Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Side 11
-O'V FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
Tónskáld fólksins
Án efa er leitun að þeim íslendingi sem
ekki þekkir eitthvað til sönglaga Sigfúsar
Halldórssonar og hefur sungið þau með sinu
nefi upphátt eða hummað þau innra með sér
með tilheyrandi hoppum milli áttunda og
öðrum tilþrifum. Það var því vel við hæfi að
fyrstu Tibrár-tónleikamir í Salnum á þessu
starfsári væru að mestu helgaðir lögum hins
ástsæla Kópavogsbúa, auk þess sem tónleik-
ana bar upp á afmælisdag tónskáldsins, 7.
september.
Tónleikamir vora haldnir undir hinni
kunnuglegu yfirskrift Við slaghörpuna sem
maður tengir náttúrlega beint við Jónas Ingi-
mundarson. Jónas var lika mættur að slag-
hörpunni með bláu bókina hans Sigfúsar, sem
er til á svo mörgum heimilum, ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu og Bergþóri
Pálssyni baríton. Á efnisskrá tónleikanna var
að finna flestar helstu perlur Sigfúsar sem þau
Sigrún og Bergþór skiptu bróðurlega með sér
eða sungu saman. Litla flugan, Vorsól, Söknuð-
ur, Austurstræti, Islenskt ástarljóð, Lítill fugl,
Játning og mörg fleiri lög fengu betri meðferð
en maður er vanur að heyra i blæbrigðarikri
og eðlilegri túlkun þeirra Sigrúnar og Berg-
þórs og smekklegum leik Jónasar sem greini-
lega hefur farið nokkrum sinnum áður í gegn-
um bókina.
Það sem þó stóð upp úr var flutningur Sig-
rúnar á Ég vild’að ung ég væri rós sem var
hreint afbragð, og ekki var laust við að maður
fengi kökk í hálsinn undir hinu látlausa og fal-
lega vögguljóði sem einnig var í flutningi Sig-
rúnar. Hálfgleymda serenaðan sem heyrist
ekki oft var líka einkar vel flutt. Flutningur
Bergþórs á laginu Við Vatnsmýrina við texta
Tómasar Guðmundssonar var litríkur og með
þeim betri sem heyrst hefur og kraftmikil túlk-
un hans á laginu í dag er ég ríkur var líka
ógleymanleg þar sem hann hreint og beint
holdgerði texta Sigurðar Sigurðssonar frá Arn-
arholti.
Efnisskráin eftir hlé var skemmtilega saman
sett söngleikjaprógram sem hófst á tveimur at-
riðum úr Óperadraug Andrews Lloyd-Webbers,
Dúettinum Nú má nóttin víkja sem var innilega
fluttur og sem áður laus við aila tilgerð. Bergþór
söng svo Music of the night og gerði það frábær-
lega og ekki skemmdi fyrir skemmtileg lýsing
sem gerði það að verkum að manni fannst mað-
ur vera kominn inn í miðja sýningu á söngleikn-
9; f
w
* :
Þrístirnið Jónas Ingimundarson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson
heillaði áheyrendur upp úr rauðu sætunum í Salnum með lögum Sigfúsar
Halldórssonar.
Tónlist
Amdís Bjöik Ásgeirsdóttir
um sjáifum.
Suðurríkja-
stemningin var
svo allsráðandi
í Can’t help
lovin’dat man
of mine úr
Showboat Jer-
ome Kems sem
Sigrún söng
ákaflega vel og
Ol’man river
sem Bergþór
söng óborgan-
lega. Sigrún fór
létt með að rúlla
upp glansstykki
Bernsteins
Glitter and be
gay úr Candide
en snerpan
hefði mátt vera
meiri í píanó-
inu og skyggði
það örlítið á.
Bergþór fór svo
á algerum kost-
um i It ain’t
necessarily so
úr Porgy og
Bess eftir
Gershwin þar
sem nostrað
hafði verið við
öll smáatriði
bæði í leik og
söng. Summ-
ertime úr sama
söngleik var
líka fallega
sungið af Sig-
rúnu og sömu
sögu er að segja
um dúettinn
Bess you is my
woman now.
Tónleikarnir verða endurteknir í kvöld og
annað kvöld vegna gífurlegrar aðsóknar, og
það er óhætt að segja væntanlegum áheyrend-
um að þeir eigi góða skemmtun í vændum. Tí-
brá fer vel af stað og vonandi gefa þessir tón-
leikar tóninn fyrir það sem á eftir kemur.
DV-mynd ÞOK
Gyðinglegar
uppsprettur
JAM (Jewish Alt-
ernative Movement) er
ein þeirra hreyfinga sem
gefur út plötur undir
merki Knitting Factory
Records í New York.
