Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Síða 26
34
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
Fólk í fréttum
Óskar Bjartmarz
Óskar Bjartmars, formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur, Nónhæð 6,
Garðabæ, hefur verið í fréttum að
undanfomu vegna launamála lög-
reglumanna í Reykjavík.
Starfsferill
Óskar fæddist í Reykjavík 14.3.
1956 og ólst þar upp. Þá var hann í
sveit á sumrin, lengst af á Hvanná í
Jökuldal. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Hlíðardalsskóla, stundaði nám
við Lýðháskólann í Skálholti einn
vetur, lauk fyrri önn Lögregluskól-
ans í árslok 1975 og seinni önn við
skólann vorið 1977. Þá hefur hann
sótt ýmis námskeið á vegum Lög-
regluskólans.
Óskar stundaði sjómennsku um
skeið að námi loknu og var þá á ol-
íuskipi og varðskipi, auk þess sem
hann var á bát frá Keflavík. Þá var
hann við útkeyrslu hjá heildsölu í
Reykjavík og stundaði byggingar-
vinnu.
Óskar hóf störf við lögregluna í
Reykjavík vorið 1975 og starfaði þar
til 1986. Hann starfaði siðan í hálft
ár v:ð Landbúnaðarháskólann í
Kaupmannahöfn en hóf aftur störf
við lögregluna í Reykjavik 1987 og
starfaði þá í almennri deild og slysa-
rannsóknardeild um tíma. Þá var
hann í afleysingarstarfí hjá RLR
sumarið 1982 og hjá lögreglunni á
Egilsstöðum í nokkra mánuði 1995.
Óskar sat í stjóm íþróttafélags
lögreglunnar í Reykjavík 1979-86 og
var formaður félagsins 1981-84, sat
aftur í stjóm þess 1987-93, var for-
maður 1987-89, 1991-92, og frá 1997,
í stjóm Iþróttasambands lögreglu-
manna frá stofnun 1982-86 og for-
maður 1983-86 og frá 1987, í stjóm
norræna lögregluí-
þróttasambandsins,
NPIF, frá 1983 og for-
maður þess 1989-91 og
frá 1999, í stjóm evr-
ópska lögregluíþrótta-
sambandsins, USPE, frá
1996, hefur setið í stjóm
Lögreglufélags Reykja-
víkur frá 1990, var vara-
formaður þess 1992-94
og er formaður þess frá
1994, situr í stjóm Land-
ssambands lögreglu-
manna frá 1990, í fram-
kvæmdastjóm þess frá
1994, í valnefnd Lögregluskólans frá
1994, hefur setið i samninganefnd og
orlofsnefnd Landssambands lög-
reglumanna og sinnt fleiri trúnaðar-
störfum fyrir sambandið.
Óskar sat i stjóm Handknattleiks-
ráðs Reykjavíkur 1987-92 og var for-
maður þess 1987-88, í stjóm hand-
knattleiksdeildar Víkings um skeið
1984, var einn af stofnendum
íþróttafélagsins Leiftra 1983 og er
formaður þess frá 1984.
Óskar hefur var sæmdur merki
Handknattleiksráðs Reykjavíkur á
gylltum granni 1992, bronsmerki
íþróttasambands lögreglumanna
1992 og silfurmerki sambandsins
1996 og bronsmerki Landssambands
lögreglumanna 1998.
Fjölskylda
Fyrri kona Óskars var Kristín Ingi-
björg Gunnarsdóttir, f. 9.1. 1957,
hjúkrunarfræðingur. Hún er dóttir
Gunnars Sigurbjöms Bjömssonar, f.
4.9.1932, húsasmíðameistara og bygg-
ingaeftirlitsmanns í Reykjavík, og
k.h., Brynhildar Jónsdóttiu, f. 12.9.
1932, húsmóður. Óskar
og Kristín Ingibjörg
skildu.
Böm Óskars og Kristín-
ar Ingibjargar eru Bjöm
Rúnar, f. 19.11. 1977,
nemi; Brynhildur Ásja, f.
23.12. 1980, nemi.
Seinni kona Óskars er
Svava Schiöth, f. 19.11.
