Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1999, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
Fréttir
DV
Dómsmálaráðherra:
Lögregl-
an fer
með
rangt mál
„Ég verö að segja að uppátæki
stéttarfélags lögreglumanna í
Reykjavík um síðustu helgi kom
mér á óvart. Það kallaði á neikvæða
umfjöllun um lögregluna í Reykja-
vik ásamt ýmsum beinlínis röngum
fullyrðingum,“ sagöi Sólveig Pét-
urssdóttir dómsmálaráðherra á
blaðamannafundi í gær.
Sólveig vísaði á bug öllum full-
yrðingum formanns Lögreglufélags-
ins í Reykjavík um niðurskurð og
versnandi tekjur lögreglumanna.
Laun lögreglumanna í Reykjavík
heíðu hækkað um 1,42% á fýrstu
átta mánuðum þessa árs, miðað við
sama tíma í fyrra, og framlag til
Reykjavíkurlögreglunnar hefði
hækkað um 100 milljónir króna frá
fyrra ári. Loks sagði Sólveig að með-
almánaðarlaun lögreglumannanna
væru tæpar 252 þúsund krónur.
Sðlveig sagði lögregluna í Reykja-
vík hafa orðið aö halda rekstrinum
innan heimilda fjárlaga en að þau
mæltu fyrir um nær 1,5 milljarða
króna árleg útgjöld. Meðal annars
hafi skipan á yfirvinnu starfsmanna
verið breytt. „Hafi yfirvinnan
minnkaö er hún þó enn mjög mikil
á hvaða mælikvarða sem notaður
er,“ sagði hún. -GAR
Niðurskurður hjá lögreglunni i Reykjavík:
Einn á vaktinni
- öryggi stefnt í hættu, segir Ómar B. Dabney sem sagði upp
„Ég tel einfaldlega öryggi mínu
stefnt í hættu,“ segir Ómar B. Dabn-
ey, fangavörður á lögreglustöðinni
við Hverfisgötu, en Ómar sagði starfi
sínu lausu í fyrradag. „Ég ákvað
þetta eftir síðustu tilkynningu um
sparnað sem felur í sér að á virkum
dögum er aðeins einn fangavörður á
vakt yfir daginn. Mér fmnst það, í al-
vöru talað, ekki ganga. Það þarf til
dæmis að fara með fólk fram á sal-
erni og það gengur alls ekki að vera
einn þarna uppi,“
segir hann.
Nýja vinnutil-
högunin gekk í
gildi í fyrradag og
var Ómar einn á
vakt. Sjö fangar
voru í geymslu
um morguninn en
fjórir þegar DV
ræddi við Ómar
eftir hádegi í gær.
Ómar B. Dabney:
„Þetta endar með
ósköpum, það er
engin spurning."
„Ég var í Síðumúlafangelsinu á sín-
um tíma og lenti þar í hremmingum
og þegar fjölskyldan er farin að hafa
áhyggjur segi ég bara hingað og ekki
lengra. Þetta endar meö ósköpum,"
segir hann. „Ég hef óskað eftir að fá
að hætta strax því mér stendur önn-
ur vinna til boða. Ég hef ekki mikla
trú á því að þeir láti staðar numið
núna í niðurskurðinum."
-GAR
ttúSfltFT
rí'ý'* i
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra hitti fyrir nokkra tugi reykvískra lögreglumanna þegar hún kom til fundar með
blaðamönnum í gær. Þeir fengu ekki að fara inn á fundinn en voru boðaðir til fundar við ráðherra síðar um daginn.
Ók á stúlkur til
að hlífa bílnum
Ungur ökumaður greip til þess
örþrifaráðs að aka upp á gangstétt í
Bankastræti á háannatíma skemmt-
analífsins í höfuðborginni aðfara-
nótt sunnudagsins til að verja
bremsulausa bifreið sína skemmd-
um. Gangstéttin var krökk af gang-
andi vegfarendum sem áttu fótum
sínum fjör að launa þegar bifreiðin
kom æðandi niður gangstéttina og
urðu þrjár ungar stúlkur fyrir
henni áður en hún stöðvaðist á
stólpa á horni Austurstrætis og
Lækjargötu. Tvær stúlknanna voru
erlendar og ein innlend. Voru þær
allar fluttar á slysadeild þar sem
gert var að meiðslum þeirra.
