Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformabur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRM: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@>ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Samfylkingin sefur og sefur Samfylkingin þarf strax aö taka sig í gegn, koma straumlínulagi á málefni sín og velja sér nýja forustu. Lýöræöið gerir ráð fyrir, að stjórnarandstaða sé virk og geti veitt stjómvöldum aðhald, en Samfylkingin liggur meira eða minna í dvala vikum og mánuðum saman. Vandi Samfylkingarinnar felst ekki í, að fólk og fjöl- miðlar tali um þetta og furði sig á niðurlægingu hennar. Vandi hennar felst í niðurlægingunni sjálfri, en ekki í umtali annarra um hana. Því miður er algengt, að fólk og félög í afneitun mgli þessu tvennu saman. Samfylkingin er í afneitun. Forustusveit hennar og virkir félagsmenn neita að horfast í augu við raunveru- leikann og kenna öllum öðrum um, hvernig fyrir henni er komið. Fjölmiðlarnir eru sagðir vondir við hana og ekki sýna henni næga biðlund og skilning. Ekklar og ekkjur geta komizt upp með sálgæzluþvælu af þessu tagi, en stærsti stjórnarandstöðufLokkurinn kemst ekki upp með að velta sér upp úr skorti á biðlund og skilningi annarra. Ríkisstjómin er í ýmsum vondum málum, sem kalla strax á virka stjórnarandstöðu. Formaður Samfylkingarinnar var vel látin og vinsæl, en hefur greinilega ekki heilsu og úthald til að standa í daglegri varðstöðu og eftirliti. Vikum saman er hún meira eða minna frá vinnu og hefur þess á milli lítið frumkvæði, svarar bara spurningum fjölmiðla. Samfylkingin hefur sem stjórnmálaafl nánast óheftan aðgang að fjölmiðlum. Hún þarf talsmann, sem heldur daglega uppi umræðu og andófi. Núverandi ástand er með öllu óþolandi og hefur þegar leitt til, að Græna vinstrið er tekið við sem eiginleg stjórnarandstaða. Seinagangur Samfylkingarinnar við að ganga frá skipulagsmálum sínum og forvera sinna er öllum ljós, sem á horfa. Flokkar og fyrirtæki eiga ekki að tala um biðlund og skilning, heldur taka til hendinni. Annars koma aðrir og taka upp merkið. Þannig er lífið. Það gengur ekki, að sveitir gamalla forustumanna úr hálfdauðum og dauðum stjórnmálaflokkum vafri um í nafni Samfylkingarinnar og tali út og suður um málefni hennar og þjóðarinnar, hver með sínu kreddunefi. Fólk missir trú á pólitík, sem birtist á þennan hátt. Stjórnarandstaða felst í mörgu fleiri en þátttöku í mál- fundum Alþingis hluta úr ári. Allt árið þarf daglega að koma sjónarmiðum á framfæri í fjölmiðlum og á fundum um allt land. Þegar Alþingi situr ekki, á að vera góður tími til að sinna slíkum þáttum stjórnarandstöðu. Samfylkingin hefur sóað tíma sínum í ársþriðjung. Hún hefur hreinlega legið í dvala í allt sumar. Hún virð- ist engu nær um samræmingu sjónarmiða og hún virð- ist engu nær um það, hver eigi að taka að sér að leiða hana og hafa forustu um stjórnarandstöðu. Á meðan lekur niður traust fólks á öllum, sem koma að forustu Samfylkingarinnar eða eru orðaðir við hana. Margrét Frímannsdóttir er komin í mínus í könnunum, sömuleiðis Jóhanna Sigurðardóttir og hillingin mikla í eyðimörkinni, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Annað forustufólk Samfylkingarinnar kemst ekki á blað, jafnvel ekki það, sem er á kaupi hjá ríkinu sem stjómmálamenn árið um kring. Fundarsalir og fjölmiðl- ar eru lausir árið um kring. Lífið í landinu leggst