Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
13
Mörg andlit ellinnar
Mikil auðlind
Ellin hefur mörg andlit eins og
reyndar öll æviskeið mannsins.
Börn alast upp við ólíkar aðstæð-
ur, unglingar rata misvel i gegn-
um umbrotatíma, ungir og full-
orðnir eru mishraustir og líðan
þeirra ólik. En eitt hafa þeh- und-
antekningarlaust sameiginlegt
sem lifað hafa lengi: langa reynslu
„Miklu fleiri aldraðir en við höldum eru eldhressir, margir lifa við þolanlega heilsu og yfirgnæfandi meirihluti
aldraðra íslendinga býr á eigin heimili," segir m.a. í grein Þóris. - Eldri borgarar á tölvunámskeiði.
Ellin hefur mörg and-
lit. Miklu fleiri aldraðir
en við höldum eru eld-
hressir, margir lifa við
þolanlega heilsu og yf-
irgnæfandi meirihluti
aldraðra íslendinga býr
á eigin heimili. Sumir
þurfa litla sem enga
hjálp, aðrir minni eða
meiri eftir þörfum. En
hlutfallslega fæstir 67
ára og eldri dveljast á
langdvalastofnunum.
Margir kvíða
Engin ástæða er þó
til að að fegra ellina eða
varpa á hana rósroða
ævikveldsins. Sumir
þjást mikið og aðrir
minna. Við þurfum að
hlúa einstaklega vel að þeim og
láta þá finna að þeir eru mann-
eskjur eins og við með tilfinning-
ar, þekkingu og vit. Óttinn við að
fá ekki aðhlynningu þegar við
þörfnumst hennar getur valdið
óbærilegri tilfinning sem skapar
öryggisleysi og kvíða á efri árum.
Sömuleiðis veldur það mikilli
óvissu og öryggisleysi að þurfa að
bíða í langan tíma eftir hjúkrun og
umönnun og getur stuðlað að óró-
leika og jafnvel þunglyndi. Einnig
kvíða því margir að verða á sinum
tíma álitnir „út úr heiminum" og
án skynjunar þó að við getum ekki
tjáð okkur eða svörum eins og út í
hött. Ég hef þá skoðun að mann-
eskjan þurfi að vera mjög alvar-
lega veik og nánast heiladáin til
þess að vera skynlaus. Því ætti að
hlúa einstaklega vel að veikum
öldruðum.
Kjallarinn
og mikla þekkingu.
í öllu fólki, ekki síst
fullorðnu og gömlu,
býr mikil auðlind.
Og mikið er rætt
um auðlindir á okk-
ar tímum. Með
öldruðum býr
miklu meiri auð-
lind en okkur grun-
ar - og við höfum
ekki nýtt hana sem
skyldi. Sérþekking
er nauðsynleg allri
framþróun lífs.
Þröngsýnn og ein-
sýnn fræðimaður
sér þó stundum
skemmra en reynd-
ur, gamall og ófag-
lærður maður.
íslendingar eiga
bæði gamalt fólk með mikla visku
og þekkingu án sértækrar fræði-
legrar og hefðbundinnar menntun-
ar og aldraða með langa reynslu
og mikla fræðilega menntun. Þeg-
ar þessum auði er safnað saman
Þórir S.
Guðbergsson
félagsráðgjafi
og hann vel nýttur renna upp
vænlegir tímar. Þó að sumt gamalt
fólk sé lasburða og geti illa nýtt
hæfileika sína vonum við að þjóð-
in þurfi ekki sifellt og endalaust
að naga sig I handabökin án að-
gerða og framkvæmda og segja: Ó,
hvað væri nú gott að nýta hæfi-
leika, þekkingu og reynslu aldr-
aðra.
í riti sínu Um ellina segir
Clceró þegar vinir hans hafa sagt
hvað ellin virðist honum léttbær
sakir frábærrar visku hans: „Ég
held, vinir mínir,
að þið dásamið
það sem í raun er
alls ekki vanda-
samt; þeim sem
ekki hafa tök á að
áorka neinu sér
til farsældar í líf-
inu, er sérhvert
aldursskeið þung-
bært; þeim sem á
hinn bóginn leita
lífsins gæða innra
með sér, verður
ekkert það vand-
meðfarið sem lög-
mál lífsins hefur í
för með sér.“ (Um ellina í þýðingu
Kjartans Ragnars).
Ellin hefur mörg andlit, jafn-
mörg og fjöldi aldraðra. Höldum
áfram að spyrja með gagnrýni: Er
eitthvað í okkar valdi sem getur
bætt líðan okkar?
