Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
7
Fréttir
Fyrrum næstráðandi LÍÚ gengur til liðs við Vélstjórafélag íslands:
Hugmyndafræðingur
hoppar yfir borðið
- happafengur, segir Helgi Laxdal, formaöur Vélstjórafélags íslands
Jónas Haraldsson, fyrrverandi
skrifstofustjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, hefur nú
gengið til liðs við einn höfuðand-
stæðinga útgerðarmanna, Vélstjóra-
félag íslands. Jónas, sem starfaði
um 27 ára skeið í LÍÚ, hætti i fram-
haldi af hörðum deilum við Kristján
Ragnarsson, formann og fram-
kvæmdastjóra samtakanna. Þegar
nýr framkvæmdastjóri samtakanna,
Friðrik J. Amgrímsson, var ráðinn
sl. vor var gengið fram hjá Jónasi
sem verið hafði næstráðandi Krist-
jáns um árabil og sérfræðingur
samtakanna við samningagerð við
sjómenn. í framhaldi þess hætti
hann í fússi.
Jónas þótti harður í horn að taka
og klókur samningamaður sem veitt
hefur sjómannaforystunni marga
skráveifu við átök um kjarasamn-
inga. Hann hefur í nær árvissum
verkföllum sjómanna og útgerðar-
manna leitt samningasveit útgerð-
armanna ásamt Kristjáni.
Jónas Haraldsson, áður næstráðandi Kristjáns Ragnarssonar hjá LÍÚ, hefur
nú gengið til iiðs við höfuðandstæðinginn. Hér má sjá þá félaga á meðan allt
lék í lyndi.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, er himinlifandi
með liðsaukann.
Nú hefur Jónas fundið sér nýjan
starfsvettvang þar sem hann er að
stofna lögfræðistofu með Friðriki Á.
Hermannssyni, lögfræðingi Vél-
stjórafélagsins. Samhliða hefur Vél-
stjórafélagið gert samning við Jónas
um að hann vinni fyrir félagið í að
minnsta kosti 15 klukkustundir á
mánuði. Ljóst er að komi til kjara-
deilu sjómanna og útgerðarmanna
mun Jónas því verða hinum megin
við borðið. Vélstjórar fagna mjög
þessu liðsinni og telja sína stöðu
sterkari en nokkru sinni fyrr.
„Við lítum á Jónas sem mikinn
happafeng. Hann er sá maður hér á
landi sem þekkir hvaö best þau lög
sem sjómenn starfa undir. Þá gjör-
þekkir hann kjarasamninga sjó-
manna og útgerðarmanna eftir 27
ára starf hjá LÍÚ,“ segir Helgi Lax-
dal, formaður Vélstjórafélags ís-
lands.
DV náði ekki sambandi við Jónas
Haraldsson í gær en hann situr
þessa dagana á tölvunámskeiði. -rt
Brottfluttir vildu menningarmiðstöð á Flateyri:
Buðu dagatöl
fýrir íbúðarhús
- bæjarstjórn segir nei og vill selja til niðurrifs
Umsetið hús að Sólbakka við Flateyri í Önundarfirði. Annar tilboðsgjafinn vil
rífa húsið og flytja á brott. Hinn vill gera það að félagsheimili og menningar-
miðstöð.
Bæjarstjóm ísafjarðarbæjar hefur
fellt tillögu um að taka tilboði Ön-
firðingafélagsins í Reykjavík í hús
að Sólbakka við Flateyri í eigu Ofan-
flóðasjóðs og bæjarins. Eftir stendur
tilboð einstaklings sem bauð 1,3
milljónir I húsið, staðgreitt í pening-
um. Önflrðingafé-
lagið hugðist nota
húsið sem orlofs- og
félagsheimili og
greiða kaupverð
þess með 2000 daga-
tölum næsta árs
sem eru tveggja
milljóna króna
virði, að mati fé-
lagsins. Halldórsson.
Félagið hefur gef-
ið út myndskreytt
dagatal um árabil
sem borið er inn á
sérhvert heimili í
ísafjarðarbæ. Sá
sem bæjarráð og
bæjarstjórn vilja
selja húsið býður
staðgreiðslu f pen-
ingum. Hann ætlar
hins vegar að rifa það og endurreisa
síðan á nýjum stað.
„Þeir höfnuðu tilboði upp á tvær
milljónir, miðað við okkar gjaldmið-
il,“ sagði Bjöm Ingi Bjamason, for-
maður Önfirðingafélagsins, í samtali
við DV. Bjöm sagði það fráleitt að
líta á almanakið eins og hvern ann-
an einskisnýtan pappír. Þessi daga-
töl eiga sér ákveðna sögu sem skýrir
það verðmæti sem að baki þeim ligg-
ur. Við höfum gefið þau út í allmörg
ár og þau hafa notið virðingar þar
sem þau hafa farið og aukið á kynn-
ingu og samheldni innan svæðisins.
