Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999 7 Fréttir Fyrrum næstráðandi LÍÚ gengur til liðs við Vélstjórafélag íslands: Hugmyndafræðingur hoppar yfir borðið - happafengur, segir Helgi Laxdal, formaöur Vélstjórafélags íslands Jónas Haraldsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, hefur nú gengið til liðs við einn höfuðand- stæðinga útgerðarmanna, Vélstjóra- félag íslands. Jónas, sem starfaði um 27 ára skeið í LÍÚ, hætti i fram- haldi af hörðum deilum við Kristján Ragnarsson, formann og fram- kvæmdastjóra samtakanna. Þegar nýr framkvæmdastjóri samtakanna, Friðrik J. Amgrímsson, var ráðinn sl. vor var gengið fram hjá Jónasi sem verið hafði næstráðandi Krist- jáns um árabil og sérfræðingur samtakanna við samningagerð við sjómenn. í framhaldi þess hætti hann í fússi. Jónas þótti harður í horn að taka og klókur samningamaður sem veitt hefur sjómannaforystunni marga skráveifu við átök um kjarasamn- inga. Hann hefur í nær árvissum verkföllum sjómanna og útgerðar- manna leitt samningasveit útgerð- armanna ásamt Kristjáni. Jónas Haraldsson, áður næstráðandi Kristjáns Ragnarssonar hjá LÍÚ, hefur nú gengið til iiðs við höfuðandstæðinginn. Hér má sjá þá félaga á meðan allt lék í lyndi. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags íslands, er himinlifandi með liðsaukann. Nú hefur Jónas fundið sér nýjan starfsvettvang þar sem hann er að stofna lögfræðistofu með Friðriki Á. Hermannssyni, lögfræðingi Vél- stjórafélagsins. Samhliða hefur Vél- stjórafélagið gert samning við Jónas um að hann vinni fyrir félagið í að minnsta kosti 15 klukkustundir á mánuði. Ljóst er að komi til kjara- deilu sjómanna og útgerðarmanna mun Jónas því verða hinum megin við borðið. Vélstjórar fagna mjög þessu liðsinni og telja sína stöðu sterkari en nokkru sinni fyrr. „Við lítum á Jónas sem mikinn happafeng. Hann er sá maður hér á landi sem þekkir hvaö best þau lög sem sjómenn starfa undir. Þá gjör- þekkir hann kjarasamninga sjó- manna og útgerðarmanna eftir 27 ára starf hjá LÍÚ,“ segir Helgi Lax- dal, formaður Vélstjórafélags ís- lands. DV náði ekki sambandi við Jónas Haraldsson í gær en hann situr þessa dagana á tölvunámskeiði. -rt Brottfluttir vildu menningarmiðstöð á Flateyri: Buðu dagatöl fýrir íbúðarhús - bæjarstjórn segir nei og vill selja til niðurrifs Umsetið hús að Sólbakka við Flateyri í Önundarfirði. Annar tilboðsgjafinn vil rífa húsið og flytja á brott. Hinn vill gera það að félagsheimili og menningar- miðstöð. Bæjarstjóm ísafjarðarbæjar hefur fellt tillögu um að taka tilboði Ön- firðingafélagsins í Reykjavík í hús að Sólbakka við Flateyri í eigu Ofan- flóðasjóðs og bæjarins. Eftir stendur tilboð einstaklings sem bauð 1,3 milljónir I húsið, staðgreitt í pening- um. Önflrðingafé- lagið hugðist nota húsið sem orlofs- og félagsheimili og greiða kaupverð þess með 2000 daga- tölum næsta árs sem eru tveggja milljóna króna virði, að mati fé- lagsins. Halldórsson. Félagið hefur gef- ið út myndskreytt dagatal um árabil sem borið er inn á sérhvert heimili í ísafjarðarbæ. Sá sem bæjarráð og bæjarstjórn vilja selja húsið býður staðgreiðslu f pen- ingum. Hann ætlar hins vegar að rifa það og endurreisa síðan á nýjum stað. „Þeir höfnuðu tilboði upp á tvær milljónir, miðað við okkar gjaldmið- il,“ sagði Bjöm Ingi Bjamason, for- maður Önfirðingafélagsins, í samtali við DV. Bjöm sagði það fráleitt að líta á almanakið eins og hvern ann- an einskisnýtan