Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Spurningin
Finnst þér í lagi að RÚV
hefji útsendingar á
annarri sjónvarpsrás?
Magnús Ásgeirsson nemi: Alveg
sama, það er ekkert í þessu ríkis-
sjónvarpi hvort sem er.
Sesselja Ásgeirsdóttir skrifstofu-
kona: Já, það fmnst mér í lagi, ef ég
borga sama gjald. Þeir mega þjóna
mér eins og þeir vilja fyrir þennan
pening sem ég borga.
Sigríður Brynjólfson húsmóðir:
Ég er sammála Sesselju vinkonu
minni.
ívar Jensson strætóbílstjóri: Já,
ef hún verður skemmtilegri.
Ásgeir Sigurðsson nemi í tölvun-
arfræði: Já, alveg eins, ekkert á
móti því, svo lengi sem það kemur
ekki niður á áskriftargjöldum.
Aldís Höskuldsdóttir húsmóðir:
Já, ekkert á móti því.
Lesendur
Tvískinnungur
skotveiðimanna
„Skotmenn drepa líka rjúpuna þótt hún sé í sögulegu lágmarki.
Karl Ormsson, fyrrv. deildarstj.,
skrifar:
Áróður sem skotglaðir menn hefja
gegn uppistöðulóni
á Eyjabökkum, og
þar með virkjunum
á Austfjörðum, er
grátlegur. Þeir
þvertaka alveg fyrir
að eyðilögð sé þessi
náttúruperla sem
þeir telja, en eru
samt tilbúnir að
vaða þama um og
drepa það fallegasta sem náttúran
býður upp á, þ.e.a.s. fugla og hrein-
dýr í lífrikinu.
Við Eyjabakka myndu skapast
ótrúlegur fjöldi af hólmum og eyjum
sem væri gott friðland fyrir heiða-
gæs og aðra fugla. Það væri líka
vörn gegn byssuóðum að komast að
bráð sinni. Hreindýrin myndu færa
sig til. Minnast mætti þess að eitt
sinn voru hreindýr bæði á Reykja-
nesi og á Vestíjörðum.
Skúmur sem er alfriðaður svo og
fýll voru drepnir í hrönnum austur á
Söndum, álftir austur í Skaftafells-
sýslum og rytur í tugatali á hreiðr-
um sínum vestur á Arnarstapa.
Einnig helsingjar sem eru famir að
finna sér varpland í báðum Skafta-
fellssýslum svo að umhverfisráð-
herra hefur séð sig knúinn til að
vernda þá með reglugerð.
í Morgunblaðinu mátti nýlega sjá
að faðir var að kenna dóttur sinni að
drepa spóa, sem er alfriðaður, en
hann átti að nota sem agn fyrir af-
kvæmi fyrsta landnema íslands,
tófuyrðlinga. í DV mátti og sjá mynd
af „þokkapiltum" sem farnir eru að
murka niður gæsina, þótt hún sé í
sögulegri lægð og veiðistjóri hafi
viðrað þá skoðun að banna að selja
villtar gæsir í verslunum. Hreindýr
voru drepin og geymd í bílskúr á
Homafirði, og í DV mátti sjá ógeðs-
lega uppstillingu af mönnum sem
drápu stóran og fallegan hreindýrs-
tarf. Sem betur fer hefur lögregla
víða um land náð flestum þessara
pilta, afvopnað þá og gert skotvopn
upptæk. - Minkurinn er eina að-
skotadýrið sem eyðir öllu sem hann
ræður við. Það væri göfugra mark-
mið að fækka honum.
Ég veit að flestir félagsbundnir
skotveiðimenn fara eftir reglum. En
„hvað höfðingjarnir hafast að ..."
o.s.frv. Að sjálfsögðu á að friða alla
fugla nema óæskOegan vargfugl sem
ekki er í útrýmingarhættu. Minkur,
tófa og fálki sjá um að grisja stofnana
nógu hratt. Skotmenn drepa líka
ijúpuna þótt hún sé í sögulegu lág-
marki. Skynsamlegra væri fyrir
bændur að banna hinum skotóðu að-
gang að jörðum sínum og hugsa betur
um hvað þeir gætu selt ferðamönnum
og hinum almenna neytanda meira af
hinum ágætu afurðum sínum.