Þórir S. Guðbergsson
„íslendingar eiga bæði gamalt
fólk með mikla visku og þekk-
ingu án sértækrar fræðilegrar og
hefðbundinnar menntunar og
aldraða með langa reynslu og
mikla fræðilega menntun. Þegar
þessum auði er safnað saman og
hann vel nýttur renna upp væn-
legir tímar.“
Fagnaðarerindið
Kvótakerfi
Skelfilegar fréttir eru þetta sem
berast frá Hrísey. Á maður virki-
lega eftir að sjá þar sömu afleið-
ingcuriar af kvótakerfinu eins og
við lentum í á Þorskafirði? Húsin
verðlaus og í eyði og enginn nema
fuglinn fljúgandi telur að hægt sé
að hafa þar búsetu, sagði Sveinn
gamli, sem flosnaði upp frá
Þorskafirði vegna kvótabrasks.
Var ekki Davíð búinn að lofa end-
urskoðun á fiskveiðikerfinu? Og
hvað er hann að gera þessi ungi
sjávarútvegsráðherra? Stendur
hann bara með LÍÚ og boðar fagn-
aðarerindið um kvótakerfi íslend-
inga úti í löndum?
Væri ekki nær að líta sér nær
og sjá um að öll landsbyggðin
flytti ekki á suðvesturhornið með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum?
Bamaskólamir hér á svæðinu yf-
irfullir af flóttamannabörnum og
húsnæðisvandinn hreint ótrúleg-
ur. Fasteignasalarnir hafa ekki
annað að gera en setja miða inn
um lúgur Reykvíkinga til þess að
bjóða aðstoð sína frítt við að verð-
leggja íbúðir því að þeir hafa ekki
lengur neinar eignir til að bjóða.
Of seint að lækka
fasteingagjöid
Já, Sveinn minn. Ekki nóg með
það að þeir sem eru svo vitlausir
að láta glepjast
og selja húsin
sin, glaðir, á ok-
urverði era hús-
næðislausir dag-
inn eftir og
verða að borga
enn hærra okur-
verð fyrir annað
hús. Ekki alveg
eins glaðir. Ein-
ar K. þingmaður
Vestfjarða boðar
auknar ráðstöf-
unartekjur á landsbyggðinni.
Lækkun fasteignagjalda vegna
hmns markaðverðs úti á landi,
lækkun húshitunarkostnaðar,
jöfnun námskostnaðar og lagfær-
ingu á vegum. Til hvers? Fyrst
stjómin lagfærir ekki kvótakerfið
sem er undirstaða velferðar á ís-
landi þá fæst einfaldlega enginn til
þess að búa úti á landi.
Veistu það, Svana min, að þetta
er nú sem betur
fer ekki alveg eins
svart og við höld-
um. Ég heyrði í út-
varpinu í morgun,
og margir aðrir, já
margir, að Þing-
eyringar væru
búnir að fá at-
vinnu við að svara
í síma hjá stórfyr-
irtæki. Og það era
alls konar hug-
búnaðarfyrirtæki
að hasla sér völl
úti á landsbyggð-
inni. Það gæti
kannski verið hið
besta ráð að setja
allt fiskvinnslu-
battaríið á tölvu-
námskeið og í stað þess að verka
fisk, sætu allir með tölvur og tól.
Ég er margbúinn að heyra að við
séum fremstir meðal þjóða hvað
hugbúnað snertir.
Austfirðingar í álið
hinir í hugbúnað
Og Svana og Sveinn lögðu höfuð-
ið í bleyti. Vestfirðingar, Hrísey-
ingar og fleiri sem höfðu farið illa
út úr kvótakerfmu færa allir að
vinna við hugbúnaðarfyrirtæki.
Austfirðingar myndu að sjálfsögðu
fara í álið og sökkva Eyjabökkum,
en það er bara ekki nóg. DV grein-
ir frá þvi að þrír fulltrúar
frá World Wildlife Fund
hafi fengið þær upplýs-
ingar frá Norsk Hydro að
hagkvæmasta stærð nýs
álvers væri 240 þúsund
tonn, ekki 120 þúsund
tonn eins og Landsvirkj-
un segir í sínum arðsem-
isútreikningum. Þar með
dugar fyrirhuguð Fljóts-
dalsvirkjun hvergi. - Þá
er bara að virkja Kára-
hnjúka til viðbótar. Eða
hvað?
Nú hefur Nils Gíslason
á Akureyri fundið upp og
er að hanna nýja gerð af
vindmyllum. Mun ódýr-
ari en þær útlensku. Já,
hvað með vindmyllm'?
