Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1999, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
35
1
Sport
Sport
Bland í poka
Landsliöið í handknattleik:
- í leikjunum gegn Makedóníu
Júlíus með í
síðasta sinn
Júlíus Jónasson gefur kost á sér I
síðasta sinn í landsleikina tvo gegn
Makedóníu sem fram fara 12. og 19.
september næstkomandi og tekur
við fyrirliðastöðunni í sínum
síðustu landsleikjum.
Júlíus er einn
átta leikmanna
sem spila á
íslandi í 17
manna hópi sem
Þorbjörn
Jensson
landsliðsþjálfari
tilkynnti i gær
en einn nýliði
er í hópnum,
Guðjón Valur
Jónasson TSípr<5sson . Úr
Júlíus
leikur sína síðustu
KA.
Nokkuð er
landsleiki gegn ™ “. hjá
Makedónfu. islenska liðmu.
Valdimar
Grímsson og Patrekur Jóhannesson
eru frá vegna meiðsla og Geir
Sveinsson er hættur og þá er enn
óvíst með Dag Sigurðsson sem átt
hefur við meiðsli að stríða.
Þorbjörn Jensson er þó hvergi
banginn og lagði mikla áherslu á
góð úrslit í heimaleiknum sem er á
undan því aðstæður í Makedóníu
eru mjög erfiðar.
Þar troðfylla 4000 áhorfendur
íþróttahöllina og láta sig ekki muna
um það að keðjureykja og jafnvel
hrækja inn á völlinn til að spilla
Belgar lögdu Marokkómenn, 4-0, í
vináttulandsleik í knattspyrnu í gær.
Lorenzo Staelens, Johan Walem,
Emile Mpenza og Branko Strupar
skoruðu mörk Belga sem voru að
vinna sinn annan leik í síðustu 12
leikjum.
Hicham El Guerrouj stal senunni á
gullmóti í frjálsum íþróttum sem
fram fór í Berlín I gær. Hann setti
heimsmet í 2000 metra hlaupi þegar
hann kom i mark 4:44,79 mín. Þar
með á Guerrouj þrjú heimsmet en
hann hefur hlaupiö hraðast alira í
1500 metra og eins mflu hlaupi.
Wilson Kipketer
frá Danmörku og
Gabriela Szabo
frá Rúmeníu
tryggðu sér
gullpottinn en
þau unnu bæði í
sínum greinum,
Kipketer í 5000
metra hlaupi og Szabo í 3000 metra
hlaupi á öllum sjö gullmótunum. Þau
skipta á milli sín 80 milljónum krón-
um.
Þýska knattspyrnuliðið
Kaiserslautern vill losa sig við sviss-
neska landsliðsmanninn Ciriaco
Sforza eftir að hann gagnrýndi þjálf-
arann Otto Rehagel i síðustu viku.
Sforza var lykilmaðurinn í liði
Kaiserslautern sem varð þýskur
meistari árið 1998.
Massimo Taibi, ítalski markvörður-
inn sem Manchester United festi
kaup á á dögunum fær ekki leyfi frá
Knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA, til að leika með United í
meistaradeildinni. Forráðamenn
United skiluðu félagaskiptunum til
UEFA einum degi og seint. Þeir áttu
að senda skiptin inn í síðasta lagi 31.
ágúst en gerðu það ekki fyrr en 1.
september.
Fjórir leikmenn voru dæmdir í leik-
bann á fundi aganefndar KSÍ í gær.
