Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999 Jarðvegsþjöppur Sólgleraugu á | húsið - bílinn Ekki bara glæsileikinn, einnig vellíðan, en aðalatriðið er öryggið! Lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita, 1/3 af glæru og nær alla upplitun. Við óhapp situr glerið (filmunni og því er minni hætta á að fólk skerist. Asetning meðhita - fagmenn ff/ó í /i/: Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 Fréttir Innanlandsflugið síður en svo gróðalind fyrir flugfélögin: Samkeppni í kreppu - virk samkeppni einungis á leiðinni til Akureyrar og Vestmannaeyja Rimma Flugfélags íslands og ís- landsflugs um miðdegisflug til Eg- ilsstaða, sem endaði með ákvörðun Samkeppnisráös 5. október, þykir endurspegla harða samkeppni á mctrkaði fyrir innanlandsflug. Um leið þykir hún sýna að innanlands- flugið er síður en svo gróðalind fyr- ir félögin. Flugfélag íslands ákvað í nýrri vetraráætlun að bjóða upp á mið- degisflug á áætlunarleiðinni Reykja- vík-Egilsstaöir. Sú ákvörðun vakti hörð viðbrögð af hálfu íslandsflugs sem fannst að sér vegið, enda með flug austur á sama tíma. Hjá Is- landsflugi sögðu menn að með fjölg- un ferða væri Flugfélagið að ýta fé- laginu út af þessari flugleið og drepa niður samkeppnina. Fréttaljós Haukur L. Hauksson í rökstuðningi fyrir miðdegisflugi til Egilsstaða sagði Flugfélag íslands að verulegar breytingar heföu orðið á flugmarkaðnum innanlands á þessu ári. Tekist hefði að auka far- þegafjölda frá því sem áður hafi ver- ið og meiri bjartsýni ríkti um flug- reksturinn. Vaxtarbroddur væri á öllum helstu mörkuðum innan- lands, einnig á Austurlandi. Samkeppnisráð tók málið fyrir og ákvarðaði aö Flugfélag íslands væri að brjóta gegn 17. grein samkeppn- islaga, markaðsráöandi fyrirtæki væri að hamla möguleikum minni keppinautar til að veita samkeppni. Það væri sérstaklega alvarlegt þeg- ar haft væri í huga að Flugfélag Is- lands hefði í krafti sérleyfa getað byggt upp sína markaði. Aukið sætaframboð félagsins á þessari flugleið væri til þess fallið að styrkja eöa viðhalda markaðsráð- andi stöðu félagsins. Samkeppni eða frelsi í hnotskurn eru rök hvors flugfé- lags um sig einfóld. Ómar Bene- diktsson, framkvæmdastjóri ís- landsflugs, segir félagið umfram allt vilja samkeppni og fá tækifæri til að koma sér fyrir á markaði þar sem eitt félag hefur haft einokunarað- stöðu i 50 ár. Með miðdegisflugi hafi Flugfélag íslands einfaldlega viljað ná í þá farþegaaukningu sem ís- landsflug hefði staðið fyrir á flug- leiðinni. Jón Karl Ólafsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags íslands, segir að nú ríki frelsi í innanlandsflugi. Hver sem er geti keypt flugvél og byrjað að flytja farþega gegn gjaldi. Hann vill einfaldlega að frelsi gildi fyrir öll flugfélög. Frelsi þýði að ekki sé hægt að setja einu félagi skorður varðandi sætaframboð eins og reynt hafi verið með ákvörðun Samkeppn- isráðs. Svar Flugfélags íslands var að bæta við flugi til Egilsstaða rétt fyr- ir hádegi. Formlega er það ekki miðdegisflug en Ómar Benediktsson segir menn vera að teygja það hug- tak og toga. Ekki er von á að Sam- keppnisstofnun láti til sín taka vegna útspils Flugfélagsins. Ómar segir að innan skamms muni skýr- ast hvort íslandsflug heldur áfram að fljúga til Egilsstaða. Falli samkeppni í flugi til Egils- staða niður má reikna með hækkun flugfargjalda. Sú varð raunin á flug- leiðinni til ísafjarðar eftir að ís- landsflug hætti að fljúga þangað sumarið 1998. Er hætt viö að neyt- endur beri af því skaða leggist sam- keppni af í flugi til Egilsstaða. í járnum Deildar meiningar eru um þátt Scimkeppnisráðs í Egilsstaðaslagn- um en hinu verður ekki neitað að rekstur flugleiðarinnar til Egils- staða er erfiöur þrátt fyrir að hún sé önnur stærst miðað við farþega- fjölda á eftir Akureyrarleiðinni. í greinargerð Samkeppnisráðs segir að eftirspurn eftir miðdegis- flugi hafi verið takmörkuð síðastlið- inn vetur. Og þó að „allir þeir far- þegar Islandsflugs færu yfir á mið- degisflug Flugfélagsins dygðu tekj- umar af þeim ekki til að standa undir beinum kostnaði við hverja ferð Flugfélagsins". Og þó að