Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Qupperneq 32
44
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1999 DV
nn
Ummæli
Almenningur
er blekktur
„Skipun nefndarinnar end-f
urspeglar sýndarlýðræði af
verstu tegund, þar
sem almenningur
er blekktur með ;
göfugu markmiði |
en fyrirfram er
búið að ákveða J
niðurstöðuna."
Guðjón A. Krist-
jánsson alþingis-
maður, um nefnd sem endur-
skoðar lög um fiskveiðar, í
Morgunblaðinu.
Ráðherra að kenna
„Ráðherrann (landbúnaðar)
er maðurinn sem heldur uppi
óeðlilega háu verði á grænmet-
ismarkaðnum vegna þess að
við getum ekki flutt inn græn-
meti á eðlilegu verði. Ofurtoll- ,
amir standa þar í vegi.“
Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastj. Bónuss,
ÍDV.
Hálft og fullt
„Maður kaupir jógúrtdollu
og hún er hálf. Maður er alltaf
að kaupa háift af
öliu á fullu verði.
Það er allt hálft
héma nema hvað
íslendingar sjáifír
eru alltaf fullir."
Sverrir Stormsker, |
í Fókusi.
Dauður eða lifandi
„Samkvæmt ástandi mínu í
dag, miðað við útreikninga lík-
amsræktarstöðva sem vilja
manni allt hið besta fyrir hæfi-
lega þóknun, ætti ég að vera
dauður fyrir löngu. En þrátt
fyrir alla útreikninga sérfræð-
inga líkamsræktarstöðva-
heimsins er almennt álit á
mínu heimifi að ég sé lifandi."
Benedikt Axelsson skóla-
safnskennari, í DV.
Úrelt stofnun
„Sú viðleitni forsvarsmanna
RÚV að setja á fót sjónvarps-
rás í samkeppni
við einkaaöila er
sorglegt dæmi um
hvernig menn
leitast við að
flnna úreltum
stofnunum nýtt
hlutverk og ný
verkefni."
Brynjólfur Þór Guðmunds-
son, form. Sambands ungra
jafnaðarmanna, í DV.
Ekkert Mikka mús-
verð fyrir Hermann
„Þetta er ekki Disneyland og
hér eru engin Mikka músar-
verð í gangi.“
Ron Noads, knattspyrnu-
stjóri Brentford, um tilboð í
Hermann Hreiðarsson, í
Morgunblaðinu.
4
Hrafnhildur Njálsdóttir, framkvæmdastjóri Jurtagulls í Keflavík:
Ég læt draumana rætast
DV, Suðurnesjum:
„Ég gekk með hugmyndina að fyrir-
tækinu i átta ár þangað til ég ákvað
að fara út í þessa framleiðslu," segir
Hrafnhildur Njálsdóttir, fram-
kvæmdastjóri og eigandi fyrirtækis-
ins Jurtagulls í Keflavík.
Fyrirtækið Jurtagull sérhæfir sig í
hársnyrtivörum og sápum úr íslensk-
um jurtum og nú hefur hol-
lenskt heildsölufyrirtæki
ákveðið að selja vörur þess.
Hrafnhildur, sem er lærður
hárskeri og rak í fjölda ára eigin
stofu, var að vinna við iðnina í Dan-
mörku þegar hugmyndin kviknaði
fyrir alvöru. „Á stofunni þar sem ég
starfaði var keypt inn mikið af hár-
snyrtivörum frá ýmsum seljendum og
þegar ég komst að því að bestu vör-
urnar sem við seldum voru frá hár-
skera sem hafði þróað og framleitt
vörumar heima hjá sér þá sá ég að ég
gæti þetta örugglega eins og hann.
