Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Page 4
4
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Fréttir
Margrét Frlmannsdóttir um brotthvarf Áma Þórs og félaga:
Eiginhagsmunir ráða
DV, Suðurlandi:
„Við höfum lengi átt þennan
draum að sameina vinstrimenn eða
félagshyggjufólk í landinu. Hins
vegar hefur ýmislegt komið í veg
fyrir það, ekki endilega pólitísk
deiluefni. Fyrst og fremst hafa eig-
inhagsmunir verið látnir ráða og
því miður er það hópur vinstri-
manna sem hugsar meira um sjálfa
sig og sinn eigin frama heldur en
málefnin. Núna hefur þetta orðið til
þess að menn hafa búið til vinstri-
flokk til hliðar við Samfylkinguna
en ég vonast nú til þess að seinna
meir komi þessir menn og sjái mik-
ilvægi þess að þessi breiðfylking
verði til, og hún verður til með eða
án þeirra," sagði Margrét Frí-
mannsdóttir, talsmaður Samfylking-
ar, á Selfossi á laugardagskvöldið,
eftir stofnfund Samfylkingarfélags-
ins á Suðurlandi. í Degi á laugardag
gerir Árni Þór Sigurðsson upp sam-
starf sitt við Samfylkinguna og seg-
ir þar meðal annars að vonir um
breiðfylkingu séu brostnar og hún
hafi ekki náð að fóta sig í tilver-
sjá foringja í framvarðasveit Sam-
fylkingarinnar:
„Ég veit ekki hvar hann setur
sína mælistiku, þetta eru svolítið
skrýtnar kveðjur sem hann er að
senda fyrrum félögum sínum. Hann
hefur að vísu tapað prófkjörum
bæði í borgarstjórnar- og alþingis-
kosningum og kannski eimir eitt-
hvað eftir af sárindum," sagði Mar-
grét Frímannsdóttir. Margrét segir
að brotthvarf Áma Þórs og íleiri
manna breyti engu fyrir R-listann i
Reykjavík.
„Vissulega sé ég eftir þeim og
hefði viljað sjá þá áfram með okk-
ur. Það mun hins vegar engu breyta
varðandi störf hvorki Reykjavíkur-
listans né annars staðar á landinu.
Við erum í samstarfi í flestum
sveitarfélögum landsins og R-list-
inn er auðvitað með Framsóknar-
flokkinn lika. Þar hafa menn sam-
einast gegn Sjálfstæðisflokknum og
það er mjög gott og vonandi er það
framtíðin sem við sjáum fyrir okk-
ur í landsmálapólitíkinni. Ég sé
ekki að þetta brotthvarf muni
breyta neinu, Reykjavíkurlistinn
verður jafnöflugur og áður,“ sagði
Margrét.
-NH
Frá stofnfundi samfylkingarfélagsins á Selfossi.
unni. „Þetta lýsir honum meira
heldur en Samfylkingunni vegna
þess að hann virðist ekki hafa lagt
sig fram um að fylgjast með því
starfi sem hefur verið innan Sam-
fylkingarinnar. Pólitikin er ekki
rýr, það höfum við sýnt í störfum
þingflokksins nú þegar. Við erum
með mjög öfluga kjarastefnu, við
viljum beita okkur sérstaklega fyrir
þá sem hafa lökust kjörin í landinu
og við stefnum að mjög góöu sam-
starfi við okkar fólk innan laun-
þegahreyfingarinnar í þeim málum.
í umhverfismálum höfum komið
fram með mjög skýrar línur hvað
varðar dreifða eignaraðild, við höf-
um farið fram á það að utanríkis-
málin verði rædd út frá nýjum
grunni og við höfum komið fram
með markvissa stefnu í byggðamál-
um. Árni Þór er einn af þeim sem
vilja halda inni gömlum gildum sem
voru mjög góð hér á árum áður en
ýmislegt hefur nú breyst síðan þá
þó að hann hafi ekki fylgt með,“
sagði Margrét.
Foringjaleysi?
f viðtalinu i Degi segist Árni ekki
Hetjur hálendisins
vmhri
<
Björgunarsveitir
landsins eru loksins
famar að æfa sig eftir
langt hlé. Skraddarar,
skrifstofumenn og skatt-
stjórar streyma nú til
fjalla í því skyni að
halda rjúpnastofninum í
skefjum sem er þjóð-
þrifaverk þar sem rjúp-
an sækir mjög að beija-
lyngi og öðram gróðri
sem nú á mjög í vök að
verjast. Það er hættuspil
að vemda berjalyngið
með því að drepa rjúp-
una og ófáar hetjur há-
lendisins lenda í háska
við gróðurverndarátak
sitt. Þar koma^ björgun-
arsveitarmenn' til sög-
unnar og bjarga gjaman
náttúruvemdarmönnunum og fá í sömu andrá æf-
ingu i því að leita til fjalla, yli húsa fjær. Það er því
gagn af rjúpnaskyttum í tvennum skilningi - þeir
stuðla að gróðurvemd með fyrirbyggjandi aðgerð-
um og sjá um að halda björgunarsveitarmönnum í
formi. Eitt vandamál er þó enn til staðar. Ekki er
fost læknavakt til fjalla sem nauðsynlega þyrfti þar
sem rjúpnaskyttur eiga það til að slasast við starf
sitt í þágu þjóðarinnar. Rjúpan sjálf er ekki hættu-
leg en hún á það til að beita klókindum sem stefna
lífi og limum veiðimanna í hættu.
Ekki er óalgengt að rjúpa komi sér fyrir í skot-
línu úr tveimur gagnstæðum áttum og þá er voðinn
vís þegar tveir veiðimenn hleypa af í sömu andrá.