Það eru fúll' verðmæti á bak við
þau,“ sagði Björn Ingi við DV.
Umrætt hús stendur þar sem hval-
veiði- og hvalverkunarstöð Norð-
mannsins Ellefsens stóð fyrir um
öld. Ellefsen reisti tvö íbúðarhús við
hlið hvalstöðvarinnar. Hið umdeilda
hús er á sama stað og annað þessara
íbúðarhúsa hvalfangarans stóð. Hitt
húsið var einmitt á sínum tíma rifið
og flutt suður til Reykjavíkur og end-
urreist þar. Það hús er Ráðherrabú-
staðurinn við Tjarnargötu.
Norðmenn vilja byggja
Hugmynd stjórnar Önfirðingafé-
lagsins í sambandi við húsið á Sól-
bakka er sú að nota það sem gisti-,
félagsheimili og varðveita í því
minjar um veru norskra hvalfang-
ara á þessum stað. Þá hafa nórskir
aðilar, einkum aíkomendur
Ellefsens og arftakar starfsemi
hans, heitið því að koma aö því að
reisa annað hús þar sem Ráðherra-
bústaðurinn stóð áður og í sama stíl
og hann. „Síðustu árin höfum við
verið í endumýjuðu og miklu sam-
bandi við Noreg og svæðið sem
Ellefsen og hvalfangaramir komu
frá. Þaðan hafa komið til Flateyrar
og í Önundai'fjörðinn rúmlega 100
manns, m.a. þingmenn og aðrir
áhrifamenn frá Vestfold-svæðinu og
60 manna hópur ásamt lúðrasveit er
væntanlegur næsta vor. Við sjáum
húsið sem lykilhús í þessum sam-
skiptum. Það og fyrirhugað nýtt
hús, yrði sumargististaður fyrir
brottflutta Önfirðinga og íbúa fsa-
fjarðarbæjar einnig," sagði Bjöm.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
ísafjarðarbæjar, sagði við DV að
innan bæjarfélagsins væri áhugi
fyrir því að Önfirðingafélagið eign-
aðist húsið. Það væri hins vegar að
90 prósentum í eigu Ofanflóðasjóðs
en 10 prósent ætti ísafjarðarbær.
Samkvæmt reglum um þessi hús
ætti bæjarstjóm að taka afstöðu til
tilboða í þau sem Ofanflóðasjóður
síðan staðfestir. Þeirrar staöfesting-
ar væri nú beðið og hvort sjóðurinn
tekur 2000 almanök sem góðan og
gildan gjaldmiðil fyrir húsið. Málið
væri því ekki endanlega til lykta
leitt þótt felld hefði verið tillaga í
bæjarstjórn um að selja félaginu
húsið fyrir 2000 dagatöl. -SÁ
Halldór
Björn Ingi
Bjarnason.
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri
Akraneshafnar,
við fallbyssuna.
Eins og sjá má á
minni
myndinni
verður
heilmikið
dúndur og
reykur þegar
skotið
er af byssunni.
DV-mynd Daníel
Fallbyssa við
Akraneshöfn
DV, Akranesi
Nokkrum fallbyssuskotum var
skotið úr fallbyssu í Akraneshöfn
á föstudaginn. Byssuna fékk Akra-
nes að gjöf frá Akureyrarhöfn fyr-
ir nokkru. Það var Guðmundur
Sveinbjömsson, þáverandi hafnar-
stjóri, sem gaf vini sínum, Gísla
Gíslasyni, bæjarstjóra og hafnar-
stjóra, byssuna. Fallbyssan er ald-
argömul og hefur Trésmiðjan
Kjölur unnið að því að smíða vagn
undir hana. Búið var að prófa að
skjóta úr byssunni og virkaði
gripurinn vel.
Byssan var smíðuð í Svíþjóð
árið 1870 fyrir Dani og missti grip-
urinn af stríði sem þá hafði verið
i gangi og dagaði uppi sem
bryggjupolli á Akureyri þar sem
hann hefur verið um áratuga-
skeið.
FaUbyssan er nú í eigu Akra-
neshafnar og verður hún til
skrauts á hafnarlóðinni en á tyUi-
dögum verður hún notuð til að
framleiða hávaða og reyk. Fyrsta
skotinu var hleypt cif til heiðurs
Guðmundi heitnum Sveinbjöms-
syni sem var formaður íþrótta-
bandalagsins. -DVÓ