Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
^ Fólksbíla og jeppakerrur
Verð fra j ýrvali. ^
8.000
Bæjardekk
Langatanga 1a - Mosfellsbæ - Sími 566 8188
$ SUZUKI
Suzuki Baleno GLX, skr. 6/'9€,
ek. 56 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 990 þús.
Suzuki BalenoWG, skr. 1/'98, ek.
35 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1320 þús.
Suzuki Swift GLS, skr. 12/'98,
ek. 38 þús. km, þsk., 3 dyra.
Verð 810 þús.
Suzuki Swift GLX, skr. 6/'98, ek.
22 þús. km, þsk., 5 dyra.
Verð 870 þús.
Suzuki Vitara SE, skr. 8/'98, ek.
17 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1750 þús.
BMW 318IA, skr. 7/‘96, ek. 51
þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 1990 þús.
Daihatsu Ferosa EL, skr. 7/'94,
ek. 70 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 820 þús.
Ford Escort CLX, skr. 11/'95, ek.
43 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 890 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 5/'96, ek.
43 þús. km, bsk., 4 dyra.
Verð 890 þús.
Hyundai Accent GSI, skr. 7/'97,
ek. 24 þús. km, þsk., 3 dyra.
Verð 790 þús.
Hyundai Elantra, skr. 11/'93, ek
99 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 690 þús.
MMC Colt GLXI, skr. 3/'93, ek.
95 þús. km, ssk., 3 dyra.
Verð 730 þús.
MMC Lancer GLX, skr. 10/'96,
ek. 66 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1150 þús.
MMC Lancer GLX, skr. '91,
ek. 110 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 490 þús.
Níssan Sunny WG, skr. 8/'91,
ek. 103 þús. km, bsk.
Verð 690 þús.
Opel Corsa, skr. 10/'97,
ek. 36 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 880 þús.
Subaru Legacy WG, skr. 8/'92,
ek. 124 þús. km, bsk.
Verð 940 þús.
Toyota Corolla XL, skr. 6/‘95,
ek. 85 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 850 þús.
Einnig nokkrir bílar á gjafverði.
Kynntu þér málið!
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
Undur oq stórmerki... + í + + v r «Æ
www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Kvikmyndir
- Three Seasons:
I greipum annarlegrar menningar
Víetnam hefur óneitanlega
sett svip sinn á bandaríska sögu þótt
hinir asísku hafi ekki haft frum-
kvæði að þvi. Enda er það svo að í
Bandaríkjunum stendur Víetnam
fyrir allt annað og „meira“ en stakt
ríki. Víetnam er vendipunktur, upp-
gjör, fall, myrkur gjörningur, enda-
lok sjáifgefinnar hemaðardýrkunar
og umfram annað blóðug styrjöld.
Þessum hliðum Víetnam hafa verið
gerð skil í fjölda bandarískra kvik-
mynda og fer fortíðaruppgjörið oft
fram í Bandaríkjunum. Atburöarásir
þeirra mynda sem eiga sér stað í Ví-
etnam byggja aftur á móti nær ein-
göngu á miklum bardagasenum.
Three Seasons er skemmtilegur við-
snúningur á þessari hefð en hún
fjallar um innfædda í Víetnam löngu
eftir stríðið. Bandarískir fjár-
magnendur hafa enn fremur látið Ví-
etnömum eftir helstu lykilstöður við
gerð myndarinnar. Þó bregður fyrir
víðfrægu Hollywood-andliti, eflaust
til að tryggja sölu myndarinnar.
Það er mikill fjöldi eftirminni-
Kvikmynda
GAGNRÝNI
legra persóna sem kemur hér við
sögu, en tengsl þeirra á milli eru af
margvíslegum toga. Hjólreiðar-
þjónninn Hai (Don Duong) fellur
fyrir vændiskonunni Lan (Zoe Bui)
og eltir hana hvert sem hún fer.
Kien An (Ngoc Hiep) tínir lótusblóm
hjá hinum sjúka Dao (Manh Cuong)
og heillast af skáldagáfu hans með-
an söngur hennar vekur upp hjá
honum löngu horfnar kenndir. Þá
er einnig staddur þama Bandaríkja-
maður (Harvey Keitel), sem tók þátt
í styrjöldinni frægu, í leit að dóttur
sinni. Lykilpersóna myndarinnar
kann þó að vera hinn barnungi
Woody (Nguyen Huu Duoc) er þræð-
ir götur Saigon í von um að selja
vcgfarendum hvers konar smáhluti.
