Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Síða 16
i mennmg
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
Á Menningamótt í Reykjavík var opnuð
sýningin Firma ‘99, afrakstur samstarfs
Myndhöggvarafélagsins í Reykjavik og nokk-
urra stofnana borgarinnar. Markmiðið er
„að efla sýnileika þrívíðrar myndlistar og
skipa myndlist fastari sess í „landslagi"
borgarinnar" eins og segir í sýningarskrá.
Tíu myndlistar-
menn og jafnmargar
borgarstofnanir taka
þátt í sýningunni. í
Árbæjarsafni sýnir
pólskur listamaður,
Jaroslaw Kozlowski, í
Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum Inga
Svala Þórsdóttir,
Finninn Jukka
Járvinen sýnir í Véla-
miðstöð Reykjavíkur,
Þorbjörg Þorvalds-
dóttir á Hlemmi, Birg-
ir Andrésson hjá
Slökkviliði Reykjavík-
ur, Helgi Hjaltalín
Eyjólfsson á Borgar-
bókasafninu, Harald-
ur Jónsson á Tjarnar-
borg, Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir í Vest-
urbæjarlaug, Inga
Ragnarsdóttir í Sorpu
við Ánanaust og Ósk
Vilhjálmsdóttir
framdi gjörning í sam-
starfi við Reykjavík-
urhöfn og bauð upp á
ferðir út í Engey á
opnunardag.
Reyndar er dálítið
klaufalegt að tala um
sýnileika þrívíðrar
myndlistar í ljósi þess
að hið áþreifanlega
listaverk er í mörgum
tilvikum aðeins tví-
vítt þótt hið huglæga
rými sem verkið
krefst tilheyri ávallt fleiri víddum. Eitt verk-
ið er með öllu óáþreifanlegt þó vissulega eigi
það sér stað í tíma og þrívíðu rými. Annað
kveikir hugmynd um tímatæmi sem leiðir
hugann að svartholinu sem hugsanlega eru
dyrnar yfir í aðrar víddir og hin svonefnda
fjórða vídd, tíminn, kemur víða við sögu.
Hér verður ekki unnt að gera sýningunni
almennileg skil en flest verkin þykja mér
góð og öll verðskulda mun betri umijöllun.
Að mínum dómi hefur valið á listamönnun-
um tekist ágætlega og virðist samstarfið við
stofnanimar hafa gengið þokkalega. Verk
Óskar Vilhjálmsdóttur gekk þó ekki upp og
er kannski dæmi um hversu erfitt getur ver-
ið að fá fólk til að taka myndlistina alvar-
lega, en það var flókið i framkvæmd og við
marga að eiga. Skip og annar búnaður sem
henni var fenginn var engan veginn full-
nægjandi og fengu færri en vildu tækifæri til
að stíga á land í eynni og má þakka fyrir að
ekki urðu slys á fólki. Hugmyndin að verk-
inu er þó spennandi og var það upplifun fyr-
ir þá sem komust alla leið þó vissulega hafi
þeir lent i nokkurri svaðilfór.
Það sem er bæði gamalt og nýtt við þessa
sýningu er að listamönnunum er uppálagt að
taka mið af starfsemi stofnananna og í mörg-
um tilvikum tekst mjög vel að ná réttu
stemningunni. Einna áhrifamest þykir mér
verk Haralds Jónssonar, Barn. Rödd úr há-
talara les texta um uppvöxt og uppeldi barns
Myndlist
Áslaug Thorlacius
yfir bamlausum, upplýstum leiktækjum á
leikvelli Tjarnai’borgar og fær áhorfandinn
beint i æð tilfinninguna fyrir bernskunni og
því margþættaða og mikilvæga starfi sem
fram fer í leikskóla. Dæmi um skemmtilega
efnisnotkun er hin stórmöskvaða vírgirðing
sem allir bændur nota og Inga Svala Þórs-
dóttir notar í gegnsætt Völundarhús sitt í
Húsdýragarðinum.
Þó Birgir Andrésson sýni aðeins tvær
málmplötur á vegg teygir rúmtak verksins,
farvegur sjúkra- og slökkvibíla í eina viku,
sig um alla borg, athafnasvæði slökkviliðs-
ins. Og klukknapör Kozlowskis eiga skýra
samsvörun í starfsemi safnsins þar sem leit-
ast er við að geyma löngu liðinn tíma í núi.
