Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Page 17
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
17
Sultugerð og fleiri haustverk í eldhúsinu hennar Bjarkar Timmermann:
Rifsberjahlaupið
endist allt árið
voru yngri bjó hún alltaf til kræki-
berjasaft sem hún segir aö sé ofur-
holl. „Núna bý ég bara til úr
rifsberjunum sem vaxa
hérna í garðinum. Þetta
árið notaði ég 15 kíló
af sykri en samt er nóg
eftir af berjum - fugl-
arnir geta gætt sér á
þeim. Rifsberjahlaupið
dugar heimilinu árið um
kring og á þessu ári hef ég
aðeins einu sinni keypt
danska sultu úti i
búð; en það var
aðallega fyrir
forvitni sak-
ir,“ segir
Björk og
bæt-
ir við að rifsberjahlaupið sé gott
bæði með brauði og svo náttúrlega
ómissandi með lambasteikinni
á sunnudögum. Hún segist
notast við hefðbundna
uppskrift að rifsberja-
hlaupi en þó geri hún
eitt sem ekki sé svo al-
gengt. „Þegar ég er búin
aö búa til hlaupið er
alltaf heilmikill massi eft-
ir sem ég tek og
sýð upp á aft-
ur. Síðan
sigta ég
hratið og
set í
Fyrr á tíð var haustið jafnan mik-
ill annatími á heimilum. Húsmæð-
ur kepptust við að fylla búrin og
búa í haginn fyrir veturinn. Þessi
siður hefur að mestu lagst af en þó
eru ýmis eldhúsverk sem fólk tekur
sér fyrir hendur, hvort heldur er til
að spara eða bara ánægjunnar
vegna.
Hagsýni heimsótti Björk
Timmermann á heimili hennar í
Reykjavík en hún er ein af þessum
fyrirmyndarkonum sem gera allt
sjálfar og gefur sér góðan tíma á
haustin við ýmiss konar matargerð.
„Ég hef alltaf gert þessi hefð-
bundnu haustverk í eldhúsinu,
sultugerðin er fastur liður og eins
hef ég alltaf búið til mikið af með-
læti; búið til pickles og margt fleira.
Ég er langt komin með þetta núna
og er að mestu búin að „pickla“ það
grænmeti sem ég þarf næstu mán-
uðina,“ segir Björk.
Þótt sultur og annað meðlæti fá-
ist í öllum matarverslunum segir
Björk ekkert jafnast á við að búa
þessa hluti til sjálfur. „Það er marg-
fold ánægja sem felst í því aö bjóða
upp á mat sem maður hefur sjálfur
búið til. Svo eru líka litirnir, t.d. á
rifsberjahlaupinu og grænu og
rauðu tómötunum, svo óviðjafnan-
legir og þeir lífga svo sannarlega
upp á tilveruna þegar skammdegið
hellist yfir okkur,“ segir Björk um
leið og hún raðar krukkum með
margvíslegu meðlæti á eldhúsbekk-
inn.
Rifsberjahratið
endurnýtt
Aðspurð um krækiber og bláber
segist Björk að mestu hafa
lagt þau á hilluna.
Þegar börnin
Þetta verður aldrei tært og þetta
hleypur ekki. Þennan lög nota ég
síðan þegar ég sýð niður rauðkál,
til dæmis fyrir jólin, og virkar vel.
Súrsaðar agúrkur
Gúrkur og tómatar geymast vel í
súrsuðum legi og segist Björk við-
halda þeim sið að búa til „pickles“
á haustin þótt það þurfi ekki lengur
að vera bundið við þann árstíma,
enda hráefnið fáanlegt árið um
kring. „Súrsaðar agúrkur eru góðar
með svo mörgum mat. Ég man eftir
því þegar ég var ung að þá skófum
við alltaf gúrk-
urnar að inn-
an og síðan
var innvolsið
sett í frysti.
Síðan notuð-
um við þetta
sem andlits-
maska yfir
settir í krukku ásamt hvítlauknum.
Lime-sneiöarnar eru settar inn á
milli ásamt rósmarín. Þá er vín-
edik, sinnepsfrœ, lárviöarlauf, syk-
ur og salt sett í pott og suóan látin
koma upp. Þegar lögurinn hefur
kólnaó er honum hellt yfir
tómatana og krukkan látin standa
í sólarhring.
Sultaðir grænir
tómatar
lkg grænir tómatar
1/2 lítri vatn
1/2 lítri edik
1 msk salt
Sykurlögur
750 gr sykur
1 dl edik
1 dl vatn
1 vanillustöng
eða 10
negulnaglar
Tómatarnir eru skolaöir vel og
settir í pott meö vatninu, edikinu og
saltinu í 3- 4 mínútur. Síóan þurfa
þeir að liggja í leginum í sólar-
hring en þá er aftur soöiö upp á
þeim i nokkrar mínútur. Tómat-
arnir eru teknir upp og settir í glös
og leginum hellt yfir. Ef fólki geng-
ur illa aö finna grœna tómata í
búóum, segir Björk aö þá sé oftast
hœgt aó fá hjá Ágœti.
Sultaðir
tómatar
500 gr sérrítómatar
3 hvítlauksrif
1 lime
1 rósmarinkvistur
4 dl. hvítvínsedik
1 msk sinnepsfræ
2 lárviðarlauf
4 msk sykur
2 tsk salt
Tómatarnir eru pikkaöir meó
grófri nál. Síöan eru tómatarnir
Björk með sýnishorn af öllu því sem hún býr til á haustin - sultaðir tómatar, rifsberjahlaup og annað gómsæti sem á sjálfsagt eftir að gleðja heimilisfólkið
í allan vetur. DV-mynd E.ÓI
vetrartímann. Maskinn virkaði vel
en þetta gerir sjálfsagt enginn í
dag,“ segir Björk.
