Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Síða 5
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
5
Fréttir
Flugvirkjar streyma
heim í atvinnuleysi
- um 100 í námi í Oklahoma
„Það mætti segja mér að erfitt
verði um vik hjá sumum þessara
stráka að fá vinnu að námi loknu.
Það hafa um hundrað íslendingar
verið í flugvirkjanámi í Tulsa í
Oklahoma-fylki í Bandaríkjunum að
undanfómu og þeir eru að tínast
heim. Við vorum að segja upp 12
flugvirkjum sem voru hjá okkur
yfir háannatímann og við réðum í
vor. Það stóð aldrei annað til en að
segja þeim upp í haust,“ sagði Finn-
bogi Óskarsson hjá Atlanta. Flug-
virkjamir, sem hér um ræðir, störf-
uðu hjá Atlanta víða um heim en nú
hefúr hægst um hjá flugfélaginu og
þeirra er ekki lengur þörf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugvirkjafélaginu var skortur á
flugvirkjum hér á landi fyrir hálfú
öðm ári og flykktust menn þá í
tveggja ára flugvirkjanám í Tulsa í
Flugvirkjar að verða fleiri en verkefnin sem bíða.
Oklahoma. Þessir nemendur era nú
að útskrifast og skila sér heim. Ljóst
er að innlend flugfélög geta ekki
tekið við þeim öllum.
„Við ráðum ekki fleiri flugvirkja
fyrr en pilagrimsflugið hefst hjá
okkur í febrúar en það stendur í tvo
og hálfan mánuð,“ sagði Finnbogi
Óskarsson hjá Atlanta en félagið
mun nota níu vélar í pílagrímsflug-
ið og flytja um 700 manns daglega,
eða yfir 50 þúsund pílagríma, með-
an á verkefninu stendur.
Af gefnu tilefni vilja starfsmenn
Flugvirkjafélagsins árétta að flug-
virkjamenntun nýtist mönnum um
víða veröld og menn flytji úr landi
frekar en að sitja atvinnulausir hér
heima. Þrjú ár era síðan flugvirki
var síðast á atvinnuleysisskrá hjá
félaginu og staldraði hann við á
skránni í tíu daga. -EIR
Vaxandi urgur:
Reiöir
lögreglu-
menn
„Viðbrögðin era reiði,“ sagði
Óskar Bjartmarz, formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur, um und-
irtektir hins almenna lögreglu-
manns viö málflutning dóms-
málaráðuneytisins.
„Ég stóð rétt áðan niðri á gangi
í fjölmennum hópi manna og hef
hitt aðra lögreglumenn og það er
einfaldlega reiði í mönnum. Þeir
segjast hafa verið að skoða sín
laun og að þeir kannist ekki við
að hafa náð því meðaltali sem
ráðherra setur fram. Nokkrir
segjast þegar hafa orðið fyrir
tekjulækkun og enn fleiri segjast
sjá fram á að verða fyrir tekju-
lækkun miðað við það sem hefur
verið boðað.“
Óskar sagði fulltrúa Lögreglu-
félagsins mundu eiga fund með
framkvæmdastjóra lögregluemb-
ættisins fyrir hádegi í dag þar
sem hann hygðist fara yfir út-
reikningana sem lagðir voru fram
á fundi ráðherra í fyrradag. Fund-
ur ''erður hjá Lögreglufélaginu
eftir hádegi og átti Óskar von á
mikilli þátttöku. -GAR
Lögregluvarðstjóri í Reykjavík:
Feginn að búa í Hafnarfirði
forsendur húsakaupa brostnar
„Það fjármagn sem ætl-
að er til reksturs emhætt-
isins dugar hreinlega
ekki,“ segir Guðmimdur
Fylkisson, varðstjóri í
lögreglunni i Reykjavík,
um óánægju félaga í Lög-
reglufélagi Reykjavíkur
með þróun mála hjá emb-
ættinu. Hann segir að
miðað við nýjar regiur
um yfirvinnu hjá embætt-
inu geti hann búist við að
mánaðartekjur sínar
dragist saman um allt að
30 þúsund krónur.
Ráðþrota
„Ég flutti í fyrra suður
frá ísafirði með eiginkonu
og tvö böm, er nýbúinn
að kaupa mér hús hér en
á óselt hús fyrir vestan og
þarf að borga af því. Ég
fór í greiðslumat og gerði
greiðsluáætlun vegna kaupanna sem
miðaðist við launin mín eins og þau
voru en þær forsendur eru allar
brostnar. Við eigum von á okkar
þriðja barni á næstu dögum og ég ætl-
aði að i feðraorlof í september en ég
þarf að hugsa um mig hvort ég hef efni
á því,“ segir Guðmundur.
