Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Síða 18
i8 menning MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1999 JD'V Banvæn ást Harmleikur er þegar góðir menn granda hver öðrum og eiga ekki annarra kosta völ ef æra þeirra á ekki að bíða hnekki. Þannig fór fyrir Flosa forðum og þannig fer líka fyrir Þeseifi konungi í Aþenu þegar hann hlýtur að trúa fóstru konu sinnar en ekki syni sínum, Hippólítosi. í veði er æra Fedru drottningar sem hefur játað Hippólítosi ást sina af því að hún heldur að Þeseifur sé fallinn. Þegar Þeseif- ur kemur aftur óttast hún að Hippólítos komi upp um hana og leyfir að smánarbletturinn falli á hann saklausan - með hörmulegum afleiðing- um. Leikrit franska 17. aldar skáldsins Jean Racine um Þeseif, Fedru, Hippólítos og Arisíu prinsessu, sem Þeseifur hefur í haldi, er áhrifa- mikil könnun á sjúkri ást. Fedra er ástarfikiil sem eflaust gæti fengið þrepameðferð nú til dags. Hún er trufluð á geði, haldin fordæmdum tilfmningum. Hún á enga lífsgleði í kröm sinni, enda þráir hún í aðra röndina að deyja. I hina röndina þráir hún að sjálfsögðu að sameinast þeim sem hún elskar svona hamslaust. Leiklist Silja Aðalsteinsdóttir Fedra er magnþrungið leikrit og texti þess verður í þýðingu Helga Hálfdanarsonar hæfi- lega upphafinn án þess að vera tilgerðarlegur, hæfilega bundinn án þess að þrengja að merk- ingu, og það var yndi að hlýða á leikara Þjóð- leikhússins fara með hann undir stjóm Sveins Einarssonar. Að mínu mati ber Hilmir Snær Guðnason af í hlutverki Hippólítosar, kannski vegna þess hve vel hann rennur saman við persónu sína. Á sviðinu sjáum við lífsglaðan, glæsilegan og ábyrgan ungan konungsson sem ber tign sína eðlilega og orð hans urðu furðu óbókleg í munni Hibnis, eins og fagurt mælt mál. Þó að Halldóru Bjömsdóttur tækist ekki alveg eins vel að gera mál Arisíu að sínu vora atriðin milli þeirra tveggja það besta i sýning- unni, einkum hið fyma þegar Hippólítos gefur henni frelsi en bindur hana um leið við sig ást- arböndum. Aðalparið á sviðinu era þó ekki þau heldur Fedra drottning sem Tinna Gunnlaugsdóttir leikur og Önóna fóstra hennar. Anna Kristín Hippólítos og Arisía: ástvinir í meinum. Hilmir Halldóra Björnsdóttir í hlutverkum sínum. Arngrímsdóttir leikur þann ógæfusama róg- bera, rekin áfram af ást á drottningu sem hún hefur fómað öllu lífi sinu fyrir. Anna Kristín fór fimavel með hlutverk sitt, var hrygg og glöð, sár og reið, hlægileg og harmræn - eins og sú heilbrigða manneskja sem hún er i átök- um við ofurefli. En Tinnu leyfist engin léttúð eða tvíræðni, hún verður að vera innlifuð í harminn frá upphafi til enda og það er kannski ofurmannlegt á okkar tímum. Hætt- an er sú að hún verði fyndin óvart. Tinna sneiddi hjá þeirri hættu og átti innlifuð og stórkostleg augna- blik en þegar á leið varð túlkun hennar nokkuð einhæf. Búningar eru úthugs- aðir og sviðsmyndin ein- fóld og smekkleg og hæfir leikritinu prýðilega fram- an af en mjög þrengir að þegar Þeseifur konungur snýr aftur. Arnar Jóns- son lék hann af alvöru- þunga og nokkrum hama- gangi sem meðal annars olli því að orðaskil heyrð- ust stundum illa hjá hon- um. Skemmtilegri var leikur Gunnars Eyjólfs- sonar í hlutverki Þera- menes og afar áhrifarík lýsing hans í lokin á af- leiðingum rógsins. Sviðssetning Sveins Einarssonar er útúrdúra- laus og leggur höfuðá- herslu á textann. Okkur hefur undanfarið verið „spillt" með nýstárlegum uppsetningum á sígildum verkum og stundum nálg- ast sýningin á Fedru vandaðan leiklestur. En leikritið er frábært og enginn áhugamaður um leiklist ætti að missa af því að hlusta á Hilmi Snæ fara með texta Racine og Helga eins og hann hefði skrifað hann sjálfur. Þjóðleikhúsið sýnir á Smíðaverkstæðinu: Fedru eftir Jean Racine Helgi Hálfdanarson þýddi Lýsing: Ásmundur