Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1999, Blaðsíða 22
42
MIÐVKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
Fólk í fréttum
Vanda Sigurgeirsdóttir
Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari
meistaraflokks KR 1 kvennaknatt-
spymu, státar af einstæðum árangri
með liði sinu. KR-stelpumar hömp-
uðu íslandsbikamum um síðustu
helgi og keppa til úrslita í bikar-
keppninni á sunnudaginn. Þær hafa
unnið öll mót tímabilsins sem er
lokið, íslandsmótið, úti og inni,
Reykjavíkurmótið, úti og inni og
deildarbikarkeppnina, hafa gert eitt
jafntefli en unnið alla aðra leiki
sína, og hafa skorað sjötíu og þrjú
mörk en fengið á sig fimm mörk.
Starfsferill
Vanda fæddist á Sauðárkróki
28.6. 1965, ólst þar upp fyrstu árin, í
Danmörku 1972-74 og síðan aftur á
Sauðárkróki og á Dalvík. Hún lauk
gágníræðaprófi á Sauðárkróki, stúd-
entsprófi frá MA 1985, var í lýðhá-
skóla í Noregi í eitt ár og stundaði
nám í tómstundafræðum við Lýðhá-
skólann í Gautaborg 1987-89.
Vanda starfaði í félagsmiðstöð-
inni Árseli i Árbæjarhverfi 1986-87,
var aðstoðarforstöðumaður þar
1989-93 og forstöðumaður 1993-97.
Vanda þjálfaði yngri flokka
Breiöabliks i knattspymu 1990-93,
meistaraflokk Breiðabliks 1994-96,
þjálfaði 16 ára landslið kvenna 1992
og 1993,18 ára landslið kvenna 1997
og 21 árs landslið kvenna og A-
landslið kvenna 1997 og 1998. Hún
hefur verið þjálfari meistaraflokks
KR frá 1998.
Vanda hóf að æfa knattspymu
með Tindastóli og keppti með strák-
unum í Tindastóli í 5., 4. og 3. flokki
auk þess sem hún æfði sund, á skíð-
um og i körfúknattleik.
Hún keppti í körfuknatt-
leik með skólaliðum, varð
íslands- og bikarmeistari
með ÍS 1991 og lék tíu A-
landsleiki í körfuknatt-
leik. Hún keppti með
meistaraflokki ÍA í knatt-
spyrnu 1983-86 og 1989,
varö íslandsmeistari með
ÍA 1984, 1985 og 1987 og
bikarmeistari með ÍA
1989. Þá lék hún í sænsku
úrvalsdeildinni með
GAIS 1988 og hluta tíma-
bilsins 1989.
Vanda lék með meistaraflokki
Breiðabliks 1990-96, varð Islands-
meistari með liðinu 1990, 1991, 1992,
1994, 1995 og 1996 og bikarmeistari
1994 og 1996.
Vanda var valin leikmaður ársins
i úrvalsdeildinni 1990. Hún hefur nú
þjálfað meistaraflokkslið í fjögur ár
samfeflt án þess aö tapa leik. í
flmmtíu og sex leikjum hafa lið
hennar unnið fimtíu og tvo leiki en
gert fjögur jaflitefli.
Fjölskylda
Vanda giftist 27.6.1998 Jakobi Frí-
manni Þorsteinssyni, f. 6.5. 1969,
fræðslustjóra íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkurborgar. Hann er
sonur Þorsteins Jakobssonar, fyrrv.
sjómanns og starfsmanns við
Reykjavíkurhöfh, og Ásgerðar
Bjamadóttur sem er látin, húsmóð-
ur og starfsmanns við Islandsbanka.
Sonur Vöndu og Jakobs Frí-
manns er Þorsteinn Muni Jakobs-
son, f. 26.11. 1998.
Bróðir Vöndu er Andri
Sigurgeirsson, f. 30.3.
1976, starfsmaður hjá
Sauðárkróksbæ og fljóta-
ferjumaður hjá Ævin-
týraferðum á Sauöá-
króki.
Hálfsystir Vöndu, sam-
feðra, er Friðrika Jó-
hanna Sigurgeirsdóttir, f.