1957, flugfreyja. Hún er
dóttir Karls Friðriks
Schiöth, f. 13.7. 1932,
fyrrv. flugstjóra og skrif-
stofumanns, og k.h.,
Unnar Hjaltadóttur
Schiöth, f. 14.9. 1935, húsmóður.
Sonur Óskars og Svövu er Ottó Ax-
el, f. 7.11. 1996.
Systkini Óskars eru Jónina Bjart-
marz, f. 23.12. 1952, lögfræðingur í
Reykjavik; Jón Bjartmarz, f. 27.8.
1957, yfirlögregluþjónn hjá ríkislög-
regluembættinu, búsettur í Reykja-
vík; Björn Bjartmarz, f. 23.4.1962, lög-
reglunemi, búsettur i Reykjavík.
Foreldrar Óskars eru Bjöm Stefán
Bjartmarz, f. 17.5.1930, loftskeytamað-
ur og skrifstofumaður í Reykjavík, og
k.h., Helga Elsa Jónsdóttir, f. 16.8.
1931, skrifstofumaður.
Ætt
Bjöm er sonur Óskars Bjartmarz,
forstöðumanns Löggildingarstofunn-
ar í Reykjavik, bróður Guðlaugar,
móður Ingólfs Jónssonar, rithöfundar
og kennara, foður Ómars, fram-
kvæmdastjóra hjá SKÝRR. Óskar var
sonur Bjartmars, b. á Neðri-Brunná í
Dölum Kristjánssonar, og Ingibjargar
Guðmundsdóttur.
Móðir Bjöms var Guðrún Bjart-
marz Bjamarson, dóttir Bjöms Bjam-
arsonar, sýslumanns á Sauðafelli í
Dölum, alþm., stofnanda danska
blaðsins Hjemmet og Listasafns ís-
lands, sonar Stefáns, sýslumanns og
bæjarstjóra á ísafirði Bjömssonar.
Móðir Bjöms sýslumanns var Karen
Emilie Bjarnarson, f. Jorgensen, óð-
alsb. og gósseiganda í Kaupmanna-
höfn. Móðir Guðrúnar var Guðný,
systir Klemensar Jónssonar, landrit-
ara og ráherra, afa Agnars Klemens-
sonar sagnfræðings, og bankastjór-
anna fyrrv., Björns og Þórhalls
Tryggvasona. Guðný var dóttir Jóns
Borgfirðings, bóksala, lögregluþjóns
og fræðimanns.
Helga er systir Jóhannesar Helga
rithöfundar. Helga er dóttir Jóns, loft-
skeytamanns í Reykjavík Matthias-
sonar, alþm. og kaupmanns, bróður
Jóhannesar alþm. Matthías var sonur
Ólafs, útgerðarmanns í Haukadal í
Dýrafirði, Jónssonar og Ingibjargar
Jónsdóttur.
Móðir Jóns lofskeytamanns var
Marsibil Ólafsdóttir, frá Rauðstöðum
í Arnarfirði, Péturssonar og Þórdísar
Ólafsdóttur.
Móðir Helgu var Jónína, systir Þór-
dísar, ömmu Jóns Hjaltalíns 'verk-
fræðings. Bróðir Jónínu var Þor-
bjöm, kaupmaður í Borg. Jónína var
dóttir Jóhannesar, trésmiðs hjá
Kveldúlfi í Reykjavík Jónssonar, b. á
Áshóli Jónssonar, b. í Deildartungu
Jónssonar, ættfóður Deildartunguætt-
ar Þorvaldssonar. Móðir Jóhannesar
var Kristín Jónasdóttir, söðlasmiðs í
Steinsholti, Benediktssonar. Móðir
Jónasar var Ingibjörg Björnsdóttir,
ættföður Bólstaðarhlíðarættar Jóns-
sonar. Móðir Jónínu var Helga Vig-
fúsdóttir.
Óskar Bjartmarz.
Afmæli
Valgeir Geirsson
Valgeir Geirsson verkamaður,
Ásmundarstöðum II, Ásahreppi, er
fertugur í dag.
Fjölskylda
Valgeir fæddist á Selfossi en ólst
upp á Stokkseyri. Eiginkona hans
er íris Guðmundsdóttir, f. 20.1.1969,
húsmóðir. Hún er dóttir Guðmund-
ar Einarssonar og Auðar Óskars-
dóttur.