Ný sjónvarpsrás RÚV
er fjarstæða
Helgi Sigurðsson skrifar:
Það hefur verið reifað opinber-
lega að Ríkisútvarpið hyggist láta
kanna hvort ný sjónvarpsrás henti
innan rekstursins. Líklega er þetta
tilkomið vegna kvartana margra
sjónvarpsáhorfenda um yfirgang
íþróttadeOdar Sjónvarps sem hvað
eftir annað valtar yfir aðalfréttatím-
ana með sýningu frá knattspymu-
leikjum.
AUt tal um nýja ríkisrekna sjón-
varpsrás er fjarstæða, hvernig sem
á málin er litið. í gangi eni margar
stöðvar sem senda út íþróttaefni
virka daga sem helga, aUan ársins
hring, og því engin þörf fyrir neina
nýja rás á vegum hins opinbera.
Með tilkomu gervihnatta hefur
móttaka frá þessum hnöttum aukist
stórlega hér á landi sem annars
staðar. Það sem ríkisstjómin á að
gera er að reyna að losa sig við Rík-
isútvarpið-sjónvarp sem allra fyrst.
Þeir stjórmálamenn sem láta líklega
yfir nýrri sjónvarpsrás hjá RÚV
fylgjast ekki með tímanum og við
þá þurfum við að losna sem fyrst.
Ríkisútvarpið-hljóðvarp er eina rás-
in sem menn vUja ekki missa, hjá
RÚV. Hún er vinsæl meðal þorra
landsmanna.
Þjónusta í Ólafsvík
„Ólafsvík er fallegt og snyrtilegt sjávarþorp sem enginn ætti að vera svikinn
af að skoða,“ segir bréfritari. - Séð yfir Ólafsvík og höfnina.
Eygló Egilsdóttir skrifar:
Mánudaginn 13. sept. sl. birtist í
DV lesendabréf undir fyrirsögninni
„Slæm þjónusta á Gistiheimili
Ólafsvíkur". í bréfinu sagði ferða-
langur nokkur, Jóhann að nafni,
ferðasögu frá Snæfellsnesi og gat
sérstaklega um slæma þjónustu á
áðurnefndu gistiheimili. Bréfinu
fylgdi síðan mynd af Ólafsvík og í
heUd var þetta aö mínu mati full-
komin auglýsing tU að vara ferða-
menn við að heimsækja staðinn.
Ekki er mér kunnugt um við-
skipti Jóhanns við Gistiheimili
Ólafsvikur en heldur þykir mér nöt-
urlegt að hann skuli kjósa að kasta
rýrð á vaxandi ferðamannastað út
af einu tUteknu atviki. Þætti mér
gaman að vita hvort sá hinn sami
skrifi í blöðin um aUa staði þar sem
hann fær góða þjónustu.
Til upplýsinga fyrir Jóhann og
aðra ferðamenn þá eru í Ólafsvík
rekin tvö gistiheimili, GistiheimUi
Ólafsvíkur við Ólafsbraut og Gisti-
heimUið Höfði við sömu götu. Á
Höfða eru 13 herbergi og í undir-
búningi er viöbygging með 18 her-
bergjum með baði og er ætlunin að
taka þetta í notkun í byrjun næsta
árs. Með þessum endurbótum er
verið að bæta verulega þjónustu við
ferðamenn hér í Ólafsvík.
Hér á staðnum er, auk veitinga-
og gististöðu, rekin margvísleg
þjónusta við ferðamenn. Upplýs-
ingaþjónusta er starfrækt í byggða-
safni staðarins, Gamla pakkhúsinu,
hvalaskoðunarbáturinn Orcan er
gerður út frá Ólafsvík og í nágrenni
bæjarins er búið að gera átak í að
stika gönguleiðir og merkja áhuga-
verða staði, svo eitthvað sé nefnt.
Ólafsvík er faUegt og snyrtilegt sjáv-
arþorp sem enginn ætti að vera
svikinn af að skoða. Ég vil því bjóða
ferðamenn velkomna tU Ólafsvíkur
og kynnast því af eigin raun að hér
er hægt að fá góða þjónustu.
DV
Ef flugvöllur-
inn fer...