Þessar persónur eru hver annarri
áhugaverðari og afskaplega vel
leiknar.
Hversdagsdrama persónanna
myndar í sameiningu víðfeðma
samfélagsmynd af þjóð á merkum
tímamótum. Hér birtist hún í ánauð
vestrænnar menningar og sérstak-
lega Bandaríkjanna og rímar
þannig við kúgun þjóðarinnar með-
an á stríðinu stóð. Persónurnar
þjóna og selja sig Vesturlandabúum
sem tilheyra öðrum heimi jafnvel
þótt þeir séu staddir í Víetnam.
Three Seasons veltir upp þeirri
spurningu hvort að sá heimur sé
nokkuð eftirsóknarverður fyrir inn-
fædda og hvort þeir hafi ekki öðrum
hefðum og skyldum að gegna. Úr-
vinnsla þessara knýjandi spuminga
birtist hér í forvitnilegri fléttu sem
gædd er glæsilegu útliti.
Leikstjóri: Tony Bui. Kvikmynda-
taka: Liza Rinzler. Handrit: Tony
Bui og Timothy Linh Bui. Aöalhlut-
verk: Don Duong, Zoé Bui, Ngoc
Hiep, Nguyen Huu Duoc og Har-
vey Keitel. Víetnömsk/bandarísk,
1999.
- Björn Æ. Norðfjörð
- Slam
Ljóð og blóð
★★★ Slam er fyrsta alvörukvik-
mynd leikstjórans Marc Levin, sem
hefur gert heimildamyndir um fang-
elsi, dóp og glæpagengi. Myndin segir
frá ungum blökkumanni sem er hæfi-
leikarikt ljóðskáld en vinnur fyrir sér
með dópsölu. Eftir að vinur hans er
skotinn fyrir framan hann er hann
tekinn með dóp á sér og lendir í fang-
elsi, sem reynist honum erfitt, enda
er hann tilfinninganæmur friðar-
sinni. Hann verður bitbein tveggja
fangelsisgengja en í gegnum ljóð sín
nær hann til sumra fanganna. Hann
þarf þó sjálfur aðstoð til að horfast i
augu við eigin vandamál.
Þessi mynd hefur sinn skerf af
kostum og göllum. Það eru oft miklar
tOfinningar í gangi og það reynir því
verulega á leikarana og það er lofs-
vert hversu vel Levin tekst að halda
óreyndum leikhópnum á jörðinni,
sérstaklega hvað aðalhlutverkin varð-
ar, sem eru ekki í höndum leikara
heldur ljóðskáldanna Saul William og
Sonja Sohn, sem koma mjög eðlilega
út (kannski vegna þess að þau eru að
vissu marki að leika sjálf sig). Mynd-
in er augljóslega gerð fyrir lítinn pen-
ing en Levin vinnur mjög vel úr því
sem hann hefur og notar sjónarhom,
kiippingar og myndvinnslu á hug-
myndaríkan hátt. Þá inniheldur
myndin sannan og góðan boðskap.
En það er einmitt boðskapurinn
sem fer með myndina, þvi Levin er
svo mikið niðri fyrir að hann klúðrar
söguþræðinum þannig að mynd sem
á að vera raunsæ verður fremur
bjánaleg. Boðskapurinn er framreidd-
ur á bamalegan hátt og myndin er öll
í frekar einfeldningslegum og leiðin-
legum predikunartón, nánast eins og
svört gettó-útgáfa af Life Goes On eða
svipuðum bandarískum sjónvarps-
Kvikmynda
GAGNRÝNI
þáttum. Þar á ofan fannst mér ljóðlist-
in, sem er veigamikill þáttur í mynd-
inni, vera yfirkeyrð og illa grunduð.
Myndin hefur sem sagt stóra gaila,
en einnig stóra kosti, og þaö er að
minnsta kosti ekki hægt að segja að
hún sé flöt. Hún er að mörgu leyti
áhugaverð og leikstjórinn sýnir til-
burði sem gætu lofað góðu fyrir fram-
tíðina ef hann nær að slaka aðeins á
í predikuninni.
Leikstjóri: Marc Levin. Handrit:
Marc Levin, Richard Stratton, o.fl.