Það fyrsta sem ég gerði síðan eftir
heimkomuna var að undirbúa fyrir-
tækið sem byijaði framleiðslu sína
fyrir fjórum árum.“
Hrafnhildur segir fyrirtækið vera í
stöðugri þróun og nú stendur til að
selja vöruna úr landi. „Þetta kom
þannig til að ég fékk upphringingu frá
ungri hollenskri konu sem er lista-
verkasali og var stödd á Hótel Loft-
leiðum. Hún sagðist hafa keypt hár-
næringu frá Jurtagulli og varð svona
yfir sig hrifin að hún hafði uppi á mér
og bað mig að selja sér heilan kassa til
að fara með til Hollands, sem
og ég og gerði. Síðan fór hún
að hringja í mig reglulega.
Hún kynnti vöruna síðan fyrir stóru
heildsölufyrirtæki sem rekur fimmtíu
heilsuvöruverslanir í Hollandi og nú
stendur til að fara að eiga viðskipti
við það. Forsvarsmenn þessa hol-
lenska fýrirtækis sendu vörurnar frá
Jurtagulli í ítarlega rannsókn og þær
komu mjög vel út. Þetta krefst mikils
undirbúnings við að fara í gegnum
reglugerðir og við höfum t.d. undan-
farið
verið
að láta
þýða
alla miðana yfir á hollensku."
Hrafhhildur segist nota frístundim-
ar með fjölskyldunni. „Svo hef ég
áhuga á öllum mannbætandi málefn-
um, ferðalögum og listum. Það er
gamall draumur hjá mér að læra inn-
anhússarkitektúr og er það ætlun mín
að sækja um skólavist í mjög virtum
skóla í Kaupmannahöfn fyrir næsta
skólaár. Það er mjög erfitt að komast
þar inn svo nú er bara að vona það
besta. Þar sem þetta er fimm ára nám
mun margt breytast hjá okkur í fjöl-
skyldunni ef ég fæ inn-
göngu í skólann. Ég hef
það móttó í lífinu að
láta drauma mína
rætast og ég vil ekki
verða gömul og
segja að ég hefði átt
að gera þetta eða
hitt sem ég
framkvæmdi
aldrei."
Hrafnhild-
Hrafnhildur Njálsdóttir.
DV-mynd Arnheiður
Maður dagsins
ur er fædd og uppalin í Keflavík og
hefur búið þar utan áranna í Dan-
mörku. „Siðan var ég eitt ár
skiptinemi í Ohio-ríki í Bandaríkjun-
um og ég lifi enn á því. Ég var aðeins
sextán ára gömul en það er eitt það
besta sem fyrir mig hefur komið og ég
er mjög náin fólkinu sem ég bjó hjá
þetta yndislega ár.“
Hrafnhildur segir sig langa til að
sérmennta sig í því að setja upp sýn-
ingar. Þær eru henni sérstakt áhuga-
mál og hún hefur unnið til verðlauna
fyrir sýningarbása sem hún hefur sett
upp, nú síðast á handverkssýningunni
í Laugardalshöll. „Ég vona að það geti
nýst mér í arkitektanáminu að hafa
tekið þátt í öllum þessum sýningum."
Eiginmaður Hrafnhild-
ar er Gunn-
ar Már Eð-
varðsson
bygginga-
fræðingur
og eiga
þau tvö
böm.
-A.G.
Ein mynda Magdalenu á sýningu hennar á
Blönduósi.
Réttamyndir
Opnuð hefur verið ljós-
myndasýning Magdalenu
M. Hermannsdóttur í Kaffi-
■Jhúsinu Við árhakkann,
Blönduósi. Myndimar á
sýningunni eru teknar í
réttum í Austur-Húnavatns-
sýslu. Magdalena er fædd
1958 á Blönduósi. Hún
stundaði stúdíóljósmyndun
við Academie voor Fo-
tografie í Hollandi
1993-1995.