pappír. Þessi daga- töl eiga sér ákveðna sögu sem skýrir það verðmæti sem að baki þeim ligg- ur. Við höfum gefið þau út í allmörg ár og þau hafa notið virðingar þar sem þau hafa farið og aukið á kynn- ingu og samheldni innan svæðisins. Það eru fúll' verðmæti á bak við þau,“ sagði Björn Ingi við DV. Umrætt hús stendur þar sem hval- veiði- og hvalverkunarstöð Norð- mannsins Ellefsens stóð fyrir um öld. Ellefsen reisti tvö íbúðarhús við hlið hvalstöðvarinnar. Hið umdeilda hús er á sama stað og annað þessara íbúðarhúsa hvalfangarans stóð. Hitt húsið var einmitt á sínum tíma rifið og flutt suður til Reykjavíkur og end- urreist þar. Það hús er Ráðherrabú- staðurinn við Tjarnargötu. Norðmenn vilja byggja Hugmynd stjórnar Önfirðingafé- lagsins í sambandi við húsið á Sól- bakka er sú að nota það sem gisti-, félagsheimili og varðveita í því minjar um veru norskra hvalfang- ara á þessum stað. Þá hafa nórskir aðilar, einkum aíkomendur Ellefsens og arftakar starfsemi hans, heitið því að koma aö því að reisa annað hús þar sem Ráðherra- bústaðurinn stóð áður og í sama stíl og hann. „Síðustu árin höfum við verið í endumýjuðu og miklu sam- bandi við Noreg og svæðið sem Ellefsen og hvalfangaramir komu frá. Þaðan hafa komið til Flateyrar og í Önundai'fjörðinn rúmlega 100 manns, m.a. þingmenn og aðrir áhrifamenn frá Vestfold-svæðinu og 60 manna hópur ásamt lúðrasveit er væntanlegur næsta vor. Við sjáum húsið sem lykilhús í þessum sam- skiptum. Það og fyrirhugað nýtt hús, yrði sumargististaður fyrir brottflutta Önfirðinga og íbúa fsa- fjarðarbæjar einnig," sagði Bjöm. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, sagði við DV að innan bæjarfélagsins væri áhugi fyrir því að Önfirðingafélagið eign- aðist húsið. Það væri hins vegar að 90 prósentum í eigu Ofanflóðasjóðs en 10 prósent ætti ísafjarðarbær. Samkvæmt reglum um þessi hús ætti bæjarstjóm að taka afstöðu til tilboða í þau sem Ofanflóðasjóður síðan staðfestir. Þeirrar staöfesting- ar væri nú beðið og hvort sjóðurinn tekur 2000 almanök sem góðan og gildan gjaldmiðil fyrir húsið. Málið væri því ekki endanlega til lykta leitt þótt felld hefði verið tillaga í bæjarstjórn um að selja félaginu húsið fyrir 2000 dagatöl. -SÁ Halldór Björn Ingi Bjarnason. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Akraneshafnar, við fallbyssuna. Eins og sjá má á minni myndinni verður heilmikið dúndur og reykur þegar skotið er af byssunni. DV-mynd Daníel Fallbyssa við Akraneshöfn DV, Akranesi Nokkrum fallbyssuskotum var skotið úr fallbyssu í Akraneshöfn á föstudaginn. Byssuna fékk Akra- nes að gjöf frá Akureyrarhöfn fyr- ir nokkru. Það var Guðmundur Sveinbjömsson, þáverandi hafnar- stjóri, sem gaf vini sínum, Gísla Gíslasyni, bæjarstjóra og hafnar- stjóra, byssuna. Fallbyssan er ald- argömul og hefur Trésmiðjan Kjölur unnið að því að smíða vagn undir hana. Búið var að prófa að skjóta úr byssunni og virkaði gripurinn vel. Byssan var smíðuð í Svíþjóð árið 1870 fyrir Dani og missti grip- urinn af stríði sem þá hafði verið i gangi og dagaði uppi sem bryggjupolli á Akureyri þar sem hann hefur verið um áratuga- skeið. FaUbyssan er nú í eigu Akra- neshafnar og verður hún til skrauts á hafnarlóðinni en á tyUi- dögum verður hún notuð til að framleiða hávaða og reyk. Fyrsta skotinu var hleypt cif til heiðurs Guðmundi heitnum Sveinbjöms- syni sem var formaður íþrótta- bandalagsins. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.