Þetta eru þeir Ásgeir Baldurs hjá
Breiðabliki vegna 6 áminninga,
Höróur Már Magnússon hjá Val
vegna 4 áminninga og Víkingarnir
Þorri Ólafsson og Arnar Hallsson,
sá seinni vegna brottvísunar í leik
gegn ÍBV en sá fyrri fyrir 4 áminn-
ingar. -GH
íslenska landsliðið í knattspymu leikur í kvöld sinn mikilvægasta leik frá upphafi þegar
það mætir Úkraínu í 4. riðli Evrópumóts landsliða á Laugardalsvelli klukkan 18. Aldrei
áður hefur íslenskt landslið staðið frammi fyrir þeim möguleika að eiga von um sæti í úr-
slitakeppni mótsins sem verður í Hollandi og Belgíu næsta sumar. Úkraína, Rússland, ís-
land og Frakkar berjast öll um að komast í úrslit. Frakkar leika á sama tíma við Armena í
Jerevan. Gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum og stefndi allt í það að allir miðar myndu ganga
út í forsölu í gærkvöld en rúmir sjö þúsund miðar stóðu til boða.
Hlakkar mikið til leiksins
Guðjón Þórðarson hélt fund með liðinu í gærkvöldi þar sem farið var yfir helstu áherslu-
atriðin í leiknum og skipulag leiksins var ákveðið.
Guðjón sagði við DV hlakka mikið til leiksins í kvöld og takast á við þetta mjög krefjandi
verkefni sem leikurinn yrði. Hann sagði alveg ljóst að leikurinn yrði mjög erfiður því þetta
væri án efa stærsti leikur sem íslenskt landslið hefði leikið.
„Það sem í boði er hinum megin við endann ef vel tekst til er meira en áður hefur verið
leikið um. Þetta er mjög spennandi dæmi,“ sagði Guðjón.
- Leggur þú þennan leik með svipðum hætti upp og áður þegar liðið leikur við sterkar
þjóðir?
„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fara mjög varlega i þennan leik. Þeir koma eflaust
með miklum krafti i leikinn en til að sigra í riðlinum verða Úkraínumen að vinna. Þeir
leggja þunga sinn í sóknina sem segir að við verðum að vera mjög einbeittir í varnarleikn-
um. Það má líka reikna með því að þeir þrýsti á okkur í byrjun eins og þeir reyndar gerðu
i fyrri leiknum en smám saman þá fór kraftur þeirra þverrandi."
Menn ákveðnir í að selja sig dýrt
- Það má ljóst vera að einbeiting manna verður að vera í lagi frá upphafi til enda:
„Ef menn gleyma sér á verðinum eitt andartak þá refsa þessar stóru þjóðir okkur um leið.
Ég vona að leikmenn geri sér grein fyrir alvöru málsins og gefi sig alla í þennan leik. Ég
veit líka að menn eru mjög einbeittir og ákveðnir að selja sig dýrt enda höfum við ekki efni
á neinu öðru.“
- Með hvaða hugarfari heldur þú að Úkraínumenn komi með til leiksins gegn íslandi?
„Það er örugglega ákveðinn kvíði í þeirra hug að koma hingað til Reykjavíkur. Frakkar
gátu ekki unnið hér, Rússar töpuðu og þeir vita því alveg hvað bíður þeirra hér. Þetta er
leikur sem þeir gera sér grein fyrir' að
geta tapað. Ég á von á því að þeir komi
mjög fast inn í leikinn og freisti þess í
byrjun að ná tökum á honum. Takmark
þeirra er að leggja okkur að velli og
tryggja sig áfram."
Úkraínumenn heppnir í síðasta
leik
- Úkraínumenn verða hið minnsta að
leika betur en þeir gerðu gegn Frökkum
um síðustu helgi?
„Ég sá þann leik og þar voru Úkraínu-
menn í töluverðum erfiðleikum. Þeir voru
heppnir að halda jöfnu á heimavelli í
þeim leik en síðari hálfleikurinn var ekki
vel spilaður af þeirra hálfu.“
Ég kvíði ekki kvöldinu
- Heldur þú jafnvel að Úkraína sé eitt-
hvað að gefa eftir í riðlinum?
„Manni sýnist að ákveðinn veikleika-
merki séu að koma í ljós hjá þeim en við
skulum alls ekki vanmeta þá þvi þeir eru
með innanborðs feiknalega góða leik-
menn. Það er mjög gaman að vinna með
strákunum og leikurinn sem slíkur er til-
hlökkunarefni og ég kvíði kvöldinu ekki,“
sagði Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari í
spjallinu við DV.