„Maðurinn var bersýnilega að
hlífa bifreið sinni þegar hann tók
ákvörðun um að aka inn í mann-
þröngina á gangstéttinni og þó var
þetta bara Toyota árgerð ‘87. Hann
afsakaði sig með því að hann hefði
þeytt bílflautuna án afláts á meðan
á akstrinum niður gangstéttina í
Bankastræti stóð,“ sagði Guðmund-
ur Sigmundsson í rannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
Umræddur bílstjóri heldur öku-
réttindum sínum þrátt fyrir þennan
glannaakstur. Hann virtist ekki
undir áhrifum áfengis þegar lög-
regla kom á staðinn en beðið er nið-
urstöðu úr rannsókn á blóðsýni
sem tekið var úr honum í ljósi akst-
urslagsins. -EIR
</)
o'
Bíllinn endar á stólpa á horni
Austurstrætis og Lækjargötu
og brýtur hann. Okumaöur
virtist allsgáöur en máliö er í
rannsókn.
Ökumaöur gerir sér grein fyrir aö bíll
hans er bremsulaus og reynir aö
faratækinu meö því aö aka upp
Þrjár ungar stúlkur á
kvöldgöngu veröa fýrir
bílnum og eru fluttar
á slysadeild. Aörir
vegffarendur eiga
fótum fjör sitt aö
launa þegar bíllinn
rennur stjórnlaus
niöur gangstéttina.
Löggan marhaðssetur sig
——
DngiufJ
Rekstur Reykjavíkurlögregl-
unnar snýst ekki lengur um að
snara bófa og reka burt illþýði
heldur það eitt að löggan verði í
árslok innan þeirrar fjárhagsá-
ætlunar sem gerð var fyrir emb-
ættið. Um það eitt hugsar Böðv-
ar lögreglustjóri. Það er skiljan-
legt og mannlegt enda verður
hann að hugsa um eigið skinn.
Hann stóð tæpt fyrir nokkrum
misserum þegar fyrri dóms-
málaráðherra, Þorsteinn Páls-
son, vildi losna við hann úr
embætti og réö við hlið hans
Georg, sériff í Eyjum. Goggi átti
stutt en litríkt tímabil á toppn-
um í Reykjavík en hefur nú
snúið sér að öðru. Böðvar held-
ur því djobbinu en verður að
passa sig.
Þessi vonda staða Böðvars
veldur nokkurri óhamingju
óbreyttra lögreglumanna. Kaup-
ið í löggunni hefur aldrei verið
neitt til að hrópa húrra fyrir en menn hafa gegn-
um árin bætt sér það upp með yfirvinnu, nokkuö
eftir hentugleikum. Nú bannar Böðvar slíkt og
því er löggan á strípuðum taxta, rétt í kringum
hundraðþúsundkallinn. Það sér hver heilvita
maður aö svoleiðis nokkuð gengur ekki upp. Þeir
óbreyttu vilja því fá vinnu annars staðar en hjá
Böðvari og hafa auglýst krafta sína á almennum
markaði. Það var sniðugur leikur hjá þeim enda
getur verið fengur i löggu á fæti.
Löggan verður samt að gæta sín í markaðssetn-
ingunni. í gær sagði talsmaður lögreglumanna að
þeir væru í svipuðum sporum og sjómenn er
smyglið var tekið af þeim á sínum tíma. Þá átt-
uðu sjómennimir sig á því hver
launin vora í raun og vera.
Löggan samsamar sig þarna við
það sem glæpsamlegt er og vor-
kennir sjómönnum augljóslega
að geta ekki stundað þá iðju sem
fyrr.
Fulltrúinn kórónar síðar sam-
líkingamar þegar hann segir
lögreglulið Reykjavíkur í ná-
kvæmlega sömu sporum og eist-
nesku sjómennirnir á ryðkláfn-
um Ódinkóvu. Þeir, líkt og Eist-
arnir, géti hvorki hætt né farið.
Þeir sem tileinkað hafi sér lög-
reglustörf i ár og áratugi kimni
ekkert annað. Þeir séu því nauð-
beygðir að halda áfram í lögg-
unni þótt þar vanti bæði skip-
stjóra og útgerðarmann.
