Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Frækileg björgun á skipstjóra Víkings SU 43 sem strandaði við Barða:
Naumlega bjargað
- lá meðvitundarlaus tímunum saman áður en hann gat tilkynnt um strandið
„Við fórum þrír á slöngubát frá
Flateyri á strandstað og það stóð
mjög glöggt að tækist að bjarga skip-
verjanum," sagði Benedikt Gunnars-
son, björgunarsveitarmaðm- frá Flat-
eyri, sem við þriðja mann stóð að
frækilegri björgun aðfaranótt sunnu-
dags með aðstoð félaga þeirra á
björgunarskipinu Gunnari Friðriks-
syni frá ísafirði.
Ekki mátti seinna vera að skip-
stjóranum á Víkingi SU 43 yrði bjarg-
að af strandstað við norðanverða
Krossvík á milli Önundarfjarðar og
Dýrafjarðar. Þegar skipverjar á
Gunnari Friðrikssyni huguðu að
Víkingi SU skömmu eftir björgun
mannsins hafði báturinn brotnað í
spón og nær ekkert var eftir af hon-
um.
„Þegar við komum á staðinn á
slöngubáti frá Flateyri fórum við
tveir, ég og félagi minn, Gunnlaugur
Jónsson, um borð í Víking en þriðji
maðurinn fór frá aftur og lónaði á
slöngubátnum rétt fyrir utan,“ sagði
Benedikt.
„Sá sem stjómaði slöngubátnum,
Sævar Ingi Pétursson, var öllum
hnútum kunnugur á strandstað en
erfitt var að komast að Víkingi í
svartamyrkri og mikið var þama af
skerjum. Skipstjórinn á Víkingi var
slasaður þegar við komum að, hann
„Ég kom út í gróða. Veislustjórinn
okkar og einn besti vinur, Ragnar
Rögnvaldsson, orðaði það þannig í
brúðkaupinu að auglýsingar borgi
sig,“ sagði Haukur Magnússon, við-
skiptafræðingur og ofur-Þróttari,
sem gekk að eiga sína heittelskuðu,
Soffiu Marteinsdóttur, sl. laugardag
eftir sögulegt bónorð. Það varð ekki
aðeins landsfrægt heldur var greint
frá því í blöðum og sjónvarpi erlend-
is. Haukur bað Soffiu nefnilega í
Þessi mynd birtist á skjánum þegar
Haukur bað Soffíu „í beinni".
sjónvarpsauglýsingu í lok ágúst sl.
eins og DV greindi þá frá.
Haukur hafði lengi hugleitt að
bera upp bónorðið með þessum
óvenjulega hætti. Góður vinur hans,
Pétur Jónsson hjá Filmus, ákvað að
aðstoða hann við gerð bónorðs-
filmunnar. Hún var síðan sýnd í
sjónvarpinu. Það kvöld passaði
Haukur að vera ekki heima heldur
dvaldi hjá vini sínum. Eiginkona vin-
arins gerði sér erindi i heimsókn til
Soffiu og kom fyrir upptökuvél svo
lítið bar á. Viðbrögð Soffiu við bón-
orðinu voru þvi fest á filmu.
í erlenda fjölmiðla
Frásagnir af þessu óvenjulega bón-
orði fóra víða. M.a. birtust heilu opn-
urnar í sænskum dagblöðum, Extra-
blaðinu og Svenska Aftenblaðinu. Þá
keyptu tvær þýskar sjónvarpsstöðv-
hafði fengið mikið höfuðhögg þegar
hann fór á fullri ferð upp í fjöruna.
Það hefur verið gifurlegt högg og
hann hefur rotast. Við létum því
skjóta fluglínu úr slöngubát sem var
þama rétt fyrir utan og drógum til
okkar lítinn gúmmíbát frá Gunnari
Friðrikssyni sem búið var að taka
mótorinn af. Við settum skipstjórann
um borð i þann bát og drógum hann
ar, RTL og Sat 1 bónorösauglýsingu
Hauks og svarfilmu Soffiu. Bónorðið
var sýnt í sérstökum þáttum við góð-
ar undirtektir þýskra, sagði Haukur,
sem hefur fengið þættina senda að
utan i heild sinni.