ekki í dá. Það er bara Samfylkingin sem sefur og sefur. Sumir áhrifamenn í Samfylkingunni hafa séð þetta, en tala fyrir daufum eyrum þeirra, sem eru svo ánetjaðir afneituninni, að þeir sjá ekki eymdina og volæðið. Jónas Kristjánsson Utanbókarlærdómur er auður sem englnn getur rænt, og utanbókarlærdómur getur komið að gagni til annars en sem vopn gegn svefnleysi, er haft eftir Olof Lagerkrantz eins og fram kemur í greininni. Listin að lesa og skrifa „Eg er viss um að það er lækningamátt- ur í því að tjá sig, og það þótt enginn heyri né sjái,“ segir Olof Lagercrantz í bókinni, Um listina að lesa og skrifa. Hann vitnar til afa síns, Hugo Hamilton, sem segir svo í dagbók sinni 4. febrúar árið 1916: „Það huggar mig og uppörvar að hlusta á fagra tónlist. Samt hef ég á síðustu dögum uppgötvað annað sem er ennþá betra. Ég var vanur því að skemmta bömunum minum með því að teikna fyr- ir þau litlar, gaman- samar myndir og yrkja fyrir þau vísur. Um daginn datt mér í hug að gera það sama fyrir litlu bamabömin mín. Það væri hægt að skrifa djúphugsaða rit- gerð um þetta og reyna að útskýra það. En svona er það: þegar hryggðin slær er vinna, lestur sem dreifír huganum og tónlist alveg ágætt. En —r™ það er eitt sem er enn betra. Reyndu að virkja sköpunargáfuna, og þú finnur hvernig sálin sprett- ur upp eins og stálfjöður." Óvissar viðtökur En þótt það sé heilsubót að því að skrifa er ekki á vísan að róa með viðtökumar. í bók Silju Aðal- steinsdóttur, Skáldið sem sólin kyssti, kemur fram að sólin kyssti skáldið ekki alltaf. Hann er smeykur við að leggja ljóð sín fram og það þótt útgefandinn sé uppörvandi. Borgarskáldið, Tómas, fer líka háðuglegum orð- um um minningarkvæði Guð- mundar um Jón Pálsson frá Hlíð sem bæði hann og Steinn Steinarr Kjallarinn Hólmfríður K. Gunnarsdóttir ortu um. Tómas seg- ir: „Já, Steinn var húmoristi og honum gekk ekkert iilt til. En svo kom eitthvert annað skáld ofan úr Borgarfírði og fór líka að yrkja um hann í svipuðum tón, án þess að hafa svo mikið sem séð hann, að ég held.“ Þetta segir Tómas eftir að Guðmundur hefur löngu skipað sér sæti á skálda- bekk. Þessi athuga- semd særði Guð- mund. Lagercrantz lærði „Lagercrantz lærði feiknin öll af Ijóðum utanbókar þegar hann á unga aldri dvaldist langdvölum á berklahælum. Kunnáttan hefur komið sér vel, einkum þegar hann á erfitt með að sofna. Þá dundar hann sér við að rifja upp kvæði og leita þess sem á kann að vanta í minnið. “ feiknin öll af ljóðum utanbókar þegar hann á unga aldri dvaldist langdvölum á berklahælum. Kunnáttan hefur komið sér vel, einkum þegar hann átti erfitt með að sofna. Þá dundar hann sér við að rifja upp kvæði og leita þess sem á kann að vanta í minnið. Þetta verður eins konar dægradvöl undir svefninn eða krossgáta orðanna. Hann segir að utanbókarlærdómur sé auður sem enginn geti rænt. Og utanbókar- lærdómur getur komið að gagni til annars en sem vopn gegn svefn- leysi. Höfundar kallast á Aftur kemur mér í hug atvik úr bók Silju um sólarskáldið. Þar seg- ir frá bréfi Guðmundar Sigurðs- sonar til frænda síns Böðvarsson- .ar, en Guðmundur Sigurðsson fór með Sigurði Jónssyni frá Hauka- gili í heimsókn í Gljúfrastein Hall- dórs Laxness. Guðmundur hafði tekið Sigurði vara fyrir að flytja ljóð yfir Halldóri. Sigurður lét sér það að kenningu verða en flutti þó eitt fyrir kurteisissakir. Þarna var staddur Kristinn E. Andrésson og var talað um skáld- skap - rétt einu sinni. Kvæðið Skáld eftir Guðmund Böðvarsson bar á góma og það hversu Tómas reiddist því kvæði, en það var svar Guðmundar við fyrmefndum viðbrögðum Tómasar við ljóði Guðmundar um Jón frá Hlíð. „Vildu menn fara yfir kvæðið og sjá hversu það mætti hneyksla hann svo sem það hefur gert. Ætlaði Halldór að skreppa uppá loft til að ná í ljóðabókina, en þá sá Sigurður að hér mátti spara honum ómak og las kvæðið upp úr sér.