4.12. 1960, búsett í Hvera-
gerði og að Laugarbökk-
um í Ölflisi og á hún tvö
böm.
Foreldrar Vöndu em Sig-
urgeir Angantýsson, f. 12.4. 1939,
verkstjóri hjá Sauðárkrókskaup-
stað, og Dóra Þorsteinsdóttir, f. 31.3.
1946, starfsmaður við Bókasafnið á
Sauðárkróki.
Ætt
Sigurgeir er bróðir Antons, lager-
stjóra hjá Bílanausti. Sigurgeir er
sonur Angantýs, viðgerðar- og pípu-
lagningamanns á Sauðárkróki og b.
í Málmey, Jónssonar, verkamanns í
Glerárþorpi, Gunnlaugssonar, bróð-
ur Péturs, föður Jóhanns risa Svarf-
dælings. Móðir Angantýs var Inga
Siguijónsdóttir, frá Brautarhóli í
Svarfaðardal, systir Kristjáns, foð-
ur Hugrúnar skáldkonu, móður
Helga Valdimarssonar læknis.
Móðir Sigurgeirs er Bára Jóns-
dóttir, vélstjóra á Siglufirði, móður-
bróður Helga Vatnar skíðakappa.
Jón var sonur Kristjáns frá Lamba-
nesi Jónssonar, bróöur Lofts, foður
Pálma, forstjóra Skipaútgerðar rík-
isins, afa Más Gunnarssonar, starfs-
mannastjóra Flugleiða. Bróðir
Pálma var Jón, kaupmaður í
Reykjavík, afi Jóns L. Ámasonar
skákmeistara. Móðir Jóns vélstjóra
var Sigurlaug Sæmundsdóttir, skip-
stjóra að Ytra-Mói í Fljótum, Jóns-
sonar. Móðir Sigurlaugar var Björg,
systir Katrínar, langömmu Jómnn-
ar Viðar tónskálds; systir Guðrún-
ar, ömmu Sigurðar Nordals, og syst-
ir Margrétar, móður Jóns Þorláks-
sonar forsætisráðherra. Móðir Bám
var Stefanía Stefánsdóttir.
Dóra er systir Þorsteins, forstöðu-
manns Búnaðarbankans - Verða-
bréfa. Dóra er dóttir Þorsteins, odd-
vita og póstmeistara á Hofsósi,
Hjálmarssonar, b. I Hlíð í Álftafirði,
Hjálmarssonar. Móðir Þorsteins var
María Rósinkransdóttir, b. á Hesti í
Hestfirði, bróður Þóru, langömmu
Jóns Baldvins sendiherra og Amórs
heimspekings Hannibalssona. Rós-
inkrans var sonur Rósinkrans, b. á
Svarthamri, Hafliðasonar, bróður
Sigurðar, afa Jóns Baldvinssonar,
forseta ASÍ, og langafa Sverris Her-
mannssonar.
Móðir Dóra er Pála Pálsdóttir,
kennara i Ártúni á Hofsósi, bróður
Stefáns, föður Þorsteins Svörfuðar
yfirlæknis. Páll var sonur Áma, b. á'
Hreiðarsstöðum, Runólfssonar og
Önnu Sigríðar Bjömsdóttur. Móðir
Pálu var Halldóra ljósmóðir Jó-
hannsdóttir, b. í Svínavallakoti,
Jónatanssonar, b. á Hrauni, Ög-
mundssonar. Móðir Jónatans var
Hólmfríður Gunnlaugsdóttir, ætt-
fóöur Krossaættar, Þorvaldssonar.
Móðir Þóreyjar var Þórey Péturs-
dóttir.
Vanda
Sigurgeirsdóttir.
Afmæli
Paul D.B. Jóhannsson
Paul Daniel Bjame Jóhannsson,
deildarstjóri véladeildar Tækni-
skóla íslands, Ásgarði 2, Garðabæ,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Paul fæddist í Ibestad í Gra-
tangen í Noregi og ólst þar upp og á
Akureyri. Hann var í bama- og
framhaldsskóla á íslandi, stundaði
undirbúningsnám fyrir tækninám í
Eskilstuna í Svíþjóð 1951-53, stund-
aði tæknifræðinám við maskin-
fackskolan í Eskilstuna 1953-56 og
stundaði ffamhaldsnám í vélaverk-
fræði við KTH/ASEA í Vasterás i
Svíþjóð 1958-63. Auk þess hefur
hann sótt flölda námskeið hér á
iandi og erlendis í tengslum við
störf sín.