„Ég held að erlendu fjölmiðlamir
hafi komist að þessu í gegnum DV,“
sagði Haukur. „Þegar fréttin hafði
birst þar fór hún á Reuter og síðan
byrjaði boltinn að rúlla. Það var
varla vinnufriður fyrir hinum ýmsu
stöðvum úti í heimi sem voru að hafa
samband."
Enn átti DV eftir að koma við sögu
í tilhugalífinu því fimmtudaginn fyr-
ir rúmri viku birtu vinkonur Soffiu
stóra auglýsingu í blaðinu þess efnis
að hún ætti að vera tilbúin kl. 17
laugardaginn 9. október. Þá kæmu
þær til að „gæsa“ hana.
Ljósadýrð í Viðey
Um helgina gengu þau Soffia og
Haukur svo í það heilaga í Háteigs-
kirkju. Séra Pálmi Matthíasson gaf
brúðhjónin saman. „Eini lösturinn
sem ég sé á honum er að hann skuli
ekki vera Þróttari - hann er Víking-
ur,“ sagði Haukur um prestinn. Eftir
hjónavígsluna var fjölmenn brúð-
Haukur er frægur köttari.
út og þaðan var hann fluttur um borð
í björgunarskipið. Við fóram sömu
leið út í björgunarskipið. Það var sið-
an siglt með skipverjann á Víkingi til
læknisskoðunar á Flateyri. Björgun-
arskipið fór aftur á strandstað en þá
var báturinn mölbrotinn," sagði
Benedikt.
Víkingur SU 43, sem var um 7
tonna nýlegur plastbátur, sendi Til-
kaupsveisla haldin úti í Viðey og þar
héldu stórmerkin áfram að gerast.
„Það var sett i gang alveg sérstök
flugeldasýning. Þeir sem voru að
byggja þessa Kringlu þóttust eitthvað
vera með þetta á sínum vegum en við
litum á þetta sem okkar sýningu. All-
ir gestimir fóru út á tröppur og lásu
hitt og þetta út úr sýningunni. Það
stóð þarna „Haukur og Soffia" og
„Þróttur" og fleira sem flugeldarnir
skrifuðu á himininn," sagði Haukur.
„Norðurljósin lituðu himininn á
þessum óvenjulega fallega degi og
einhver hafði á orði að Þróttur hefði
kostað þau og sett upp.“
kynningaskyldunni orðsendingu um
brottfór frá Skagaströnd kl. 15.30 á
laugardag og var ferðinni heitið tfi
ísafjarðar. Siðast var vitað um ferðir
bátsins er skipstjórinn talaði við eig-
inkonu sína um kvöldmatarleytið og
taldi hann sig þá eiga eftir um 15
mílna siglingu til Bolungarvikur
þangað sem hann hugðist fara.
Klukkan tíu á laugardagskvöldið
hafði Tilkynningaskyldan engar frek-
ari spumir haft af ferðum bátsins og
var lögregla og skip þá beðin að svip-
ast um eftir bátnum. Leitað var í öll-
um höfnum á Vestfjörðum en þegar
það bar ekki árangur var björgunar-
skipið Gunnar Friðriksson kallað út
um kl. tvö aðfaramótt sunnudags.
Björgunarskipið leitaði fyrst á ísa-
fjarðardjúpi fyrir utan Bolungarvík
þar sem líklegast þótti að báturinn
gæti verið og síöan á Aðalvík. Skip-
verjinn á Víkingi tilkynnti síðan rnn
strandið um kl. 5 um nóttina. Líkm-
eru taldar á að báturinn hafi strand-
að um miðnættið en skipstjórinn þá
rotast og ekki getað látið vita af sér i
nokkra klukkutíma.
Skipstjórinn á Víkingi var fluttur
á sjúkrahúsið á ísafirði. Samkvæmt
upplýsingum þaðan í gærkvöldi var
líðan hans eftir atvikum en hann er
ekki talinn alvarlega slasaður.
Haukur og Soffía em nú að undir-
búa brúðkaupsferð sem á að standa í
hálfan mánuð a.m.k. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvert skuli halda. En
þau hafa fengið nokkra æfingu því
peningunum, sem þau fengu fyrir
bónorðsauglýsinguna frá þýsku sjón-
varpsstöðvunum, var varið til að fara
í eins konar „forbrúðkaupsferð" til
Parísar. Og þau tóku vinahjónin frá
auglýsingakvöldinu góða með.
