Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Blaðsíða 28
Lífid eftir vinnu Charlotta R. Magnúsdóttir sýnir keramikmuni i Gallerí Smíöar og skart, Skólavörðustíg 16A. Opnunin stenduryfirí dag á milli kl. 14 og 16. Gallerí@hlemmur.is, Þverholti 5. Stúlkurnar Valgerður Guölaugsdóttir og Þóra Þórisdóttir opna sýningu í nýju galleríi við Hlemmtorg kl. 14. Sýningin stendur til 26. september og er opin alla daga, nema mánudaga, frá kl. 14- 18. Þóra sýnir undir yfirskriftinni Heimilissamstæða en Valgerður undir Hugarástand. Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar býður yður að vera við opnun eftirfarandi sýningar: Tore Röyneland - Þögn, kl. 14 á Ljósmynda- safni Reykjavíkur (Borgartúni 1) og þiggia veitingar. ►Fundir Sjónþing Þorvaldar Þor- steinssonar hefst í Geröubergi kl. 13.30. Stjórnandi er sjálfur Sig- mundur Ernir Rúnarsson en spyrlar Jón Proppé og Þórhildur Þorleifsdóttir. Þetta verður líflegt. Slðasti dagur íslensku sjávarútvegssýningar- innar. There is something fishy going on here, sögðu tveir Kanar sem villtust inn í gær. •Sport Fótbolti karla. Já, nú er það landsleikur. Kom- ið á völlinn og sjáið ísland taka Andorra í nef- ið. Allt annað en fimm marka sigur er tap. Fjör- ið hefst kl. 16. Sjáumst. 5. september •Kr ár Popphljómsveitin Url er á þröskuldi heims- frægðar sé miðað við óljós tíðindi sem lekið hafa inn á ritstjórnarskrifstofu Fókuss. Það gæti því hver farið að verða síðastur að sjá plötusnúður DJ Sauro flytur inn ítalska beint frá Red I Perugia til Þó svo aö haustið sé komiö er enn sumar á klúbbum Reykjavíkur- borgar. Nú á föstudag og laugardag er Red Zone-helgi á Thomsen þar sem höfuðpaur hins ítalska Red Zone klúbbs, DJ Sauro, spilar taktfasta tónlist ásamt DJ Tomma. DJ Sauro er sannköll- uð goðsögn í ítölsku neðanjarð- arklúbbunum. Hann hefur verið atvinnuplötusnúður síðan árið 1983. Þá byrjaði hann feril- inn í bænum Gabicce á austurströnd Ítalíu, sem er víðfrægur fyrir klúbbastand. Árið 1989 opnaði DJ Sauro Red Zone klúbbinn í Perugia, sem er í 1 klst. akstursfjarlægð frá Róm, með hinum breska DJ Des Mitchell. Red Zone hefur verið þekktur sem einn besti neðanjarðarklúbburinn á Ítalíu síðastliðin 10 ár. Red Zone er vinsæl stoppi- stöð hjá öllum stóru plötusnúðunum og hafa flest- ir elítuplötusnúðar heims komið að spila þar. DJ Sauro er þekktur fyrir einstakan stíl og hæflleika til að blanda góðri tónlist. Þá er hann einnig þekkt- ur fyrir það að vera alltaf með það nýjasta sem er að gerast í tónlistinni um leið og hann upphefur það gamla. DJ Sauro er undir miklum áhrifum frá afró- og tribal-töktum og laumar hann gjarnan þannig exótík inn í blönduna. Hann hefur spilað á öllum bestu klúbb- unum í Evrópu með öllum bestu plötusnúðum Evrópu og fagnar nú “Tíunda tónlistarári Red Zone“. í tilefni af því ferðast hann um allan heim og sýnir takta og slög. Hann er búinn að vera á miklum þeytingi i sum- ar og nú er komið að eldfjallaeyjunni í norðri. Eins og áður sagði spilar hann á Thomsen á fostudag og laug- ardag. Meiri upplýsingar um DJ Sauro og vini hans er að flnna á vefsíðunni www.housemachine.com. bandið á jafnalþýðleg- um stað og Gaukurinn. er, en þar má upplifa návígi við bandið I kvöld. Eftir mánuð verða þau að taka upp tvöfalda konsept-plötu á Bahama-eyjum, sjáið bara til. í fönkdeildinni er hart barist. Funkmaster 2000 er ÍBV fönksins og leikur á Glaumbar í kvöld en það hefur hljóm- sveitin gert um margra vikna skeið. í kvöld fær hún saxófónleikarann Sigurð Flosason til að blása enn meiru llfi I fönkið. Guðmundur Rúnar Lúðvíksson tekur að öllum líkindum lagið um Slrios á Kringlukránni I kvöld. Fyrst Bylting, nú Vírus á Kaffi Reykjavík. Hvað næst? Frunsa? Bö 11 Caprí trióið leikur gömlu dansana á Ásgaröi, Glæsibæ. Voff voff! Fyrir börnin Það eru prinsessudagar I Norræna húsinu. Starfsfólk Norræna hússins hefur sett upp listasmiðju fyrir börnin, verður með öðruvlsi myndlistarsýningu, bókasafn, kvikmyndasýn- ingar og margt margt fleira. Nýtt barnaleikrit Þorvalds Þorsteinssonar er komið á fjalirnar. Þetta er Ævintýrið um ástina og er sýnt í Kaffileikhúsinu. Við fáum að kynn- ast Mettu sögusmettu, Púkanum, Belgi, sem er alþjóðlegur stórleikari, og svo koma nátt- úruöflin Lindin, Vindurinn, Fuglinn og Tréð greinargóða við sögu. Sýningin hefst klukkan 15. B í ó 1 Norræna húsinu kl. 14.00 verður fyrsta sýn- ing haustsins á norrænum kvikmyndum fyrir börn. Myndirnar sem sýndar verða tengjast all- ar ævintýrum og eru sýndar I tengslum við Prinsessudaga I Norræna húsinu sem standa til 31. október. Sænska kvikmyndin Myndin sem startar prógraminu er Elsku MIó minn sem gerð er eftir sögu Astridar Lindgren. Myndin fjallar um níu ára dreng, Bossa, og ferð hans um ævintýraheima. Þar finnast * jk * \ Langur laugardagur carignrrai LangiJnpteJl,^ stakir jakkar og buxur lu /0 afslætti ídag og á laugardag. Jakkastærðir frá 46-72. (Yfirstærðir) Buxnastærðir frá 29“- 54 (76 cm-140 cm.) f Ó k U S 3. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.