Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1999, Qupperneq 24
44
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
»
„Það væri hörmuleg niður-
staða á aldamótum ef teknar
yrðu skammsýnar
ákvarðanir þvert
ofan í vilja og til-
finningar stórs
hluta þjóðarinn-
ar.“
Hjörleifur Gutt-
ormsson, fyrrv.
þingmaður,
í Morgunblaðinu.
Meira um meiri-
hlutann
„Ég vil leyfa mér að fullyrða
að hinn þögli meirihluti, þ.e.
sá hluti þjóðarinnar sem ekki
hefur sest við að skrifa greinar
í dagblöð um þetta stórkost-
lega atvinnulífsmál okkar
Austfirðinga og raunar lands-
manna allra, fylgir okkur."
Jóhannes Pálsson, Austfirð-
ingur, í Morgunblaðinu.
Fleira en hreindýr
og gæsir
„Það er fleira hér eystra en
gæsir og hreindýr og þvi má
ekki gleyma að
er hluti af
lifríki landsins
og það verður að
geta nýtt gæði
landsins sér til
framdráttar." j
Vilhjálmur
Hjálmarsson,
fyrrv. ráðherra, í Degi.
Slæmur niðurskurður
„Það má líkja þessu við það ,
* þegar smyglið var tekið af sjó-
mönnunum á sínum tíma. Þá
áttuöu þeir sig á hvað þeir
höfðu í laun.“
Eiríkur Beck rannsóknarlög-
reglumaður um niðurskurð
hjá lögreglunni, í DV.
Guði að þakka
„Þetta er náttúrlega fyrst og
fremst Guði almáttugum að
þakka, eins og
flestar sviptingar
í náttúrunni."
Kristinn Péturs-
son fiskverkandi,
um það hvort
mikil nýliðun
þorskseiða sé
kvótakerfinu að
þakka, í DV.
f
£
Aðalatvinna kennara
„Mér hefur virst að aðalat-
vinnuvegiu- kennar séu verk-
fóll, hópuppsagnir, fjölmiðla-
uppákomur og stöku illdeilur
viö skólastjóra. Þess á milli
funda kennarar um agavanda-
mál nemenda, fara á námskeið
í útlöndum um gæðastjómun
og kynna sér kennsluaðferðir í I
austurlöndum íjær.“
Kolbrún Bergþórsdóttir,
í Degi.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson óperusöngvari:
Tónleikar og nám
Ég ákvað, þegar ég kom hingað til
landsins frá Mílanó þar sem ég bý,
að halda eina einsöngstónleika áður
en ég færi aft-
ur af landi
brott og
hafði
hugsað
mér
Lang-
holts-
kirkju til
tónleika-
haldsins en
þar sem
verið er
að setja
nýtt orgel upp í kirkjunni var það
ekki hægt og kom þá íslenska óper-
an til móts við mig og verð ég með
tónleikana þar annað kvöld,“ segir
Jóhann Friðgeir Valdimarsson óp-
Maður dagsins
emsöngvari sem hefur haft í nógu
að snúast í söngnum þann
stutta tíma sem hann hef-
ur dvalið heima en
hann er svo á fórum
aftur til Mílanó 18.
september. „Á tón-
leikunum í Óper-
unni mun ég
syngja blöndu af
íslenskum lög-
um og ítölsk-
um aríum og
ljóðum. Þetta
era lög sem
fólk þekkir,
skemmtileg
og létt lög
sem ég hef
valið í sam-
vinnu við und-
irleikara minn,
Ólaf Vigni Al-
bertsson."
Ólafur segist hafa
sungið við hin ýmsu
tækifæri í sumar en þetta
séu einu opinberu tón-
leikamir: „Mín hægri
hönd við skipulagn-
ingu og annað hér
heima er Þuríð-
í Mílanó
ur Pálsdóttir sem kenndi mér þegar
ég var i söngskólanum. Að loknum
tónleikunum tekur síðan viö að
pakka niður og halda til Mílanó þar
sem ég er á síðara ári við
Conservatori Guiseppe Verdi. Þar
verður nóg að gera fyrir mig, enda
námið strangt og æfingar alla daga.
Þegar svo námi lýkur mun ég reyna
fyrir mér erlendis. Ég tel mig vera
mjög heppinn með kennara, hann er
eftirsóttur og einn aðalsöngkennar-
inn í Mílanó.“
Jóhann, sem verður 32 ára á
þessu ári, byrjaði að læra söng þega
hann var 27 ára: „Ég hafði verið sem
drengur og unglingur í hljóðfæra-
námi enda móðir mín fiðluleikari og
ég var settur snemma i tónlistar-
nám. Síðan dofnaði áhuginn og
hætti ég alveg í tónlistarnámi í
nokkm- ár. Síðan skeði það aö ég
fékk áhuga á söng og þá varð ekki
aftur snúið."