-JKS
fyrir aðkomuliðum. Þrátt fyrir að
lítið þekkist til liðsins hefur
Þorbjörn komist yfir spólur með
leikjum liðsins og hefur gert sér
einhverja hugmynd um leik og
styrkleika liðsins. Hann segir fimm
til sex marka sigur nauðsyn ef
ísland á að ná í fyrsta sinn í
úrslitakeppni Evrópumóts
landsliða.
Landsliðshópur Þorbjarnar er
þannig gegn Makedóníu:
Markverðir:
Sebastian Alexandersson......Fram
Guömundur Hrafnkelsson . Nordhorn
Birkir ívar Guðmundsson . Stjörnunni
Reynir Þór Reynisson ............KA
Skyttur:
Sigurður Bjarnason .... D/M Wetzlar
Ólafur Stefánsson..........Magdeburg
Róbert Julian Duranona . . . Eisenach
Rúnar Sigtryggsson......Göppingen
Júlíus Jónasson ................Val
Leikstj órnendur:
Dagur Sigurðsson .........Wuppertal
Aron Kristjánsson .............Skem
Hornamenn:
Bjarki Sigurðsson ....Aftureldingu
Gústaf Bjamason...........Willstatt
Njörður Árnason................Fram
Guðjón Valur Sigurðsson..........KA
Línumenn:
Róbert Sighvatsson ......Dormagen
Magnús Már Þórðarson . Aftureldingu
-ÓÓJ
Úkraínumenn
tóku hressilega á
Landslið Úkraínu kom til lands-
ins um hádegisbilið í gær í beinu
flugi frá Kænugarði. Fljótlega eftir
komuna var haldið rakleit á æfingu
á Laugardalsvellinum. Liðið tók vel
á og mátti sjá að margir hverjir
kunna ýmislegt fyrir sér en liðið
hefur innanborðs nokkra mjög
snjalla leikmenn. Má þar nefna
Andrei Shevchenko sem gekk til
liðs við ítalska liðið AC Milan fyrir
tímabilið en hann sést á myndinni á
æfingunni í gær.
Úkraínumenn ollu vonbrigðum í
síðasta leik gegn Frökkum og máttu
kallast heppnir að sleppa með jafn-
tefli á heimavelli í Kiev.
-JKS
Grétar Hjartarson átti stórleik í sínum fyrsta
landsleik á Akranesi í gær. Grétar, sem er hér að
snúa á einn varnarmann Úkraínu, skoraði tvö
mörk þegar ísland sigraði, 4-1. DV-mynd E.ÓI.
Sigurður Jónsson
Tilbúnir
í slaginn
Sigurður Jónsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins, sagði í samtali við DV í gær-
kvöld að leikurinn yrði upp á líf og dauða
fyrir báðar þjóðir.
„Ég tel okkur eiga ákveðna möguleika í
stöðunni með skynsömum leik og viö
erum tilbúnir i slaginn. Það má búast við
að við leikum aftarlega og beitum síöan
skyndisóknum þegai' færi gefast. Úkraínu-
menn vita það eins og við að ekkert annað
en sigur kemur til greina í leiknum. Úkra-
ínumenn voru í erfiðleikum gegn Frökk-
um um síðustu helgi svo maður veit ekki
alveg hvemig þeir munu leggja leikinn
upp gegn okkur. Ég er búinn að standa í
ströngu með landsliðinu en aldrei staðið
frammi fyrir þeirri stöðu eins og hún er í
dag. Það er því til mikils að vinna enda er
maður kominn á það síðasta með liðinu.
