Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999 Fréttir 17 Framtíðarsýn fyrir 21. öldina í þáttaröð á Discovery Channel: Sérstakur þáttur um vetnisvæðingu á íslandi Hjálmar Árnason alþingismaður aðstoðar við gerð þáttar um vetnisvæðingu íslenska samfélagsins sem sýndur verður á Discovery Channel. Myndin er tekin við Svartsengi. DV-mynd AG „Hjónin sem sjá um gerð þessara þátta sáu viðtal við nokkra íslend- inga sem koma að vetnismálum í tímaritinu The New Scientist. í framhaldi af því var ákveðið að gera sérstakan þátt um vetnisvæðingu is- lenska samfélagsins," sagði Hjálmar Árnason, alþingismaður og vetnis- frömuður, í samtali við DV . Þátturinn sem Hjálmar segir frá verður í 15 þátta röð sem verið er að vinna fyrir sjónvarpsstöðina Discovery Channel. Fjalla þættirnir um framtíðarsýn manna fyrir 21. öldina og hvemig hún getur nýst mannkyni. í þættinum um ísland verður skýrt frá því hvernig hug- myndir um nýtingu vetnis komust á rekspöl, út á hvað þær ganga og alla þá orku sem falin er í íslenskri nátt- úru. Sér Saga film um myndatöku hér undir stjórn umsjónarmanna þáttarins. Á dögunum voru þeir myndaðir, Hjálmar Árnason og Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri ís- lenska vetnisfélagsins, þar sem þeir köstuðu flugu fyrir neðan Ægisíðu- foss í Ytri-Rangá. Er meiningin að þátturinn byrji á slíku myndskeiði, sýni íslendinginn úti í náttúrunni með vatnsfaliaorkuna í baksýn. Hjálmar segir þáttagerðarfólkið vera mjög hrifið af landinu og fram- sýni manna hér. Heimsókn að Þor- valdseyri undir Eyjaíjöllum í gær- morgun hafi verið eftirminnileg en bóndinn þar, Ólafúr Eggertsson, er með eigin rafveitu skammt frá bæn- um, auk borholu fyrir heitt vatn. Var sýnt hvernig orkan skapaði ljós og hita inni í fjósi þar sem kornið er þurrkað og kúnum gefið. Var greint frá draumi Ólafs um að framleiða metangas úr kúamykjunni og nota það sem eldsneyti á traktora og bila. „Það er framtíðarsýn eins og þessi sem fjallað verður um í þáttunum," segir Hjálmar Árnason. -hlh Nýtt skip til heimahafnar: Helga María fær nafn fýrsta báts Haraldar Böðvarssonar Séra Eðvarð Ingólfsson, Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Harald- ar Böðvarssonar, og Helga Ingunn Sturlaugsdóttir sem gaf skipinu nafnið Helga María. DV-myndir DVÓ Mikið var um dýrðir þegar nýtt skip Haraldar Böðvarsson hf., Helga María, sem áður hét Haraldur Kristjánsson, kom til heimahafnar á dögunum. Sókn- arpresturinn á Akranesi, séra Eðvarð Ingólfsson, blessaði skipið og áhöfn þess og Helga Ingunn Sturlaugsdóttir, systir Haraldar Sturlaugssonar, fram- kvæmdastjóra HB hf„ gaf skipinu nafn- ið Helga María. Skipið hefur skrásetn- ingamúmerið AK-16. Helga María AK-16 kemur til heima- hafnar. Helga María hin nýja hefur verið í slipp þar sem unnið var að lagfæring- um og endurbótum og heldur skipið .til veiða á laugardag. í áhöfn Helgu Maríu er 27 menn. Skipstjóri er Eiríkur Ragn- arsson og yfirvélstjóri Óli Már Eyjólfs- son. Skipinu var eins og áður sagði gef- ið nafn fyrsta skips Haraldar Böðvars- sonar sem síðar varð aðaleigandi HB & Co. Haraldur fór 11 ára í sinn fyrsta róð- ur og 13 ára varð hann háseti á bresk- um togara. Þann 17. nóvember 1906 rættist útgerðardraumur Haraldar, þá 17 ára, þegar hann keypti sexæringinn Helgu Mariu á 200 krónur, sem hann fékk fyrir aleiguna; hryssu, tvö trippi og folald. í fyrstu veiðiferðinni sópuðu breskir togarar burtu nýju veiðarfær- rrnurn, en hinn ungi útgerðarmaður var kominn á sjóinn aftur eftir hálfan mánuð. Vegna fiskleysis þetta ár flutti Haraldur útgerð Helgu Maríu suður í Varir i Garði og rak hana þar með góð- um árangri allt til ársins 1914. -DVÓ 100 sæti til London fná1 3a8 Helgarferð fná 24. Heimsferðir kynna nú einstök tilboð til heims- borgarinnnar London í nóvember og fyrstu 100 farþegamir sem bóka geta tryggt sér hreint ótrúlegt verð, flugsæti frá aðeins 13.890 krónum. Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og menningarlífi og hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval hótela, frá 2-4 stjama, og að sjálfsögðu nýtur þú góðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Heimsferðir bjóða gott úrval hótela í hjarta London Glœsilegt hótel ihjarta London á frábæru veröi Verðkr 13.890,“ Flugsæti með flugvallarsköttum, 1. nóv., 8. nóv., 15. nóv. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verð kr 24.9909 - Flug og gisting á Bayswater Inn-hótelinu í London með morgunmat. Fylgstu með áFM 95,7 og þú getur unnið sæti til London. Flugvallarskattar innifaldir. Gildir 11. og 18. nóvember. Flug alla fimmtudaga og mánudaga í nóvember y. v HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, 562 4600, www.heimsferdir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.