Það er svo sannarlega búsældar-
legt um að litast í eldhúsinu hjá
Björk en hún segir hagsýnina ekki
endilega drifkraftinn heldur miklu
fremur þá ánægju að búa þetta til
sjálfur og eiga nóg til vetrarins.
Auk þess sé tilvalið að gefa bæði
sultu og sultaða tómata í tækifæris-
gjafir.
Það er ekki hægt að sleppa Björk
án þess að fá uppskrift hjá henni.
Björk valdi uppskrift að sultuðum
grænum og rauðum tómötum sem
hún var sjálf að prófa í fyrsta sinn
en segir að lofi mjög góðu.
Lítið af berjum í búðum:
Krækiber á
einum stað
Þeir eru
e f 1 a u s t
m a r g i r
sem hafa
drifið sig í
berjamó
og tínt ber
út á skyr
eða bara
b o r ð a ð
þau með
sykri og
r j ó m a .
M a r g i r
frysta líka
berin og
nota þau i
ábætisrétti að vetrinum en alltaf eru
einhverjir sem ekki komast í berja-
mó og þá er bara ein leið: að kaupa
þau í búðum.
Hagsýni fór á stúfana og kannaði
hvar væri hægt að kaupa ber. Haft
var samband við stórmarkaðina í
Reykjavík en hvorki bláber né aðal-
bláber voru fáanleg. Krækiber hafa
fengist víða en í gær fundust þau að-
eins á einum stað. Það var i verslun-
inni Vínberinu við Laugaveg en þar
fást vestfirsk krækiber í kílópakkn-
ingum og kostar hvert kíló 390 krón-
ur. Einnig er hægt að kaupa fimm
kíló í einu og kostar þá kílóið 380
krónur.
Hjá Tíu tíu í Suðurveri fengust
þær upplýsingar að krækiber hefðu
nýlega verið til en óvíst hvenær þau
kæmu aftur og sömu sögu var að
segja hjá Blómavali þar sem þau
voru löngu uppseld.
Krækiber að vestan eru seld í
kílópakkningum í versluninni
Vínberinu.
Tryggingafélögin með mismunandi tilboð á bílstólum:
Bjóða flest í kringum 20% afslátt
- aðeins eitt félag með stólaleigu
Á hverju ári er talið að í kringum
35 til 40 börn slasist í bílslysum.
Með góðum öryggisbúnaði er hægt
að koma í veg fyrir eða draga úr
þessum slysum. Tryggingafélögin
hér á landi hafa lengi beitt sér fyrir
því að fólk noti ávallt bamabilstóla
og gangi úr skugga um að þeir séu
rétt festir.
Hagsýni skoðaði hvaða kjör
tryggingafélögin bjóöa viðskipta-
vinum þegar kemur að því að
kaupa eða leigja bílstóla.
Hjá Tryggingamiöstöðinni feng-
ust þær upplýsingar að viðskipta-
vinir félagsins njóti sérstakra kjara
hjá heildsölunni Olivíu og Oliver.
Að sögn Dagmar Viðarsdóttur er
um 20% afslátt að ræða á fjórum
tegundum Safety Baby stólum og
segir hún viðskiptavini duglega að
nýta sér þetta tilboð.
Svipaður afsláttur er á þeim stól-
um sem viðskiptavinir Sjóvár Al-
mennra eiga kost á en um er að
ræða Britax stóla sem fást í Everest
búðinni. „Við leggjum mikið upp úr
því við okkar viðskiptavini að þeir
hugsi vel um öryggi bama sinna.
Flestir bílstólar hér á landi em góð-
ir enda samkvæmt Evrópustaðli og
hættan liggur miklu fremur í hvort
fólk notar stólana rétt og fylgir leið-
beiningum þegar þeir eru festir,“
segir Einar Guðmundsson forvam-
arfulltrúi Sjóvár Almennra.
Trygging hefur sama hátt
á og félögin sem nefnd voru
hér á undan en þeirra við-
skiptavinir njóta um 5% af-
slátt af Chiccostólum sem
fást hjá heildsölunni Engey.
Stólaleiga
VÍS er eina tryggingafé-
lagið sem leigir út bamabíl-
stóla. í fyrstu var stólaleig-
an aðeins ætluð viðskipta-
vinum en nú geta allir leigt
stóla. Viðskiptavinir VÍS
njóta þó betri kjara en aðr- Börn ejga ajjtaf að vera spennt og fójk ættj að jejta hvort það borgi sig leigja stól-
ir. Sé minnsti stóllinn (ætl- upplýsinga hjá sínu tryggingafélagi því þau bjóða öll 'nn frekar.
aður 0 til 6 mánaða) leigður sérkjör þegar kemur að því að kaupa bílstól.
kostar það 4.200 til viðskipta-
vina VÍS en 5.700 til annarra.
Þá er hægt að skipta yfir í
stærri stól sem kostar 550
krónur á mánuði fyrir við-
skiptavini VÍS en 750 krónur
á mánuði fyrir aðra.
Það getur verið úr vöndu að
ráða þegar kemur að því að
velja hentugan bílstól. Fólk
ætti að hafa samband við sitt
tryggingafélag og skoða
hvaða kjör eru í boði. Víða er
veittur góður afsláttur og
menn geta síðan reiknað út