Þaö yrði óneitanlega gaman að ljúka þessu
með stæl,“ sagði Sigurður Jónsson í sam-
tali við DV í gærkvöld. -JKS
Á stóru myndinni er Jóhann B. Guðmundsson að innsigla stórsigur U-21 árs landsliðsins gegn Úkrafnumönnum á Akranesi í gærkvöldi með því að vippa
knettinum yfir markvörð Úkraínu. Á innfelldu myndinni fagna Jóhann og Haukur Ingi Guðnason marki Jóhanns.
DV-myndir E.ÓI.
Stórleikur íslands og Úkraínu á Laugardalsvellinum klukkan 18 í kvöld:
- segir Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari um mikilvægasta leik landsliðsins
Tónninn gefinn
- frábær leikur U-21 árs landsliðsins gegn Úkraínu í gær
1- 0 Grétar Hjartarson (20.) vippaði
glæsilega yfir markvörðinn af 20 metra
færi.
2- 0 Jóhann B. Guðmundsson (52.) með
föstu skoti frá vítateig.
3- 0 Grétar Hjartason (58.) með lúmsku
skoti frá vítateig.
3- 1 Zubov (75.) úr umdeildri vítaspymu.
4- 1 Jóhann B. Guðmundsson (78.)
vippaði yfir markvörðinn af stuttu færi.
íslensku strákarnir í U-21 árs
landsliðinu í knattspyrnu gáfu von-
andi tóninn fyrir stórleik A-lands-
liðsins gegn Úkraínu í kvöld þegar
þeir lögðu jafnaldra sína frá Úkra-
ínu, 4-1, á Akranesvelli í gærkvöldi.
Það var gaman að verða vitni að
þessum sigri íslensku piltanna en
þeir léku á köflum stórgóða knatt-
spyrnu og spiluðu jafnframt sinn
langbesta leik í þessari keppni.
Besti leikurinn
„Þetta er besti leikur okkar í
keppninni. Það hefur sýnt sig að því
lengur sem við höfum getað unnið
með þetta lið því betra verður það.
Þetta var mjög heilsteyptur leikur
hjá strákunum. Þeir léku agað og
gerðu það sem fyrir þá var lagt. Ég
get ekki sagt annað en að framtíðin
sé björt. Því miður höfum við ekki
nógu mikið fjármagn til að gefa
strákunum verðug verkefni en þetta
verður að duga,“ sagði Atli Eðvalds-
son, þjálfari íslenska liðsins.
íslenska liðið réð algjörlega ferð-
inni í fyrri hálfleik og lék á köflum
gesti sína grátt í strekkingsvindin-
um á Skaganum. Öll færin í fyrri
hálfleiknum voru íslensk og Úkra-
ínumennimir vom stálheppnir að
vera ekki nema 1-0 undir í hálfleik.
Arnar Jón Sigurgeirsson fékk gullið
færi til að skora annað markið rétt
fyrir leikhlé. Hann komst þá einn á
móti markverði Úkraníu en sá
varði skot hans í horn.
Gestirnir byrjuöu síðari hálfleik-
inn með smákrafti en tókst ekki að
brjóta á bak aftur sterka vörn ís-
lenska liðsins. Þegar Jóhann B.
Guðmundsson bætti svo við öðra
markinu á 52. minútu var Ijóst
hvorum megin sigurinn lenti. ís-
lensku strákarnir léku eins og þeir
sem valdið hafa og allt til leiksloka
höfðu þeir leikinn algjörlega í sín-
um höndum þó svo að Úkraínu-
mennirnir hafi minnkað muninn í
3-1 með marki úr mjög vafasamri
vítaspyrnu.
