Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
Viðskipti________________________________________________________________________________________________ pv
ÞGttd helst: ... Viðskipti á Verðbréfaþingi námu alls 426 m.kr. ... Viðskipti með hlutabréf námu 207 m.kr. og voru
þau mest með bréf íslandsbanka fyrir alls 61 m.kr., með bréf Útgerðarfélags Akureyringa 25 m.kr. og með bréf Þorbjörns 22
m.kr. ... Mest hækkaði verð bréfa Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, 16,9%, og verð bréfa Síldarvinnslunnar, 7,4% ...
Utboð í Ossuri hefst
á mánudaginn
- búist við miklum áhuga Qárfesta
Stoðtækjafyrirtækið Össur hf.
hefur sölu hlutafjár með áskriftar-
fyrirkomulagi næstkomandi mánu-
dag. Hlutafé Össurar hf. við upphaf
útboðs er 173,9 milljónir króna en
gengið í útboðinu er 24. Samkvæmt
því er verðmæti félagsins 4.175
milljónir króna. Nú verða boöin út
25% hlutafjár í félaginu. Tveir
þriðju hlutar hlutafjár í útboðinu er
nýtt hlutafé en afgangurinn er í
eigu Össurar Kristinssonar, stofn-
anda Össurar hf. Áætlanir Össurar
gera ráð fyrir að hagnaður ársins
verði um 130 milljónir. Viðskipta-
blaðið birti í maí sl. greiningu á fyr-
irtækinu og var niðurstaðan sú að
markaðsverðmæti væri um 4,5
milljarðar og því kemur þetta gengi
ekki á óvart.
Búumst við miklum áhuga
Útboðið, sem Kaupþing hf. sér
um, verður í tveimur hlutum, ann-
ars vegar áskrift til almennings og
hins vegar tilboðshluti. Um helm-
ingur heildarfjárhæðarinnar verður
í hvorum hluta fyrir sig eða um 22
milljónir i hvorum. Að sögn Jóns
Sigurðssonar, forstjóra Össurar, bú-
ast þeir við miklum áhuga á útboð-
inu. „Þetta er fyrsta félagið í þessari
grein, stoðtækjaiðnaði, sem
fer út á markað. Við teljum
að þetta sé mjög gott skref
fyrir fyrirtækið og munum
nota þetta tækifæri til að
styrkja okkur enn ffekar,“
sagði Jón. Ætlunin er að
skrá félagið á VÞÍ fljótlega
en það hefur fengið staðfest-
ingu þingsins um að það sé
hæft til skráningar.
Óháð hagsveiflum
Það eru margir kostir við
að fjárfesta í fyrirtæki eins
og Össuri. Eins og ffam hefur kom-
ið er fyrirtækið það fyrsta
í sinni grein til að fara inn
á almennan hlutabréfa-
markað og það er ólíkt öðr-
um fyrirtækjum sem þar
eru. Sérstaklega má benda
á að það er ekki háð hag-
sveiflum með sama hætti
og flest önnur fyrirtæki
því óháð efnahagsástandi
kemur fólk áfram til með
slasast og veikjast. Því má
segja að hér sé að koma
inn á markað heppilegt
fyrirtæki til að fjárfesta í
og dreifa áhættu sinni. -bmg
Kvótinn
eltir fólkið
Á fyrstu árum nýrrar aldar munu
fá fyrirtæki bera höfuð og herðar yfir
önnur í sjávarútvegi hérlendis. Sjáv-
arútvegsfyrirtækjum mun halda
áfram að fækka og um leið munu þau
stærstu verða stærri. Þróunin tekur
meðal annars mið af byggðaþróun og
má efast um að mikil útgerð verði frá
ákveðnum landshlutum í framtíðinni.
Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt í
Viðskiptablaðinu sem út kom í gær.
Samkvæmt niðurstöðu Viðskipta-
blaðsins bendir margt tii þess að
fimm fyrirtæki muni verða leiðandi í
íslenskum sjávarútvegi í framtíðinni.
Þessi fyrirtæki eru Samherji, ÚA,
Grandi, ísfélag Vestmannaeyja og
Þormóður rammi-Sæberg.
Byggðaröskun fyrirsjáanleg
Önnur athyglisverð niðurstaða út-
tektarinnar snýr að byggðaþróun en
þar kemur fram líkur séu á að til-
teknir landshlutar muni fara verr út
úr þessari þróun en aðrir, einfaldlega
vegna þess að þar sé útgerð óhag-
kvæmari. í úttekt Viðskiptablaðsins í
dag segir m.a:
„Byggðamál og hræðslan við að
kvóti hverfi úr byggðarlagi ef smærri
fyrirtæki sameinast á víða ekki við
rök að styðjast en á öðrum svæðum
er það staðreynd. Sérstaklega á það
við ef horft er tO Vestfjarða og á norð-
austurhom landsins frá Húsavík að
Neskaupstað. Útgerð er hagkvæmust
frá suðvesturhominu, frá Snæfells-
nesi að Eyjum, þar veiðast líka mun
fleiri tegundir en undan Vestfjörðum
veiðist t.d. nær eingöngu þorskur.