Sigurður skrifar:
Ef nú svo æxlast að Reykjavíkur-
UugvöUur verður látinn víkja úr
Vatnsmýrinni, og þar komi í staðinn
30 þúsund manna byggð, þá verður nú
þegar að huga að nýjum samgönguæð-
um (ekki endurbætur á þeim gömlu)
tU og frá þessari íbúðabyggð. Eins og
er sé ég ekki almennilegar samgöngu-
leiðir úr vesturbænum í austurbæinn
fyrir þann íbúafjölda sem nú er þar tU
staðar, hvað þá þegar 30 þúsund
manns bætast við. Eða þá akstursleið-
ir suður eftir Kópavogi og Garðabæ tU
Keflavikur. Þar yrði að koma annað
og betra samgöngukerfi en nú er, með
aðeins einni þröngri akstursleið og
henni krókóttri. Þetta er líklegast
stærsti höfuðverkurinn við að fyUa
Vatnsmýrina íbúðabyggð. Það þarf
því snör handtök.
Snögg ákvörðun
Elín Guðmundsóttir hringdi:
Það hefur líklega komið flestum á
óvart aö forseti íslands skyldi hafa átt
ástkonu um þó nokkurt skeið. en ástin
spyr sjaldan um rök, hvað þá að
leikslokum. Fyrir mér lítur svo út að
tímaritið sem birti fréttina um ástkonu
forsetans fyrst aUra hafi neytt forset-
ann tU að taka snögga en ótímabr
ákvörðun og opinbera tíðindin sjálfur.
Og þá tóku aðrir flölmiðlar upp þráð-
inn, nema Moggi sem hefir ekki sinnt
málinu í fréttaformi. Málið mun áreið-
anlega draga dilk á eftir sér fyrir for-
setaembættið og hefur nú þegar snúið
almenningsálitinu í hálfhring á þeim
fáu dögum sem liðnir eru frá því frétt-
in um ástkonuna var staðfest. í huga
landsmanna er þetta mál sem eins kon-
ar ást í biðstöðu.
Áskorun til
Landsbankans
Þórhallur hringdi:
Ég hef tekið eftir því að margir eru
órólegir vegna þess orðróms sem ver-
ið hefur á kreiki um að bankarnir
ætli alfarið að afnema bankabækm' og
taka upp reikninga í staðinn, þar sem
menn fá aðeins yfirlit yfir stöðu sína í
viðkomandi banka. Bankabækur hafa
verið uppistaða í sparnaði margra í
áratugi og sumir eiga enn bækur sem
þeim áskotnaðist í æsku og nota enn,
auk nýrri bóka sem bera þó vexti
gagnstætt hinum almennu bókum
sem bera litla sem enga vexti. Ég
skora á minn gamla banka, Lands-
bankann að hverfa frá því að ógilda
bankabækurnar, það hlýtur að vera
til leið fyrir bankann að bjóða þeim
sem vilja að nota sínar bækur áfram.
Annað væri glapræði.
Einkalíf forseta
til friðs
Fjölmiðlaáhugamaður skrifar:
Ég vil skora á tímaritið „Séð og
heyrt" að láta einkalíf forseta íslands
í friði. Virðing embættisins er hátt
yfir slúðurdálkaheiminn hafin, og því
síður að það sé haft að féþúfu í okkar
harða fjölmiðlaheimi. Ég vil spyrja
háttvirta ritstjórn blaðsins: Er til ein-
hver snefill af sómatilfinningu í ykk-
ur? Ég held ekki. Þið ættuð að
skammast ykkar!
Frú Clinton
kemur þó?
Maddý hringdi:
Nú er komið í ljós að Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, kem-
ur ekki hingað tfl lands á alþjóölegu
kvennaráðstefnuna sem hér verður
haldin í næsta mánuði. Einhvem veg-
inn fannst mér af sjónvarpsfréttinni
sem ég sá vafa leika á að Clinton for-
setafrú komi. En það væri áfall fyrir
ráðstefnuna og þá sem hana undirbúa
hér, ef forsetafrúin kæmi ekki. Mér
finnst hins vegar að á þessa ráðstefnu
hér mætti bjóða flestum þeim konum
sem hér hafa verið áberandi í íslensk-
um stjórnmálum og félagasamtökum,
þær em nú ekki svo margar hvort eð
er. Vonandi verður ráðsstefnan okkur
til sóma ef allir sinna sínu hlutverki
af kostgæfni.