Miðað við þessa stöðu verður
þess varla langt að bíða að reyk-
viskir lögreglumenn taki sér
stöðu fyrir framan Stjórnamáð-
dð, með spjöld í stað kylfa, og
ákalli ráðherra og vegfarendur. Ólíklegt er að
ráðherrar svari því kalli en því líklegra að góð-
hjartaðir vegfarendur sjái aumur á lögreglu-
mönnunum og hendi til þeirra þúsundkalli eða
jafnvel fimmara éf þannig stendur á.
Lögguhúfumar geta nefnilega verið ágætar
sem söfnunarbaukar. Dagfari
Kvenleg fegurð
Biskupinn yfir íslandi, hr. Karl
Sigurbjörnsson, kallaði yfir sig al-
menna reiði Austfirðinga með því að
upplýsa landslýð um hvaða tilfinn-
ingar færu í gegnum hjarta hans
varðandi fyrirhugaða
stíflugerð sem myndi
sökkva Eyjabökkum
i kaf. Á fjölmenna-
sta fundi sem hald-
inn hefur verið
austanlands, allt
frá því Kristján
heitinn Eldjárn
hélt fund á Egils-
stöðum fyrir for-
setakosningarnar 1968, var mönn-
um heitt_ hamsi. Fengu biskupinn
ásamt Ómari Ragnarssyni og
Hrafnkatli A. Jónssyni, safnverði
og keðjustrekkjara, föst skot frá
ræðumönnum. í setningarræðu sem
Eiríkur Ólafsson, útgerðarstjóri á
Fáskrúðsfirði, hélt sagði hann: „Mér
fellur betur við þá sem hafa auga fyr-
ir kvenlegri fegurð heldur en þá sem
horfa á mýrarfláka uppi á öræfum og
dæma þá með hjartanu." Fundar-
menn hlógu dátt að orðum Eiríks og
klöppuðu vel og lengi.
Lok og læs?
Nú lítur jafnvel út fyrir að Keisar-
anum, hinu ágæta vertshúsi við
Hlemm, verði lokað. Heyrst hefur að
klukkubúðin við hliðina muni kaupa
staðinn af Margeiri Margeirssyni.
Spyrja þá sumir mið-
borgarbúar hvað
verði um hinar keis-
aralegu hátignir sem
gert hafa starfsfólki
heilbrigðisráðu-
neytisins og Trygg-
ingastofnunar
gramt í geði. Er
ekki laust við að
þeirri spurningu
blandist dálítill uggur, ekki síst þar
sem lögreglan er að draga saman
seglin vegna blankheita og lögreglu-
menn eru í óðaönn að hverfa til
annnarra starfa, samanber atvinnu-
auglýsingu á vegum Lögreglufélags-
ins...
Stjarnan
En það er engin ástæða til að
senda hina gestina út í kuldann.
Vegna mannfæðar mun örugglega
skapast pláss á lögreglustöðinni,
handan götunnar, þar sem með lagni
má innrétta barholu.
Komi til vandræða
losna lögreglumenn,
með Böðvar Braga-
son i broddi fylk-
ingar, við að fara út
í misjöfnum veðr-
um. Þeir fara bara
milli hæða og
leysa málin,
„leggja menn á“
eins og það hét hér áður fyrr. Er
víst að af slíku fyrirkomulagi verður
hið mesta hagræði. Nýja staðinn má
síðan kalla Stjörnuna...
Margir mótmæla
Yfir 30 þúsund Reykvíkingar hafa
nú mótmælt fyrirhuguðum bygging-
aráformum Landssímans og Jóns
Ólafssonar í austurhluta Laugardals
með undirskrift sinni. Þetta er
hvorki meira né
minna en þriðjungur
borgarbúa eða um 40
prósent borgarbúa á
kosningaaldri.
Sandkomsritari
man ekki nákvæm-
lega hversu margir
mótmæltu bygg-
ingu ráðhússins í
Tjörninni á sinum tíma en
voru örugglega ekki fleiri en mót-
mæla byggingaráformum i dalnum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri hefur rifjað mótmælin gegn
ráðhúsinu upp nú undanfarið og enn
fremur viðbrögð borgaryfirvalda þá,
að hunsa vilja mótmælenda. Því fylgj-
ast margir spenntir með hver við-
brögð hennar verða...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn (wff. is