Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
39«
Mörgum þykir
kryddpían mögur
Victoria Adams kryddpía þyk-
ir vera orðin svo mögur að
margir hverjir eru farnir að hafa
af því hinar mestu áhyggjur. All-
ir eru þó ekki á sama máli. „Það
er engin ástæða til að hafa
áhyggjur af heilsu hennar," seg-
ir talsmaður kryddpíunnar og
fótboltamannsfrúarinnar.
Ekki eru mörg ár siðan Vict-
oria þótti ágætlega rúnnuð í lag-
inu en frá fæðingu sonarins
Brooklyns hefúr þótt síga á
ógæfuhliðina i þeim efnum.
Cicciolina við-
urkennir njósnir
Klámdrottningin fyrrverandi,
þingkonan, fatafella og guð má
vita hvað, Cicciolina, hefur við-
urkennt fyrir alþjóð á Ítalíu að
hún hafi stundað njósnir á æsku-
árum sínum. Cicciolina, sem
reyndar er af ungversku bergi
brotin, vann samhliða námi á
hóteli í Búdapest. Útsendarar
ungversku leynilögreglunnar
buðu henni þá hærri laun fyrh-
að gefa skýrslur um fólk sem
hún hitti. Og þáði hún það.
Sviðsljós
Það á ekki af aumingja Jack
Nicholson að ganga. Nú hafa
tveir landar hans stefnt honum í
kjölfar smávægilegs áreksturs í
HoOywood í sumar. Nicholson
var við stýrið og með honum í
bílnum var Lara Flynn Boyle,
leikkona og nýjasta kærasta
stórleikarans. Eigandi bílsins
var tilvonandi tengdamamma
Nicholsons. Lögeglan segir að
hvorugur bílstjórinn hafi verið
undir áhrifum áfengis. Tveir
hlutu smávægilegar skrámur.
Jakkinn er fallegur og sömuleiðis hálsfestin sem fyrirsæta þessi skellti á sig á tískusýningu í Mílanó á Ítalíu um helg-
ina. Kynning vor- og sumartískunnar fyrir næsta ár stendur nú sem hæst í háborg tískunnar á Ítalíu. Sá sem á heið-
urinn af þessum fatnaði heitir Roccobarocco. Sýningunum lýkur með framlagi Versaces 1. október.
Julia tjaldar í
eyðimörk
Julia Roberts hefur tekið sér
frí frá kvikmyndaleik í
Hollywood og er nú stödd í
Mongólíu þar sem hún leikur í
hreskri heimildarmynd um
villta hesta.
Kvikmyndadísin mun tjalda i
eyðimörkinni og verður því
langt frá þeim lúxushótelsvítum
sem hún er vön að dvelja í þegar
hún er á ferðalagi.
í mál við Jack
eftir árekstur
Hvorki trúlofun
né hjónavígsla
Michael Douglas og Catherine
Zeta-Jones efndu hvorki til trú-
lofunar- né brúðkaupsveislu á
sameiginlegum afmælisdegi
þeirra beggja síðastliðinn laug-
ardag. Parið hélt hins vegar upp
á afmælisdaginn í faðmi fjöl-
skyldu og vina í finum klúbb í
New York. Meðal frægra gesta
var Christopher Reeve.
Catherine fékk demantseyrna-
lokka í gjöf frá Michael. Ekki
hefur frést af því hvað hún gaf
sínum heittelskaða. Hún söng
hins vegar fyrir hann í veisl-
unni.
Liam reyndi að
smygla pelsi
Oasisstjarnan Liam Gallagher
reyndi að smygla dýrum pelsi til
Englands um helgina en var
stöðvaður í tollinum á
Heathrow. Pelsinn var handa
eiginkonu Liams, Patsy. Liam
gekk inn um græna hliðið og “*
harðneitaði að greiða toll. Eftir
hávær mótmæli gaf hann sig að
lokum og neyddist til að greiða
um 170 þúsund íslenskar krónur
til tollsins.
Agassi og Graf
eru ástfangin
Undanfamar vikur hefur banda-
ríska pressan velt því fyrir sér
hvort Andre Agassi og Steffi Graf
eigi eitthvað meira sameiginlegt en
hara tennisinn. Nú hefur Agassi
staðfest í viðtali við CNN-sjónvarps-
stöðina að þau Steffi séu ástfangin.
„Þetta þróaðist harðar en við
mátti búast. En örlögin em undar-
leg og það er jú gaman þegar niður-
staðan verður jákvæð," sagði Agassi
við sjónvarpsáhorfendur.
Agassi, sem er 29 ára, og Graf,
sem er þrítug, sáust saman í Las
Vegas í síðustu viku. Á laugardag-
inn vom þau viðstödd hnefaleika-
keppnina milli De La Hoya og Trini-
dad.
„Mér líður vel með Steffi og nýt
þeirrar góðu tilfinningar sem sam-
vistirnar við hana veita mér,“ út-
skýrði Agassi.
Ekki er liðnir nema fimm mánuð-
Steffi Graf á leik Agassis og Todds
Martins fyrr í þessum mánuði.
ir síðan Agassi og kvikmyndaleik-
konan Brooke Shields skildu eftir
tveggja ára hjónaband.
Mangar vangaveltur voru um or-
sök skilnaðarins. Ýmsir töldu að
Agassi hefði átt erfitt með að sætta
sig marga karlkynsvini frúarinnar.
Tveimur mánuðum eftir skilnaðinn
lagði Brooke Shields áherslu á að
hún og Agassi væm enn miklir vin-
ir. Þau hefðu hins vegar aldrei haft
tíma hvort fyrir annað vegna anna.
Agassi og Brooke vom svo miklir
vinir eftir skilnaðinn að þau héldu
upp á afmælisdag hans saman.
Hann bað hana einnig um að
koma með sér til Parísar. Nú er
Graf hins vegar konan í lífi Agassis.
Graif, sem hætti tennisleik fyrr í
sumar, hætti nýlega við kærastann
sinn, rallkappakstursmanninn
Michael Bartels. Þau höfðu verið
saman í sjö ár.