Magdalena hefur
tekið þátt í ýms-
um samsýning-
um í Hollandi,
meðal annars
Fotofestival í
Naarden og Den
Haag. Árið 1996
sýndi hún,
ásamt eigin-
manni sínum,
ívari Törak, í Gallerí Hom-
inu og í Amsterdam. Ári
síðar var hún með sína
fyrstu einkasýningu í Gall-
erí Horninu og í júlí síðast-
Sýningar
liðnum sýndi hún portrett-
myndir og myndir af skart-
gripum í Listhúsi Ófeigs í
Reykjavík. Sýningin stend-
ur til 24. október.
Myndgátan
Kveður hvorki kóng né prest Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guð-
finna Eydal stýra námsstefnunni.
Breytingaskeið
kvenna
Námsstefna um breytingaskeið
kvenna verður haldin í kvöld kl.
20 í fyrirlestrasal Norræna húss-
ins. Verður einkum fjallað um:
Hvað gerist sálrænt og líkamlega
á þessum tíma? Hvaða upplýsing-
ar getur kvensjúkdómalæknirinn
gefið konum? Hefur það sérstaka
þýðingu fyrir einkalíf og starf að
vera á miðj--------------
um aidri? Samkoifiur
Er þorf a________________
endurmati og breytingum til aö
njóta sín betur? Álfheiður Stein-
þórsdóttir og Guðfinna Eydal sem
stýra námsstefnunni era sérfræð-
ingar í klínískri sálfræði og hafa
um áratuga skeið veitt konum sál-
fræðimeðferð. Þriðji leiðbeinand-
inn á ráðstefnunni er Anna Inger
Eydal, sérfræðingur i kvensjúk-
dómum.
Viðskipti, verslun og
markaður
í hádeginu á morgun flytur
Helgi Þorláksson, prófessor við
sagnfræðiskor Háskóla íslands,
fyrirlestur sem hann nefnir: Við-
skipti, verslun og markaður.
Fundurinn er haldinn í Þjóðar-
bókhlöðu á 2. hæð kl. 12.05-13.00
og er hluti af fyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags íslands sem nefnd
hefur verið: Hvað er hagsaga?
Þróun heimsmála
í ljósi Biblíunnar
Á námskeiði sem Biblíuskólinn
heldur í kvöld kl. 20-22 og næstu
mánudaga verður þróun heims-
mála í ljósi Biblíunnar skoðuð.
Kennari er Skúli Svavarsson.
Bridge
Danir hafa um árabil átt sterkt
kvennalandslið í bridge og byggja
það á mörgum sterkum pörum. Ein
af stjömunum í dönskum kvenna-
bridge er Susanne Thomsen sem er
núverandi Danmerkurmeistari
kvenna í tvímenningi. Hún sat hér
við stjómvölinn í fjórum hjörtum á
suðurhendina og var fljót að sjá
möguleikann til vinnings í spilinu.
Vömin gætti ekki að sér, enda ekki
beint sjálfsagt að finna leiðina. Út-
spil vesturs var hjartaþristur:
f 653
» D654
* ÁKD
* 875
* KG10
* 83
•f G87642
* ÁD
f Á4
* ÁKG92
•f 953
* G106
Sagnhafi á ekki nema 9 slagi og
fjórir tapslagir hlöstu við. Eina von-
in fólst í því að fá hjálp frá vörn-
inni. Thomsen drap tíu austurs á ás-
inn og spilaði snarlega spaðaás og
meiri spaða. Vest-
im fékk slaginn á
gosann og austur
missti af tækifær-
inu þegar hann
setti lítið spil.
Vestur ákvað að
spila spaðakóngn-
um hlutlaust til
baka en þar með
vora dagar vamarinnar taldir.
Thomsen trompaði heima, tok
tromp einu sinni til viðbótar og alla
slagina í tígli. Síðan var laufi spilað
úr blindum. Vestur fékk á drottn-
inguna, gat tekið á ásinn en varð
síðan að spila upp í tvöfalda eyðu í
tígullitnum. Það hefði dugað vestri
lítt að drepa á ásinn og spila drottn-
ingunni, því austur hefur augljós-
lega ekki efni á að yfirdrepa á kóng-
inn. ísak Öm Sigurðsson