Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
11
pv_____________________________________________________________________________________Fréttir
Metaðsókn í fjölbraut á Selfossi. Tölvukostur aukinn og íþróttahús í byggingu:
Kannski einhver tískusveifla
- segir Sigurður Sigursveinsson skólameistari
DV, Suðurlandi:
„Það er metaðsókn í dagskólann,
milli 750 og 760 nemendur, í fyrra
voru 715 og í hittifyrra voru nem-
endur 670 þannig að það hefur fjölg-
að um tæplega 100 nemendur á
tveim árum. Þetta er frekar óvænt
fjölgun og við þurfum að vanda okk-
ur við allt skipulag, þurfum að ná
hámarksnýtingu á öllum stofum,
jafnri nýtingu allan daginn og þá
kennum við einnig í samkomusaln-
um,“ sagði Sigurður Sigursveins-
son, skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi, við DV.
. Sigurður segir að skýringar á
þessari fjölgun nemenda séu nokkr-
ar. Ein sé sú að mönnum sýnist að
nemendur skili sér betur af fyrsta
ári yfir á annað ár þannig að líklega
sé að draga úr brottfalli. „Ef svo er
þá er það mjög jákvætt,“ sagði Sig-
urður. Hann segir að eftir sé að fara
betur í saumana á skólasókn Sunn-
lendinga, hversu margir fari til
Reykjavíkur, á Laugarvatn og svo
framvegis. Það væri áhugavert að
skoða, ekki síst upp á framtíðina.
„Við þurfum að átta okkur á því
hvort þetta sé komið til að vera,
kannski eru þetta einhverjar tísku-
sveiflur en það er í sjálfu sér mjög
jákvætt að unglingamir sæki vel
skólann," sagði Sigurður.
Aukinn tölvukostur.
Metaðsókn er að Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi annað árið í röð.
DV-mynd NH
Sigurður Sigursveinsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
lands.
Tölvukostur Fjölbrautaskólans
var að verulegu leyti endumýjaður
fyrir nýbyrjað skólaár. Hann fór
bæði í stakar stofur og i nýtt tölvu-
ver með 28 tölvum, „Við tökum
nánast alla nýnema áfram í tölvu-
kennslu á fyrsta námsári en sam-
kvæmt nýju námsskránni á reynd-
ar þessi grunnfærni í tölvunotkun
að vera hlutverk grunnskólans.
Það á hins vegar víða eftir að út-
færa það í grunnskólunum en inn-
an nokkurra missera mun draga
úr þessari kennslu hjá okkur en þá
mun þessi stofa nýtast fyrir al-
menna hópa sem koma t.d. einu
sinni í viku inn í tölvustofu og
hafa þar fullan aðgang að intemet-
inu og það verður liður í þeirra
námi í viðkomandi kennslugrein-
um, að nota tölvuna sem tæki til
náms, og það er í sjálfu sér stefnan
að nota tölvumar ekki bara til að
kenna tölvufræði eða eitthvað slikt
heldur það að tölvumar verði al-
mennt tæki í námi og kennslu.
Hins vegar mun sérhæfð kennsla
hugsanlega líka eflast í forritun og
þessháttar.
Fjölbrautaskóli Suðurlands er
einn þriggja framhaldsskóla sem
er svokallaður þróunarskóli í notk-
un upplýsingatækni við nám og
kennslu. Hinir eru Fjölbrautaskól-
inn við Ármúla og Menntaskólinn
á Akureyri. Nú á haustönn eru t.d.
nemendur úr Ármúlanum í forrit-
unarnámi við Fjölbraut á Selfossi í
fiamámi.
Bygging íþróttahúss á
döfinni.
Að sögn Sigurðar er bygging
íþróttahúss við skólann það mál
sem verður farið að vinna að á
Unnið að byggingu iþróttahússins. Ólafsvíkurkirkja í baksýn.
DV-mynd Pétur
Kirkjan fær íþrótta-
höll sem nágranna
næstunni. „Heimamenn eru tilbún-
ir að standa að byggingu þess í sam-
vinnu við ríkið. í vor tilnefndum
við í nefnd um þetta mál. Það er
áætlað að þetta hús verði byggt með
þarfir skólans í huga sem kennslu-
húsnæði. Héraðsnefndimar, sem að
skólanum standa, og Árborg hafa
tekið þessu mjög vel en það þarf
fyrst að ákveða hvemig hús á að
byggja, svo að hanna það, þannig að
það er ekki alveg komið að þvi að
byggja en þetta er allt á réttu róli,“
sagði Sigurður. -NH
Ársreikningur ungs sveitarfélags:
Gengur vel í
Borgarbyggð
Á fundi bæjarstjórnar Borgar-
byggðar fyrir skömmu var ársreikn-
ingur bæjarsjóðs og undirfyrirtækja
vegna ársins 1998 samþykktur við
seinni umræðu. Þetta er fyrsti árs-
reikningur sem gerður er eftir sam-
einingu Borgarbyggðar, Álftanes-
hrepps, Borgarhrepps og Þverár-
hlíðarhrepps sem tók gildi 7. júní
1998 en reikningsskilin eru gerð fyr-
ir hið sameinaða sveitarfélag allt
árið 1998. í ársreikningi bæjarsjóðs
kemur fram að skatttekjur vom 400
m.kr. og þar af voru útsvör 271
m.kr. Aðrar helstu skatttekjur voru
fasteignaskattar, 52 m.kr. og fram-
lag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
70 m.kr. Aðrir skattar námu 7 m.kr.
