Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Reyna mun á festuna „Almennt virðist mega gera ráð fyrir að samsetning ríkisstjórna og styrkur þeirra á þingi hafi nokkur áhrif á útgjaldaþróun ríkisins. Þannig eyða hægri stjórnir minna en vinstri stjórnir, og eins skiptir þingstyrkur ríkisstjórna nokkru máli fyrir útgjöldin.“ Þetta er meðal annars niðurstaða Gunnars Helga Kristinssonar, pró- fessors í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, í nýút- kominni bók hans, Úr digrum sjóði. í bókinni fjallar pró- fessorinn um fjárlagagerð hér á landi, það mikilvæga en umdeilda starf að dreifa fjármunum skattgreiðenda ár- lega milli stofnana, þjóðfélagshópa og landsvæða. í bókinni eru bornar saman stefnuskrár stjórnmála- flokkanna. Þar bendir Gunnar Helgi á að í heildina megi segja að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi á sér ákveðinn sparnaðarsvip. Það stafi ekki aðeins af því að þessir flokkar leggi oftar áherslu á sparnað en hinir, heldur líka af minni áherslu á þann málaflokk sem einkum hefur verið útgjaldaaukandi, félags- og heil- brigðismálin. Höfundur segir áherslur núverandi stjórnarflokka, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, um margt líkar. Flokkarnir fjalli meira um stjómkerfið en aðrir flokkar, oft um sparnað, mikið um efnahagsmál í víðum skiln- ingi en áberandi minna um félags- og heilbrigðismál en hinir flokkarnir. Niðurstaða prófessorsins, eftir að hafa skilgreint flokkslega samsetningu hérlendra ríkisstjórna, er að ákveðin festa í stjórnmálum virðist hagstæð fyrir við- leitnina til að halda aftur af útgjöldum ríkisins. Mikill fjöldi flokka og lítill þingmeirihluti stuðli að aukningu útgjalda á meðan færri flokkar og tryggari þingmeiri- hluti vinna gegn útgjaldaaukningu. Á þessum rökum ráku stjórnarflokkamir kosningabar- áttu sína fyrir þingkosningamar í vor. Þeir héldu rífleg- um þingmeirihluta og áfram stjórnarsamstarfinu. Gengi þeirra var þó misjafnt. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut góða kosningu en Framsóknarflokkurinn síðri. Almennt má þó álíta að meirihluti kjósenda hafi kallað eftir áframhald- andi festu í stjóm landsmála, aðhaldi í rikisijármálum og um leið stöðugleika í efnahagsmálum. Sá stöðugleiki er mikilvægur einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum. Kjósendur horfa því til þess hvernig til tekst með stjórn landsmála. Það kom fram í nýlegri skoðanakönn- un að ríkisstjórnin nýtur mikils fylgis. Stjórnvöld standa þó frammi fyrir vanda. Þensla er í samfélaginu og mikil eftirspurn eftir vinnuafli. Verðbólgan, sá gamli draugur, er komin af stað. Verðbólga hér á landi er nú meiri en í helstu samanburðarlöndum okkar, 3-4 pró- sent á móti 1-2 prósentum. Slíkt skerðir samkeppnis- stöðu íslensks atvinnulífs. Þá eru kjarasamningar laus- ir fljótlega á næsta ári. Þórður Friðjónsson, verðandi forstjóri Þjóðhagsstofn- unar, hefur varað við versnandi horfum eftir hagsæld síðustu ára, mikinn hagvöxt og litla verðbólgu. Þótt góð- ærið sé enn við lýði eru blikur á lofti. Kjósendur gerðu sér grein fyrir þessu og vissu meðal annars af lausum kjarasamningum á næsta ári. Þeir endurnýjuðu umboð stjórnarflokkanna og það var gert í trausti þess að stjórn þeirra tryggði