Sá boðskapur sem nýbökuðum
brúðguma er efst í huga eftir við-
burðaríkan tíma er einfaldur: „Þetta
sannar manni að orð skulu standa,
jafnt bónorð sem önnur orð.“ -JSS
Mýrdalsjökull vaknar
Raunvísindastofnun Háskbla
íslands fylgist
nú með 12 sig-
kötlum í Mýr-
dalsjökli. Magn-
ús Tumi Guð-
mundsson hjá
RHÍ sagði aug-
ljóst að Mýr-
dalsjökull væri
að vakna til líf-
isins. RÚV greindi frá.
Rafbyssuárás
Árás var gerð á pitsusendil við
iðnaðarhúsnæði á Seltjamamesi
undir miðnætti á laugardag.
Hafði pitsa verið pöntuð á stað-
inn en þegar sendillinn kom
þangað var ráðist að honum. Kom
maður hlaupandi út úr myrkrinu
og gaf sendlinum rafstuð með raf-
byssu. Árásarmaðurin hafði að-
eins um þúsund krónur upp úr
krafsinu en málið er í rannsókn.
Innbrot í vélsmiðju
Tilkynnt var um innbrot í véla-
verkstæði í vesturbæ Reykjavík-
ur kl. 13.45 í gær. Þar var stolið
miklu af rafmagnsverkfærum. Að
sögn lögreglu er óvíst um verð-
mæti þess sem stolið var en talið
víst að það nemi tugum þúsunda
króna.
• Þá var brotist inn í fjóra sum-
arbústaði í Skammadal í Mosfells-
dal. Brotnar voru rúður og hurð-
ir. Ýmsu lauslegu var stolið.
Njála efst
Brennunjálssaga hafði hlotið
flest atkvæði í
vali á bók-
menntaverki
árþúsundsins
sem lauk á
miðnætti í nótt
á Vísi.is. Ríf-
lega fiórðungar
þeirra sem
höfðu tekið
þátt kusu Njálu. Á eftir komu
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Kiljan
Laxness og Hávamál. Valinu lauk
á miðnætti í nótt. Úrslit verða
kunngjörð í dag.
Ofbeldisdómum fjölgar
Dómum fyrir oíbeldi fiölgaði
mikið í fyrra, eða um 40%, og um
60% síðustu tvö árin. Samt hefur
þeim sem afplánuðu fangelsis-
dóma fyrir ofbeldi fremur fækkað
en Qölgað. Aðeins 15% dæmdra
ofbeldismanna á síðasta ári end-
uðu í fangelsi en langsamlega
flestir sleppa með skilorðsbundna
dóma.
Reykur í Hvalfirði
Bilun varð í hreinsibúnaði
Járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga í gær og lagði mik-
inn kísilreyk upp úr skorsteinum
verksmiðjunnar. Að sögn for-
svarsmanna verksmiðjunnar
varö bilunin vegna rafmagnstrufl-
un. Vísir.is greindi frá.
Skólp í fjöru
íbúar Lambhóls við Ægisíðu
era ósáttir við
frammistöðu
Reykjavíkur-
borgar í hol-
ræsamálum
sínum. Um 25
metra langt
rör er það eina
sem liggm- frá
húsinu og nær
það rétt út i fiöruna fyrir neðan
húsið og fyllist fiaran því iðulega
af skólpi. Viðbrögð borgaryfir-
valda við beiðnum íbúa um var-
anlega lausn á málinu hafa verið
þau að verkið yröi of dýrt. Stöð 2
greindi frá.
Samkomulag
Stéttarfélögin Efling, stéttarfé-
lag, Iðja, félag verksmiðjufólks,
Verkalýðsfélagiö Hlíf í Hafnar-
firði og Verkalýös- og sjómannafé-
lag Keflavíkur hafa gert með sér
samkomulag um undirbúning
kjarasamninga, samræmingu á
kröfum og samstöðu í aðgerðum
ef til koma. Vísir.is greindi frá.
-hdm/H.Kr.
-HKr.
^ Erlendir Qölmiðlar keyptu bónorðsfilmuna eftir DV-frétt:
Eg kom út í gróða
- sagði Haukur Magnússon sem bað unnustunnar í beinni
Haukur og Soffía í gjafa- og blómahafi eftir brúðkaupið. Þau fóru til Parísar
í „forbrúðkaupsferð“ en eiga eftir að ákveða hvert haldið verður í
aðalbrúðkaupsferð. DV-mynd Pjetur