„Ég hef verið í þesssu starfi af því ég
„Við eigum von á okkar þriðja barni á næstu dögum og ég
ætlaði í feðraorlof f september en ég þarf að hugsa um mig
hvort ég hef efni á því,“ segir Guðmundur Fylkisson, varð-
stjóri hjá lögreglunni i Reykjavík. Leggur hann lögregluhúf-
una á hilluna?
hef getað rnmið mikið og haft há heild-
arlaun þótt fastakaupið sé ekki hátt
miðað við marga í dag en nú hefúr
hluti þess verið tekinn af manni,“ seg-
ir hann. „Við erum hreinlega að verða
ráðþrota og það er mjög sérkennilegt
að félagið þurfi að leita eftir vinnu fyr-
ir sína félaga. Það er nokkuð víst að
það verða einhveijir sem neyðast til að
segja upp en það verður aldrei
farið út í hópuppsagnir þótt
við höfum horft á kennara
segja upp í stórum stfl og ná
vissum árangri."
Guðmundur segir einhverja
lögreglumenn eflaust neyðast
til að segja starfi sínu lausu
fari sem horfi í launamálun-
um. Sjálfur segist hann vel
geta hugsað sér starf tengt tölv-
um enda snúist starf hans hjá
lögreglunni að miklu leyti um
þær.
Spurning um vitneskju
stjórnvalda
Guðmimdur segir lögreglu-
lögin hindra hann í að tjá sig
beint um lögregluna, tfl dæmis
um innra skipulag og starfs-
hætti, og því geti hann lítið
sagt um starfsumhverfi lög-
reglumanna í Reykjavík. „Hitt
er að ég bý í Hafnarfirði og ég
er óskaplega sáttur að búa í þar en
ekki Reykjavík, miðað við hvemig
staðan er orðin í löggæslunni og ég tjái
mig ekki frekar um það.“
Guðmundur segist lögreglumenn sjá
í fjölmiðlum að gera eigi stóra hluti.
„En við verðum ekki varir við þá hér.
Þetta embætti, og örugglega fleiri, þarf
miklu meira ftármagn en það hefúr. Ég
veit ekki hvort rétt stjómvöld viti hver
staðan er og kannski þarf embættið að
upplýsa dómsmálaráðuneytið um það.
Utkoman bendir að minnsta kosti til
að sambandið mætti vera betra ein-
hvers staðar." -GAR
HLUTHAFAFUNDUR
StjórnTollvörugeymslunnar - Zimsen hf.
boðar hér með til hluthafafundar
í félaginu sem haldinn verður
á Grand Hóteli í Reykjavík, í salnum Háteigi,
16. þessa mánaðar, kl. 16.00.
Á dagskrá fundarins verður:
I. Kjör tveggja manna í aðalstjórn félagsins í stað tveggja
stjórnarmanna sem hafa óskað eftir því að verða
leystir frá störfum.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Reykjavík, 8. september 1999
Stjórnin
Miðstöð íslenska hestsins í Skagafirði:
Ætlum ekki að taka
neitt frá neinum
- heldur þvert á móti, segir Hjálmar Jónsson alþingismaður
Tilsölu
>------►
Grand Cherokee Limited 5,9, árg. '98,
Opið
virka
daga 9-18
ek. 21 þús. km,
kom á götuna 6-98. I Ver^ 4.690.000 J
Nýbýlavegi 2
sími 554 2600
„Það er sjálfsagt að styðja við
hestamennsku hvarvetna á landinu,"
segir Hjálmar Jónsson alþingismað-
ur. Hjálmar var spurður um viðhorf
hans sem Skagfirðings til þeirra fyr-
irætlana að útnefna heimahérað hans
sem miðstöð íslenska hestsins og að
leggja til þess 150 milljónir af al-
mannafé næstu fimm árin.
Hjálmar sagði að ekki væri ætlun-
in að taka eitt né neitt af öðrum. Fjár-
laganefnd eigi eftir að fjalla um þær
tillögur sem koma um þetta mál og
hún muni eiga síðasta orðið um
hversu miklir peningar fari í þetta
verkefni á endanum. Umræð-
an um peningahlið málsins
væri því ekki i réttum far-
vegi í dag. „Frumkvæði í
þessu máli kemur frá Skag-
firðingum. Það er líka ljóst
að inn í þetta munu koma
nýir peningar sem ekki
verða teknir af öðrum hesta-
mönnum. Ég vona að Lands-
samband hestamanna muni
líka njóta góðs af því kast-
ljósi sem nú beinist að ís-
lenska hestinum," sagði
Hjálmar. Hann bendir á að
Hjálmar Jónsson
alþingismaður.
fyrrverandi landbúnaðar-
ráðherrar, eins og t.d. Hall-
dór Blöndal, hafi lýst yfir
því að í Skagafirði væri
Mekka íslenska hestsins.
„Þetta höfúm við Skagfirð-
ingar haft fyrir satt og vilj-
um auka veg íslenska hests-
ins. Við viljum ekki taka
neitt frá neinum heldur að
allir njóti góðs af þeim al-
menna áhuga sem er á ís-
lenska hestinum í Skaga-
firði.“ -SÁ
Ræstingar
•--------------—-----•
Verzlunarskóli íslands óskar eftir að ráða
starfsfólk til ræstinga strax.
Umsóknum skal skila til húsvarðar.
Upplýsingar veittar í síma 899 0963
eða 568 8400.
Góð laun í boði fyrir rétta starfskraftinn.
Verzlunarskóli Islands