Umhverfíssóðinn, rjúpan, getur því allt eins staðið
uppi með lyngið í nefinu en skytturnar tvær verið
óvígar, annaðhvort af sárum eða vegna taugaáfalls
sem er bein afleiðing af lífsháskanum. Landverndar-
átakið getur þvi verið erfitt því hún á það til að vera
ein upp til fjalla. Það þarf því mann á rjúpu til að ná
árangri án þess að stórslasast. Þrátt fyrir að rjúpan
sé mjög neðarlega í lífkeðjunni en rjúpnaskyttan að
sama skapi ofarlega er það ekki mælikvarði á getu
hennar til að komast af. Konungur háloftanna, örn-
inn, var henni lengi skeinuhættur en hún hefur náð
að útrýma honum að miklu leyti með óþekktum að-
ferðum. Svo illa var komið fyrir arnarstofninum að
þjóðin ákvað að friða hann fyrir ágangi og brellum
rfúpunnar og segja þessum bragðgóða hænsfugli
strið á hendur. Það stríð stendur nú sem hæst og
þjóðinni ber skylda til að tryggja svo sem hægt er
öryggi hermanna hálendisins. Fórnfýsi þeirra er
óendanleg og ekki hefur þurft að skikka þá til þjón-
ustunnar við þjóðina og berfalyngið.
Margir þeirra sem lýst hafa áhyggjum af örlögum
gæsanna þegar Eyjabökkum verður sökkt axla nú
byssur sínar og halda á fiöli til verndar gróðrinum.
Það er því hrein og tær ást á lífríkinu sem ræður fór
en ekki veiðieðlið. Þarna þarf ekkert herútkall. Ást-
in á landinu og gróðri þess er slík að sjálfboðaliðar
fara hundruðum saman hvemig sem viðrar um
heiðarlönd og gjarnan kaldir og hraktir. Erfitt er
um bílastæði fyrir alla og því hafa sumir náttúru-
verndarmennirnir orðið að leggja jeppum sínum
utan vega í gróðurreitum sem rjúpan hefur enn ekki
náð að eyða með klóm sínum og goggi.
Björgunarsveitir þurfa að vera stöðugt á vakt og
heimilislæknar verða að skipuleggja reglubundnar
vaktir á öllum fiallahring landsins. Látum hetjun-
um ekki blæða út, yli húsa fiær, í átökunum við
lyngvarginn. Dagfari
PR-mönnum ofboðið
Þeim fiölgar sífellt sem yfir-
gefa alvöru fiölmiðla til að taka
að sér að sfiórna umfiöllun fiöl-
miðla með óbeinum hætti. Mikl-
ir peningar eru í boði fyrir
fréttamenn sem
snúa baki við
fréttamennsku til
að gerast PR-
menn fyrir fyrir-
tæki. Nú hefur
varaformaður
Blaðamannafé-
lags íslands
Þór Jónsson
skorið upp
herör gegn PR-plágunni. Hann
sagði í viðtali við kollega sína á
Bylgjunni að þeir sem væru í
PR-störfum ættu ekkert erindi í
Blaðamannafélagi Islands og
svo var að skilja að henda ætti
þeim út. Þetta sárnar mörgum
góðum PR-drengnum og þeim
ofbýður málflutningur Þórs....
FLAS
Gárungarnir sem koma við í
kaffi á Hótel Loftleiðum eru
baneitraðir í tung-
inni, enda þótt
þeu: seu gestir JommSf
Flugleiða meðan . Mj
þeir renna niður
kaffinu. Þar var
um daginn rætt um
sameiningu Flugleiða og SAS,
og hugsanlegt nafn á barninu.
Flugfélag íslands og Loftleiðir
urðu Flugleiðir. Núna telja
vitringarnir á flugvellinum að
Flugleiðir og SAS verði FLAS,
- samanber máltækið „Ekki er
flas til fagnaðar". Samkvæmt
samheitaorðabókinni þýðir
nafnið: Bráðræði, glópska, ófor-
sjálni, óvarkárni...
Englar í myrkri
Illa gengur að ljúka Myrkra-
höfðingjanum eftir Hrafn
Gimnlaugsson og allar líkur á
að frumsýningu verði ekki á
næstu vikum en
þann um næstu
mánaðamót
rennur út frest-
urinn fyrir for-
val vegna Ósk-
arsverðlauna.
Friðrik Þór
Guðmunds-
son hefði vilj-
að klára Myrkra-
höfðingjann sem þá hefði keppt
við Ungfrúna góðu um útnefn-
ingu til Óskarsins. Þess í stað
munu væntanlega Englar alm-
heimsins eftir Friðrik og
Myrkrahöfðingi Hrafns bítast
um útnefningu að ári.
Ungfrúin verður þvi að öllum
líkindum sjálfkjörin.
Reiknimeistarinn
Áhugamönnum um talna-
speki og reikningslist er enn í
fersku minni þegar úrsagnar-
hrina Steingríms J. Sigfús-.
sonar og félaga gekk yfir Al-
þýðubandalagið. Líta menn þá
helst til framgöngu þáverandi
framkvæmdarstjóra flokksins,
Heimis Más
Péturssonar,
sem hafði þau
orð við brott-
hvarf þeirra fé-
laga að fleiri
hefðu gengið í
Alþýðubanda-
lagið en úr
því. Eitthvað
virðast þessir
liðsmenn hafa lagt lítið til mál-
anna þar sem allaballar biðu af-
hroð í prófkjörum um allt land
og ekki var nú árangur Sam-
fylkingarinnar í kosningum
neitt til að hrópa húrra fyrir.
Notaði forsætisráðherra þá
meðal annars tækifærið og rifi-
aði upp þessi orð Heimis Más,
Samfylkingunni til háðungar.
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandltom íáfT. is