Böm Valgeirs og írisar era Axel
Geir Valgeirsson, f. 22.10. 1982;
Ágúst Valgeirsson, f. 5.2. 1988; Geir
Valgeirsson, f. 1.10. 1992,
Systkini Valgeirs era Karl Óskar
Geirsson, f. 28.11. 1955, stýrimaður;
Gunnar Þór Geirsson, f. 20.7. 1961,
verkamaður; Júlíus Geir Geirsson,
f. 18.8. 1964, verkstjóri; Guðríður
Ester Geirsdóttir, f. 10.10. 1975, hús-
móðir; Bergur Geirsson, f. 1.8. 1982,
verkamaður.
Foreldrar Valgeirs era Geir Val-
geirsson, f. 4.12. 1935, járnsmiður á
Stokkseyri, og Auður Gunnarsdótt-
ir, f. 20.7. 1941, húsmóðir.
Rósar V. Eggertsson
Rósar Vigfús Eggertsson tann-
læknir, Hvassaleiti 13, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Rósar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1950, prófi i tannlækningum
frá HÍ 1955, öðlaðist tannlækninga-
leyfi sama ár og stundaði fram-
haldsnám við Tannlæknaháskólann
í Malmö í Sviþjóð 1962-63.
Rósar var aðstoðartannlæknir hjá
Halli L. Hallssyni í Reykjavík
1955-57 og hefur starfrækt eigin
stofu í Reykjavík frá 1957. Þá var
hann kennari í tanngervafræði við
tannlæknadeild HÍ 1965-78.
Rósar sat í stjóm Tannlæknafé-
lags íslands 1958-62, var varafor-
maður þess 1965-67 og aftur í stjóm
1970-72, var gjaldkeri í stjóm Líf-
eyrissjóðs tannlækna frá stofnun
1959 og hefur setið í fiölda nefnda
TFÍ, s.s. í taxtanefnd 1959-70, var
bókavörður félagsins 1962-65, sat í
fræðslunefnd 1963-65, í stjóm ís-
landsdeildar Skandinavíska tann-
læknafélagsins 1965-78, í kúrsus-
nefnd TFÍ 1965-66, í gerðadómi fé-
lagsins 1966-76, í sáttanefhd 1982-95
og fulltrúi TFÍ hjá Samtökum heil-
brigðisstétta 1984-92.
Fjölskylda
Rósar kvæntist
6.11.1954 Magdalenu Mar-
gréti Sigurðardóttur, f.
5.9. 1932, húsfreyju. Hún
er dóttir Sigurðar Jóns-
sonar, f. 3.8.1904, d. 25.12.
1976, afgreiðslumanns í
Reykjavík, og k.h., Huldu
Þorvaldsdóttur, f. 7.10.
1908, d. 22.2.1978, húsmóð-
ur.
Börn Rósars og Magda-
lenu Margrétar eru Sigurður Egg-
ert, f. 13.8. 1948, tannlæknir í
Reykjavík, kvæntur Hrafnhildi
Gunnlaugsdóttur myndmennta-
kennara; Gunnar Oddur, f. 15.1.
1956, líffræðingur og tannlæknir í
Reykjavík, kvæntur Ásdísi Helga-
dóttur hjúkrunarfræðingi; Hulda
Björg, f. 7.8. 1958, tannfræðingur í
Reykjavík en maður hennar er
Guðni Bergur Einarsson mat-
reiðslumaður; Ragnheiður Erla, f.
26.2. 1962, efhafræðingur í Reykja-
vík, en maður hennar er Gústaf Víf-
ilsson M.Sc. byggingaverkfræðing-
ur; Gunnlaugur Jón, f. 5.8. 1969,
tannlæknir í Reykjavík, en sambýl-
iskona hans er Guðrún Bjarnadóttir
kennari.
Alsystir Rósars var Þór-
dís Eggertsdóttir, nú lát-
in, húsmóðir í Kópavogi.
Hálfsystkin Rósars vora
Kristján Eggertsson, nú
látinn, verkamaður í
Reykjavík; Karlotta Egg-
ertsdóttir, nú látin, hús-
móðir i Kópavogi; Helgi
Sæberg Eggertsson, nú
látinn, verslunarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Rósars vora
Eggert Kristjánsson, f.