Kvikmyndataka: Mark Benjamin.
Klipping: Emir Lewis. Tónlist: DJ
Spooky. Leikarar: Saul Williams,
Sonja Sohn, Bonz Malone,
Lawrence Wiison og Beau Sia.
Bandarísk, 1998.
Pétur Jónasson
, “BT - Happiness
A skuggalendum sannleikans
★★★ Þulur sjónvarpsauglýsing-
ar um bók eftir íslenskan rithöfund
sem kom út fyrir mörgum árum og
ég man ekki lengur hvað heitir,
taldi meðal annars til kosta bókar-
innar að „höfundur afhjúpaði ömur-
leika hversdagslegrar tilveru". Það
hefur alltaf verið svolítið freistandi
að spyrja af hverju í ósköpunum
var hann að því? Því hver vill láta
svipta blekkingarhulunni frá vit-
undinni og horfast í augu við hyl-
dýpiö, tilgangsleysið og nístandi
einmanaleikann? Flestir kjósa, alla
vega að einhverju leyti, að leita
skjóls í alsælu fáfræðinnar.
Ekki Todd Solondz. Það mætti
orða það sem svo að hann hefði
komið sér fyrir á einhvers konar
skuggalendum mitt á milli harm-
leiks og kaldhæðni. Þaðan sendir
hann frá sér skýrslur um hið mann-
lega ástand, sögur um alltof venju-
legt fólk með ofur kunnuglegar von-
ir og þrár um gagnkvæma ástúð og
umhyggju sem því miður fást lík-
lega aldrei uppfylltar. Það virðist
ekki skipta máli þótt sumir njóti
velgengni en hjá öðrum gangi allt á
afturfótunum; áðurnefndur ömur-
leiki tilverunnar smýgur inn um
Kvikmynda
GAGNRÝNI
allar rifur og heltekur persónurnar.
Happiness er saga um þrjár syst-
ur og fólkið í kringum þær. Sú
fyrsta, Joy, er lánlaust lítið laufblað
sem fýkur um í lífsins stormi og
lendir stundum á stööum þar sem
umsvifalaust er valtað yfir hana.
Önnur, Helen, er virt ljóðskáld sem
út á við virðist hafa allt sem þarf og
kvartar jafnvel undan of miklum
vinsældum en þjáist um leið af full-
vissu um eigin grunnhyggni og sú
þriðja, Trish, er húsmóðir með tvö
böm og eiginmann sem skaffar vel,
hún telur sig í öruggri borg en
blekkingin hrynur þegar í ljós kem-
ur að sálfræðingurinn, eiginmaður
hennar, er bamaníðingur sem situr
um vini sonar síns. Til viðbótar
upplifum við hliðarsögur um fólkið
sem snertir líf systranna á einhvem
hátt og þar rekur hver ógæfan aðra.
Þetta kann allt að hljóma sérlega
óaðlaðandi en upplifúnin er engu að
síður sterk. Líkt og í fyrri mynd
Solondz, Welcome to the Dollhouse,
sem sýnd var á síðustu Kvikmynda-
hátíð, er yfir þessari írónískur tónn
og vissulega býður hann okkur að
brosa. En það bros er fljótt að frjósa
og í staðinn emm við heltekin ai
þeirri tilfinningalegu hreinskilni
sem blasir við og nær hámarki í
mögnuðu samtali bamaníðingsins
við son sinn, sem spyr hann út í
gjörðir hans og fær sannleikann,
hreinan, tæran og sérlega ógeðfelld-
an til baka. Og það er nöturlega
kaldhæðnislegt að hugsa til þess að
einmitt þau viðbrögð foðurins að
segja allan sannleikann, gefa okkur
ofurlitla von um að drengurinn
ungi muni ekki bíða óbætanlegan
skaða af þessari skelfilegu reynslu.
Einmitt þess vegna kann að vera
þarft og gott að láta höfunda á borð
við Solondz og fleiri „afhjúpa ömur-
leika hversdagslegrar tilveru".
Handrit og leikstjórn: Todd
Solondz. Kvikmyndataka: Marysa
Alberti. Tónlist: Robbie Kondor.
Aðalhlutverk: Jane Adams,
Cynthia Stevenson, Lara Flynn
Boyle, Dylan Baker, Louise Lasser,
Ben Gazzara.
Ásgrímur Sverrisson