Karlsson Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir Leikstjóri: Sveinn Einarsson Snær Guðnason og DV-mynd S Verður allt sem fyrr? Leikrit Jökuls Jakobssonar hafa gengið í endumýjun lífdaga á undan- fomum áram og er uppsetning Leik- félags Akureyrar á Klukkustrengj- tun nýjasta sönnun þess. Jökull skrifaði verkið að frumkvæði norð- anmanna og var það frumsýnt í Samkomuhúsinu 1973. Leikritið er því hugsað fyrir lítið svið og aðeins gert ráð fyrir einni sviðsmynd. Að því er ýjað í samtölum persóna að ytri umgjörð verksins sé Akureyri en í reynd er það ekki bundið einum ákveðnum stað auk þess að vera nánast tímalaust og meðal annars þess vegna sem það hefúr elst jafh vel og raun ber vitni. Líkt og í öðram verkum Jökuls era það persónumar og samskipti þeirra sem allt snýst um. Bygging verksins er klassísk og sömuleiðis sú aðferð að kynna til sögunnar ut- anaðkomandi gest sem hrindir at- burðarásinni af stað. í Klukkustrengjum er orgelstillarinn þetta hreyfiafl og kemur dvöl hans á heimili frú Jórunnar rækilegu róti á vanabundna tilvera heimilisfólksins og fasta- gestanna sem koma í smákökur og sérrí á sunnudögum. Frú Jórann er sannfærð um að orgelstillarinn sé frelsarinn endurfæddur, Læla dóttir hennar verður einfaldlega ást- fangin af honum og Rannveig sér í honum gamla elskhugann sem hún getur ekki gleymt. Þó þeir Haraldur og Kristófer banka- gjaldkeri séu allt of sjálfhverfir til að verða snortnir af þessum unga manni fer ekki hjá því að áhrif hans á kvenfólkið snerti þá líka og á það ekki síður við um Eirík kærasta Lælu sem fær óvæntan keppinaut. Sjálfur er orgelstillarinn steinhissa á öllu fjaðrafokinu sem koma hans veldur enda ætlar hann sér ekkert annað en að stilla kirkjuorgelið eins og hann margtekur fram. Klukkustrengir er fyrst og fremst gaman- leikrit þó að vissulega sé einnig slegið á al- Ingibjörg Stefánsdóttir og Árni Pétur Reynisson í hlutverkum sín- um f Klukkustrengjum. Mynd Páll A. Pálsson varlegri strengi. Yfir vötnunum svífur ljúfsár tregi og þótt persónurnar bíði að ein- hverju leyti skipbrot er alls ekki hægt að segja að örlög þeirra séu harmræn. Valgeir Skagfiörð leikstjóri velur þá leið að undir- strika húmorinn en gætir þess jafnframt að draga hvergi úr þeirri kynferðislegu undir- öldu sem gætir svo mjög í samskiptum per- sónanna. Leikurunum gekk undantekninga- litið vel að koma þessum áherslum til skila og leikurinn var í flestum tilvikum jafn og góður. Túlkun Árna Péturs Reynissonar á Eiríki var stirð og sömuleiðis vantaði dálít- ið upp á tilfinningalega dýpt hjá Ingibjörgu Stefánsdóttur sem gerði engu að síður margt vel. Líklega má kenna um reynsluleysi því Leiklist Halldóra Friðjónsdóttir bæði hafa nýlokið námi eins og María Pálsdóttir sem fór með hlutverk Rannveigar. Reynslu- leysið háði henni hins vegar hvergi og henni tókst auðveldlega að gera Rannveigu að trúverðug- um og heilsteyptum karakter. Samleikur Maríu og Sigurðar Karlssonar var sérlega góður og Ingibjörg á sinn besta sprett í at- riði þar sem þær tvær kljást um orgelstfilarann á skrautlegan hátt. Sigurður þurfti lítið að hafa fyrir Haraldi og Aðalsteinn Berg- dal fór á kostum í hlutverki Kristófers. Kristófer er ekki bara hallærislegur og fyndinn í með- förum Aðalsteins heldur tekst honum að líka að gera hann aumkunarverðan og þar með mannlegan. Þá er aðeins eftir að nefna Sunnu Borg sem lék Jór- unni af skörungsskap. Snobbið og smáborgaraskapurinn komst vel til skila, sem og frekjan en einnig þráin eftir lífs- fyllingu sem Jórunn vonast til að fá hjá Haraldi þegar orgelstillarinn bregst. Það var helst að tilgerðin í hreyfingum Jór- unnar væri einum of yfirdrifm. Leikmynd Vignis Jóhannssonar var einföld og stílhrein og þjónaði sínu hlut- verki vel. Þessi uppsetning á Klukku- strengjum markar engin