Allt islenska liðið á hrós skilið
fyrir frábæra frammistöðu og eftir
þennan leik er ekki hægt að segja
annað en að framtíðin í íslenskri
knattspyrnu sé björt. Það var hvergi
veikan hlekk að finna og miðað við
frammistöðu liðsins í gær skilur
maður ekki hvers vegna íslendingar
eru ekki ofar á stigatöflunni. Jó-
hann B. Guðmundsson og Grétar
Hjartarson fóru á kostum og skor-
uðu tvö falleg mörk hvor. Þeir
gerðu mikinn usla i vöm Úkraínu
og sömuleiðis Haukur Ingi Guðna-
son sem er greinilega að ná fyrri
styrk eftir meiðsli. Jóhannes Karl
Guðjónsson átti mjög góðan leik á
miðjunni. Vinnslan hjá honum var
með ólíkindum og pilturinn greini-
lega þindarlaus. ívar Ingimarsson
var sömuleiðis mjög traustur á mið-
svæðinu. Vörnin var öflug með mið-
verðina Reyni Leósson og Val Fann-
ar Gíslason sem bestu menn og Fjal-
ar Þorgeirsson steig ekki feilspor í
markinu og var öruggur í öllum sín-
um aðgerðum.
Ákváðum að rífa okkur upp
af rassgatinu
„Við ákváðum að rífa okkur upp
af rassgatinu og sýna hvað í okkur
býr. Þetta hefur engan veginn verið
nógu gott hjá okkur en nú náðum
við að sýna mjög góðan leik. Eftir
að við skoruðum fyrsta markið
fannst mér þetta vera ömggt, við
vorum ekki að gefa nein færi á okk-
ur en sjálfir vorum við að skapa
okkur fullt af færum,“ sagði Jóhann
B. Guðmundsson við DV eftir leik-
inn, en hann var besti leikmaður
íslenska liðsins ásamt Grétari og
Jóhannesi Karli.
Grétar Hjartarson var að leika í
fyrsta sinn i íslenska landsliðsbún-
ingnum en þessi skæði leikmaður
Grindavíkur er markahæsti leik-
maður úrvalsdeildarinnar ásamt
Steingrími Jóhannessyni.
Frábær byrjun
„Þetta er frábær byrjun og ekki
hægt að hafa hana betri. Ég fann
mig vel enda með sjálfstraustið í
lagi sem er mjög mikilvægt. Leikur-
inn var mjög góður af okkar hálfu.
Þetta em allt góðir strákar sem
maður er að spila með í liðinu og«p
það hjálpaði manni auðvitað í
leiknum. Það var mjög sætt að sjá
boltann fara inn þegar ég vippaði
yfir markmanninn og í síðara mark-
inu hugsaði ég bara um að hitta
rammann og hann grísaðist inn,“
sagði Grétar.
Lið Islands: Fjalar Þorgeirsson -
Björn Jakobsson, Reynir Leósson,
Valur Fannar Gíslason, Indriði Sig-
urðsson - Amar Jón Sigurgeirsson
(Davíð Ólafsson 68.), ívar Ingimars-
son, Jóhannes Karl Guðjónsson, Jó-
hann B. Guðmundsson (Edilon **
Hreinsson 81.) - Haukur Ingi
Guðnason, Grétar Hjartarson
(Hrafnkell Helgason 72.).
-GH
KR vill
fá Grétar
Grétar Hjartarson hefur svo
sannarlega slegið í gegn í
úrvalsdeildinni í knattspymu í
sumar. Þessi 21 árs gamli
leikmaður Grindvíkinga hefur
farið á kostum í framlinu
Suðurnesjaliðsins og er sem
stendur markahæsti leikmaður
úrvalsdeildarinnar ásamt
Eyjamanninum Steingrími
Jóhannessyni með 11 mörk.
DV hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að KR-ingar
hafi sett sig í samband við Grétar
með það í huga að fá hann í sínar
raðir fyrir næsta tímabil.
Grétar lék í fyrsta skipti í
búningi íslenska landsliðsins í
gær og skoraði 2 mörk í sigri U-21
árs landsliðsins gegn Úkraínu.
Nokkrir erlendir „njósnarar"
vora á leiknum og hrifust þeir af
frammistöðu Grétars svo og fleiri
leikmanna íslenska landsliðsins.
Knattspyrnudómstóll
Reykjaness:
Úrslitin standa
KnattspymudómstóU Reykja-
ness tók í gær fyrir kæm Stjöm-
unnar á hendur FH-ingum vegna
leiks hðanna í 1. deildinni í síðustu
viku en leiknum lauk með jafntefli.
