Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Side 19
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999 4. 27 « Látlaust fjör í hjónaklúbbum Samkvæmisdansar sjást varla lengur á öldurhúsum borgarinnar. Þess í stað hefur fólk stofnað til félaga þar sem dansinn er í hávegum hafður og efnt er til alvörudansleikja reglulega. Til- veran kynnti sér hefðir og siði í þremur slíkum klúbbum. Oflugur hjónaklúbbur á Selfossi: Sigrún og Sigurður Jörgensson stofnuðu klúbb fyrir fólk sem hefur gaman af því að dansa og kýs að skemmta sér án áfengis. DV-mynd Teitur Stemningin alltaf rífandi Sa m k o m u r hjónaklúbbs- ins hafa verið fastur liður í lífi okkar hjóna í tuttugu ár. Við hlökkum ávallt til næstu skemmtunar enda bregst það ekki að stemningin er alltaf rífandi," segir Elínborg Gunnarsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Guðmund- ur Kr. Ingvarsson, hafa verið í Hjóna- klúbbi Selfoss í rúm tuttugu ár. Það sem dró Elín- björgu og Guðmund að klúbhnum upp- haflega var nám- skeið í gömlu döns- unum. „Það voru iðulega haldin dans- námskeið á árum áður en núorðið er starfsemi klúbbsins einkum fólgin í fjórum dansiböllum á ári. Dansinn skipar stóran sess í klúbbnum og virðist smita út frá sér þannig að margir fé- lagar, sem kunnu kannski ekki mik- Hjónin Elínborg Gunnarsdóttir og Guðmundur Kr. Ingvarsson hófu áð læra gömlu dansana fyrir tuttugu árum og hafa mætt á dansleiki Hjóna- klúbbs Selfoss allar götur síðan. ið fyrir sér í fyrstu, hafa drifið sig á dansnámskeið. Annars er aðcilmálið auðvitað að hafa gaman af dansin- um,“ segir Elínborg. í hjónaklúbbnum eru ríflega 180 hjón og pör, öO búsett á Selfossi, og hefur sú tala haldist um árabil. Elínborg segir að ævinlega sé mest eftirvænting þeg- ar árshátíðin er fram undan. „í fyrra var til dæm- is svo mikið fjör að hljómsveitin var farin að halda að hún myndi aldrei losna. Þá er alltaf mikið fjör á vorballinu sem er flöskuball upp á gamla mát- ann. Þá kemur hver með sína flösku og síðan er dansað fram eftir nóttu. Þetta er frábær félags- skapur og þrátt fyrir mikinn Qölda félaga þekkja allir alla. Við hjónin vildum svo sannarlega ekki hafa misst af hjóna- klúhbnum," segir El- ínborg Gunnars- dóttir. -aþ Sigrún Gissurardóttir stofnaði Laufið fyrir 25 árum: Dansinn er mannbætandi DV-mynd KB Hjónaklúbburinn Kátt fólk er hálfrar aldar gamall: Dansað án þrengsla og ónæðis Bakkus Dans er ákaflega mannbætandi og kemur manni undantekn- ingalaust í gott skap. Við höf- um alla tíð dansað mikið en ástæða þess að við stofnuðum hjónaklúbbinn Laufið á sínum tíma var sú að dansgólfin á skemmtistöð- unum voru svo lítil að það var varla pláss til að fá sér snúning. Svo erum við bindindisfólk og okkur langaði að halda dansleiki þar sem fólk gæti komið saman, dans- að og skemmt sér án áfeng- is. Raunin er nefni- lega sú að þ e i r s e m nj óta þess að dansa þ u r f a síður a ð Að skemmta sér án vins er stór- kostlegt og það hefur okkur hjómmmn alltaf fúndist hest við félagsskapinn Kátt fólk. Það eru rúm tuttugu ár síðan viö gengum í klúbbinn og við látum okk- ur aldrei vanta á samkomur. Þetta er svo óskaplega skemmtilegt," segir Guðmundur Kr. Erlendsson, ráð- herrabílstjóri og félagi í Kátu fólki til margra ára. í Kátu fólki eru um 80 pör og fyrr á árinu var hálfrar aldar afmæli félags- skaparins fagnað. „Þetta hófst allt með því að þeir Axel og Jón Helga- synir ákváðu í upphafi árs 1949 að hóa saman nokkrum pörum sem hefðu ánægju af því að dansa og slá síðan upp dansleik til reynslu. Nokkrum vikum síðar var dansleik- urinn haldinn og síðan má segja að félagsskapurinn hafi vaxið og dafnað en jafnan hefur verið miðað við að hafa pörin ekki mikið fleiri en hund- rað hverju sinni,“ segir Guðmundur. Strangar reglur voru settar í upp- hafi, til dæmis skyldu ekki aðrar veit- ingar á böllum en kafíi, gosdrykkir og kökur. Þá eiga dömumar að vera í skósíðum kjólum og herrarnir í smóking, kjólfotum eða dökkum jakkafótum. „Þessar reglur eru enn við lýði hjá okkur þótt ekki sé lengur gerð sú krafa að félagsmenn séu templarar. Hins vegar er bindindi viðhaft á samkomum og eins i upp- hafi er markmiðið að gefa fólki kost á að dansa án þrengsla og ónæðis af völdum Bakkusar.“ Stundvísi er dyggð sem Kátt fólk tileinkar sér því hver sá sem kemur of seint á skemmtifund er látinn troða upp, syngja lag eða dansa sóló. „Þetta er græskulaust gaman hjá okk- ur en oft verða úr þessu hin bestu skemmtiatriði," segir Guðmundur. Áhugi á dansi fer vaxandi, á því segir Guðmundur engan vafa leika. „Mér þætti gaman að sjá ungt fólk stofha til félagsskapar sem þessa. Það eru allt of margir sem átta sig ekki á því að það er hægt að skemmta sér án ú - drekka og það er af hinu góða,“ seg- ir Sigrún Gissurardóttir sem stofn- aði hjónaklúbbinn Laufið fyrir ald- arfjórðungi. Það er margt líkt með Kátu fólki og Laufinu og dansinn sá drifkraft- ur sem heldur fólki saman í báðum félögum. „I upphafi var krafist sam- kvæmisklæðnaðar á böllum Laufs- ins en með árunum hefur verið slakað örlítið á þeim kröfum. Sam- komurnar eru hins vegar áfengis- lausar og engin hætta á að það breytist nokkru sinni. Við höldum aö jafnaði fjögur böll á ári og þau eru afskaplega vel sótt. Við höfum meira að segja haft félagsmenn bú- setta úti á landi sem láta sig aldrei vanta,“ segir Sigrún. Undanfarin ár hefur Sigrún þurft að draga sig í hlé frá dansinum vegna veikinda en hún segist alltaf fylgjast vel með starfsemi klúbbs- ins. „Mér þykir vænt um Laufið og klúbburinn hefur gefið okkur hjón- unum mikið í gegnum árin,“ segir Sigrún Gissurardóttir í Laufinu. -aþ áfengis og skemmta sér vel, „ segir Guðmund- ur Kr. Er- lendsson, félags- maður í K á t u fólki. -aþ Hjónin Guðmund- ur Kr. Erlends- son og Sigur- stelna Margrét Jónsdóttir hafa átt margar góö- ar stundirnar á skemmtifund- um hjá Kátu fólkl. DV-mynd Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.