Helgi Eyjólfsson leggur Borgarbókasafn-
inu til á annan tug myndverka til útlána og
útbreiðir með þeim hætti listina. Verk Helga
hef ég ekki séð, þau eru í útláni en ég veit að
á meðal þeirra leynast Ryksafnarar sem eru
viðeigandi á bókasafni.
Korktöflur Jukka Járvinen í Vélamiðstöð
borgarinnar eru sömuleiðis góð tilraun til að
útbreiða umræðuna um nútímamyndlist
enda má vel hugsa sér að um þær geti spunn-
ist líflegar umræður. Þannig eru þær
skemmtileg uppspretta mannlegra sam-
skipta sem í sjálfu sér eru skúlptúr, a.m.k.
meira en tvívíður viðburður.
tm
Carnegie-myndlistarverð-
: laun veitt sænskum lista-
manni
Nú hefur verið tilkynn hverjir hljóti hin
eftirsóttu Camegie-myndlistarverðlaun sem
: úthlutað er í
Itengslum við
farandsýningu
sænska fjár-
málafyrirtækis-
ins með sama
nafni. Fyrstu
Iverðlaun, litlar
500.000 s.kr. eða
rúmlega 4 milljónir íslenskra króna, hlýtur
sænski listmálarinn Rolf Hanson, önnur verö-
laun, 300.000 s.kr. hlýtur fmnska listakonan
SOja Rantanen og þriðju verðlaun, 200.000
s.kr., hlýtur bandarískur listmálari, Clay
||| Ketter að nafni, sem búsettur er í Svíþjóð. Að
venju er ungum listamanni einnig veittur
starfsstyrkur að upphæð 50.000 s.kr. og fellur
hann í skaut dansk-ísraelska listmálaranum
TalR.
Verðlaunin verða afhent í tengslum við
opnun áðurnefndrar farandsýningar í Kun-
stnemes Hus í Ósló þann 15. október nk. Val-
ið var úr verkum 81 norræns listmálara tO
j sýningarinnar, og hlutu 27 þeirra náð fyrir
augum dómnefndar, þar á meðal íslensku list-
málaramir Guðrún Einarsdóttir og Georg
Guðni.
Stofnað var tO Carnegie-myndlistarverð-
launanna í því augnamiði að styrkja stöðu
framúrskarandi listmálara á Norðurlöndum
„og styðja við samtíma málaralist í hæsta
gæðaflokki", eins og segir i fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Með steinabók í
farangrinum
Að sönnu liður að hausti, en þar með ekki
sagt að tími gönguferða sé liðinn. í haustbirt-
unni er tO dæmis þægOegt að gaumgæfa
steinmyndanir af ýmsu tagi og þá er ekki
ónýtt að eiga nýja steinabók þeirra Kristjáns
Sæmundssonar og Einars Gunnlaugssonar í
malpoka sínum. Bókin, sem nefnist einfald-
lega íslenska steinabókin, er létt og í hand-
hægu broti, og þar með eins og sniðin fyrir
ferðalanginn. Efhistökin miðast einnig við
þarfir áhugafólks, þeirra sem vOja „læra að
þekkja hið algengasta og auðsæiiega í hinu
fasta bergi lands okkar“, eins og segir í kynn-
ingu. Skýrar ljósmyndir era af
fjölda bergtegunda og steina og
lýst er öOum helstu atriðum
sem hafa þarf í huga við grein-
ingu þeirra. Auk þess er grein
gerð fyrir myndunarskOyrðum
bergtegunda og holufyllinga,
„en þekking á sliku er nauðsyn-
leg hverjum áhugasömum nátt-
úmskoðara".
Höfundar eru vanir menn og
fróðir, Kristján er jarðfræðing-
ur á Orkustofnun en Einar er jarðefnafræð-
ingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ljósmynd-
ir eru eftir Grétar Eiríksson tæknifræðing
sem er landsþekktur fyrir ljósmyndir úr nátt-
úm landsins.
í verki Haralds Jónssonar á Firma ‘99 fær áhorfandinn bernskuna beint í æð. Mynd frá leikskóla úr safni DV.