Stjaman kærði leikinn þar sem fé-
iagið taldi að FH hefði á að skipa
ólöglegu liði þar sem FH hafði not-
að leikmann sem ekki var getið á
leikskýrslu.
Dómsorð knattspymudómstóls
Reykjaness er svohljóðandi: „Úrsht
leiks Stjcmunnar og FH í meistara-
flokki karla 15. umferð 1. deildar í
knattspymu sem fram fór fimmtu-
daginn 26. ágúst 1999, kL 18.00 í
Kaplakrika, skulu standa óbreytt.
-GH
Veröum að vera
mjög einbeittir
- segir Birkir Kristinsson markvörður
Hætt er við að Birkir Kristinsson,
landsliðsmarkvörður íslands í
knattspymu, fái meira að gera í
markinu þegar íslendingar mæta
Úkraínu í Evrópukeppninni á Laug-
ardalsvehi í kvöld. Birkir kom varla
við boltann í leiknum við Andorra
um síðustu helgi en 1
þetta sinn er mótherjinn
margfalt sterkari.
„Leikurinn leggst
bara vel í mig en hann
verður erfiður en Úkra-
ínumenn þurfa að sækja
hingað þrjú stig. Það er
okkar að láta þá ekki
gera það því við þurfum
líka á þessum stigum að
halda. Ef við náum
þremur gegn Úkraínu og
einu í síðasta leiknum
gegn Frökkum i París
emm við í finum mál-
um. Hvomgt liðið má tapa í kvöld
þannig að hér er á ferð úrslitaleikur
fyrir bæði lið. Ég held að Úkraínu-
menn komi til leiksins nokkuð
smeykir því þeir hafa lent í vand-
ræðum gegn okkur og vita að við
leikum sterkan vamarleik. Þeim
tókst ekki að leysa hann í fyrri
leiknum úti og því ætti þeim að
takast það núna?“ sagði Birkir
Kristinsson í samtali við DV.
„Það er alveg ljóst að við verðum
að nýta þau tækifæri sem við fáum
í kvöld til að eiga möguleika. Við
höfum leikið sterkan varnarleik í
gegnum þessa keppni og hann hefur
skilað árangri. í öhum leikjunum
gegn þessum sterkum þjóðum höf-
um við einungis fengið á okkur þrjú
mörk og við höldum áfram á sömu
braut. Með góðum stuðningi í kvöld
tel ég að við getum átt góðan leik og
þá er náttúrlega allt opið. Við ætl-
um ekki að fá á okkur mark en það
er aldrei að vita hvað gerist."
- Miðað við þann baráttuanda sem
ríkir í íslenska liðinu þurfa Úkra-
ínumenn að hafa fyrir
hlutunum:
„Það er engin spurning
að það þurfa þeir að
gera. Ég held að þessi
lið séu farin að bera
virðingu fyrir okkur
miðað við það sem á
undan er gengið. Það er
kominn stöðuleiki í lið-
ið þannig að stærri lið
sem leika gegn okkur^
vita alveg hvað biður
þeirra."
- Spennan verður gríð-
arleg í Laugardalnum i
kvöld:
„Tvímælalaust enda mikið í húfi
fyrir bæði lið sem þurfa að fórna
öllu. Það verður mikil spenna enda
úrslitaleikur en ef Úkraínumenn
missa stig gætu þeir verið að heltast
úr lestinni.
Við komum líklega til með að
leika vamarleik úti um ahan völl og
líklega með einn mann frammi. Þeir 4
eru með stórhættulega menn i sókn- “
inni sem við verðum að hafa góðar
gætur á. Hver einasti maður hjá
okkur þarf að vera mjög einbeittur
frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu
til að eiga einhvern möguleika.
Menn þurfa að hafa trú á þessu
verkefni og fara í það með því hug-
arfari," sagði Birkir Kristinsson. &
-JKS