Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Page 4
Emma er jafn- meyr og mar- blettur Samkvæmt NME Rjómabollan hún Gmilíana Torrini eða Emma Torr, eins og sumir kalla hana, gaf síðast út plötu fyrir tveim árum. Sú seldist eins og feitasta kleina og urðu margir glaðir. Svo hvarf Emma. Nú hillir undir magnað kombakk. Stelpan hefur nefnilega verið í heljarinnar meikstússi úti í London og notið hjálpar gamalla Sykurmola-kontakta, því bæði er gamli Sykurumbinn Árni Ben umbi Emmu og gamla Sykurmola- fyrirtækið One Little Indian gef- ur út plöturnar. Nýjasta smáskífan (númer tvö) er með laginu „To Be Free“ og nú er að færast líf í meikið. Tónlistar- blaðið (biblía popparanna) NME segir þetta um smáskífuna: „Það er varla neitt grín að vera Emilíana Torrini. Hún er íslend- ingur sem gefur út hjá sama fyrir- tæki og stærsta poppstjarna lands- ins, er með rödd sem hljómar svip- að og hefur þar að auki sama hreiminn. En sé litið fram hjá þessum augljósu staðreyndum sést að hér er á ferð frábær plata, jafn- meyr og nýr marblettur og jafn- innileg og það að lesa dagbók ein- hvers. Þá er útgáfa Torrini af Ed- ith Piaf/Billie Holiday-laginu „If You Go Away“ sérstaklega hrá og full af sorg.“ Stóra platan með Emmu, „Ástin á tímum vísindanna", er væntan- leg í haust, bæði hér og í Bret- landi. GRIF Einn vinsælasti íslenski þátturinn í fyrra var án efa Stutt í spunann, Hann lifir enn þennan veturinn þrátt fyrir smáuppstokkun. Fyrrum umsjónarmaður þáttarins, Eva María Jónsdóttir, er að hætta og inn kemur Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera er algjör stuðbolti og á eflaust eftir að sprengja sjónvörp úti um allt land. „Þetta leggst ótrúlega vel í mig. Við byrjum að taka þáttinn í næstu viku en erum búin að vera á fullu í undirbúningsvinnu upp á síðkastið." Veröuröu betri en Eva María? „Það efa ég. Ég er allt öðruvísi en hún. Við erum eiginlega ekki sambærilegar, hún er frábær og ég líka.“ Eva María var aðalumsjónar- maður þáttarins siðastliðinn vet- ur og hefur Hjálmar Hjálmarsson tekið við því hlutverki. Þannig hefur Hera tekið við hlutverki Hjálmars sem spunasædkikk. Botnlaus brunnur þvælu Ertu mikil spunagella? „Ég get spunnið vitleysu enda- laust. Ég er botnlaus brunnur tómrar þvælu en kannski ekki beint leiklistarspunagella. Ég hef aldrei lært leiklist formlega, bara í gegnum leikhúsin í þeim stykkj- um sem ég hef leikið í.“ Hera er ekki byrjandi á svið- inu, hún hefur leikið í Rocky Hor- ror Show, Evitu, Skara Skrípó Show og nú síðast í Litlu hryll- ingsbúðinni, sem verður haldið áfram að sýna fram að áramótum. Það ætti því varla að fara illa um hana fyrir framan allar mynda- vélarnar og sterka kastarana í sjónvarpsverinu. Ætliö þiö aö breyta þcettinum? „Auðvitað gerum við það. Hann heldur nafninu og yfirbragðinu en þetta verður samt öðruvisi spuni en áður. Það er búið að færa þáttinn yfír á laugardaga í staðinn fyrir Stöðina. Hann verð- ur lengri og íburðarmeiri, þetta verður svona - Á tali hjá Hjalla og Heru.“ Algjört félagsfrík Fyrst Hera er að verða vikuleg- ur gestur inni á teppi hjá landan- um er ekki vitlaust að fræðast að- eins um þessa manneskju. Hverra manna ætli hún sé? Af hverju? Hvurslags er þetta eigin- lega? „Ég er nú ættuð að norðan og austan en er sannur Breiðholts- verji, ólst þar upp og á enn þá heima þar. Allur minn mennta- vegur var genginn í Breiðholtinu: Breiðholtsskóli, Ölduselsskóli og Fjölbraut í Breiðholti. Þar var ég á tónlistarbraut. Eftir skólann hélt ég síðan áfram í tónlistar- námi, tók sjöunda stigið í söng. í FB tók ég líka félagslífs- og árshá- tíðarbraut. Það er mjög góð braut sem ég lærði mikið af. Mér finnst best að læra með leik, fræðin eru leiðinlegri. Þar að auki er ég al- gjör félagsvera frá A til Ö.“ Feröu þá ekki ein í bíó? „Nei. En ég gæti það eflaust léttilega. Bíó er náttúrlega ekki staður til að vera með fólki en það er alltaf svo mikið af liði í kringum mig þannig að ég legg mig ekki fram inn að komast ein.“ Ertu búin að fara á Kvik- myndahátíð? „Nei, ég hef ekki enn komist vegna anna en ég horfði á Neðan- jarðar á simnudaginn.“ Skot á móti í tilefni af karlablaði Fókuss er rétt að komast að því hvaða kosti karlmenn þurfa að hafa ef þeir vilja höfða til Heru. Þó skal taka það fram að hún er frátekin. „Karlmaður þaif að hafa ein- Ég get spunnið vitíeysu endalaust. Ég er botnlaus brunnur tómrar þvælu en kannski ekki beint leiklistar- spunagella. Ég hef aldrei lært leiklist formlega, bara í gegnum leikhúsin í þeim stykkjum sem ég hef leikið í. læg augu sem eitthvert vit er í. Hann þarf líka að geta haldið uppi samræðum við jafnákveðna konu og mig í allavega tíu mínút- ur án þess að koma upp um sig. Karlmenn sem koma á óvart eru líka mjög skemmtilegir. Segjum sem svo að ég sé að skjóta eitt- hvað á þá, þá finnst mér alltaf voða gaman ef þeir svara beint á móti.“ Fyrsti Stutt í spunann-þáttur- inn fer í loftið laugardaginn 2. október. Þangað til má sjá Heru góla og sprikla í Litlu hryllings- búðinni í Borgarleikhúsinu. FÁ EINA NÍU TOMMU MEÐ PEPPERONl GET É6 FENGlÐ SÍWANÚMERIO HJÁ l»ÉR ? f Ókus 3. september 1999 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.