stöðugleika. Á það reynir ekki síst á næsta ári. Þá kemur í ljós hvort hægri stjórn með ríflegan meirihluta sýnir þá festu sem sagan segir að vænta megi, miðað við rann- sóknir Gunnars Helga Kristinssonar prófessors. Jónas Haraldsson Greinarhöfundur telur mikilvægt að forsvarsmenn fyrirtækja hafi skoðun á því hvernig hið opinbera skólakerfi mætir þörfum atvinnulífsins fyrir þekkingu á hverjum tíma. Þrír milljarðar í endurmenntun jafnt til afþreyingar sem til þess að afla sér nýrrar starfstengdrar þekkingar og þjáifunar. Starfstengd endur- menntun er að stórum hluta boðin fram af endurmenntunarstofn- unum atvinnulífsins sem reknar eru fyrir framlag fyrirtækja og starfsmanna þeirra. í nýrri skýrslu dr. Jóns Torfa Jónssonar (Staða endurmenntunar á ís- landi, 1999) kemur fram að einstaklingar, fyrir- tæki og félög verja um 3 milljörðum króna í endurmenntun hér á landi. Þetta sýnir að fyrirtæki og starfs- menn þeirra hafa sýnt ábyrgð með því að „Sérstaklega er mikilvægt að fyrirtæki, sem nú þegar greiða fyrir endurmenntun starfsmanna sinna, annaðhvort beint eða gegnum kjarasamninga, hafi mótaða menntastefnu og geti hvenær sem er svarað sjálfum sér og öðrum hvers vegna verja skuli fé til endurmenntunar. “ Ingi Bogi Bogason menntafulltrúi Samtaka iðnaðarins og form. Menntar - samstarfs- vettvangs atvinnulífs og skóla Fyrirtæki nútím- ans eru reist á þekkingu og færni starfsmanna. Veltu- hraði þekkingar- innar er hins vegar orðinn svo mikill að fyrirtækjunum er nauðsyn að bregðast við með skipulögðum hætti. Um allan heim fara saman mennt- un og hagsæld og fákunnátta og fá- tækt. Þessi stað- reynd er hafin yfir menningarmun og náttúrlegar aðstæð- ur. En hvert er sam- hengi menntunar og hagsældar? Hvort er orsök og hvort er afleiðing? Samhengið er óljóst en fullyrða má að þessir þættir hafi víxlverkandi, stig- magnandi áhrif hvor á annan. Starfstengd endurmenntun Hér á landi er miklum fjármunum varið til menntun- ar. Á fjárlögum síð- asta árs rann um 6 1/2 milljarður króna til háskóla- stigsins, um 7 milljarðar króna til framhaldsskólastigsins og um 4 milljarðar króna til grunnskóla- stigsins. Freistandi er að spyrja hvort ekki sé unnt að verja þess- um háu fjárhæöum með skilvirk- ari hætti en nú er gert. Hér á landi hefur endur- og eft- irmenntun aukist mikið undanfar- inn áratug. Þúsundir manna og kvenna sækja árlega námskeið utan hins opinbera skólakerfis, leggja fram fjármuni fyrir utan hið opinbera kerfi til menntunar til eigin þarfa. Veltuhraði þekkingar eykst Fyrirtæki nútímans eru reist á þekkingu og færni starfsmanna. Veltuhraði þekkingarinnar er hins vegar orðinn svo mikill að fyrirtækjunum er nauðsyn að bregðast við með skipulögðum hætti. Atvinnulifið hefur á undan- fórnum árum lagt æ ríkari áherslu á endurmenntun starfsmanna og stjómenda sem lykil að aukinni samkeppnishæfni og framleiðni fyrirtækja. Atvinnurekendasam- tökin og launþegahreyfmgin hafa af þessum sökum sameiginlega beitt sér fyrir öflugri starfstengdri endurmenntun. Þrír milljarðar til endurmennt- unar eru miklir fjármunir og kalla því á ábyrga afstöðu þeirra sem málið varðar. Sérstaklega er mik- ilvægt að fyrirtæki, sem nú þegar greiða fyrir endurmenntun starfs- manna sinna, annaðhvort beint eða