Rekstrargjöld málaflokka án
vaxta voru 365,6 m.kr. sem eru 91%
af skatttekjum. Stærstu málaflokk-
arnir vom fræðslumál, 171,8 m.kr.,
félagsþjónusta, 51,9 m.kr., æskulýðs-
og íþróttamál. 42,1 m.kr., og yfir-
stjóm, 35,7 m.kr. Til framkvæmda
var varið 71,4 m.kr. en það eru 18%
af skatttekjum. Stærstu liðir voru
gatna- og holræsaframkvæmdir,
26,8 m.kr., æskulýðs- og íþróttamál,
18,2 m.kr., og 9,4 m.kr. var varið í
framkvæmdir vegna félagsþjónustu.
Um áramót vom peningalegar eign-
ir bæjarsjóðs 195,4 m.kr. en skamm-
tímaskuldir 115,7 m.kr. og langtíma-
skuldir 243,6 m.kr. Heildarlauna-
greiðslur bæjarsjóðs og undirfyrir-
tækja á árinu 1998 voru 191 m.kr.
-DVÓ
Ráðhústorg á Akureyri. Mörgun finnst torgið og göngugatan ansi grá og
„Moskvuleg" en það stendur nú vonandi til bóta. DV-mynd, gk.
Miðbærinn fær upplyftingu
Dy Ólafsvik:
Vel hefur gengið með smíði
hins nýja iþróttahúss Snæfellsbæ-
inga í Ólafsvík, að sögn Dagbjarts
Harðarsonar, byggingarstjóra
hússins, en verkið hófst í júní.
íþróttahöllin rís í næsta nágrenni
við hina vel þekktu kirkju í Ólafs-
vík og verður næsti nágranni
hennar. Það er skipasmíðastöðin
Sk’ipavík hf. úr Stykkishólmi er
með þetta verk en hún var með
lægsta tilboð af fimm aðilum sem
buðu í verkið en mikið hefur ver-
ið að gera hjá þeim Skipavflurr-
mönnum á þessu ári.
Rafvirkjameistari við húsið er
Sigurjón Bjamason og pípulagn-
ingameistari Gústaf Egilsson, háð-
ir úr Ólafsvík. Þetta íþróttahús er
með löglegum handboltavelli og er
því stór bygging. Tíu menn starfa
við smíðina núna og eru þeir alls
staðar frá á Nesinu. Mannekla
hefur verið að sögn Dagbjarts en
von er á mönnum til viðbótar og
reiknar hann með að 15 menn
starfi við smíðina en vantað hefur
bæði smiði og verkamenn. Stefnt
er að því að loka húsinu fyrir
miðjan desember nk. Eftir áramót
fer innivinnan í gang og frágang-
ur að utan eins og hægt verður að
vinna að í vetur. Dagbjartur segir
að smíði hússins veröi lokið í júlí
árið 2000. Óhætt er að segja að
íbúar Snæfeflsbæjar bíði með
óþreyju eftir þeim degi sem það
verður tekið i notkun.
-PSJ
DV, Akureyri:
„Það er ekki ætlunin að rifa
þama allt upp og byggja að nýju frá
grunni en það verður vonandi hægt
að lífga eitthvað upp á svæðið og
sérstaklega þá að gera eitthvað
grænna í Skátagilinu," segir Vil-
borg Gunnarsdóttir, formaður
skipulagsnefndar Akureyrarbæjar,
um þær framkvæmdir sem
fyrirhugaðar eru í göngugötu bæj-
arins, á Ráðhústorgi og í Skátagili.
Bæjarbúar em og hafa allt tíð frá
því breytingarnar á göngugötunni
og Ráðhústorginu vom gerðar fyrir
mörgum árum verið ansi óánægðir
með hvemig til tókst. Gróðrinum
sem var á Ráðhústorginu var fórnað
og steinsteypan sett í öndvegi og
þykir torgið allt of „grátt og frá-
hrindandi" að margra mati.
Vilborg segir að hönnunarvinnu
við breytingar á svæðinu eigi að
vera lokið um áramót og þá komi í
ljós hvort fiárveiting fæst til fram-
kvæmdanna svo hægt verði að ráð-
ast í þær strax á næsta ári. -gk