“ Frásögnin kemur heim og saman við það sem Lagercrantz segir að höfundar séu oftar en ekki að kallast á sín á milli, þótt lesendur verði þess ekki varir. í upphafi vitnaði ég til orða afa Lagercrantz sem sagði, að þótt það væri ágætt að hlusta á fagra tónlist eða lesa væri ennþá meiri heilsubót að skapa eitthvað sjálfur. í Breska læknablaðinu 31. júlí sl. birtist ritstjórnargrein sem fjallar um rannsóknir sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum og gefa vísbendingar um að sjúkling- ar sem þjást af asma og liðagigt geta bætt líðan sína með því að skrifa um vanlíðan sína. Kannski er kominn tími til að brúa bilið á milli sálar og líkama, segir höf- undur greinarinnar sem - eins og Tómas - trúir ekki fyrr en hann tekur á. En það var reyndar annar Tómas. Hólmfríður K. Gunnarsdóttir Skoðanir annarra Skipulögð glæpastarfsemi „Ég held að það sé mjög mikilvægt að kalla hlutina réttum nöfnum og ganga að þeim í samræmi við það. Það er um að ræða skipulagða glæpastarfsemi. íslend- ingar telja hana oft fjarri og tengja slíkt við mafiu, en þetta er skipulögð brotastarfsemi, nákvæmlega eins og mafla, og það er nauðsynlegt fyrir yflrvöld að átta sig á þessu. Við erum hér ekki að eiga við einn og einn mann sem misstígur sig. Við erum að eiga við menn sem eru í skipulagðri brotastarfsemi sem stendur yfir í langan tíma og hefur alvarlegar afleiðingar." Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsdeildar ríkis- lögreglustjóra, í Mbl. 25. sept. Örmagna sjávarútvegur „Viðskiptahallinn er fyrir löngu orðinn óviðráðan- legur og skuldir sjávarútvegsins aukast um nær millj- arð á mánuði. Kvótakaupin munu fyrr eða síðar ganga að honum örmagna, því kvótaseljendur hirða sitt á þurru þegar þeir yfirgefa atvinnugreinina, en skuldirnar verða eftir hjá útgerðarfyrirtækjunum ... Ef vel er að gáð gæti verið að í ljós kæmi að allt hið mikla lánsftármagn, sem lánastofnunum er svo út- bært, eigi einhverja sök á því að efnahagslífið er að fara úr böndunum ... Rikisstjórnin og vel haldnir ráð- gjafar hennar kunna engin önnur ráð til að sporna við verðbólgu en að hækka vexti og hóta almennu launafólki afarkostum ..." Oddur Ólafsson í Degi 25. sept. Forsetaembættið kyndugt fyrirbæri „Hver gefur okkur rétt til að velta okkur upp úr kynnum embættismanns við annan einstakling ef umrædd kynni hafa engin áhrif á embættisstörfm? ... Fyrirmennasnobb örsmárrar þjóðar á hjara veraldar, sem vill „vera með“ í öllu, er grátbroslegt og dýrt. Ég veit ekki hvort fleiri eru haldnir sömu tilfmningu en mér fmnst forsetaembættið orðið æ kyndugra fyrir- bæri. Er nauðsynlegt að lýðveldið greiði hæfileika- fólki há laun fyrir að ferðast um heiminn, heilsa hátt- settum gestum og segja okkur með miklum alvöru- þunga í ræðum að tvisvar tveir séu fjórir, vatn sé blautt og menning betri en ómenning?“ Kristján Jónsson i Mbl. 25. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.