timamót enda ákaflega hefðbundin að öllu leyti. Ágætt leikrit og vönduð vinna allra sem að sýning- unni standa tryggja hins vegar leikhúsgest- um notalega kvöldstund í Samkomuhúsinu. Leikfélag Akureyrar sýnir í Samkomuhúsinu: Klukkustrengi eftir Jökul Jakobsson Hljóömynd: Kristján Edelstein Lýsing: Ingvar Björnsson Leikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson Leikstjórn: Valgeir Skagfjörð Eftirminnileg og raunsönn Brotahöfuð Þórarins Eldjáms kemur á markað í Bandaríkjunum í þessum mánuði en þegar hefur birst lofsamleg umsögn um hana í Publishers Weekly, al- þjóðlegu upplýsingariti um bókaútgáfu og bóksölu sem gefið er út í Bandaríkjunum. í gagnrýni blaðsins segir að sagan nái fostum tökum á les- andanum, hún gerist á myrk- um tímum í fiarlægu, köldu landi en sé í raun thnalaus þannig að aðalpersónan, Guð- mundur Andrésson, og vand- ræði hans verði „afar eftir- minnileg og einstaklega raunsönn". Banda- rískir bóksalar taka mið af Publishers Weekly þegar þeir panta bækur og því skiptir miklu að fá góða umsögn þar. Brotahöfuð kom út fyrr á þessu ári í Englandi og Vaka-Helgafell hefur einnig gengið frá samningum um finnska útgáfu hennar. Skáldsagan var tilnefnd til Aristeion-verðlaunanna, Bókmenntaverð- launa Evrópu, í fyrra og komst þar í úrslit og var lögð fram af íslands hálfu til Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs i ár. Bemard Scudder þýðir Brotahöfuð á ensku en svo skemmtilega vill til að hann var til- nefndur til Aristeion-verðlaunanna um leið og Þórarinn en í hópi þýðenda. Ósamkvæmni Forræðishyggjan er í öndvegi í nýju bamaleikriti í Þjóðleikhúsinu, Glanna glæp í Latabæ, enda eins gott, hinn almenni borgari í þeim bæ hefur engan sjálfstæðan vilja. Al- menningur hlýðir í blmdni þeim sem frekast- ur er, borðar grænmeti og gerir leikfimisæfingar undir stjóm íþróttaálfs- ins og hættir snarlega allri hollustu undir stjórn Glanna glæps. Dósagosið og orkuduftið hans Glanna eru fordæmd í verkinu, leikritið gengur beinlín- is út á það, svo og sælgæti sem Glanni not- ar til að teyma þá veiklunduðustu á asna- eyrunum. Um leið er vandlega komið til skila að best af öllu nammi séu gulrætur sem maður ræktar sjálfur. Svo koma áhorfendur inn úr hléi, klyfiað- ir skrjáfandi sælgætispokum - enda ekki annað í boði í sjoppunni. Væri nú ekki sniðugt hjá leikhúsinu að sefia upp skilti yfir sælgætissölunni: í dag er ekki nammidagur, og selja mjólkur- drykki og grænmeti í staðinn fyrir súkkulaðið, karamellumar og lakkrísinn? Þá væri boðskapurinn meira en orðin tóm. Dýr Degas Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum franska impressjónistans Degas á Ordrupgaard í Charlottenlund í Danmörku. Gífúrlegar varúðarráðstafanir vora gerðar þegar málverkin vora flutt milli safna og fylgdu þeim bæði lifverðir og lögreglulið. Meðalflutaingskostnaður á hvert málverk er talinn nema um einni milljón króna. Ja, dýr mundi Degas allur, hefði einhver sagt. En sýningin fær hinar bestu umsagnir og hangir uppi til 28. nóvember. nys Lloyd-Webber og Irland Unglingar, trúardeilur og fótbolti er efni söngleiks, The Beautiful Game, sem breska tónskáldið Andrew Lloyd-Webber er að vinna að um þessar mundir og verður frumsýndur á næsta ári. Meðhöfundur Andrews er Ben Elton sem meðal annars samdi leikritið Poppkorn sem Þjóðleikhúsið sýndi vorið 1998. Söguþráður verksins mun verða byggður á ævi IRA-mannsins Bobby Sands sem svelti sig í hel í fangelsi 1981. Hann var félagi í Star of Sea fótbolta- klúbbnum í Belfast þar sem mótmælendur og kaþólikkar léku saman fótbolta í trássi við fiandskap trúfélaganna, og fótbolti leik- ur stórt hlutverk í verkinu. Kjarni þess er þó að sýna hvemig skinhelgi, hatur og trú- arofstæki getur eyðilagt líf fólks. wmmmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.