Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
Fréttir
Fíkniefnamál tíumenninganna sem sitja í gæsluvarðhaldi að skýrast:
Möguleiki að ákært
verði aftur í tímann
- rannsóknin beinist m.a. að fjölda smyglferða á a.m.k. 12 mánaða tímabili
Lögreglan útilokar ekki að fleiri
veröi handteknir í stóra fíkniefna-
málinu. Níu menn eru í haldi fikni-
efnalögreglunnar en ríkislögreglu-
stjóri rannsakar þátt tíunda manns-
ins sem síðast var úrskurðaður í
gæsluvarðhald
Lögreglan segir að játningar liggi
fyrir hjá þeim sem inni sitja. Hins
vegar heldur rannsókn þessa um-
fangsmikla máls áfram - innflutn-
ingur, sala og dreifing efnanna, fjár-
mögnun og eignamyndun af fikni-
efnagróðanum. Athygli vekur að
smyglleiðin Kaupmanna-
höfn/Reykjavík er talin hafa verið
notuð í að minnsta kosti heilt ár
áöur en málið komst upp. Um það
hve tíðar smyglferöirnar í gámum
voru liggur ekki fyrir. Á hinn bóg-
inn telur lögreglan að á annað
hundrað kíló af fíkniefnum hafl ver-
ið flutt á þessari leið - þar af veru-
legur hluti af sterkum fíkniefnum.
í þessu sambandi segir lögreglan
að þegar upp verði staðið sé mögu-
legt að einhverjir af tíumenningun-
um verði ákærðir fyrir innflutning
á mun meira magni en lagt hefur
verið hald á.
Mál þetta er um margt farið að
minna á svokallað málningardósa-
mál. Þar voru tveir menn ákærðir
fyrir að flytja hátt í 70 kíló af hassi
til íslands með Eyrarfossi og Ála-
fossi í tíu ferðum á tímabilinu des-
ember 1985 til nóvember 1987. Þá
lagði lögreglan einungis hald á efni
sem komu í tíundu og siðustu ferð-
inni - 10,7 kíló af hassi. Mál tíu-
menninganna er miklu alvarlegra,
ekki síst vegna þess að þar er inn-
flutningur ekki aðeins á tugum
kílóa af hassi heldur einnig á miklu
magni af sterkum og hættulegum
fikniefnum sem dómstólar hafa tek-
ið hart á á síðustu misserum.
Lögreglan hefur lagt hald á fjár-
muni, bíla og fasteignir fyrir meira
en 70 milljónir króna. Þar er um að
Hörð gagnrýni á R-lista á framsóknarþingi:
Kennaramal
í ólestri
Hörð gagnrýni kom fram á borg-
arfulltrúa R-listans og borgarstjóra
á kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins um helgina vegna stöðu
kennaramála í Reykjavík. Einn
þingfulltrúa, Sigfús Ægir Ámason,
sagðist ekki sáttur við það sem for-
eldri að bamið sitt heföi verið kenn-
aralaust þegar það kom heim úr
skólanum í haust. Síðan hefði rúm-
lega tvítugur kennari fengist til að
kenna bekknum.
„Ég er ekki sáttur við að borgar-
yfirvöld í Reykjavík sætti sig við
það að ómenntaðir aðilar séu bama-
kennarar í borginni. Borgaryfirvöld
virðast horfa á það þegjandi að
kennarar séu tíndir út úr skólunum
vegna boða um betri kjör en bregð-
ist ekki við vandanum. Smám sam-
an getur þetta þýtt að einu kennar-
arnir í Reykjavík verði þeir sem fá
hvergi annars staðar vinnu. Ástæð-
una fyrir þessu tel ég vera þá að
þeir sem era að ráða þetta fólk í
vinnu hafa ekkert um kaup og kjör
að segja. Það em einhverjir allt aðr-
ir sem stjóma peningamálunum.
Það er miklu nær að hinir síðar-
nefndu sjái um ráðningamcU' i stað
þess að henda þeim í skólastjórana
sem mega ekki ráða nokkmm sköp-
uðum hlut.“
Sigfúr Ægir kvaðst eiga son í 7.
bekk sem væri nú með sinn 6.
kennara. Svo ætti hann son í 4.
bekk sem væri að fá 5. kennarann
sinn núna.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi R-lista, kvaðst vísa gagnrýni
Sigfúsar Ægis til föðurhúsanna.
Reykjavíkurborg hefði sett 330
milljónir, til viðbótar við kjara-
samninga, í skólana. 75 kennara-
stöðum, umfram almenna bekkjar-
kennslu, hefði verið bætt við.