Væri ekki hægt að setja upp fjöld-
ann allan af vindmyllum á Austur-
landi, nóg er rokið á íslandi? Hvað
segja náttúruvemdarsinnar við
því? Færi þá ekki fyrir brjóstið á
þeim sjónmengun? Og svo hefur
það heyrst að sjaldgæfir fuglar
lentu stundum í vindmyUuspöðun-
um en þeir farast raimar líka við
raforkumannvirki. Og þá er eftir
ein leið enn, að setja upp virkjun á
borð við Kröflu. Eftir þessar ráð-
stafanir myndu menn una glaðir
við sitt þarna úti á landsbyggðinni.
Hinir flyttu á mölina.
Ema V. Ingólfsdóttir
„Já, hvað með vindmyllur? Væri
ekki hægt að setja upp fjöldann
allan af vindmyllum á Austurlandi,
nóg er rokið á íslandi? Hvað segja
náttúruverndarsinnar við því?
Færi þá ekki fyrir brjóstið á þeim
sjónmengun?“
Kjallarinn
Erna V.
Ingólfsdóttir
hjúkrunarfræðingur
I IVIeð og á móti
Listaháskóli íslands í Hafn- arfjörð?
Þann 10. september sl. var Listahá-
skóli íslands settur f fyrsta sinn. Fyrir
löngu var ákveöið að skóiinn fengi
inni í svonefndu SS-húsi á Laugar-
nestanga. Nemendur og kennarar hafa
verið misjafnlega ánægðir með að-
stöðuna þar og því hafa umræður
vaknað um að finna skólanum nýtt
húsnæði. Hafnfirðingar hafa sýnt
áhuga á að bjóða skólanum aðstöðu f
bænum og hefur sá áhugi m.a. vakiö
athygli menntamálaráðherra, Björns
Bjarnasonar.
Almennur áhugi
meðal bæjarbúa
„Ég held að það hljóti að vera
metnaður hvers bæjarfélags að
hafa sem fjölbreyttastar stofnanir
í sínu samfé-
lagi. Listahá-
skóli á auðvitað
alveg eins mik-
ið erindi til
Hafnarfjaröar
eins og annað. í
sjálfum sér hafa
Hafnfirðingar
ekki haft af
miklu að státa
þegar opinberar
þjónustustofn-
anir eru annars vegar. Hitt er svo
aftur annað mál hvernig semst
hugsanlega um þessa liluti og
hvað sveitarfélagið er tilbúið að
leggja til i þeim etoum. Ég þykist
vita að menn séu tilbúnir að
skoða það í fullri alvöru en í sann-
leika sagt hefur ekki farið fram
nein umræða af alvöru um þessi
mál í bæjarkerfinu. Þetta er því
enn óskoðað mál en hugmyndin
er engu að síður góð og ekki vafi
á því að það er almennur áhugi
meðal margra bæjarbúa að fá
stofnun eins og Listaháskólann til
bæjarins."
Á heima \
Lúðvík Geirsson,
bæjarfulltrúi F-list-
ans í Hafnarfirðf.
höfuðborginni
„Listaháskóli á hvergi heima
nema í höfuðborginni. Mennta-
stofnun á borð við listaháskóla
Kolbrún Bergþórs-
dóttir blaðamaður.
hlýtur að þurfa
að vera í stöð-
ugum tengslum
og samstarfi við
stærstu söfn
landsins, sýn-
ingarsali og Há-
skólann og
þessar stofnan-
ir er að finna í
Reykjavík. Hug-
myndir manna
um að flytja skólann í annað bæj-
arfélag era út í hött en vissulega
skil ég sjónarmið Hafnfirðinga
sem vilja fá svo finan skóla í sinn
bæ. Ég skora á borgarstjóra að
beita sér í þessu máli og gefast
ekki upp enda á það ekki að líðast
að æösta menntastofnun á sviði
lista og menningar hrökklist burt
úr borginni. Listaháskólanum
fylgir fjölbreytt mannlíf og af því
veitir svo sannarlega ekki í
Reykjavík, Það vekur furðu mína
að jafngáfaður maður og Bjöm
Bjarnason skuli taka undir hug-
myndir manna um að flytja skól-
ann til Hafnarfjarðar. Mér dettur
helst i hug að hann sé að stríða
borgarstjóra með þessu. Ef menn
eru ekki sáttir við húsakost skól-
ans á Kirkjusandi hljóta að vera
til aðrar og betri lausnir en flutn-
ingur til Hafnarfjarðar." -aþ
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum i blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu. DV áskilur
sér rétt til að birta aðsent efni á
stafrænu formi og í gagnabönk-
um.
Netfang ritstjómar er:
dvritst@ff.is