Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999 9 Utlönd Forystumenn verslunarmanna njóta verndar: 25 á dauðalista sænskra nýnasista Forystumenn stéttarfélags versl- unarmanna í Svíþjóð njóta nú lög- regluverndar vegna morðhótana frá nýnasistum. Þrír nýnasistar, sem grunaðir eru um morð á forystu- manni verslunarmannafélagsins síð- astliðinn þriðjudag, hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald. Hinn myrti, Björn Söderberg, var skotinn í höfuðið síðastliðið þriðju- dagskvöld við íbúð sína í Stokk- hólmi. Tveimur dögum seinna hand- tók lögreglan þrjá unga nýnasista. Lögreglan telur að morðið hafi verið hefndaraðgerð. Síðastliðið sumar greindi Söderberg fjölmiðlum frá rúmlega tvítugum nýnasista sem til stóð að gera að trúnaðarmanni. Hann var í staðinn útilokaður frá stéttarfélaginu. Tveir hinna handteknu höfðu í fórum sínum passamyndir af 25 manns sem þeir höfðu safnað frá því í apríl í Vor. Ein myndanna var af hinum myrta. Sænska blaðið Afton- bladet segir að lögreglunni hafi borist vitneskja um að Söderberg hafi verið hótað lífláti sex dögum áð- ur en hann var myrtur. Lögreglan hafi hins vegar ekkert aðhafst. Nýnasistarnir eru sagðir hafa pant- að passamyndirnar á nafni blaða- manns sem særðist í sprengjuárás þeirra i júní síðastliðnum. Pantanir nýnasistanna bárust meðal annars á símbréfum sendum frá Háskólanum í Stokkhólmi. Utanaðkomandi aðili komst yfir nafnalista nýnasistanna og afhenti hann lögreglunni. Heimildarmaður Aftonbladet segir lögreglumanninn, sem tók við listan- um, hafa sagt hann liggja á borði sínu. Hann hafi ætlað að láta annan iögreglumann fá listann en ekki gef- ist tími til. Leif Jennekvist, einn yf- irmanna lögreglunnar, segist myndu hafa fengið vitneskju um listann hefði hann borist. Samkvæmt vini Söderbergs vissi hann ekki að hann væri á dauðalista nýnasista. Vel meó forinn Toyota Touring GLS. Árgerð 1992, ekinn 117 þ. km. Vetrar/sumordekk, útvQrp/kossettutæki og drottorkrókur. Upplýsingorí símo 899 3001 (567 8899 ó kvöldin) TogotQ Touring 4x4 Noor drottning af Jórdaníu og Norodom Kambódíudrottning í Phnom Penh í gær. Noor kom tii Kambódíu í því skyni að ieggja áherslu á stuðning við fórnarlömb jarðsprengna. Símamynd Reuter Borís Berezovskí stal 600 milljón- um dolllara Rússneski fjármálafurstinn Borís Berezovskí dró sér 600 milljónir dollara frá rússneska flugfélaginu Aeroflot, að því er rússneskir rann- sóknarmenn fullyrða. Fullyrðing þeirra var kynnt í hæstarétti í Sviss síðastliðinn fóstu- dag. Upphæðin, sem nefnd var, er þrefalt hærri en áður var talið. Berezovskí er grunaður um að hafa stolið fénu með aðstoð tveggja háttsettra starfsmanna Aeroflot. Leikur grunur á að féð hafi verið fært í gegnum fyrirtæki með stöðv- ar í Lausanna, Andava SA og Forus SA. Svissnesk yfirvöld hafa fryst bankareikninga þeirra í fjórum bönkum. Fyrirtækin neita að vera viðriðin fjármálahneykslið. Fjármáiafurstinn Borfs Berezovskí er í nánum tengslum við Borís Jeltsín Rússlandsforseta. Símamynd Reuter Heimabíóhljómtæki m/5 hátölurum og 3ja diska geislaspilara áðuckr. 44400 kr.29.900 Ferðageislaspilari. heyrnartól, spennubreytir og hleðslurafhlöður. áðurkr. 9.995 kr-4-995 Bíltæki með geisla- spilara. 4x30wött áðurkr.25.500 Ferðatæki með geislaspilara, FM - MB og LB útvarpi. áðurkr. 15.300 Ferðatæki með geislaspilara, FM - MB og LB útvarpi. áðurkr. 12.200 kr-5-995 itrte^gl FM STEREO ámsi 3t1111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.