Landlægur skortur hefði verið á
kennurum en nemendum hefði
fjölgað. Samkvæmt niðurstöðum
athugunar nefndar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og mennta-
málaráðuneytisins yrði viðvarandi
skortur á kennaramenntuðu fólki
næstu 4-5 árin. -JSS
ræða ætlaðan gróða af fikniefnasölu
hér á landi. Þegar og ef ákærur
verða gefnar út í því sambandi mun
í fyrsta skipti reyna á fyrir dómi ný-
legt ákvæði í lögum þar sem lög-
reglu er heimilað að leggja hald á
eignir sem talið er að hafi verið afl-
að með ólögmætum hætti.
-Ótt
DV-mynd Arnheiður
Þak hefur verið sett á fjölnota íþróttahúsið í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær:
Fjölnota íþróttahúsiö heiti Reykjaneshöll
DV, Suðurnesjum:
Markaðsráö Reykjanesbæjar
hefur ákveðið að fara þess á leit
við bæjarstjóm að „Reykjaneshöll-
in“ verði nafnið á nýja fjölnota
íþróttahúsinu. Nafnið hefur verið
samþykkt af eigendum hússins. Á
alþjóðavettvangi yrði nafnið
„Reykjanes Arena“ notað sem
nafn á húsið.
-A.G.
Ótraustar fréttir Sunday Times
- Ólafur Ragnar Grímsson sagöur fyrrum bóndi
Eitthvað virðist vanta á heima-
vinnuna hjá tveimur blaöamönnum
Sunday Times sem halda því fram í
grein í blaðinu í gær að Ólafur
Ragnar Grímsson sé fyrrverandi
bóndi. í því sambandi er í gæsalöpp-
um haft eftir fyrmrn eiginmanni
Dorrit Moussaieff að sér þyki ólík-
legt að hún muni giftast forseta ís-
lands. Fjölskylda hennar sé miklu
ríkari en ísland og þú myndir aldrei
sjá hana á bak við plóg!
Blaðið greindi frá því að híinn 56
ára forseti, og fyrmm bóndi, hefði
sagt sjónvarpsáhorfendum að hann
væri að þróa nýtt ástarsamband.
Nokkrum dögum síðar hefði hann
„fallið aftur“. Þá af hesti þegar þau
Dorrit hefðu farið í útreiðartúr þar
sem myndir voru teknar af þeim.
Þessar „fréttir" em í raun niður-
lag greinar sem að öðru leyti fjall-
ar í aðalatriðum um hve Dorrit
Moussaieff sé auðug. Þannig hafi
hún nýlega selt hlutabréf fyrir um
5 milljarða íslenskra króna í
stærstu skrifstofubyggingu Bret-
lands - Canary Wharf. Dorrit er í
greininni sögð búa í 240 milljóna
króna húsi við Cadogan Square í
London. Sunday Times greinir frá.
því að fjölskylda Dorritar eigi sér
aldagamla sögu í Jerúsalem - fólk-
ið er sagt á meðal 350 efnuðustu
íbúa Bretlands.
-Ótt
n
l|í nintendo64
GAMEBÖf
AEG
__ Manchester United
- sameiginleg sigurganga frá 1982
' SHAfíP hetw r*ríd aöa&yrktatadili Uáncestar Un/tad Irí 1982
Nöfn allra þeirra sem kaupa SHARR Aoneer AEG tækl eða aðrar vörur
fyrir að lágmarki 10.000 kr., frá Bræðrunum Ormsson, eða hjá umboðsmönnum,
komast í lukkupott sem dregið verður úr í desember næstkomandi.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum
O Þrír farseðlar á leik Manchester United í Manchester í byrjun næsta árs.
(Innifalið: Flug, gisting, morgunveröur og miðar á leikinn).
O 2 flugmiðar til Akureyrar með íslandsflugi og gistinótt á Fosshótel KEA
G 5 stk. Game Boy Color
O 10 SHARP-bolir
O 100 stk. Nintendo Mini Classics
Alls eru 120 vinningar í Lukku-pottinum. Þú kaupir SHARP, PIONEER, AEG tæki eða aðrar
vörur að verðmæti 10.000 kr., á tímabilinu sept.-des. og ferð í Lukku-pottinn (fyllir út miða
með nafni og heimilisfangi). Gildir hjá Bræðrunum Ormsson og hjá öllum umboðsmönnum.
OYAMAHA jamo 0mDesir Fuuux Nikon LOEWL sw®ca CNinrendo)
B R Æ Ð U R N I R
(©] ORMSSON
Lógmúlo 8 • Sími 530 2800
/uiosCopco TEFAL