Tónlist hreyfingarinnar
er grundvölluð á gyð-
ingahefðum af mismun-
andi toga og er fram-
reidd á ýmsan nýstárleg-
an hátt. Tónlist þessi er
oft lík tónlist frá
Balkanskaganum, en er
þó yfirleitt einfaldari í
takttegundum og hryn.
JAM hefur verið við
lýði siðan í april 1998 og
hafa margir af framsæknari
djassmúsiköntum New York-
borgar sýnt hreyfingunni áhuga
eða tekið þátt í henni. Sérstak-
lega hafa gyðingar tekið því opn-
um örmum að geta byggt tónlist
á hefðum sem eru þeim blóð-
skyldar, ef svo má segja.
Vert er að minnast á tvær ný-
legar plötur frá JAM. Saxófón-
og klarínettuleikarinn Matt
Darriau hefur gefið út plötuna
„Source" ásamt
fjögurra manna
„Paradox Trio“.
Með honum
leika Rufus
Cappadocia á
fimm strengja
selló, Seido Salifoski á ýmiss
konar slagverk og „íslandsvinur-
inn“ Brad Shepik, sem hingað
kom með Skúla Sverrissyni og
Pachora, leikur á gítara og fleiri
strengjahljóðfæri. Sjálfir segja
þeir að platan kanni sameigin-
lega undirstöðu Balkantónlistar
og klezmer, sem er einn angi
þessarar gyðinglegu hefðar. Auð-
melt tónlist, flutt af snjöllum
mönnum, og þótt mér falli betur
Balkantónlist Pachora, þá er
þetta þess virði að gefa því
gaum.
Hin platan nefnist „Keter“ og
er píanistinn Uri Caine ábyrgur
fyrir henni ásamt hljómsveit
hans, Zohar. Auk höfuðpaursins
eru það söngvarinn Aaron
Bensoussan,
„plötuspilarinn"
DJ Olive, bassist-
inn Emmanuel
Mann, gítaristinn
Adam Rogers,
klarínettuleikar-
inn Lefteris Boumias og slag-
verksleikarinn Gilad sem mynda
þessa hálfrafmögnuðu hljóm-
sveit. Gyðingatónlistin er hér
smituð af „Drum and bass“, og
söngurinn er í stóra hlutverki,
og úr verður athyglisverð
blanda.
Hljómplötur
Ársæll Másson
Guðríður til Hafnar
Á sunnudaginn kemur, 12.
september, verður leikrit Stein-
unnar Jóhannesdóttur, Heimur
Guðríðar - Síðasta heimsókn
Guðríðar Símonardóttur í kirkju
Hallgríms - sýnt í Hellig Kors
Kirke í Kaupmannahöfn. Kirkj-
an stendur við Kapelvej 38, rétt
við hornið á Assistens-kirkju-
garði á Norrebro. Sýningin er í
boði íslendingafélagsins í Kaup-
mannahöfn og Dansk-islandsk
samfund og hefst kl. 19.30.
Heimur Guðríðar var frum-
sýndur á Kirkjulistahátíð i
Reykjavík í júní 1995 og hefur
síðan verið sýndur í kirkjum um
land allt og í
London.
Var kominn tími á að fara til
Hafnar með stykkið því þar
kynntust þau einmitt, Guðríður
og Hallgrimur Pétursson, þegar
hún var á.leið heim úr ánauð í
Norður-Afríku og Hallgrímur
var fenginn til þess sem ungur
guðfræðistúdent að kenna henni
og fleiri fómarlömbum Tyrkja-
ránsins kristin fræði eftir dvöl-
ina í Barbaríinu. Sambúð þeirra
hófst í trássi við lög og rétt en
stóð til æviloka og hefur löngum
vakið forvitni og jafnvel
hneykslun þjóðarinnar.
Margir Danir þekkja til Hall-
gríms Péturssonar þvi sálmar
eftir hann eru í dönsku sálma-
bókinni. Einnig komu Passíu-
sálmarnir út í nýrri rómaðri
þýðingu séra Bjöms Sigur-
bjömssonar fyrir fáum árum.
Björn þýddi einnig Heim Guðríð-
ar á dönsku og er leikritið kom-
ið út hjá Skálholtsútgáfunni
bæði á dönsku og íslensku.
Margrét Guðmundsdóttir og
Helga E. Jónsdóttir leika Guð-
ríði á ólíkum æviskeiðum en
Þröstur Leó Gunnarsson er í
hlutverki Hallgríms. Tón-
list er eftir Hörð Áskels-
son, búninga gerir Elín
Edda Árnadóttir og höf-
undur leikstýrir verk-
inu.