Paul starfaði hjá STAL í Fin-
spáng í Svíþjóð 1949-51, hjá Bolind-
er Munktell AS í Eskilstuna 1951-55,
hjá ASEA (nú ABB) í Eskilstuna,
JL
DV
KRAKKAR!
VLHAMINGJUMEÐ
VINNINGANA!
w*
Cí
DV oq KJörís bakka
ykkur fyrír batttökuna
KrakkaklúbbsleíknumI
DV sendir út vinninqana
næetu daga.
Ylnnlngehafan
2 bakpokar í gönguferðina eða ferðalagið með Kjörís-taflil
Þórunn Jónsdóttir
Hanna Þ. Halldórsdóttir
Kjörís-töfl
Anna B. Guðjónsdóttir
Inga Ó. Jónsdóttir
Thelma Amarsdóttir
Dísa R. Edwards
Björg Ó. Gunnarsdóttir
Kjörís-Míkadó
Olöf Pétursdóttir
Eygló Karlsdóttir
Hildur Rós
Óskar K. Pétursson
Sunna G. Traustadóttir
Birgir M. Sigurðarson
Elva Eir
Auöur Ó. Hlynsdóttir
Ámi Steinn
Sara María
nr. 9487
nr. 57975
nr. 1041
nr. 12357
nr. 13034
nr. 14905
nr. 1043210
nr. 10064
nr. 14959
nr. 9435
nr. 3272
nr. 10202
nr. 15630
nr. 14558
nr. 7894
nr. 15337
nr. 25157
%
www.kioris.is
einkum við hönnunar-
störf, 1956-73, hjá Vél-
smiðjunni Héðni hf. í
Reykjavík 1974-82 og hef-
ur starfað við Tækni-
skóla íslands ffá 1981 sem
settur kennari til 1990 og
deildarstjóri véladeildar
ffá 1990.
Paul hefur starfað í
Bræðrafélagi Garða-
kirkju, setið í sóknar-
nefnd Garðakirkju, starf-
að í Gídeonfélaginu,
KFUM, verið virkm fé-
lagi í Tæknifræðingafélagi Islands
og í Kælitæknifélagi Islands.
Fjölskylda
Paul kvæntist 20.9.1957 Elínu Ell-
ertsdóttur, f. 20.2. 1928, hjúkrunar-
ffæðingi. Hún er dóttir Ellerts K.
Magnússonar, stýrimanns, bygg-
ingameistara og síðast vömbifr eiða-
stjóra í Reykjavík, og Guðríðar Þor-
kelsdóttur húsmóður.
Dætur Paul og Elínar era Guðrún
Edda, f. 10.4. 1958, alþjóðlegur ráð-
gjafi í Vásterás í Svíþjóð, en maðm
hennar er Benedikt Ólafsson, f. 16.3.
1947, flugtæknir og era böm þeirra
Stefán Öm, f. 10.2. 1986, og Ásdís
Edda, f. 2.6.1988; Steinunn Jóhanna,
f. 1.12. 1959, dýrahjúkranarfræðing-
m í Middleton Cheney í Englandi
en maðm hennar er Roy
Edward Jenkins, f. 14.12.
1955, ökukennari og hús-
gagnasmiðm, og era börn
þeirra Daníel, f. 28.6.
1986, Hanna Elisabeth, f.
6.4. 1988, og Sarah Irene,
f. 5.10. 1990; Ásdís, f. 13.4.
1967, nuddari í Reykja-
vík, en maður hennar er
Emil Rúnar Kárason, f.
22.12. 1967, múrari og era
synir þeirra Páll Emil, f.
12.2. 1993, og Þorgrímm
Kári, f. 27.7. 1994.