farþeg- um fjölgaði um 10% í viðbót í vetur mundi sú aukning ekki duga til að mæta því tapi sem verið hefur á miðdegisfluginu til þessa. Þessi nið- urstaða byggist á trúnaðarupplýs- ingum flugfélaganna til Samkeppn- isstofnunar. Fækkun áfangastaða Frelsi I innanlandsflugi var kom- ið á 1997. I kjölfarið lækkuðu far- gjöld verulega en hafa síðan hækk- aö eilítið á ný eins og sést á með- fylgjandi grafi. Þegar frelsi var kom- ið á í innanlandsfluginu höfðu nokkrir áfangastaðir horfið úr áætl- unarflugi félaganna tveggja og sú þróun átti eftir að halda áfram þar sem rekstur minni flugleiöa borgar sig ekki. Nægir í því sambandi að nefna Stykkishólm, Rif, Bíldudal, Þingeyri, Blönduós, Húsavík og Fá- skrúðsíjörð. I dag fljúga flugfélögin tvö frá Reykjavík til fimm aðaláfangastaða innanlands: Akureyrar, Egilsstaða, Vestmannaeyja, ísafjarðar og Hafn- ar. Flugfélag íslands flýgur áfram frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórs- hafnar og Grímseyjar. Islandsflug er auk þess með beint flug til Vestur- byggðar, Gjögurs, Sauöárkróks og Siglufjarðar. Samkvæmt yfirliti Flugmála- Áætlunarflug innanlands Lækkun fargjalda Flugfélags Islands - með tilkomu samkeppnisaðila maí '97 (umreiknaö I prósentur) 100 fjöröur Vestmannaeyjar j I Ágúst 1999 stjómar um breytingar á fjölda far- þega til helstu flugvalla á fyrstu sex mánuðum þess árs miðað við sama tíma í fyrra fjölgaði farþegum til Akureyrar, sem er stærsti áfanga- staðurinn, um 3,4%. Farþegum til Egilsstaða, sem er annar stærsti áfangastaðurinn, fjölgaði um 10% og um rúm 19% til Vestmannaeyja. Hins vegar fækkaði farþegum til ísafjarðar, íjórða stærsta áætlunar- markaðarins, um 7% milli ára. Áhrif samgöngubóta Það er samdóma álit þeirra sem DV hefur rætt við að áfangastöðum muni ekki fækka öllu meira en þeg- ar er orðið. Fjölgun farþega hafl orðið á þessum aðalleiðum og muni halda áfram. Minni áfangastaðir eigi hins vegar í vök að verjast. Og þeir eru einnig sammála um að samgöngubætur, eins og Hvalfjarð- argöngin og betri og fullkomnari bílar, hafi ekki haft áhrif á farþega- fjölda, t.d. til Sauðárkróks og Ákur- eyrar. Hins vegar muni almennar samgöngubætur frekar styrkja kjarna eins og Egilsstaðaflugvöll þar sem umferðarflæði frá ná- grannabyggðum er greiðara en áður. Ríkið með útboð Þróun í innanlandsflugi síðasta áratuginn sýnir að flugrekstur er dauðadæmdur ef farþegafjöldinn er undir 5-10.000 farþegum á ári. Eigi að halda uppi flugi á slíkum leiðum verði ríkið að koma til skjalanna. Fordæmi eru þegar fyrir því að flug á sérstökum leiðum séu boðin út, t.d. sjúkraflug. Útboð á fámenn- um flugleiðum eru vel þekkt fyrir- bæri í Noregi, Svíþjóð og víðar í Evrópu. Þá eru flugleiðir boðnar út til skamms tíma i senn, t.d. þriggja ára. Verð er ákveðið og þá tekið mið af verði á svipuðum flugleiðum þar sem samkeppni er ríkjandi. Þannig er talið að hagur neytenda sé ekki fyrir borð borinn. Dugi tekjur af far- þega- og vöruflutningum ekki til að dekka kostnað við flugið kemur rík- ið til skjalanna og greiðir mismun- inn. Þannig er rikið að viðhalda samgönguleiðum sem ekki þola samkeppni. Þó útboð erlendis mið- ist við flugleiðir þar sem farþega- fjöldinn er undir 100 þúsund þykir ekki fráleitt að miða við 10 þúsund farþega hér. Samkomulag? Ljóst er að samkeppni þrífst ekki eðlilega nema nægur farþegafjöldi sé til staðar. Virk samkeppni er ein- göngu fyrir hendi á flugleiðunum til Akureyrar og Vestmannaeyja en tæplega þriðjungur farþega til og frá Vestmannaeyjum fer með leiguflugi upp á fastalandið. Sam- keppni á í vök að verajst og gæti brátt heyrt sögunni til í flugi til Eg- ilsstaða. Engin samkeppni er á flug- leiðunum til Isafjarðar, Hafnar, Sauðárkróks, Siglufjarðar og Vest- urbyggðar. Því er eðlilegt að spurt sé hvort félögin freistist til þess, beinlínis til að lifa af, að gera heið- ursmannasamkomulag um skipt- ingu markaðarins. Ef svo fer mun fyrst virkilega reyna á Samkeppnis- stofnun enda hagsmunir neytenda í húfl. Farþegar Flugfélags Islands ganga um borð. ftj wp Lni Farþegar Islandsflugs að fara um borð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.