Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Side 32
Vinningstölur miðvikudaginn 08.09. ’99 14 21 28 Fjcldi Vinningar vinninga vinmngsupphœ ð 164.600.160 3.183.900 77.180 Z.<at6 383 5-3 0*64 920 450 "• imin ' Heildarvinningsupphœð 169.795.980 Á íólandi 5.195.820 L< FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999 Lánasjóöur ísl. námsmanna í Qárþröng: Selur upplýsingar um námsmennina - undarlegt, segir Ólafur Örn Haraldsson alþingismaöur „Þetta bendir til þess, ef rétt reyn- ist, aö fjárþörf Lánasjóös íslenskra námsmanna sé mikil og að mönnum hafi dottið þessi leið i hug til að öngla einhverju saman,“ sagði Ólafur Öm Haraldsson alþingismaður í samtali við DV í morgun um það at- ferli Lánasjóðs íslenskra námsmanna að selja lista yflr nöfn og heimilis- íong islenskra námsmanna erlendis og umboðsmenn þeirra á íslandi. „Þetta kemur einkennilega fyrir sjón- ir. Sérstaklega er það sérkennilegt ef hægt er fá upplýsingar um umboðs- menn námsmanna og mest er ég þó undrandi yfir því að þetta skuli vera selt,“ sagði Ólafur Öm. Ólafur Öm á sæti í menntamálanefnd Alþingis. Ólafur sagði það viðtekna venju hjá flestum almennum félögum í landinu að stjómir þeirra takmarka aðgang að félagaskrám. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir.is hefur frá Steingrími Ara Arasyni, fram- i kvæmdastjóra LÍN, samþykkti stjóm LÍN fyrir u.þ.b. tveimur árum að- gengi að listum yfir nöfn náms- manna erlendis og nöfn og heimilis- föng umboðsmanna þeirra á islandi. Fókus númer 252 í tímaritinu Fókusi, sem fylgir DV á morgun, pælir leikarinn Vcdur Freyr Einarsson í því hvemig kona hann myndi vera. Fókus tékkar á nýju framagjörnu kynslóðinni, kík- ir á komandi jólaplötuflóð og er númer 252 hjá klámmyndaleikkon- ■•»* unni Annabel Chong. Lífið eftir vinnu er svo nákvæmur leiðarvísir um menningar- og listalífið. Eftir að hafa vegið og metið kosti og galla þess að opna aðgang að þessum upplýsingum hafi niðurstaðan orðið sú að heimila hann þar sem það gæti verið í þágu námsmannanna sjálfra þótt vissu- lega gæti alltaf verið hætta á að einhverjum þætti óþægilegt að upp- lýsingar sem þessar væru að- gengilegar. Visir.is hefur fengið upplýsingar frá íslenskum námsmanni erlendis sem fékk sent bréf frá sölumanni Natures Own heim til umboðsmanns síns. í bréfinu er námsmanninum boðin þátttaka í sölu á Natures Own og hann myndi þá nýta sér þau sambönd sem hann Ólafur Hraldsson. Orn kynni að hafa í námslandinu. Inni- hald bréfsins og heimilisfangið, sem það var sent á, benti til þess að send- andinn hefði undir höndum upplýs- ingar sem námsmaðurinn taldi að ættu eingöngu að vera til hjá LÍN. Þetta kom illa viö námsmanninn, sérstaklega þar sem hann kannaðist ekki við að hafa heimilað LÍN að setja nafn sitt á „ruslpóstlista". Vis- ir.is hafði samband við Samband is- lenskra námsmanna erlendis og þar kannaðist enginn við að hafa látið upplýsingar af þessu tagi af höndum. Sambandinu bærust þessar upplýs- ingar frá LÍN og taldi SÍNE að það eitt ætti að fá slíkar upplýsingar um námsmenn erlendis. Ekki náðist í Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra í morgun vegna þessa máls, né Pál Hreinsson, formann Tölvunefndar. -SÁ Horfinn í fimm daga Lögreglan í Reykjavík hefur leit- að að 29 ára gömlum manni, Sigurði Inga Pálssyni, síðan i fyrrakvöld og hefur lýst eftir fólksbíl hans en mannsins er saknað frá því á fostu- dagskvöld í síðustu viku. Maðurinn býr í foreldrahúsum en þeir hafa enn ekki viljað láta lýsa eftir hon- um en búast má við að það verði gert síðar í dag gefi hann sig ekki fram. Foreldrar mannsins hafa hins vegar sent frá sér áskoran um að hann hafi samband við þá. Sigurður hafði ekki fengið frí úr vinnu og er vanur að láta vita af ferðum sínum. Sigurður er meðalmaður á hæð og dökkur yfirlitum. Bíll Sigurðar er af tegundinni Mazda 626, áirgerð 1988, og er ljósbrúnn að lit, með skráningamúmer JU-158. -GAR Haustið komið á kreik Talsverður vindur var á Austur- landi í gær og stóð mesti veðurham- urinn milli 19 og 22 í gærkvöld. Mesta tjónið varð á nýrri fiskimjöls- yerksmiðju Óslands ehf. en ekki er vitað hversu mikiö það er. Þá fuku fótboltamörk á Sindravöllum upp að barnaskólanum á hæðinni fyrir ofan vellina. í Vestmannaeyjum fuku fiskikör og í Reykjavík fauk laus planki í gegnum útidyrahurð. -GAR Kio bíður eftir plássi Kio Alexander Briggs, sem fyrr í sumar var sýkn- aður í Hæstarétti af að hafa smyglað e-töflum, er á leið á sjó. Kio sagði í samtali við DV að hann væri á biðlista eftir plássi bæði í Reykjavík og Keflavik og myndi hann fara á sjó fljót- lega. Kio segist ekki vera á leið frá íslandi í bráð. Unnusta hans og sonur komu til landsins til að heimsækja hann fyrir stuttu en eru farin núna. Kio segir að sér líði vel á Islandi og hann hlakki mikið til þess að fara á sjó, til þess hafi hann komið hingað. -EIS Þeir eru misjafnir pinklarnir og pjönkurnar sem fólk ber um götur og torg. Þessi kona fylgist með því að verðmæti fari ekki til spillis í miðbænum, safn- ar drykkjarumbúðum af mikilli eljusemi og kemur í verð. DV-mynd S Veðrið á morgun: Rigning um allt land Á morgun er gert ráð fyrir vaxandi austan- og norðaustan- átt sunnanlands, 15 til 20 m/s og rigning um hádegi og allt land síðar um daginn. Hiti verður á bilinu 5 til 12 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. MERKILEGA MERKIVELIN brother pt-2ioe nv véi (slenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9,12,18 mm borðar Prentar í 4 iínur Aðeins kr. 10.925 n Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffanq: www.if.is/rafport Nicotinell tyggigúmmí fæst í apótekinu ÚTI BÚ J APÓTEK SUDURNESJA LEIFSSTÖC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.