íslenska
steinabókin;
Prófað fyrir Raddir Evrópu:
Ungir söngvarar
Kórinn Raddir Evrópu er eitt viðamesta
verkefnið sem menningarborgir Evrópu árið
2000 standa fyrir sameiginlega og er það und-
ir stjórn Reykjavíkur. Söngfólkið í kómum
er á aldrinum 16-23 ára og koma 10 ung-
menni frá hverri af borgunum níu sem bera
menningarborgartitOinn á næsta ári,
Bergen, Helsinki, Brussel, Prag, Kraká,
Bologna, Avignon og Santiago de
Compostela, auk Reykjavíkur. Nú stendur
fyrir dyrum að velja fuhtrúa íslands í kórinn
og munu söngpróf fara fram í Hallgríms-
kirkju 10. og 11. september næstkomandi.
Skráning fer fram hjá Menningarborginni á
morgun, 31. ágúst, og 1. september milli kl.
14 og 16 í síma 575 2010.
Óskað er eftir ungu fólki sem hefur
reynslu af kórstarfi og góða, almenna þekk-
ingu á tónlist. Ekki er síður skOyrði að þátt-
takendur hafi ríka ábyrgðartilfmningu og
góðan félagsþroska. Þeirra sem valdir verða
bíður óvenjuspennandi kórstarf í heOt ár og
einstakt tækifæri til að kynnast menningu
annarra landa og starfa með jafnöldrum af
ólíkum uppruna. Æfingar með íslensku þátt-
takendunum hefjast í september.
Kórinn mun í heOd sinni fyrst koma fram
á íslandi um áramótin 1999-2000 á hátíðar-
dagskrá þegar Reykjavik tekur við titlinum
Menningarborg Evrópu. Síðar á árinu mun
Björk Guðmundsdóttir semur tónlist fyrir Raddir
Evrópu og syngur með þeim.
óskast
kórinn aftur mæta tO æfmga á íslandi og
hefja tónleikaferð tO menningarborganna
með tónleikum í HaUgrimskirkju 26.
ágúst 2000, en tónleikaferðalaginu lýkur
15. september.
Einvalalið vinnur að Röddum Evrópu.
Aðalstjórnandi kórsins verður Þorgerður
Ingólfsdóttir, einn virtasti kórstjómandi
landsins aUt frá stofnun Hamrahlíðar-
kórsins árið 1967, en einnig hefur hver
borg tilnefnt sinn stjómanda og umsjón-
armann, því sungið verður á tungumál-
um allra borganna. Björk Guðmundsdótt-
ir mun koma fram og syngja með Rödd-
um Evrópu, bæði á gamlárskvöld og tón-
leikaferðalaginu á næsta ári. Kórinn og
Björk munu flytja lög eftir hana, sem
verða sérstaklega útsett af Atla Heimi
Sveinssyni. Athygli vekur einnig að eitt
fremsta tónskáld nútímans, eistneska
tónskáldið Arvo Párt, hefur tekiö að sér
að semja-verk sem kórinn mun frumflytja
á tónleikum sínum í ágúst.
Vemdari Radda Evrópu er frú Vigdís
Finnbogadóttir.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef-
svæði Menningarborgarinnar: www.reykja-
vik2000.is
Ný bók um Kennedybræður
TO þessa hafa 263 bækur verið skrifaðar
um þá bræður, John F. Kennedy og Robert
bróður hans og mætti því ætla að fátt væri
ósagt um ævi þeirra og ástir. Óekki. Nýlega
kom út bók eftir bandarískan sagn- og stjórn-
málafræðing, Richard D. Mahoney sem nefn-
ist Sons & Brothers. Þar fuOyrðir höfundur að
Robert Kennedy hafi haft
mun meiri áhrO' á störf - og
dauða - bróður síns en
menn hafa haldið tO þessa.
Til dæmis telur hann að Ro-
bert hafi verið maðurinn á
bak við þá ákvörðun bróður
síns að setja Sovétmönnum
stólinn fyrir dyrnar vegna
Kúbumálsins, og að auki hafi Robert stappað
í bróður sinn stálinu þegar hann tókst á við
Suðurríkjakynþáttahatarann Wallace og hans
nóta. Sjálfur átti Robert Kennedy í útistöðum
við maflósa og kúbverska gangstera, sem
hugsanlega varð til þess að þeir tóku höndum
saman og myrtu forsetann í DaOas. í dagblað-
inu Boston Glöbe viO gagnrýnandi ómögulega
afskrifa þessa bók, en bendir á ýmsa
skavanka á henni, tO dæmis þá tOhneigingu
höfundar að búa tO staðreyndir úr allsendis
ósönnuðum tOgátum.
Umsjón
Aðalsteinn Ingólfsson