Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1999 11 Fréttir Sauöfjárbændur í Strandasýslu á fundi sínum þar sem landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, var meðal fundar- manna. DV-mynd Guðfinnur Guðni Ágústsson á fundi með sauðQárbændum á Ströndum: Ég vil sjá sterka og öfl- uga bændur í landinu - og er þá ekki að tala um stórbændur Tvennt veldur því að kjör sauð- fjárbænda munu dragast saman á næstunni, minnkandi neysla kinda- kjöts samfara auknu framboði á þessu hausti, auk þess sem sala kjöts til útlanda skilar lægra verði en á innanlandsmarkaði. Þá er gæruverð í algjöru lágmarki. Strandabændur fjölmenntu á dögun- um til fundar um landbúnaðarmál- in og vandamálin sem við blasa. Þar var mættur landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson. Gnótt áhrifafólks í íslensku þjóð- lífi, og ekki síst það sem lætur sig landbúnað varða, hefur sótt Strandamenn heim að undanförnu og kynnt sér viðhorf þeirra, aðstæð- ur og hagi. Nýverið kom landbúnað- amefnd Alþingis með fríðu fóru- neyti og hélt alla leið norður í Ár- neshrepp með viðkomu á mörgum stöðum. Meðal annars leit hópurinn DV, Akranesi: Allri áhöfn Sveins Jónssonar KE 9, sem er í eigu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækisins Haraldar Böðvarssonar hf., hefur verið sagt upp störfum og skipið sett á sölu- skrá. Fór Sveinn Jónsson í sína síð- ustu veiðiferð fyrir HB hf. nýlega og verður seldur án aflaheimilda. Kvóti Sveins verður samkvæmt heimildum DV fluttur yfir á frysti- inn í sláturhúsið á Hólmavík og náði nefndarfók þar sambandi við allmarga úr bændastétt og lögðu nokkrir þar hönd að verki. Vel þótti til takast er verið var að slátra dilk- um frá tveimur af bestu sauðfjár- bændum landsins, þeim Bimi H. Karlssyni á Smáhömrum og Guð- brandi syni hans, enda fullvíst talið að flestir úr hópi gestanna beri gott skynbragð á vel byggt sauðfé. Öllu fróðari hafa þó farið af fundi með Strandamönnum þeir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Jóhannes Ríkharðsson ráðunautur og bóndi, og Þorsteinn Benónýsson, framkvæmdastjóri Norðvestur- bandalagsins, sem allir sóttu aðal- fund Félags sauðfjárbænda í Strandasýslu. Margt athyglisvert kom fram á fundinum. Meðal annars að útflutn- ingshlutfall dilkakjöts hækkar á togarann Harald Kristjánsson frá Hafnarfirði sem HB keypti fyrir skömmu. Auk þess hefur HB keypt 600 tonn í auknum kvóta á Harald. Full áhöfn fylgir Haraldi Kristjáns- syni þannig að ljóst er að þeir sjó- menn sem störfuðu á Sveini Jóns- syni missa vinnu sína en þeir búa allir á höfuðborgarsvæðinu. Harald- ur er í slipp þessa dagana og vonast er til að hann fari í sína fyrstu veiði- ferð fyrir HB í vikunni. -DVÓ þessu hausti i 25%, en var 15% á síðasta ári. Þessu veldur minnkandi neysla síðustu mánuði og aukið framboð á þessu hausti vegna ijölg- unar ásetnings. Bent var á að margar aðgerðir, ekki síst stjórnvalda, sem gætu haft áhrif og bætt kjör bænda. Meðal annars var bent á að afnema mætti skyldu bænda að gefa upp af fram- legð búsins, bæði kjöt og garðávexti til heimilisins, og vísað til þess að sjómenn tækju eins og þeim sýndist af fiski til neyslu og þyrftu engum skil að gera þess vegna. Þá var bent á að vöruverð á landsbyggðinni myndi lækka ef einyrkjar i flutning- um fengju að sitja við sama borð og stóru flutningafyrirtækin, Eimskip og Samskip, sem ekki greiða virðis- aukaskatt af flutningum. Þá var rætt um að búsetuskilyrði sauðfjár- bænda sem við mikla landkosti búa yrðu bætt með auknum stuðningi og búsetuframlögum. Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, sagði á fundinum að í dag krefðist fólk góðra og mengun- arlausra landbúnaðarafurða. Víða í Evrópu væri ekki hægt að verða við þeim óskurm, einkum þegar hvita kjötið ætti í hlut. Vitnaði hann i Kristján Jóhannsson stórsöngvara, sem hefur sagt að íslendingar fram- leiði heimsins besta lambakjöt. Ráð- herrann sagði mikið reyna á sauð- fjárbændur á þessum tímum, en hann hefði tröllatrú á þeim. Hann kvaðst þó ekki vera sölustjóri þeirra né heldur gæti hann það. „Ég vil sjá sterka og öfluga bændur í landinu og er þá ekki að tala um stórbændur," sagði Guðni Ágústs- son á fundinum, sem 50 manns sátu. Formaður félagsins er Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum. -Guðfinnur HB hf. setur skip á söluskrá: Áhöfninni á Sveini Jónssyni KE sagt upp Okkar árlega \j0itödúkaútsa/a ““ 40% ©EEESEI af matar- og kaffídúkum, ' blúndudúkum, handhekluðum borðdúkum V og ýmiss konar jóladúkumj m straufrí damask- borðdúkaefni, verð frá 500. 20 afslátur. hófst í morgun. Tilbúin vöggusett, aðeins 1.200 kr. settið. Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74, sími 552 5270. Á t i 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.