Jóhann, sem býr ásamt fjölskyldu
sinni rétt fyrir utan Mílanó, er ákaf-
lega ánægður með dvölina þar:
„Borgin er miðsvæðis og þar er mik-
ið tónlistarlíf og þótt það sé talsverð-
ur spölur fyrir okkur í bæinn þá
reynir maður að fara sem mest á
tónleika enda er það hluti af náminu
að hlusta á aðra. Þarna búa nokkrir
íslendingar og við erum i sambandi
við þá og svo höfum við heimsótt
Kristján Jóhannsson og Ólaf Áma
Bjamason, sem era ekki langt frá
okkur, þegar tími hefur unnist til.“
Eiginkona Jóhanns heitir íris
Björk Viðarsdóttirog eiga þau tvo
syni, tólf ára og tveggja ára. -HK
Einar Lárusson við eina mynd sína.
Portrett og
hljóðar smá-
sögur
í Eldborg, móttökuhúsi
Hitaveitu Suðurnesja,
Svartsengi við Grindavík-
urveg, heldur Einar Lárus-
’■> son myndlistarsýningu.
Einar er fæddur í
Reykjavík 1953.
Hann hefur tekið
þátt í samsýning-
um í Noregi, Gall-
erí Lena í
Álasundi árið 1979
og sama ár í
Álasund Museum.
Þá hélt hann
einkasýningu í
Gallerí 32 í
Reykjavík 1981 og
Bæjarstjórnarsaln-
um í Grindavík 1994.
Einar vinnur með tússi,
„brúnkrít" og akrýllitum.
Verk eftir Einar era í eigu
fjölda fyrirtækja og einstak-
Sýningar
linga hér á landi og erlend-
is. Sýningin stendur til 11.
september.
Situr á sér Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
íslenska landsliðið fór létt með
Andorra síðastliðinn laugardag.
Róðurinn verður erfiðari f kvöld.
ísland -
Úkraína
Ekki er hægt að segja að ís-
lenska landsliðið hafi sýnt sínar
bestu hliðar á móti Andorra síð-
astliðinn laugardag, til þess var
mótspyman of lítil. í kvöld verður
liðið að sýna allar sínar bestu
hliðar ef takast á að sigra hið
sterka lið Úkraínu sem verður
mótherjinn á Laugardalsvellinum.
Leikurinn skiptir miklu máli fyr-
ir bæði liðin. Úkraína hefur eitt
stig á ísland og þarf að vinna til
að tryggja áframhaldandi þátttöku
og það þurfa íslendingar einnig,
en af toppliðunum í riðlinum eig-
um við erfiðustu leikina eftir því
auk leiksins í kvöld eigum við eft-
ir að leika við heimsmeistara
Frakka á heimavelli þeirra.
Þannig að tölfræðin er á móti okk-
ur íslendingum.
íþróttir
En ef viljinn og krafturinn er
fyrir hendi í íslenska liðinu er töl-
fræðin ekkert annað en tölur á
pappír. Heimavöllurinn hefur
einnig sitt að segja og þar koma
áhorfendur inn í leikinn og Áfram
ísland ætti að vera þau tvö orð
sem mest verða notuö á vellinum
í dag. Leikurinn hefst kl. 16.
Bridge
Danir unnu Egypta, 19-11, í riðla-
keppninni á HM yngri spilara á dög-
unum. Þeir töpuðu þó 13 impum á
þessu spili í leiknum. Danirnir
Konow og Madsen sögðu sig upp í 3
grönd á hendur NS í lokaða salnum
og þóttust heppnir með að sleppa
einn niður í þessari legu. Sagnir
gengu þannig fyrir sig í opna saln-
um, norður gjafari og allir á hættu:
* K8743
W G
-
4 ÁD107632
•* Á542
♦ ÁD10862
* G
* 52
* D10963
* KG9543
* -
4 ÁD106
* K87
* 7
* K9854
Norður Austur Suður Vestur
1 ♦ pass 1 4 2*
pass pass dobl pass
2 * ^ pass 2 grönd 3 *
3 ♦ dobl 3 grönd pass
pass dobl p/h
Lega spilanna fyrir NS er vægast
sagt hræðileg og því mátti búast við
mikilli veislu hjá Dönunum.
Gregers Bjamarson sat í vestur og
hefði gert best í að spila út hjarta-
gosa. Hann ákvað hins vegar að
spila út laufsjöu
og gosinn i blind-
um átti fyrsta
slaginn. Austur
henti spaða-
fimmu. Spaðanía
var næst hleypt
yfir til vesturs
sem drap á kóng
og spilaði meiri
spaða. Anders Hagen henti kæra-
leysislega hjarta og meira þurfti
sagnhafi ekki. Hann tók nú tvo
hæstu í hjartanu og spilaði sig út á
hjarta. Hagen átti nú aðeins eftir
tígul og varð að spila borðtennis við
blindan. Hann spilaði upp í
tígulgaffal, fékk tígul aftur á sig um
hæl, varð aftur að spila upp í gaffal-
inn og gefa níunda slaginn. Slök
vörn af þessu tagi flokkast undir
stórslys. ísak Örn Sigurðsson