‘ ★ ★
íenmng
íi
Aukaverðlaun til kvenna
Eins og menn muna ef til vill lýsti þjóð-
leikhússtjóri eftir höfundum fjögurra leikrita
í viðbót við þau sem unnið höfðu verðlaun í
leikritasamkeppninni vegna 50 ára afmælis
leikhússins. Samkvæmt reglum má ekki
opna umslögin með dulnefmmum nema hjá
þeim sem vinna til verðlauna og þess vegna
óskaði Stefán Baldursson eftir því að höfund-
ar fjögurra verka, sem hann nafngreindi,
gæfu sig fram við hann,
leikhúsið hefði áhuga á
þeim.
Það vom fjórir karlmenn
sem áttu sjálf verðlauna-
verkin - Ragnar Arnalds,
Benóný Ægisson, Þórarinn
Eyfjörð og Andri Snær
Magnason - og því er nokk-
ur huggun harmi gegn fyrir
kvenþjóðina að þrjár konur
voru meðal þeirra sem áttu
þessi „aukaverk". Eitt þessara „eftirlýstu"
verka, Dísa, er eftir Jónínu Leósdóttur og
annað, Fimm á Fagurey, eftir systurnar Ið-
unni og Kristínu Steinsdætur. Karlmenn
eiga þau tvö sem þá era eftir: Alzheimer in
love er verk Hallgríms Helgasonar og Seggur
að kveldi eftir Bjöm Th. Bjömsson.
Aðrir sem sendu verk i samkeppnina eru
beðnir að vitja verka sinna á skrifstofu Þjóð-
leikhússins, Lindargötu 7.
Erótísk
kokkabók
Talandi um konur I
þá em væntanlegar í I
haust frá Máli og 1
menningu tvær'
„kvennabækur" sem'
beðið er eftir. Ör.nur er1
Afródíta eftir Isabel'
Allende, tveggja ára gömul'
bók um matargerðarlist og ást. Eiginlega er
þetta erótísk kokkabók, skreytt málverkum
og sögulegum myndum, en þar em líka
margar sögur um ættingja Isabel og fleira
fólk. Þýðandinn er Tómas R. Einarsson.
Hin bókin er Áður en þú sofnar eftir Linn
Ullmann, sem spáð er að verði næsta alþjóð-
lega bókmenntastjarna Norðurlanda. Hún er
þekkt menningarblaðakona á Norðurlöndum
og fæddist með þær silfurskeiðar í munni að
vera dóttir leikkonunnar Liv Ullmann og
sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmars
Bergman. Skáldsagan hennar fékk geysimik-
ið umtal þegar hún kom út í Skandinavíu en
þótti líka virkilega góö á eigin forsendum.
Af Isabel er það einnig að frétta að út er
komin á spænsku ný skáldsaga eftir hana
sem hefur fengið prýðilegar viðtökur. Hún
kemur á íslensku að ári.
íslensk bókaskrá
Grúskurum er bent á að íslensk bókaskrá
ársins 1998 er komin út á vegum Landsbóka-
safns Íslands-Háskóla-
bókasafns. Alls reyndust
hafa komið út á því ári
1796 rit, 200 fleiri en árið
áður. í ritinu er líka skrá
yfir ný blöð og tímarit sem
hófu göngu sína 1998 og
skrá um landakort og
myndbönd.
Bókaskránni fylgir í
sérstöku hefti íslensk
hljóðritaskrá þar sem
skráð er nákvæmlega allt
efni sem gefið var út á hljómplötum, geisla-
diskum og snældum. Efni beggja þessara rita
er í tölvukerfinu Gegni, en ritin fást sjálf í af-
greiðslu safnsins í Þjóðarbókhlöðu og helstu
bókabúðum.
ÍHandverk & Hönnun fær fé
Ákveðið hefur verið að þeirri starfsemi
sem rekin hefur verið undir nafhinu Hand-
verk & Hönnun verði haldið áfram með fjár-
hagslegum stuðningi frá forsætisráðuneyti,
félagsmálaráðimeyti og Framleiðnisjóði land-
búnaðarins til fjögurra ára, þ.e. 1999-2002. Þá
fer fram endurmat á verkefninu.
Markmið starfseminnar er að efla hand-
verk, bæta menntun og þekkingu handverks-
fólks og stuðla að aukinni gæðavitund í
greininni. Sunneva Hafsteinsdóttir hefur
| verið ráðin framkvæmdastjóri og er skrif-
stofan á Amtmannsstíg 1 í Reykjavík.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
mmmmmmmmmwmmm
ÍSUENSK BÓKASKKÁ
Hu■t.rhmJ* h-tömá!KMUvjfin
199H
1f