Systkini Paul era Gunda Cecilie,
f. 25.1. 1928, húsffeyja á Akmeyri;
Sigmund, f. 22.4. 1931, teiknari i
Vestmannaeyjum; Anne Helene, f.
10.12. 1933, húsffeyja og skrifstofu-
maðm á Blönduósi; Kristine El-
ffide, f. 26.4. 1936, húsffeyja á
Blönduósi; Oddný Guðfinna, f. 27.2.
1939, húsffeyja og verkakona á Ak-
ureyri; Thorleif Kaare, f. 9.2.1945, á
Akmeyri.
Foreldrar Paul vora Jóhann Dan-
íel Baldvinsson, f. 22.7. 1903, d. 9.4.
1990, vélstjóri í Gratangen í Noregi
og á Akmeyri, síðast á Skagaströnd,
og Cora Sofie Baldvinssen, f. 20.9.
1904, d. 31.8. 1986, húsffeyja.
Paul hélt upp á afinælið með
fjölskyldu og vinum sL laugardag.
Þrjár Scout-skólatðskur og pennaveski
Aron Vignir Sveinsson ' nr. 7268
Amar Þór Halldórsson nr. 15146
Guðjón Páll nr. 14462
Krakkaklúbbur DV og Penninn þakka ykkur fyrir þátttökuna
í Krakkaklúbbs-Ieiknum.Vinningshafar fá vinningana senda
í pósti næstu daga.
Tll hamingju með afmælið 8. september
90 ára
Elísabet Helgadóttir, Austurbyggð 17, Akureyri. Guðríðm Magnúsdóttir, Grettisgötu 18 A, Reykjavík. María Kristjánsdóttir, Austmbrún 4, Reykjavík.
85 ára
Guðríður Hjaltested, Karfavogi 52, Reykjavík.
80 ára
Mínerva Kristinsdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
75 ára
Anton K. Jónsson, Rauðumýri 16, Akureyri. Bjami V. Magnússon, Ægisíðu 46, Reykjavík. Einar Sigtryggsson, Raftahlið 4, Sauðárkróki. Elísabet Jónsdótir, Stóragerði 38, Reykjavík. Garðar Halldórsson, Vitateigi 5, Akranesi. Sigríður G. Jónsdóttir, Langholtsvegi 142, Reykjavík. Sigmður Jóhannsson, Sandbakkavegi 2, Höfn. Stmlína Stmludóttir, Þorvaldsstöðum, Hvítársíðuhreppi.
70 ára
Karl Sigmbjöm Kristjánsson, Hlóðalind 5, Kópavogi. Sveinbjörg Eiríksdóttir, Frostafold 14, Reykjavík. Sveinn Steinsson, Geitagerði, Skagafirði.
60 ára
Ásdís Hrólfsdóttir, Hjallastræti 19, Bolungarvik. Karen María Pálina Gestsdóttir, Gautavík 12, Reykjavík. Sigrún Jónsdóttir, Hjaltabakka 24, Reykjavík.
50 ára
Ámundi H. Þorsteinsson, Vestmgötu 18, Hafnarfirði. Guðbjörg Vignisdóttir, Lautasmára 1, Kópavogi. Guðmundur Sigurðsson, Karfavogi 58, Réykjavík. Haraldur H. Guðmundsson, Einholti 28, Akmeyri. Hulda Einarsdóttir, Furalundi 9 B, Akmeyri. Jóhann Kröyer, Miðleiti 8, Reykjavik. Svanhvít Sigmðardóttir, Hólmgarði 49, Reykjavík.
40 ára
Alda Björk Sigurðardóttir, Vesturási 36, Reykjavík. Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir, Áshamri 58, Vestmannaeyjum. Gylfl Markússon, Skúlagötu 6, Stykkishólmi. Jóhanna M. Thorlacius, Krókabyggð 1 A, Mosfellsbæ. Jórunn Sigríðm Ólafsdóttir, Eiðismýri 24, Seltjamamesi. Karl Frímannsson, Byggðavegi 101 F, Akmeyri. Ólafur Ragnarsson, Kambahrauni 47, Hveragerði. Suncana María Slamnig, Fjósakambi 6, Austur-Héraði.