gegnum kjarasamninga, hafi mótaða menntastefnu og geti hvenær sem er svarað sjálfum sér og öðrum hvers vegna verja skuli fé til endurmenntunar. Sömuleiðis er mikilvægt að forsvarsmenn fyr- irtækja hafi skoðun á því hvernig hið opinbera skólakerfi, grunn-, framhalds- og háskólakerfið mæt- ir þörfum atvinnulífsins fyrir þekkingu á hverjum tíma. Rétt menntun - forsenda hagsældar Menntun er dýr og hún er dýr- mæt. Öll menntun skilar sér í hetri lífsgæðum en hún nýtist misvel til ákveðinna starfa. Á tímum flókins starfsumhverfis, þegar nýjum störfum fjölgar til hliðar við skilgreind réttinda- störf, er mikilvægt að íhuga vel hvaða menntun sé líkleg til að skila bestri afkomu. Rétt mennt- un í þessum skilningi er sú mennt- un sem hefur fólgin í sér mest virðisaukandi áhrif. Það er á ábyrgð einstaklinga og fyrirtækja að sækjast eftir slíkri menntun. Aukist eftirsókn eftir réttri menntun nást mörg mikil- væg markmið. Fíárfesting í réttri menntun skilar einstaklingum og fyrirtækjum betri arði og samfé- laginu meiri almennri hagsæld. Ingi Bogl Bogason Skoðanir annarra Dreifð eignaraðild í einkavæðingu „í umræðum eins og þeim, sem staðið hafa um bankamálin um skeið í tilefni af sölu sparisjóðanna á hlut þeirra i FBA tU Orca S.A. verður smátt og smátt til mynd af því um hvað þjóðin getur sameinast, þeg- ar um er að ræða endurskipulagningu bankakerfisins og einkavæðingu ríkisbankanna. Tæpast fer á milli mála, að hún getur sameinast um það, að eignaraðUd af bönkum skuli vera dreifð. Ætla má að hún geti líka sameinast um að æskilegt væri að setja lög og reglur til þess aö tryggja að þvi markmiði veröi náð. Hins vegar eru skiptar skoðanir um það, hvort það sé yfir- leitt framkvæmanlegt." Úr forystugrein Mbl. 26. ágúst. Dreifbýlingar og þéttbýlingar „Mér er orðið nær að halda að gæfa og farsæld ís- lensku þjóðarinnar standi og faUi með því hvort ein- hver hús verði byggð i Laugardalnum í Reykjavík eða ekki... Ég er fæddur í Reykjavík niðri við Tjörn og bjó sextiu ár i miðbænum þar sem útivistarsvæðið er flugvöUur ... Stundum hugsa ég sem svo: MikUl ham- ingjuauki yrði það nú fyrir íslendinga ef þeir sem búa í þéttbýli sættu sig við að vera borgarbúar og þeir sem búa í dreifbýli sættu sig við að vera dreifbýling- ar ... Dreifbýlinga dreymir um að fá að búa í þéttbýli og þéttbýlinga dreymir um að að fá að búa í dreif- býli... Ég er einn þeirra sem lét þann draum rætast.“ Flosi Ólafsson, Bergr, i pistli sínum í 32. tbl. Skessuhorns. Gamli tíminn í bankakerfinu „Umræður síöustu daga og vikna um reglur um eignarhald hafa um margt verið gagnlegar þó sumt komi spánskt fyrir sjónir ... Vegna þeirrar stöðu sem bankar gegndu hér á landi á tímum flármagns- skömmtunar virðast sumir eiga erfitt með að átta sig á þeirri staðreynd, að i dag eru bankar hér reknir á arðsemisgrundveUi verðs og gæða eins og önnur þjón- ustufyrirtæki. Það er eins og tU að undirstrika þetta að Morgunblaðið skuli kaUa tU pólitískan fuUtrúa gamla tímans í íslenska bankakerfinu tU sönnunar á því, að „því fari fjarri að sérfræðingar í fjármálageir- anum séu á einu máli“ um að reglur um dreifða eign- araðild séu óframkvæmanlegar.“ Úr forystugrein Viðskiptablaösins 25. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.