Rækja er sterkust fyrir Norðurlandi
og uppsjávarfiskurinn á Austfjörðum.
Styrkleiki Suðumesja er að henta
best til vinnslu á saltfiski. Ljóst er að
staðir sem geta átt mikla möguleika í
landvinnslu em t.d. Sauðárkrókur,
Dalvík og Húsavík, þótt mikið verði
um að afla sé ekið landleið. Sú
byggðaröskun sem menn hafa viljað
tengja við kvótann lýtur nefnilega
ekki venjulegum lögmálum um að allt
streymi suður. Fremur snýst hún um
að menn veðja ekki á að fjárfesta á
svæðum þar sem fólkið muni ekki
vilja vera. Þannig að það má vera að
kvótinn elti fólkið en ekki öfugt.“
-bmg
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Líftæknifyrirtæki
á f leygiferö
af orðrómi um að í burðarliðnum sé inu. Hannes Smárason, aðstoðar-
samningur við japanskt lyfjafyrir- framkvæmdastjóri íslenskrar erfða-
Mikil gróska er í líftækniiðnaðinum um þessar mundir.
Líftæknifyrirtækin á Nasdaq
hlutabréfamarkaðnum í Bandaríkj-
unum eru á fleygiferð. Human Gen-
ome hækkaði um 16,23% í gær, Mil-
lenium hækkaði um 10,44%, Incyte
um 5,44% og Affymetrix, samstarfs-
aðili DeCODE hér á landi, hækkaði
um 4,57% í fyrradag. Skýringanna á
hækkunum líftæknifyrirtækjanna
má að mati sérfræðinga rekja til
stöðugt betri vöruþróunar og betri
hagnaðarhorfa fýrirtækjanna. Við-
skiptavefurinn á Vísi.is greindi frá.
Eftirspurn eftir DeCODE
Hér á landi virðist vera stóraukin
eftirspurn eftir bréfum DeCODE
Genetics um þessar mundir og
gengi bréfanna hefur tekið kipp að
undanfómu eins og fram kemur í
Viðskiptablaðinu í dag. Það sem
hins vegar helst virðist há viðskipt-
um á markaðnum um þessar mund-
ir er afar takmarkað framboð á
bréfum í félaginu sem hefur haft
þær afleiðingar að gengiö hefur
stigið jafnt og þétt.
Svo virðist sem kaupþrýstingur
sé ekki aðeins vegna fyrirhugaðrar
skráningar félagsins á hlutabréfa-
markað heldur skýrist hann einnig
tæki, ámóta samningi þeim sem
gerður var við Hoffmann-La Roche
á sínum tíma. í júní síðastliðnum
var greint frá samningaumleitun-
um þessara aðila í Viðskiptablað-
greiningar, sagði þá að ekki væri
hægt að greina frá stöðu viðræðna
við einstaka aðila að svo komnu en
frétta væri að vænta af nýjum
samningum á þessu ári. -bmg
ÍM-Gallup:
Kaupir meirihluta í
íslenskar markaðsrann-
sóknir-Gallup á íslandi hef-
ur keypt meirihluta í ráð-
gjafarfyrirtækinu Ráðgarði
hf. Bæði fyrirtækin hafa
verið í örum vexti undan-
farin ár og rekin með hagn-
aði, segir í tilkynningu frá
þeim. Að sögn Skúla Gunn-
steinssonar mun ekki
verða mikil breyting á
rekstri fyrirtækjanna til að
byrja með. „Fyrirtækin tvö
hafa sérhæft sig hvort á
sínu sviði og verið leiðandi
á markaðinum. Við munum
þvi halda áfram á þeirri braut og
styrkja ráðgjafarstarfsemina hjá
Ráðgarði enn frekar. Það er trú okk-
ar sem að þessu samstarfi stöndum
að þetta muni styrkja bæði fyrir-
tækin og gera þau saman að
öflugri einingu. Það liggur
þegar ljóst fyrir að bæði fyr-
irtækin munu bæta við sig
starfsfólki vegna þessa nýja
samstarfs og mikilla verk-
efna,“ segir Skúli.
Ólíkar áherslur
Fyrirtækin starfa á svip-
uðum vettvangi en með
ólíkum áherslum. ÍM-Gallup
hefur sérhæft sig í skoðana-
könnunum, markaðsrann-
sóknum, þjónustukönnun-
um, starfsmannaráðgjöf og
ráðningum. Ráðgarður hefrn- starf-
að á sviöi rekstrarráðgjafar á ís-
landi i hátt á annan áratug. Fyrir-
tækið hefur sérhæft sig í umhverfis-
stjómun, gæðastjómun, þjónustu-
Skúli Gunn-
steinsson,
framkvæmda-
stjóri ÍM-Gallup.