17.5. 1878, d. 1.6. 1946, söðlasmiður á
Sauðárkróki bg í Reykjavík, og
s.k.h., Oddbjörg Jónsdóttir, f. 2.8.
1895, d. 7.9. 1941, húsmóðir.
Ætt
Eggert var sonur Kristjáns Þor-
valdssonar, b. í Efra-Lýtingsstaða-
koti og í Stapa í Tungusveit í Skaga-
firði, og k.h., Sæunnar Lárusdóttur
húsfreyju.
Oddbjörg var dóttir Jóns Jónsson-
ar, sjómanns í Litlu-Brekku á
Grímsstaðaholti í Reykjavík, og
k.h., Þórdísar Hallgrimsdóttur hús-
móður.
Rósar er í Skotlandi um þessar
mundir.
Rósar Vigfús
Eggertsson.
lil hamingju með afmælið 22. apríl
90 ára
Gunnar Sigtryggsson, Skarðshlíð 18B, Akureyri. Ragnheiður Jónsdóttir, Aðalgötu 17, Keflavík.
85 ára
Kristín Pétursdóttir, Hlíðargötu 10, Akureyri.
80 ára
Árni Pétur Lund, Miðtúni, Kópaskeri. Jónas Hermannsson, Heiðarbraut 9C, Keflavík. Sigurður Guðmundsson, Hrafnistu í Reykjavík.
75 ára
Ástvaldur Kristinsson, Vallarbraut 6, Njarðvík. Guðmundur Þórarinsson, Geröavegi 2, Garði.
70 ára
Benný Sigurgeirsdóttir, Suðurgötu 67, Akranesi. Hún tekur á móti gestum að heimili sínu laugard. 11.9. frá kl. 16.00. Erla Pálsdóttir, Reyni, Mýrdalshreppi. Halldór Garðarsson, Samtúni 12, Reykjavík. Jóhannes Sigmarsson, Borgarvegi 20B, Njarðvík. Laufey G. Magnúsdóttir, Fagrabæ 8, Reykjavík. Njáll Guðmundsson, Vesturhúsum 2, Reykjavík.
60 ára
Pálmi Kristjánsson, Birkilaut við Vatnsenda, Kópavogi.
50 ára
Björk Mýrdal, Foldahrauni 42C, Vestmannaeyjum. Haukur Ásmundsson, Furugerði 7, Reykjavík. Hjalti Gunnarsson, Sléttahrauni 21, Hcifnarfirði. Hulda Valtýsdóttir, Núpskötlu II, Öxarfiarðrahr. Kjartan Erlendsson, Dalatúni 19, Sauðárkróki. Kristján Sigurðsson, Hvassaleiti 8, Reykjavík.
40 ára
Anna Sigurðardóttir, Eyrardal 1, N.-ísafiarðars. Ásdís María Jónsdóttir, Vífilsmýrum, Önundarf. Bryndís Bragadóttir, Hlíðarbraut 18, Blönduósi. Elín Sigríður Óladóttir, Eyrarholti 5, Hafnarfirði. Friðrik Bjömæs Þór, Skúlagötu 56, Reykjavík. Gísli Sigurðsson, Raftahlíð 10, Sauðárkróki. Guðrún A. Amgrímsdóttir, Garðastræti 2, Reykjavík. Haukur Ægir Jónsson, Hruna I, Skaftárhreppi. Ingunn Steina Ericsdóttir, Miðhúsum 34, Reykjavík. Jón Helgi Guðmundsson, Skagabraut 31, Akranesi. Jón Örvar Arason, Heiðarholti 2 E, Keflavík. László Hevesi, Hafnargötu 24, Siglufirði. Magnús Skúlason, Hveratúni, Biskupstungum. Óðinn Valdimarsson, Galtalind 17, Kópavogi. Ólöf G. Ásbjömsdóttir, Sæviðarsundi 15, Reykjavík. Patricia M. Laugesen, Eyrarvegi 21, Grundarfirði. Sigrún Jónsdóttir, Laufengi 66, Reykjavík. Sigurveig Runólfsdóttir, Stillholti 1, Akranesi.