátölurum
8,4 GB harður diskur
40 hraða geisladrif
64 bita Creative hljóðkort
56 K faxmódem
64 MB minni SDRAM lOOhrz
8MB ATI Rage skjákort
2 USB tengi
3 mánaða internetáskrift
Lyklaborði, mús og Windows 98
0TATUNG
Tatung TTB 3289
450 MHz Plll örgjörvi
17” hágæða skjár m/hátölurum
8,4 MB harður diskur
6 hraða DVD drif
64 bita Creative hljóðkort
56K faxmódem
64MB minni SDRAM lOOhrz
8MB ATI Rage skjákort
2 USB tengi
3 mánaða internetáskrift
Lyklaborð, mús og Windows 98
89.900,- 129.900,-
Stafræn myndavél fylgir 50 fyrstu tölvunum.
Tatung er einn stærsti tölvuframleiðandi heims. Verksmiðjur fyrirtækisins munu í ár framleiða
1,2 milljónir tölva. Um leið er Tatung framsækið fyrirtæki og í fararbroddi í þróun nýrrar tækni.
Þannig var það Tatung sem leysti 2000 vandann fyrstur allra framleiðanda árið 1994.
Allar Tatung tölvur sem seldar eru í Griffli eru framleiddar og að fullu samsettar í verksmiðjum
Tatung samkvæmt ströngustu gæðastöðlum, þ.á.m. ISO 9001. Tatung er merki sem er þekkt
um allan heim fyrir gæði og endingu. Við hjá Grifflí erum þess vegna stolt af að hafa verið valin
sem umboðsaðili fyrir Tatung.
www.griffill.is
SKEIFUNNI lld
Sími 533 1010
Opnunartimi um helgina: Laugardag: 10:00 -18:00, Sunnudag: 12:00 -18:00