Ráðgarði
og starfsmannastjórnun, stefnu-
markandi áætlanagerð, endurskipu-
lagningu fyrirtækja og launakerfa.
Einnig hefur Ráðgaður rekið ráðn-
ingarþjónustu í Reykjavík og á Ak-
ureyri. Að sögn Kristjáns Kristjáns-
sonar, framkvæmdastjóra Ráögarðs,
gefst kærkomið tækifæri með þessu
samstarfi til að efla enn frekar þjón-
ustu fyrirtækisins við viðskiptavin-
ina.
Gert er ráð fyrir að velta hins
sameinaða fyrirtækis verði um 400
milfjónir á þessu ári. Fulltrúi ÍM-
Gallup mun setjast í stjórn Ráð-
garðs en framkvæmdastjórn fyrir-
tækjanna verður óbreytt, þannig að
Skúli Gunnsteinsson verður áfram
framkvæmdastjóri ÍM-Gallup og
Kristján Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Ráðgarðs. -bmg
íslenska vindorkufélagið
hf. stofnað
Nýtt hlutafélag í eigu tveggja
orkuveitna á Suðurlandi verður
stofnað í dag en tilgangur þess er
að nýta vindorku til orkufram-
leiðslu. Það eru Bæjarveitur Vest-
mannaeyja og Selfossveitur sem
standa að félaginu en heiti þess er
íslenska vindorkufélagið. Tilgang-
ur þess er: að nýta vindorku til
orkuframleiðslu, að eiga og reka
vindorkustöðvar, að afla orku fyr-
ir viðskiptavini sína og stuðla að
góðri nýtingu hennar, að gera
samninga um kaup og sölu á
orku.
Vaxtahækkun í Englandi
Englandsbanki ákvað í gær að
hækka stýrivexti sína um 25
punkta, í
5,25%. Þessi
hækkun var
þvert á spár
sérfræðinga
sem -spáðu
þvi að vextir yrðu óbreyttir. For-
svarsmenn bankans sögðu að
hækkunin nú væri til að tryggja
það að verðbólgumarkmið næðust
og slá á verðbólguþrýsting þar í
landi. Markmið Englandsbanka er
að halda verðbólgu undir 2,5%
Aukinn heimshagvöxtur
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
hefur hækkað spá sína fyrir
heimshagvöxtinn á þessu ári og
því næsta. Ástæðan fyrir því er að
bandaríska hagkerfíö er sterkara
en sjóðurinn reiknaði með, auk
þess sem mörg vanþróaðri hag-
kerfí hafa náð sér betur á strik en
gert var ráð fyrir. Sjóðurinn sagði
að hann teldi að Bandaríkin ættu
að hækka vexti en það væri með
langtímamarkmið í huga.
124.000 störf urðu til
Bandaríkjunum
Vinnumálaráðuneyti Banda-
ríkjanna reiknar með að alls hafi
124.000 ný störf orðið til í banda-
ríska hagkerfinu í ágúst. Þessi
aukning er talin styrkja atvinnu-
ástand í Bandaríkjunum enn frek-
ar en þar er nú minnsta atvinnu-
leysi sem mælst hefur í 29 ár.
Heineken eykur hagnað
Heineken, næststærsti bjór-
framleiðandi í heimi, jók hagnað
sinn um 10,5% frá fyrra ári. Heild-
artekjur félagsins voru 16,3 millj-
arðar íslenskra króna samanborið
við 14,8 í fyrra. Hins vegar var því
spáð heimsbyggð-
in myndi drekka
meiri Heineken
en raun varð því
gert var ráð fyr-
ir að hagnaður
myndi aukast
um 12,5%.
Sterkur efna-
hagur í Banda-
rikjunum hef-
ur aukið drykkju
á Heineken þar f landi en um
fimmtungur af ffamieiðslu Hein-
eken fer þangað. Evrópumarkað-
ur olli hins vegar vonbrigöum og
voru menn þar ekki eins ginn-
keyptir fyrir Heineken. Félagið
gerir ráð fyrir að á árinu 2000
verði drukkið meira og hagnaður
aukist um meira en 10%.
Stærsta fjölmiðlafyrirtækið
Tvö af stærstu fjölmiðlafyrir-
tækjum heims sameinuðust í vik-
unni þegar CBS og Viacom urðu
að einu fyrirtæki. Þetta munu
vera stærstu fjölmiðlaviðskipti
ffá upphafi. Talið er að sameinað
fyrirtæki muni bera höfuð og
herðar yfir önnur fjölmiðlafyrir-
tæki í heiminum. Samingurinn er
aö verðmæti 36 milljarðar Banda-
ríkjadala og talið er aö markaös-
verð nýs fyrirtækis verði um 5.800
milljarðar íslenskra króna. -bmg